Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1993, Side 3
FÖSTUDAGUR5. MARS1993
3
Fréttir
Fyrrum framkvæmdastjóri íbúðakjamans Alviðru hf. 1 Garðabæ
Ákærður fyrir 28 millj-
óna auðgunarbrot
gjaldþrot ákærða og hlutafélagsins samtals um 130 miiljónir
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
tekið til dóms ákæru á hendur
Björgvini Víglundssyni verkfræð-
ingi, fyrrum stjórnarformanni og
framkvæmdastjóra Alviðru hf.,
sem stóð að sölu fasteigna í íbúða-
kjamanum að Sjávargrund 1-15 í
Garðabæ. Björgvin er ákærður fyr-
ir 14,5 milljóna króna umboðssvik,
13,4 milljóna fjárdrátt, skilasvik,
sem einnig er brot á hegningarlög-
um, svo og hrotum á lögum um
bókhald og hlutafélög.
Alviðra varð gjaldþrota upp á 75
milljónir króna en persónulegt
gjaldþrot Björgvins nam 56 milljón-
um. Eignir á móti skuldunum
námu aðeins htlu broti af þessum
upphæðum.
Það sem ríkissaksóknari krefst
að Björgvini verði refsað fyrir er
m.a. umfangsmikill fjárdráttur.
Honum er gefið að sök að hafa af-
salað til eiginkonu sinnar 5 íbúðum
í eigu hlutafélagsins Alviðru og
dregið sér um 13,4 milijónir króna
af söluandvirði þeirra. Þannig hafi
hann fengið kaupanda til að gefa
út 35 skuldabréf á afsalsdegi upp á
200 þúsund krónur hvert, tryggð
með veðum í hinum seldu eignum,
en bréfin hafi hann síðan notað til
eigin þarfa.
Björgvin er einnig ákærður fyrir
umboðssvik - hann hafi misnotað
aðstöðu sína gagnvart hlutafélag-
inu Alviðru með því að veðsetja
eignir í eigu þess og útbúa skulda-
bréf sem notuð voru fyrir eigin
skuldir hans eða til tryggingar á
greiðslu þeirra. Hér var um að
ræða 28 skuldabréf.
Ákærða eru einnig gefin að sök
skilasvik. Hann hafi afhent Verkbæ
hf. allar eignir sem Alviðra átti í
febrúar 1989 án þess að félagið fengi
nokkra fjármuni fyrir - á sama
tíma og gjaldþrot félagsins og
Björgvins sjálfs blasti við. Með
þessu er Björgvin ákærður fyrir að
hafa skapað verulega hættu á að
kröfuhafar Alviðru hf. yrðu fyrir
fjártjóni vegna mikiila veðsetninga
hans á eignum félagsins. Honum
er jafnframt gefið að sök að hafa
ekki gefið upplýsingar um hluta af
framangreindum skuldabréfum
þegar hann mætti í skiptarétti
Reykjavíkur við uppskrift á eign-
um hans.
Loks er verkfræðingnum gefið að
sök brot á lögum um bókhald og
hlutafélög, m.a. með því að hafa
ekki látið gera lögskipaðan árs-
reikning fyrir Alviðru hf. fyrir árið
1987 og að hafa ekki haldið til haga
fylgiskjölum né fært bókhald vegna
eigin verktakastarfsemi eða Al-
viðru.
Fjölskipaður dómur héraðsdóms
Reykjavíkur mun kveða upp dóm
í máíinu á næstu vikum.
-ÓTT
Bæjarstjórinn 1 Eyjum um Herjólfsdeiluna:
Borgum ekki
ogsegjum
mönnum að
fara á sjó
- stýrimennirnirþurfaaðtakaafskarið
„Málið er ennþá í höndum ríkis-
sáttasemjara og þessara aðila sem
deila. Við eigum eftir að sjá hvernig
þeir taka á máhnu og hvaða stefnu
það tekur. Spumingin er hvort og
þá hvenær bæjarfélagið eigi að koma
inn í deiluna. Það verður að skýrast
á sáttafundunum hvort menn æfii
sér að leysa máUð eða ekki áður en
við getum nokkuð rætt málið á þeim
nótum að grípa inn í. Frá okkar bæj-
ardyrum séð er ósköp Utið sem hægt
er að gera. Það er ekki inni í mynd-
inni að bæjarstjórn borgi það sem
vantar upp á að launakröfum stýri-
manna sé fuUnægt og segi mönnum
að fara á sjó. Bæjarsjóður er með 200
manns í vinnu og sú krafa sem stýri-
menn Heijólfs er með er aUs ekkert
í takt við launaumræðuna í dag. Það
eru því fyrst og fremst þeir sem þurfa
að taka af skarið,“ sagði Guðjón
Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum, í samtaU við DV vegna
Herjólfsdefiunnar. Sjóvegurinn milU
lands og eyja hefur nú verið lokaður
í mánuð og kurr kominn í bæjarbúa
vegna þess.
Þegar Guðjón ræddi við DV í gær-
dag voru bæjarstjómarfundir í að-
sigi þar sem máhð var á dagskrá. Þá
hafði enginn fundur verið boðaður
hjá sáttasemjara og ekki útUt fyrir
fund í dag, fóstudag, eða næstu daga.
Sáttasemjari sagði í samtaU við DV
að Herjólfsdeilan væri afar erfið og
sérstök og erfitt að leysa hana. Eins
og útUtið var í gær gæti Uðið nokkur
tími áður en tækist að höggva á hnút-
inn.
- Er ekki pressa á bæjarstjórn frá
óánægðum bæjarbúum að aðhafast
eitthvað í málinu?
„Auðvitað eru allir hundfúUr en
spumingin er hvenær og hvemig við
eigum að grípa inn í. Fram til þessa
hefur ekki verið rætt hvað við eigum
að gera, ef þá nokkuð. Við erum bún-
ir að skora á deiluaðila að taka sig
saman i andUtinu og láta minni hags-
muni víkja fyrir meiri,“ sagði Hjör-
leifur.
Það er álit viðmælenda DV að und-
irmönnum hafi verið sagt upp til að
þrýsta á starfsmenn Heijólfs á að
fara út í hefidarkjarasamninga fyrir
aUa skipveija. Mesta öryggið fyrir
bæjarbúa, sem orðnir em lang-
þreyttir á deilunni og samgönguerf-
iðleikum sem af henni hljótast, feUst
í að alUr skipverjar séu í einu stéttar-
félgi og hefðu einn heildarkjara-
samning.
-hlh
Herjólfur hefur ekki flutt fólki milli lands og eyja frá því í byrjun febrúar
vegna verkfalls stýrimanna og síðan þar sem undirmönnum á skipinu var
sagt upp. Herjólfsdeilan þykir ein sú erfiðasta sem komið hefur inn á borð
sáttasemjara. DV-mynd Ómar
«S?Í "
Supnfemi,
i»9ii
-
*nsli e
*»()■} vt(uré
SiirtMiíus.
j. s
Fegurðardrottning Suðurlands verður valin að Hótel örk í Hveragerði í kvöld. Undirbúningur er þegar hafinn og
þjálfunin fer fram í æfingasal Sundhallar Selfoss undir stjórn Eyglóar Lindu. Niu stúlkur taka þátt í keppninni.
Fremri röð, frá vinstri: Hrefna Steingrímsdóttir, Berglind Grétarsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Ingibjörg Soffia Osmo.
Aftari röð: Þórunn Guðmundsdóttir, Harpa Berglind Bragadóttir, Helga Þorsteinsdóttir, Unnur Elfa Þorsteinsdóttir
og Elfa Dögg Þorsteinsdóttir. DV-mynd Kristján Einarsson, Selfossi
Starfsmenn í hreinsun óg hleðslu véla í utanlandsflugi:
Allt á suðupunkti
- nú er komið nóg
- segir formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavikur
„Mikill urgur er í starfsmönnum
Flugafgreiðslunnar hf. í Leifsstöð.
Það get ég staðfest," segir Kristján
Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur. „Það er
allt á suðupunkti þar. Það hefur ver-
ið stöðugur ófriður þarna síðan verk-
takafyrirtækiö Flugafgreiðslan hf.
tók við hreinsun og hleðslu véla eftir
útboð Flugleiða fyrir fjórum árum.
Samdrátturinn hefur verið stöðugur
og menn eru búnir að fá nóg. Þessum
starfsmönnum er full alvara.“
Verkalýðs- og sjómannafélag Kefla-
víkur hefur sent Flugafgreiðslunni
hf. bréf þar sem óskað er eftir við-
ræðum við fyrirtækið um launa-
hækkanir og kjararýmun en fyrir-
tækið tilkynnti starfsmönnum sín-
um nýlega um spamað og hagræð-
ingu. í sumar er fyrirhugað að fáera
vinnutímann fram um eina klukku-
stund og afnema ýmis hlunnindi
starfsmanna. „Það er rétt að starfs-
menn hafa áhuga á að fara í verkfall
en ég tel rétt að óska eftir samninga-
viöræðum við eigendur fyrirtækisins
áður en hugað er að verkfalli," sagði
Kristján. VerkfaU hefði mikil áhrif á
utanlandsflug Flugleiða.
„Það er ljóst að rekstrarskilyrði
fyrirtækisins hafa batnað að undan-
fömu og því eiga þessar spamaðar-
aðgerðir ekki við nein rök að styðj-
ast. Það er fyrirsjáanleg aukning í
utanlandsflugi í sumar, fyrirtækið
þarf ekki lengur að borga aðstöðu-
gjald og Flugleiðir hafa ekki lækkaö
samning sinn við fyrirtækið. Flugaf-
greiðslan hf. viU bara auka sinn eigin
hagnað á kostnað starfsmanna," seg-
irKrisfi-nGunnarsson. -GHS