Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1993, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1993, Side 15
ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1993. 15 Almannarétt verður að virða „Feröamálaráð gæti vissulega sinnt öllum verkefnum sínum með sóma, ef það fengi að hafa sinn lögboðna tekju- stofn í friði, þ.e. 10% af árlegri vöru- sölu Fríhafnarinnar 1 Keflavík.. formaður Ferðamálaráðs skemmdir og hindra frekara tjón,“ segir í greininni. Ferðamennska getur verið skeinuhætt viðkvænui náttúru ís- lands, ef ekki er vel að gáð. Margir fjölsóttir ferðamannastaðir liggja undir skemmdum vegna ágangs. Dimmuborgir og Dyrhólaey eru ekki einsdæmi, þótt þeir staðir séu nú í brennideph vegna hugmynda um gjaldtöku til að mæta kostnaði við verndun þeirra. Þar og miklu víðar er þörf aðgerða til þess að laga skemmdir og hindra frekara tjón. Ekki er hægt að áfellast heima- menn á þessum stöðum, þótt þeir íhugi leiðir til úrbóta, jafnvel gjald- töku eða lokanir, þegar opinberir aðilar sýna ekki nægilegan vilja eða getu til þess að taka á málum. En almannarétt til að njóta náttúru landsins verður að virða. Ekki skortir skyldur — Lög um skipulag ferðamála leggja þær skyldur á herðar Ferðamála- ráði íslands að hafa „frumkvæði aö fegrun umhverfis og góðri um- gengni á viðkomu- og dvalarstöð- um“ ferðafólks og „samstarf við einkaaðila og opinbera aðila um snyrtilega umgengni lands í byggð- um sem óbyggðum". Ráðinu er skylt að hafa samstarf við Náttúru- verndarráð og aðra hlutaðeigandi um „að umhverfi, náttúru- og menningarverðmæti spillist ekki“ af völdum ferðamennsku. Til þess að geta sinnt þessum verkefnum af myndarskap veitti ekki af öllum þeim 68 milljónum króna, sem Ferðamálaráð hefur til ráöstöfunar nú í ár, til ahra þeirra verkefna, sem talin eru upp í 13 hð- um í lögum um skipulag ferðamála. Meðal þeirra eru landkynning og markaðsmál, sem kosta mikið fé í þeiiri gallhöröu samkeppni um ferðamanninn, sem ríkir í heimin- um. — en fjárskortur hamlar Ferðamálaráð gæti vissulega sinnt öhum verkefnum sínum með sóma, ef það fengi að hafa sinn lög- boðna tekjustofn í friði, þ.e. 10% af árlegri vörusölu Fríhafnarinnar í Keflavík, sem er óbein skattlagn- ing á ferðamenn. Sá tekjustofn hefði skilað nær 180 núllj. kr. í ár, en meirihluti Alþing- is skar hann niður við trog, svo sem venjan hefur verið sl. 16 ár. Þannig skilar sér seint hástemmd umræða um möguleikana í ferðaþjónustu. Víða tekið til hendi Þrátt fyrir þrönga stöðu hefur Ferðamálaráð aukið verulega starfsemi á sviði umhverfismála síðustu þrjú árin. Ráðið hefur nú umhverfisfræðing í sinni þjónustu, sem fer um landið, kannar ástand ferðamannastaða, ræðir við heima- menn og gerir tillögur um úrbæt- ur. Styrkir eru veittir samkvæmt umsóknum og ráð gefin við fram- kvæmdir, sem oftast eru unnar af sjálfboðahðum. Víða hefur verið tekið til hendi að undanfómu með góðum ár- angri, umferð beint í ákveðna far- vegi, lagðir göngustígar, byggðar tröppur, merktar slóðir, settar upp leiðbeiningar og komið upp snyrti- aðstööu. Þetta þarf þó að gera miklu víðar og betur, en það kostar fé, og þar er dragbíturinn. - en betur má Helsta aðdráttarafhð í íslenskri ferðaþjónustu er sérstæð náttúra landsins, og því er verndun hennar ekki síður hagsmunamál þessarar atvinnugreinar en t.d. landeigenda eða óháðra náttúruunnenda. Vonandi vekur umræðan nú til umhugsunar um þá lagalegu og' siðferðilegu skyldu, sem hvílir á okkur öllum að skila þessu landi hehu í hendur afkomenda okkar. Kristín Halldórsdóttir Hækkun dollarans Hækkun doharans staðfestir það sem margir áttu von á, styrkingu bandarísks efnahagslífs. Hagvöxt- ur í Bandaríkjunum hefur heilla- vænleg áhrif á alla heimsbyggðina. Sterkasta hagkerfi heims sogar th sín framleiðslu annarra ríkja og efhr atvinnu og velmegun. Ekki má heldur gleyma því að Bandaríkin gáfu Evrópu, Japan og fleiri þýðingarmikinn frið, þar sem iðnaöur og verslun fékk að dafna öhum th góða. Kalda stríðið krafð- ist hins vegar gífurlegra herút- gjalda og undir lokin setti það Sov- étríkin á hausinn. Bandaríkin end- uðu sem skuldugasta ríki veraldar. Að vísu geta Bandarikin greitt hluta af sínum skuldum með doh- araprentun, en th langframa rýrir þaö stöðu doharans sem alþjóða- myntar og dregur þannig úr heims- viðskiptum, ásamt því að valda al- þjóðaverðbólgu, með þeim erfið- leikum sem slíkt skapar. Því skiptir það miklu máh að Bandaríkin dragi úr hinum fræga fjárlagahaha sínum á réttan hátt og minnki erlenda skuldasöfnun. Bandarískur hagvöxtur og íslensk velferð Aukinn hagvöxtur í Bandaríkj- unum hefur gífurleg áhrif hér á landi. Frystihúsavæðing landsins í sjávarútvegi var gerð fyrir Banda- ríkjamarkað og styrking doharans þýðir að meira fer í freðfisk og minna í fisksölur, sem hefur bein KjaUaiiim Guðlaugur Tryggvi Karlsson hagfræðingur áhrif á atvinnustigið í landinu. Sú uppsveifla fyrir heimsvelferð, sem hinn bandaríski hagvöxtur hefur, mun einnig kaha á aukna eftir- spurn eftir málmum og orku og eykur það líkurnar á löngu tíma- bæru nýju álveri hér á landi, og er nánast forsendan fyrir því að efna- hagur okkar taki kipp upp á við og útrými atvinnuleysinu. Við dælum nú þúsundum gíga- vattstunda af rafmagni í jörðina á ári og óhagkvæmnin af þessu er svo gífurleg að varla er hægt að búast við svo öflugum sjávarútvegi að hann einn geti unnið á móti þessu. Sala á þessari orku á ein- hverju viðunandi verði myndi strax verka sem vítamínsprauta á efnahag okkar og styrking dohar- ans skapar vonir um að það muni takast. Kynnumst Bill Clinton forseta Óneitanlega vekur þankagangur um doharann áhuga á tengslum Bandaríkjanna og Islands. Við er- um tengd þessu mesta stórveldi veraldar mjög nánum böndum. Stigum fyrstir indó-evrópskra þjóða á ameríska grund fyrir þús- und árum og erum með tvíhhða vamarsamning við Bandaríkin innan Atlantshafsbandalagsins. Við eigum efnahagslegt og þannig stjómmálalegt sjálfstæði okkar að þakka ipjög svo ábatasömum viö- skiptum við Bandaríkjamenn, auk þess sem þeir studdu okkur í land- helgismálinu gegn gömlu heims- veldunum í Evrópu. Enginn einn maður hefur örlög veraldarinnar eins í hendi sér og Clinton, þ.m.t. okkar eigin lands. Þessi ungi forseti hefur nú þegar glætt atvinnu í frystihúsunum okk- ar, hann hefur hvalveiðar okkar á valdi sínu og þannig mhljarða tekj- ur fyrir okkur ásamt uppbyggingu á Keflavíkurflugvehi, sem skiptir okkur tugmihjöröum. Sjálf frí- verslunin með fisk er í hans hendi í GATT-viðræðunum og svo njót- um við öll auðvitað heimsfriðarins sem voldugasti stjómmálamaður veraldarinnar ætlar fyrst og síðast að verja. Ráðamenn þjóðarinnar með hinn glæshega þjóðhöfðingja okkar í broddi fylkingar ættu því við fyrsta tækifæri að gera sér sérstaka ferð th Bandaríkjanna th að efla tengsl mihi íslensku þjóðarinnar og for- seta Bandaríkjanna. Guðlaugur Tryggvi Karlsson „Við eigum efnahagslegt og þannig stjórnmálalegt sjálfstæði okkar að þakka mjög svo ábatasömum viðskipt- um við Bandaríkjamenn, auk þess sem þeir studdu okkur í landhelgismálinu gegn gömlu heimsveldunum í Evrópu.“ stöndumvið Guðmundur „Ég fel að þaö sé að eðli- íegt að skylduaðhd sé að ielögun- umþviaðfólk cr aö fá ýmis- konar réttindi Út á það. Þaö erumarghátt- <nrm .„r uð réttindi 'l0ns80n’ ,onnaður sem fólk lð|u ávinnur sér vegna þess, auk þess sem það borgar þá um leiö í sam- eiginlega sjóði sem skapa skhyröi tíl að njóta þeirrar þjónustu og þeirra hlunninda sem félögin geta boðið fólki upp á. Svo er það sú grundvaharregla að við erum sterkari sameinuð í félögunum heldur en ef við værum hvert í sínu lagi að reyna að pota okkur áfram eitt og eitt. Það er algerlega númer eitt að styrkurinn felst i því að vera saman því að samem- aöir stöndum við og erum sterk- ust þannig. Fólk getur náttúrlega ekki feng- ið nein rétöndi þjá félagi sera það er ekki í. Ef fólk vih ekki vera í félagi á það heldur ekki neina kröfu á því að fá þá þjónustu sem félagið veitir. Sá sem stendur utan félags get- ur ekki haft áhrif í sama mæh og sá sem er aöili að þvi.“ Frelsi til að „Ef menn eiga að njóta félagafrelsis hljóta þeir einmg að þurfa aö njóta þess frelsis að veröa ekki skyldaðir th aðhdar að fé- lögum sem þeir ekki vilja eiga aðild að. Með frelsi til þess að mynda félög með öðrum er verið að tryggja mönnum réttinn til að vinna i félagi við skoðana- bræður sina að hugðarefni sínu, til dæmismeð því að láta sameig- inlega í Ijós álit á þvi opinberiega og afla þvi fylgis. í shku ffelsi felst skoðana- og fjáningarfrelsi manna saman. Það sem hver og eimi þeirra má gera mega þeir gerasaman. . Rétturinn tft að standa utan fé- lags Ihýtur að teljast óaðskiljan- legur hluti þessa réttar. Ef menn njóta hans ekki er í reynd unnt að skylda þá til þátttöku i baráttu til stuðnings skoöunum sem þeir hafa ahs ekki sjáhir. Þetta væri hliöstætt því að teija það sam- rýmast tjáningarfrelsi aö geta skyldað mann th þess að halda einhverju fram opinberlega gegn vilja sínum. Ef dæmi er tekið get- ur maður myndað félag með skoðanabræðrum slnum með þaö að stefnumiði að fijáls markaður eigi að ráða verölagningu land- búnaðarafurða. Hvernig væri þá hægt að skylda þennan sama mann til aöildar að félagi som berst gegn fijálsri verðlagningu á landbúnaðarafurðum? Það hlýtur að teljast þungbær- ara að vera skyldaður tft að halda einhverju fram gegn vhja sínum, heldur en að vera meinað að tjá skoðun sína. Á sama hátt er þungbærara aö sæta skyldu til aðildar aö félagi heldur en að vera bannað að mynda félag með öðrum.“ Jón Steinar Gunnlaugsson lög- maður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.