Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1993, Síða 13
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1993.
13
Fréttir
Ólögmæt yfirtaka gisti- og veitingastaðar:
Kref ur ríkið um
11 milljóna bætur
Bernharö Hjaltalín hefur stefnt
Hans Georg Bæringssyni fyrir ólög-
mæta yfirtöku á húseign sinni aö
Mánagötu 4 á ísafirði og ríkissjóði
og sýslumannsembættinu á ísafirði
sem ábyrgðamönnum fyrir verknað-
inn.
Húseignin að Mánagötu 4 á ísafirði
var eign Hjálpræðishersins en Bem-
harð og hlutafélag hans, Djúp hf.,
keyptu húsið árið 1982. Bemharð rak
gisti- og veitingastað í húsinu. Árið
1991 var beðið um nauðungarsölu á
eigninni vegna vanskila og var húsið
boðið upp í kjölfarið.
Bernharð mótmælti uppboðinu
sem ólögmætu þar sem húsið var
auglýst sem hans eign og uppboðið
haldið á því öllu. Húseignin var hins
vegar óskipt eign hans og Djúps hf.
auk þess sem Hjálpræðisherinn átti
einn sal. Uppboðinu var áfrýjað til
Hæstarettar og 16 manuðum siðar,
eða nú í haust, var það dæmt ógilt.
í millitíðinni hafði sýslumaður af-
hent Hans Georg húsið en hann átti
næsthæsta tilboðið á uppboðinu.
Djúp hf. átti hæsta tilboðið en því var
hafnað. Hans Georg tók við rekstri
hússins og leigjendum og notaði það
sem í húsinu var af húsgögnum,
rúmfatnaði og boröbúnaði í veitinga-
rekstur sinn þrátt fyrir að lausafé
hefði ekki fylgt með í uppboðinu.
Bemharð og Djúp hf., sem nú hafa
aftur tekið yfir reksturinn, gera kröf-
ur um skaðabæturnar vegna fjár-
hagstjóns og rekstrartjóns sem varð
vegna stöðvunar gisti- og veitinga-
rekstursins. Skaðabótunum er beint
að ríkissjóöi sem ábyrgðaraðila á
verkum opinbers starfsmanns og
nema kröfurnar alls 11 milljónum.
-ból
Biðröð við togbrautina í Oddsskarði.
DV-mynd Emil
Oddsskarð:
Hundruð á skíðum
Kæra fyrrverandi nemenda Nuddskóla Rafns Geirdal:
Saksóknari sá ekki
ástæðu til ákæru
Emil Thorarensen, DV, Eskifirði:
Mjög vel viðraði um helgina fyrir
austfirska skíðaiðkendur í Odds-
skaröi og er tahð að um 350 hafi ver-
ið á svæðinu að sögn Ómars Skarp-
héðinssonar, framkvæmdastjóra
Skíöamiðstöðvar Austurlands. Það
eru um 10% af íbúum þeirra sveitar-
félaga sem byggt hafa upp aðstöðuna
í skarðinu, Neskaupstaðar, Eski-
fjarðar og Reyðarfjarðar.
Hugmyndina að skíðasvæði á þess-
um stað áttu Bogi Nilsson, núverandi
rannsóknarlögreglustjóri ríkisins,
og Gunnar Ólafsson, fyrrum skóla-
stjóri á Neskaupstað. Talsvert er um
að fólk frá Egilsstöðum og Fáskrúðs-
firði sæki svæðið. Þar eru tvær lyft-
ur, fallhæð 300 metrar, og það er
einnig togbraut.
Ómar Skarphéðinsson fram-
kvæmdastjóri. DV-mynd Emil
Ríkissaksóknari hefur fjahað um
kæru Neytendasamtakanna fyrir
hönd 27 fyrrverandi nemenda Rafns
Geirdal, skólasfjóra Nuddskólans, og
var niðurstaðan sú að rannsóknar-
gögn þyki ekki gefa nægilegt tilefni
til frekari aðgerða í máhnu.
Kæran var byggð á lögum um
óréttmæta verslunarhætti en nem-
endumir töldu sig hafa byrjað nám
í skólanum á röngum forsendum.
Rafn segist hafa tekið það skýrt fram
að nudd sé ekki lögght starfsgrein
en skóhnn sé samt sem áður viður-
kenndiu- af menntamálaráðuneytinu
og metinn th 10 stiga af námsmats-
nefnd. Sú viðurkenning feh þó ekki
í sér lögvemdun en það hafi alltaf
legið ljóst fyrir og ekki hafi annað
verið gefið í skyn.
í yfirlýsingu, sem DV hefur borist
frá Rafni, kemur fram að hann íhugi
nú að höfða skaðabótamál á hendur
Neytendasamtökunum fyrir meið-
yrði þar sem máhð hafi skaðað hann.
-ból
Lowell Charters
sluaói eitii kvikmyinlahf
ahaniiiiti John Fusco
1
ÚRVALS
r SPENNUSAGA
THUNDERHEART
iiiiií1
Samnefnd kvikmyndj
lLlV. I II
sýndíStjörnubíói
Strengur fortíðar hljómaði sterkt
í hjarta mannsins sem átti að kanna
nútíðina.
ÞRUMUHJARTA
alveg þrumugóð eins og allar
URVALSIÆÍS!
aðeins kr. 790,- og ennþá minna í áskrift
á næsta sölustað NÚNA
:KUR
sími 63 • 27 ■ 00
Samnefnd kvikmynd sýnd í
Stjörnubíói þessa dagana.