Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1993, Qupperneq 24
32
£681*1
Neytendur
Ólögleg litarefni
í jarðarberjum
- dósirnar fjarlægðar úr hillum
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
lét nýlega Qarlægja dósir með jarð-
arberjum úr hillum í verslunum
Hagkaups. Jarðarberin eru lituð
með ólöglegu litarefni sem heitir
E-124 og er svokallað azo-litarefiú
sem valdið getur ofnæmi. Með
reglugerð frá árinu 1989 er þetta
litarefni bannað hérlendis, hvort
sem varan er innflutt eða framleidd
hér. E-124 var algengt litarefni hér
áður og voru pylsur og salami Utað-
ar með þessu efni til þess að ná
fram fallegri rauðum Ut.
Nokkrum dögmn eftir að dósim-
ar höfðu verið fjarlægðar úr hiUum
Hagkaups keypti umsjónarmaður
Neytendasíðu sams konar jarðar-
berjadós í 10-11 í Glæsibæ.
Að sögn Odds Rúnars Hjartar-
sonar hjá HeilbrigðiseftirUti
Reykjavíkur Uggur ábyrgð hjá inn-
Jarðarber af tegundinni Gold
Berry sem keypt voru i 10-11.
flutningsaðila og dreifingaraðUa
þegar svona mál koma upp. í þessu
tilfelU flutti Hagkaup líka inn vör-
una.
Daglegar athugasemdir
Oddur sagði það næstum því dag-
legt brauð að heUbrigðiseftirUt
þyrfti að gera athugasemdir og láta
fjarlægja vöru úr hUlum verslana.
I Uestum tilfeUum nægir ein ábend-
ing og krafa embættisins um að
varan sé tekin úr sölu en fyrir
kæmi að kæra þyrfti til lögreglu.
Umrædd reglugerð er um aukefni
í matvælum og öðrum neysluvör-
um og taldi Oddur Rúnar að hún
ætti að vera innfiytjendum og selj-
endum vel kunn eftir að hafa verið
í gUdi í rúm fjögur ár. íslensku regl-
umar eru sniðnar eftir reglum
annarra Norðurlandaþjóða og
þykja góðar. E-124 er víða bannað
utan Norðurlanda og má nefna
Bandaríkin í því sambandi.
Litarefni þetta er notað í önnur
matvæh en niðursoðin jarðarber,
svo sem ostakökuduft, desertsósur,
„Við kaupum þessi Gold Berry
jarðarber í gegnum danskan heUd-
sala og göngum út frá því að það
sem leyfilegt er í Danmörku hljóti
að mega hér. Reglumar á Norður-
löndum er mjög svipaðar okkar
reglum og því töldum við ekki þörf
á að sannreyna vöruna,“ segir Jón
Ásbergsson um jarðarberin.
„Það gerist öðm hveiju að óleyfi-
legar vörur slæðast inn í verslanir
súpuduft, niðursoðnar bökufyU-
ingar sem innihalda kirsuber eða
hindber,hlaupefniogsalami. -JJ
því við erum að feta mjög þröngt
einstigi. íslenska löggjöfúx um auk-
efni og innihaldslýsingar er mjög
nákvæm. Mestu erfiðleikamir hafa
verið í sambandi við bandarískar
vörur en innihaldslýsing þeirra er
öðravísi en heimUt er hér og víða
annars staðar. Það breytist um
næstu áramót þegar Bandaríkja-
menn taka upp hhðstæðar reglur
ummerkingaroginnihald. -JJ
Innflutt frá Danmörku
og því talin í lagi
- segir JónÁsbergsson
Spurt og svarað um lífeyris- og tryggingamál
Tímabimdin lyfjaskírteini:
Hver eru sérstök tilvik
og hvemig eru þau metin?
- ræður dagsform tryggingalæknanna?
Tryggingastofnun er helmilt að gefa út tímabundiö lyfjaskírteini sem undanþiggja sjúkling greiöslu tiltekinn lyfja.
Hjörleifur Þórarinsson lyfjafræð-
ingur spyr:
I 6. grein reglugerðar um lyf era
talin upp og nefnd dæmi um undan-
tekningar á greiðslufyrirkomulagi
lyfja. I gr. 6.3 segir að í sérstökum
tilfehum þegar sjúklingur þarf nauð-
synlega á því að halda að nota að
staðaldri eða um lengri tíma fjölda
lyfja samtímis sem almannatrygg-
ingar greiða ekki eða aðeins að hluta
er Tryggingastofhun heinúlt að gefa
út tímabundið lyfjaskírteini sem
undanþiggja sjúkhng greiðslu tiltek-
inn lyfja. Hver era þau sérstöku til-
vik og hvernig era þau metin? Er það
sjúkdómsgreiningin, aðstæður eða
greiðslugeta, hversu ötulir menn era
að reka sín mál innan TR eða „dags-
form“ tryggingalæknanna? Eiga t.d.
krabbameinssjúklingar á síðasta
skeiði síns sjúkdóms og era í líknar-
og einkennameðferð rétt á þessum
nýju, hvítu lyfjakortum?
Lesendaþjónusta
Ásta R. Jóhannesdóttir, deUd-
arstjóri í félagsmála- og upplýs-
IngadeUd Tryggmgaslofnunar
ríkisins, svarar spumingum les-
enda á neytendasíðu DV.
bréfi tU Neytendasíðu DV, Þver-
bolti U, 1(K Reykjavik, eða i sim-
bréfn^síma 632999. ^
10 og 12, er tekið við spurningum
í síma 632700. Svar mun birtast í
Vinsamlegast hafið spurningar
stuttar og hnitmiðaðar.
Möra lyfjaskírteini óþörf
Svar Ástu R. Jóhannesdóttur:
Með nýrri reglugerð um þátttöku
almannatrygginga í lyfjakostnaði
eru mörg lyfjaskírteini óþörf. Þetta
eru skirteini sem heimila afgreiðslu
B merkta lyfja án endurgjalds.
Talsverður fjöldi skirteina er engu
að síður enn í gildi frá fyrra ári fyrir
fólk með illkynja sjúkdóma. Á þetta
við um lyf sem eru merkt „0“ og „E“
í lyfjaskrám. Með framvísun lyfia-
skirteinis færast þessi lyf til um
flokk. O merkta lyfið sem sjúklingur
greiðir aö öllu jöfnu að fullu greiðist
eins og E merkt lyf, þ.e. sjúklingur
greiðir fyrstu 500 krónurnar og 25%
af kostnaði umfram þær, mest 3000
krónur, lífeyrisþegi greiðir fyrstu 150
krónurnar, 10% umframkostnaðar,
mest 800 krónur. E merkta lyfið
greiðist gegn framvísun lyfiaskír-
teinis eins og B merkt lyf, þ.e. fyrstu
500 krónumar, 12,5% umframkostn-
aðar, mest 1.500 krónur. Lífeyrisþeg-
ar greiða fyrstu 150 krónurnar, 5%
umframkostnaöar, mest 400 krónur.
Krabbameinssjúklingar
Ekkert er tiltekið sérstaklega um
krabbameinssjúkhnga í nýju reglu-
gerðinni. En við afgreiðslu umsókna
mn lyfjaskírteini fyrir fólk með lang-
vinna og/eða lífshættulega sjúk-
dóma, er fyrst kannað hvaða skír-
teini frá fyrra ári era enn í ghdi.
Ekki era gefin út ný skírteini í þeirra
stað.
Við útgáfu nýrra skírteina er reynt
að létta kostnaðarbyrði þeirra sem
haldnir era illkynja sjúkdómum, á
þann hátt að Tryggingastofhun taki
þátt í kostnaði dýrra lyfia, sem nauð-
synleg era og htiö eða ekkert era
niðurgreidd af almannatryggingun-
um skv. almennum reglum. Reynt
er að jafnaði að velja lyf sem eru E
eða O merkt í lyfiaskrám og þau færð
til um einn greiðsluflokk, eins og lýst
er hér að framan. Þannig er lyfia-
kostnaður sjúklings lækkaður.
Óvenju mikill lyfjakostnaður
Hjörleifur vitnar í grein 6.3 í lyfia-
reglugerðinni um skilyrði sem þarf
að uppfyha til að fá tímabundin lyfia-
skírteini. Þar er talað er um sérstök
tilvik, þegar sjúkhngur þarf nauð-
synlega á því að halda að nota að
staðaldri eða um lengri tíma fiölda
lyfia samtímis, sem almannatrygg-
ingamar greiða ekki eða aðeins að
hluta. Lyfiaskírteinin geta undan-
þegið sjúkhng greiðslu fyrir thtekin
lyf.
Að jafnaði er heildarkostnaður
sjúklingsins vegna lyfia mehnn í
slíkum tilfehum. Hjá lífeyrisþegum
er kannað hvort þeir njóti uppbótar
á lifeyri vegna lyfiakostnaðar. Upp-
bóhn getur veriö á bihnu um 4000
krónur upp í um 17.000 krónur, en
hún er eldd aðeins veitt vegna lyfia-
kostnaðar heldur einnig vegna
umönnunarkostnaðar eða t.d. hárrar
húsaleigu. Það er því að mörgu að
hyggja. Sé lyfiakostnaður sjúklings
umtalsverður umfram Oyfia) upp-
bótina er unnt að minnka hann með
lyfiaskírteini, sem færir lyf í ódýrari
flokk, eins og lýst er hér að framan.
Þetta svar er unnið upp úr vinnu-
reglum tryggingalækna um af-
greiðslu umsókna um lyfiaskírteini.
ífiörleifur spyr m.a. um hvort dags-
form tryggingalækna og það, hve öt-
ulir menn séu að reka sín mál hjá
Tryggingastofnun geti haft áhrif á
mat á þessum sérstöku tilvikum.
Eins og á vinnureglunum sést getur
margt haft áhrif á matið og ekki get
ég útilokað að þessi atriði sem hann
nefnir geti haft áhrif á mat lækna
Tryggingastofnunar, þeir era auðvit-
að mannlegir.