Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1993, Page 5
(MÁNUDAGUR 8. MARS 1993
5
p v Fréttir
Bátur úr þrota-
búi seldur til
Heimir Kristmsson, DV, DalvQc
Útgerðarfélagið Rán hf. á Dalvík
var lýst gjaldþrota fyrir nokkrum
vikum. Það átti meðal annars skipið
Sænes EA 75. Lengi hafði verið reynt
að selja það en ekki tekist.
Nú hefur þrotabúið hins vegar selt
bátinn til Grenivíkur. Þar var stofn-
að fyrirtæki um kaup og rekstur
hans. Stærstu hluthafamir eru KEA,
Grýtubakkahreppur og Kaldbakur
hf. á Grenivík.
Sænesið er rúmlega 100 lesta stál-
bátur, smíðaður fyrir nokkrum
ánun í Svíþjóð. Kvóti þess er 232 tonn
af rækju.
Sænes EA 75 við bryggju í Dalvíkur-
höfn. DV-mynd Heimir
Hraðakstur í
Múlagöngum
Gylfi Kristjánsson, DV, Ækuxeyri:
Lögreglan á Ólafsfirði segir að allt-
af sé nokkuð um hraðakstur i jarð-
göngunum í Ólafsfjarðarmúla og hafi
hún haft fregnir af því að menn láti
sig hafa það aö aka í göngunum á
yfir 100 km hraða en sæti oftast lagi
þegar þeir vita að lögreglan er ekki
nærri.
DV hefur heimildir fyrir því að
menn hafi beinlinis efnt til keppni í
göngunum um það hver sé fljótastur
að aka í gegnum þau, um þriggja km
leið, og þá fari hraðinn oft langt yfir
100 km. Þarf ekki að fjölyröa um af-
leiðingar slíks aksturs í þröngum
göngunum fari eitthvað úrskeiðis.
Lögreglan á Ólafsfirði og Dalvík
voru með sameiginlega radarmæl-
ingu á miðvikudagskvöld. Þeir stöðv-
uðu m.a. menn á Árskógsströnd sem
óku á 114 og 125 km hraða og í
göngunum í Ólafsfjarðarmúla stöðv-
uðu þeir einn á 82 km hraða.
Gestum fjölgar
í Bláa lónið
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Um síðustu helgi komst fjöldi
gesta í Bláa lóniö yfir 5000 frá ára-
mótum og er það töluverð aukning
frá því sem var á sama tíma í fyrra,“
sagði Kristinn Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri Bláa lónsins.
„Það hefur verið mikið um fyrir-
spurnir hjá okkur að undanfórnu og
mikið pantað fyrir hópa nú í mars.
Einnig í apríl og reyndar allt fram á
sumar. Fjöldi erlendra blaðamanna
og sjónvarpsfólks hefur komið hing-
að og unnið er mjög markvisst að
kynningu á íslandi sem ferðamanna-
landi. Veturinn hefur verið nýttur
vel til kynningarstarfs og það er ekki
spuming að þetta á eftir að skila sér
í aukinni aösókn," sagði Kristinn.
= ÖRTÖLVUTÆKNI =
Skeifunni 17 sími 687220
Sterkari í harðri samkeppni!
Velkomin í öflugri Örtölvutækni!
Örtölvutækni hefur fengið sterkan liðsauka í
samkeppninni á íslenska tölvumarkaðinum.
Digital, eitt af öflugustu tölvufyrirtækjum
heims, hefur tekið upp samstarf við Örtölvu-
tækni og aukið starfssvið og starfsemi fyrir-
tækisins til muna.
Tökum ofan fyrir kröfu-
hörðum viðskiptavinum
Með því að bjóða heildarlausnir með á-
herslu á net- og samskiptabúnað, ásamt kap-
alkerfum, hefur Örtölvutækni eignast kröfu-
harða viðskiptavini.
Við tökum sérstaklega ofan fyrir þeim af þessu
tilefni og hvetjum alla þá sem sækjast eftir
vandaðri tölvuþjónustu að kynna sér öflugri
Örtölvutækni.
Hjá okkur er loforð um heildarlausnir í tölvu-
málum einstaklinga og fyrirtækja byggt á
15 ára reynslu!
í hattinn okkar!
i