Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1993, Blaðsíða 10
10
Útlönd
Bandaríska
mannætan Dah-
mervill meira
Jeffrey Dahmer segir að hann
muni taka upp fyrri iðju fái hann
frelsi á ný. Dahmer var á síðasta
ári dæmdur Í999ára fangelsi fyr-
irmorð á 17 drengjum og ungling-
um. í sumum tilvikum át hann
fórnarlömb sin.
í viðtah við bandaríska sjón-
varpsstöð sagði Dahmer að hann
mundi aldrei breytast og hefði
enn sama hug og áöur á að kom-
ast yfir drengi. Hann sagðist hafa
elskað öll sín fórnarlömb. Dreng-
ina hefði hann myrt til að geta
haft þá lengur hjá sér.
kvennaáráð-
stefnu
Rannsóknarnefnd í bandariska
flotanum heftir komist að þeirri
niðurstöðu að flugmenn á vélum
flotans hafi farið út fyrir öil vel-
særaismörk á ráðstefnu sem félag
þeirra stóð fytir í Las Vegas árið
1991.
Á ráðstefnimni voru flugmenn;
af báðum kynjum og leystist hún
að sögn upp 1 kynsvall. Karlamir
Iiafi haft forystuna um nektar-
sýningar en konurnar tekið þátt
í uppákomunum. Á kvöldin og
nóttunni hafi allt farið úr bönd- :
unum með íjöldasamíörum á hót-
elherbergjum.
Mál þetta hefur orðið til þess
að flotastjómin vill herða kröfur
um siðsemi þeirra sem gegna her-
þjÓnUStU. Reuter
Særð önd fær Japani til að gleyma öHum áhyggjum:
Vakna um nætur til
að frétta af öndinni
„Þetta var á heitum sunnudegi og
margir sáu öndina koma fljúgandi
með örina í bakinu,“ segir borgar-
starfsmaður í Tokyo í Japan. Hann
hefur það verkefni ásamt mörgum
starfsbræðrum sínum að góma önd-
ina sem fengið hefur Japani til að
gleyma öllum öðrum áhyggjum.
Sjónvarpsáhorfendur rísa upp um
miðjar nætur til að fá nýjustu fréttir
af hvemig gengur að góma öndina.
Hún sást fyrst á polli í borginni í síð-
asta mánuði. Hún er mjög hrædd við
menn og stygg enda með slæma
reynslu af viðskiptum við mann-
skepnuna.
Kunnugir segja að framhaldssagan
um öndina jafnist á við bestu sápuó-
pem. Langt sé síðan sjónvarpsefni
hafi vakið meiri athygli í Japan.
Dýralæknar hafa verið kallaðir til
álits um líðan andarinnar og óttast
þeir að örin hafi skaddað annað nýra
hennar.
Öndin virðist eiga létt með flug
þrátt fyrir örina, hún hefur flutt sig
milli andapolla í Tokyo. Veldur flakk
andarinnar því að erfiðlega gengur
að góma hana.
Náttúrufræðingar segja að hafa
verði hraðar hendur við að ná önd-
inni og losa hana við örina því senn
fari endur, sem hafa vetursetu í Jap-
an, að huga að farflugi á norðurslóð-
ir til varps.
Reuter
öndin með ör í bakinu hefur sett allt á annan endann í Japan. Borgarstarfs-
menn í Tokyo elta hana á röndum með sjónvarpsmenn á hælunum en
hálf þjóöin situr sem límd við skjáina og bíður leiksloka. Símamynd Reuter
Uppboð á lausafjármunum
Eftir kröfu Friðriks J. Arngrímssonar hdl., v/Hampiðjunnar hf. og Bridon
Fisching Ltd., fer fram uppboð á eftirfarandi lausafjármunum þriðjudaginn
16. febrúar nk. kl. 10.15 þar sem lausaféð er staðsett að Suðurströnd 4,
Seltjarnarnesi.
Seld verða m.a. ýmiss konar veiðarfæri, svo sem togvírar, snurpuvír, granda-
vír, vinnuvír, blýtóg, snurvoðartóg, trollkúlur, keðjur, lásar, lim, þorskanet,
trollnet, polyvalent, toghlerar og loðnu- og síldarnótarefni, allt talið eign
Asiaco hf.
Greiðsla við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN i REYKJAVÍK
Uppboð á lausafjármunum
Að kröfu Einars Gauts Steingrímssonar hdl. verður haldið uppboð 17. febrú-
ar nk. kl. 14.00 hjá Þórkötlustöðum hf., kt. 601290-1389 (áður Hraðfrysti-
hús Þórkötlustaða), á Toyta rafmagnslyftara 2,5 tn og Baader 99 flökunar-
vél og Baader 419 hausunarvél, síldarflökunarvél VMK með hausara ásamt
fínhreinsunartækjum fyrir loðnuhrogn. Uppboðið verður haldið að starfs-
stöð fyrirtækisins að Þórkötlustöðum í Grindavík.
Vænta má að greiðsla verði áskilin við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN í KEFLAVÍK
5. febrúar 1993
Uppboð á lausafjármunum
Að beiðni Jóns Sigfúsar Sigurjónssonar hdl., skiptastjóra þb. Kópu hf.,
verða eftirtaldir munir, sem tilheyrðu lifrarbræðslu fyrirtækisins, seldir á upp-
boði sem fram fer þann 16. febrúar 1993 kl. 11.00 að Bolafæti 9, Njarð-
vík. Lifrarbræðslan samanstendur af eftirtöldu lausafé: þróartanki, tveimur
tveggja tonna bræðslukörum, grútarkassa með tætara, dælu, mjölskilvindu-
kút (1 tn), mjölskilvindu, sigti, tveimur forhitunarkútum fyrir skilvindu (Tit-
an 70), tveimur 8 tn stöðutönkum og 20 tn geymslutanki.
Vænta má að greiðsla verði áskilin við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN í KEFLAVÍK
5. febrúar 1993
Uppboð
á lausafjármunum
Að kröfu Ásgeirs Jónssonar hdl. verður haldið uppboð þriðjudaginn 16.
febrúar 1993 kl. 16.00 aðTjarnargötu 3, Keflavík, á ýmsum lausafjármunum
sem fylgja rekstri myndbandaleigu, m.a. u.þ.b. 560 áteknum myndbands-
spólum og tómum hylkjum, Lazer Turbo XT tölvu, Tele Video skjá, Sharp
og Omrom afgreiðslukössum, Taylor ísvél, Ignis ísskáp, afgreiðsluborði fyr-
ir sælgæti úr álprófílum og gleri, innréttingum og stöndum fyrir myndbands-
spólur og fleira.
Vænta má að greiðsla verði áskilin við hamarshögg.
Sýslumaðurinn I Keflavík
5. febrúar 1993
Sjö hundruð Danir
létu lífið í sovésk-
um fangabúðum
Tæplega sjö hundruð danskir fang-
ar týndu lífi eöa hurfu á annan hátt
í sovéskum fangabúðum á árum
heimsstyrjaldarinnar síðari eða að
henni lokinni á meðan dönsk stjóm-
völd horföu meira eöa minna að-
gerðalaus á.
Þetta kemur fram í skjölum sem til
þessa hafa verið lokuð en sem frétta-
stofa danska sjónvarpsins og blaðið
Berhngske Tidende hafa fengið að-
gang að.
Samkvæmt skjölunum höfnuöu 697
Danir í sovéskum fangabúöum á
meðan á styijöldinni stóð eða á árun-
um þar á eftir, þar af voru 240 sak-
lausir Danir sem voru á sovésku yfir-
ráöasvæði þegar Stalín dróst inn í
styrjöldina áriö 1941.
Annars voru það Danir sem gegndu
herþjónustu í sveitum Hitlers sem
voru sendir í fangabúðimar. Til
þessa hafa örlög þeirra veriö gleymd
og geymd á rykföllnum hillum í hér
um bil hálfa öld.
Það kemur einnig í ljós aö dönsk
stjómvöld hafa gert ákaflega lítið til
að fá Danina látna lausa eða til að
afla upplýsinga um þá. Samkvæmt
fréttum sjónvarpsins finnast sann-
anir fyrir því í skjölunum að norsk
stjórnvöld hafi eftir stríðið reynt að
fá Norðmenn, sem sátu í fangabúð-
unum, leysta úr haldi. Hins vegar
finnst ekki snefill um að dönsk yfir-
völd hafi sýnt máhnu áhuga.
í utanríkisráðuneytinu var skýrt
frá því í gær að Niels Helveg Peter-
sen utanríkisráðherra vildi ekki tjá
sigumskjöhnfyrrenídag. Rítzau
Aspirín gott fyrir hjartað
Ein tafla af aspiríni á dag getur
komiö í veg fyrir hjartaáfoll en vís-
indamenn vara þó viö því að lyfið sé
ekki hollt fyrir alla.
í nýrri skýrslu, sem birtist í blað-
inu Circulation, málgagni banda-
ríska hjartavemdarfélagsins, í dag
era staöfestar fyrri niðurstöður að
aspirín sé áhrifamikið lyf við með-
ferð hjartaáfalla og til að koma í veg
fyrir annað áfall.
En regluleg neysla aspiríns getur
einnig haft alvarlegar aukaverkanir
í fór með sér, einkum hjá fólki sem
hefur haft lifrar- eöa nýmasjúk-
dóma, magasár, blæöingar í melting-
arfæmm eða vandamál vegna ann-
ars konar blæðinga.
„Ailir eiga aspirín í lyfjaskápnum
en þetta er ekki hættulaus lækninga-
aðferð,“ sagði Pantel Vokonas, pró-
fessor í læknisfræði við læknaskóla
Bostonháskóla.
í skýrslunni era nýjar viðmiöunar-
reglur sem eiga að auðvelda læknum
að ákveða hvenær gagnið af daglegri
notkun aspiríns vegur þyngra en
hætturnar.
„Það virðist skynsamlegt að mið-
aldra og eldri menn noti aspirín ef
hættan á að þeir fái hjartaáfall í
fyrsta sinn er nægilega mikil til að
það réttlæti hugsanlegar aukaverk-
anir viö langvarandi notkun lyfs-
ins,“ skrifuöu höfundar viðmiðunar-
reglnanna.
Vísindamenn em enn að kanna
áhrif notkunar lítilla skammta af
aspiríni hjá miöaldra konum.
Reuter
ÞRIÐ JUDAGUR 9. FEBRÚAR1993
vijjaaiikafjár-
veitingufrá
Danmörku
Emil Abelsen, fiármálaráð-
herra á Grænlandi, hefur farið
þess á leit við starfsbróður simi
í Danmörku að framlag Dana
verði aukiö fram tíl 1996. Abelsen
segir að fjárhagur Grænlendinga
sé nú svo slæmur að ekki verði
hjá því komist að biðja um meiri
peninga.
Viðræður Abelsens og Mogens
Lykketoft, fiármáiaráðherra
Dana, hófust nú fyrír helgina.
Abelsen segir að mjög hafi dregið
úr þorskveiðum við Grænland
síðustu ár og verð á rækju failið.
Því hafi fyrri áætlanir um rekst-
ur landsjóðsins brugðist.
ónumúrbanka
meðsíma
Lögreglan í Sönderborg á Jót-
landi hefur handtekið rúmlega
þrítuga konu og gefur henni að
sök aö hafa rænt 12 milljónum
danskra króna úr banka. Þetta
er jafnvirði utn 120 milljóna ís-
lenskra króna.
Konan ■ sat viö símann heima
hjá sér þegar rániö var fratnið.
Vegna þekkingar á tölvukerfi
bankans tókst henni að flytja
peningana á eigin reikning með
símann einan að vopni.
Tvöföldummorð-
ingja neitað um
framsal til heima-
landsins
Dómsmálaráðuneytið danska
hefur haíhaö kröfu Makedóníu-
mannsins Naum Coneveski um
framsal til heimalandsins. Cone-
veski hefur setiö í fangelsi i Dan-
mörku frá árinu 1985 þegar hann
var fundinn sekur um morö á
tvemur drengjum á Amager.
Coneveski hefur sótt fast aö
fara heim eftir að landar hans í
Makedóníu lýstu yfir sjálfstæði
með hruni Júgóslavíu. Hann á
konu og böm í Makedóníu.
Clintonfyrsti
Bandaríkja-
forsetinntil
Danmerkur?
Danir gera sér vonir um að BiU
Clinton komi og heimsæki þá á
þéssu ári. Utanríkisráðherrann,
Niels Helveg Petersen, er i for-
sæti hjá Evrópubandalaginu og
til sendur að leiðtogar þess ræði
við Bandaríkjaforseta um ágrein-
ignsmáiin á árinu.
Danir telja eðlilegt aö fundur-
inn veröi haldinn hjá Niels Hel-
veg. Bandariskur forseti hefur
aldrei komið til Ðanmerkur.
Eistneskurkon-
ungssinnivill
Kaile Kulbok, leiðtogi ílokks
konungssinna í Eistlandi, hefur
boðiö Karli Filipusi, prinsi af Sví-
þjóð, að veröa konungur Eist-
lands. Karl ér 13 ára og annar í
sænsku erfðaröðinni.
Kalle Kulbok hefur einnig sent
áskomn við Noregs, Danmerkur
og Svíþjóðar. um að sendur verði
her til landsins svo auðnast megi
að hrekja setulið Rússa á brott.
Konungssinnar hafa átta af 101
þingsæti á eistneska þingittu.
Þeir vilja nána samvinnu við
konungsrikin á Norðurlöndum.