Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1993, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1993, Page 9
seei EAUHíI.'5'í ,£i HUOAdUTHÖ’í FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1993. Utlönd Foreldramir sem skildu dætur sínar eftir einar heima: Sextíu ákærur fyrir ómennsku - kvöldu stúlkumar, vanræktu þær og reyktu maríjúana Akæruvaldið í Illinois í Bandaríkj- unum hefur gefið út 60 ákærur á hendur hjónunum Sharon og David Schoo, sem fræg urðu um allan heim um jólin fyrir að skilja dætur sínar tvær eftir aleinar heima meðan þau fóru í frí til Mexíkó. Þau hjón hafa ekki fengið að sjá dætumar eftir að þau komu heim um nýár og undruðust allt umstang- ið sem fylgdi heimkomu þeirra. Al- menn reiði hafði þá þegar brotist út í Bandaríkjunum vegna meðferðar- ixmar á stúlkimum. Þær áttu að sjá um sig sjálfar þótt þær væru fjögurra og níu ára. Tilviij- un réði að þær létu vita af högum sínum. Áður hafði aðstoð frá annarri ömmunni verið afþökkuð. Lögreglan hefur rannsakað heimil- ishaldið og komist að því að dætum- ar höfðu mátt þola ótrúlegt harðræði í foreldrahúsum. Saksóknari sagði að eitt minnsta afbrotið hefði verið að skilja stúlk- umar efdr einar í nokkra daga því áður hefðu þær verið barðar með ólum, dregnar á hárinu og sveltar ef svo bar undir. Þá hefðu þau hjón ekki hikað við að reykja maríjúna í návist barnanna. Þegar allar ávirðingarnar vom upptaldar var saksóknari kominn með 60 ákærur á listann. Óvíst er hvaða dóm hjónin fá á endan- um. Víst er þó að þau fá ekki forræði yfir dætrum sínum á ný enda hefur þeim verið komið í fóstur. Búast má við að hjónin verði dæmd til fangavistar fyrir meðferð sína á dætmnum. Lög ríkisins heimila ekki þunga refsingu fyrir að yfirgefa börn um skamman tíma. Reuter HMáskíöum: Giænlendingur náði38.sæti Grænlendingurinn Arne Hard- enberg náði 38. sæti 1 svigi á heimsmeistaramótinu á skíðum í Morioka í Japan. Arne er 19 ára ogfyrsti grænlenski skíðamaður- inn sem nær árangri á alþjóðlegu móti. Arne var styrktur af SÁS til fararinnar sem eini maðurinn úr ríki Danadrottningar sem von væri um að kæmist á verðlauna- pall. Hann æUar á keppa á alþjóð- legum mótum það sem eftir er árs og vonast eftir að komast á ólympíuleikana i Lillehammer. Sýknaðuraf gamalii morð- ákærumeð DNA-rannsókn Þrjátíu og fimm ára gamall Svíi hefur verið sýknaöur af ákæru um nauögun og morð sem framið var á Skáni fyrir þremur árum. Lögreglan taldi sig hafa sann- anir ó hendur manninum en við samanbuð á DNA úr manninum og sýnum úr líkinu kom í ljós að rangur maður var grunaður um verknaöinn. Lögreglan verður nú að hefja rannsókn málsins að nýju. Konan fannst í bíl sínnum á fáförnmn vegi. Rítzau og tt Sharon Schoo, 35 ára móðir, hefur ásamt David manni sínum verið ákærð fyrir að skilja dætur þeirra eftir einar heima um jólin. Að auki eru þau ákærð fyrir 60 brot önnur gegn stúlkunum. Símamynd Reuter Vöggudauði rakinn til næringarskorts í móðurkviði Læknar við háskólasjúkrahúsið í Liverpool á Englandi hafa komist að þeirri niðurstöðu að rekja megi vöggudauða ungbama til næringar- skorts í móðurkviði. Læknar hafa lengi reynt að finna skýringuna á því af hveiju böm deyja nýfædd, að því er virðist án nokkurrar ástæðu. Rannsókn læknanna í Liverpool hefur staðið í nokkur ár og tók til um 20 þúsund bama. Greint er ítar- lega frá niðurstöðunni í dagblaðinu Observer nú í vikunni. Þar er fullyrt að vöggudauði stafi af vanþroska fósturs í móðurkviði. Vanþroskann megi rekja til þess að fóstrið hafi af einhverri ástæðu ekki fengið þá nær- ingu sem það þurfi. Næringarskorturinn leiðir m.a. af sér að nýrun þroskast ekki eðlilega en börn sem deyja vöggudauða eiga þaö mörg sameiginlegt að nýrun starfa ekki eðlilega. Stephen Hinchcliffe er einn þeirra lækna sem varið hefur miklum tíma í að rannsaka vöggudauða. Hann stjórnaði rannsókninni í Liverpool eftir að hafa fengið áhuga á málinu meðan hann var læknanemi. Hann segir að ekki sé nóg að böm- in fái brjóstamjólk eftir fæðinguna því næringarskortur í móðurkviði Stephen Hinchcliffe læknir segir að næringarskortur í móðurkviði valdi vöggudauða barna. hafi afgerandi áhrifa á möguleika þeirra á að lifa. Enn er eftir að finna út hvað veldur því að sum fóstur fá ekki eðlilega næringu á með- göngunni. Reykingar og áfengisdrykkja em taldar meðal þess sem ráðið getur úrslitum um þroska fóstursins. Nið- urstaða Hinchcliffes styrkir því fyrri skoðanir um að mæðrum beri aö forðast að reykja og drekka meðan á meðgöngu stendur. ÞORRATILBOÐ! BOSCH frá upphafi til enda! Stiglaus hraðastilling Ábur kr. 15.900,- Nú kr. 10.990.- m i . . Fræsari POF 600 ACE Stiglaus hraðastilling 12000 - 27000 snún. á mín Leggur 6 mm Áburkr. 19.900.- Núkr. 15.990.- Hjólsög GKS 54, 1020W Skurðardýpt 54 mm 5000 snún. á mín. Ábur kr. 21.720.- Núkr. 16.232. Ath! 5 b/öð fylgja Slipirolckur 2000W GWS 20180 Skífustærð 180 mm 8500 snún. á mín. Lykillaus skífufesting Ábur kr. 27.221.- Nú kr. 15.990.- Rafhlöðu pússikubbur 9 Stgr. kr. 14.633. Rafhlöðúborvél 9.6 V GBM 9.6 VES Taska Stiglaus hraðastilling Fram- og aftursnúningur Sjálfherðandi patróna Aukarafhlaða fylgir Ábur kr. 26.900.- Nú kr. 22.990.- Umboðsmenn um land allt Gunnar Ásgeirsson hf. Borgartún 24 • 105 Reykjavík • Sími: 91-626080

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.