Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1993, Qupperneq 4
4
FÖSTUDAGUR 5..MARS 1993
Fréttir
Krappur lífróður Jóhanns Bergþórssonar:
Fari Hagvirki-Klettur
á hausinn fer ég með
- segirskiptastjóraveraaðgeraalvarlegmistök
Jóhann G. Bergþórsson, forstjóri Hagvirkis-Kletts, segir skiptastjóra Fórnarlambsins vera að gera mikla vit-
leysu og segir hann fara offari i málinu vegna áhrifa frá ríkisvaldinu. Hann minnir á þátt Ragnars í Hafskips-
málinu. Hann segir jafnframt að Friðrik Sophusson sé leiksoppur embættismanna. DV-mynd GVA
- Reksturinn hefur mörgum sinn-
um staðið tæpt og róðurinn lengi
verið þungur. Klórarðu þig út úr
vandanum nú?
„Þetta er lífróður og hefur aldrei
verið krappari. Það er spuming
hvaða ráð eru tiltæk í dag. Þessar
nýjustu aðgeröir eru búnar að lama
Hagvirki-Klett. Framtíð þess bygg-
ist á mörgum „ef‘ þáttum. Við er-
um þó ekki búnir að missa allt
traust og ýmsir verkkaupar eru
jafnvel tilbúnir að semja við okkur.
Við erum því ekki illa séðir alls
staðar en við vitum að ýmsir sam-
keppnisaðilar vilja gjarnan losna
viö okkur vegna þess að við höfum
verið óþægilegir, rifið kjaft og feng-
ið verkefni."
- Efþútaparriftunar-ogkyrrsetn-
ingarmálinu ert þú þá ekki endan-
lega búinn að vera?
„Jú, ef Hagvirki-Klettur fer á
hausinn fer Jóhann Bergþórsson
með. Ég hef aldrei vikið mér undan
ábyrð.“
- Eru þá langvinn málaferli í upp-
siglingu?
„Jú, ætli málaferlin verði ekki
bara mitt starf það sem eftir er.“
- Hefur þú alltaf sagt satt um
rekstur fyrirtækisins?
„Ég hef alltaf gengið út frá þeim
forsendum sem blasað hafa við
hverju sinni; hvemig framtíðin
hefur horft við á hverjum tíma.“
- Jóhann, ert þú draumóramaður?
„Nei, ég tel mig vera fremur jarð-
bundinn en ég er bjartsýnn maður.
Ég held að það sem ég hef verið að
gera síðustu ár séu ekki draumór-
ar. Hins vegar hef ég haft sanngirn-
ina að leiðarþósi. Eg held að þeir
Yfirheyrsla
Ari Sigvaldason
Sigurdór Sigurdórsson
sem hafa haft samskipti við mig
hafl ekki reynt annað. Á hinn bóg-
inn finnst mér dómskerfið í land-
inu óeðlilegt og ósanngjamt. Það
er eitthvað að kerfinu þegar af-
greiðsla mála getur verið að vefjast
á annan áratug í kerfinu meðal
-ráðamanna.
Hagvirki fórnar-
lamb kerfisins
- Löglegt en siðlaust. Allir lands-
menn kannast orðið við merkingu
þessara orða. Saga þinna fyrir-
tækja, nafnabreytingar, tilfærslur
og svo framvegis er skrautleg. Hafa
þessi orð átt við um þínar gjörðir?
„Nei, þvert á móti. Út af fyrir sig
var óheppilegt að skipta um nafn á
sínum tíma, svona eftír á að hyggja.
Best væri að fyrirtækið hétí ennþá
Hraunvirki. Nafnbreytingin úr
Hagvirki í Fómarlambið var þó
markviss. Ég var að gera mína
skoðun kunna þannig aö það færi
ekkert á milli mála aö ég teldi að
Hagvirki hafi verið fómarlamb
kerfisins. Það var ekkert óeðlilegt
eða ólöglegt við þessar nafnabreyt-
ingar.“
Ólafur Ragnar ekki
stærsti óvinurinn
- Af hverju skírðir þú ekki fyrir-
tækið bara Ólaf Ragnar hf.?
„Ólafur á þetta ekki einn og hann
er síður en svo stærsti óvinur
minn. Allir þessir ráðherrar hafa
heilan herskara af embættismönn-
um sem em miklir bókstafstrúar-
menn. Þeir setja sig stundum ekk-
ert mjög rækilega ofan í málin. Ég
held til dæmis að Friðrik Sophus-
son sé ákveðinn leiksoppur. Hon-
um eru sýnd plögg þar sem ég er
borinn öllum illum sökum."
Ragnar Hall fer offari
- Er Ragnar Hall svona lélegur i
faginu eða bara vondur maður?
„Ég tel hann hvorki vondan né
lélegan í faginu. Fyrir áhrif ríkis-
valdsins fór hann hins vegar of-
fari. Skýringin virðist vera sú ásök-
un að ég hafi verið að borga öllum
öðrum en ríkinu. Það er hins vegar
ekki rétt. Frá því að þessi samning-
ur var gerður í desember 1990 hafði
Fómarlambiö, áður Hagvirki,
borgað tugi milljóna til ríkisins.
Ríkið hafði veðtryggingar í fast-
eignum og lóðum. Við lækkuðum
ekki verðmæti þessara fasteigna
eða lóða. Það vom hvorki aðgerðir
Hagvirkis né Fómarlambsins sem
hleyptu vaxtastiginu í landinu
svona langt upp. Við bjuggum ekki
til efnahagsvandann í landinu.
- Framkvæmdastjóri Verktaka-
sambandsins sagði nýlega að Hag-
virkissamsteypan væri löngu gjald-
þrota, sama hvaða nafn menn not-
uðu. Ér það ekki rétt?
„Það er alrangt. Eiginfiárstaða
Hagvirkis-Kletts um áramótin
1991-1992 var bókfærð 114 milljónir
nettó. Það telst nú tæpast gjaldþrot
á íslenskan mælikvarða.
Stálum ekki eignum
- Samningamir í desembermánuði
1990, þegar eignir voru fluttar yfir
í Hagvirki-Klett, eru mjög umdeild-
ir. Var ekki um hreinan stuld á
eignum Hagvirkis/Fórnarlambsins
að ræða? Voru þið ekki að bjarga
því verðmætasta úr rústunum?
„Nei, það er þveröfugt. Ef kæmi
tii gjJdþrots Hagvirkis-Kletts
myndi skiptastjóri í því máli vænt-
anlega reyna í ofvæni að rifta
samningnum því samningurinn
var fyrst og fremst hagstæður
Fómarlambinu. Við keyptum bara
tæki og tól. Það var engin tilfærsla
heldur bein kaup. Ragnar Hall,
skiptastjóri hefur ekki gagnrýnt
veröið heldur talað um gjöf vegna
þess að greiðslan var ekki eins og
hann vildi hafa hana. Við greiddum
240 mfiljónum hærra verð en bók-
fært virði eignanna var. Vélapakk-
inn, sem við keyptum, var til dæm-
is metinn viö sölu á 337 milljónir
en er nú metinn á 217 milljónir.
Þannig borguðum við 120 milljón-
um hærra verö í desember 1990
heldur en matíð er í dag. í riftun-
inni hafnar Ragnar Hall ekki verð-
inu eða samningnum í sjálfu sér.
Hann viil bara bætur. Við buðumst
til að taka samninginn baka, það
er, rifta honum. Þá hefðum við skil-
að því sem við keyptum og fengið
það sem við áttum. Ragnar vildi
það ekki því það var óhagstætt
vegna þess að eignimar hafa fallið
í verði. Lánin, sem við yfirtókxun,
voru vísitölutryggð og með vöxtum
þannig að það hefði verið himna-
sending fyrir okkur að rifta þessum
samningi. Ef tækin hefðu verið
áfram í eigu Fómarlambsins hefðu
þau lækkað verulega í verði og
þrotabúið neyðst til að selja þau
miklu lægra verði. Við greiddum
hins vegar toppverö. Salan rýrði
því ekki hagsmuni Fórnarlambs-
ins, heldur þvert á móti.“
Ragnar og Hafskip
- Þú gagnrýnir Ragnar Hall mikið
opinberlega og hefur sakað hann
um að fara með rangt mál. Ragnar
er einn allra reyndasti maður
landsins í gjaldþrotamálum. Hann
var til dæmis lengi skiptastjóri hjá
borgarfógeta. Dettur þér í hug að
hann fari með svona alvarlegai
ásakanir án þess að vita um hvað
málið snýst?
„Ég veit að hann er að gera vit-
leysu. Rifium upp Hafskipsmálið
þar sem Ragnar var einn búskipta-
stjóra. Við skulum ekki gleyma því
. að þegar upp var staðið var niður-
staðan sú að langflestum þeirra
atriða, sem kært var út af, var hafn-
að.“
- f hverju liggja mistök Ragnars?
„Fyrst og fremst í því að þegar
hann er búinn að fá samninginn frá
1990 í hendumar leitar hann ekki
skýringa eða svara við þeim þátt-
um sem hann síðar segir óeðlilega.
Hann gerir til dæmis mikið veður
út fimm skuldabréfum sem við, eig-
endumir, erum persónulega skráð-
ir skuldarar á og húsin okkar veð-
sett fyrir. Hann segir þessa skuld
ekki koma fyrirtækinu neitt við.
Málið er einfalt. í janúar 1986 var
Hagvirki eins og oft áður í lausa-
fiárerfiðleikum og við vomm búnir
meö kvótann í bankanum. í stað
þess að bankinn lánaði Hagvirki
beint inn á sinn reikning þá vorum
við fiórir látnir leggja fram fast-
eignaveð og nöfnin okkar sett á
lánin. Þessi lán fóru beint inn í
rekstur Hagvirkis. Ragnar lætur
hins vegar líta svo út að fyrirtækið
sé að taka á sig lán sem komi því
ekkert við, þetta séu okkar per-
sónulegu lán. Hann spurði ekki um
nein gögn og það á við um fleira."
- Eiga reikningar ekki að liggja
skýrir fyrir. Þarf að leita skýringa
á pottþéttu bókhaldi?
„Reikningamir liggja fyrir. Það
hafa ekki verið gerðar neinar at-
hugasemdir við þá. Það geta hins
vegar vaknað ýmsar spumingar
um þennan samning sem var viða-
mikill.
Ekki að bjarga eigin skinni
- Ætlist þið til að einhver trúi því
að þið hafi verið að gera annað en
bjarga eigin skinni þegar eignir
voru fluttar úr Hagvirki í Hag-
virki-Klett?
„Já, ég ætlast til aö menn trúi
því. Ef við værum aðeins að þessu
til að bjarga eigin skinni þá værum
við ekki í þessari súpu. Þá hefðum
við bara láta Fómarlambið rúlla
og setíð uppi með okkar eignir f
rólegheitum. Við áttum til dæmis
aUt hlutaféð í Hagtölu. Ef við hefð-
um aðeins verið að hugsa um pigjö
skinn og grunað að Hagvirki væri
að fara á hausinn þá hefðurn við
einfaldlega ekkert skipt okkur af
því.“
- Að lokum,. Jóhann. Situr þú á
skrifstofu Hagvirkis-Kletts að ári
liðnu með fyrirtæki í fullum
rekstri?
„Það vona ég svo sannarlega en
það fer eftir þróuninni næstu daga.
Við erum óneitanlega undir gífur-
legri pressu."