Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1993, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 8. MARS 1993
7
Fréttir
Fjárbóndi á
fékkaðvörun
vegna hey-
skortsoggats
- féöígóöumholdum
Bóndinn að ísólfsskála við Grinda-
vík hefur fengið frest til 12. mars til
að koma rekstri íjárbús síns í það
horf sem lögregla og forðagæslumað-
ur kröfðust í síðustu viku. Tildrög
þess að farið var að bænum voru þau
að Dýravemdunarfélag íslands
skrifaði sýslumanni bréf þar sem
þess var m.a. krafist að búreksturinn
áð ísólfsskála yrði kannaður.
Að sögn lögreglunnar í Grindavík
var fundið að því að op voru á fjár-
húsum bóndans og greinilegt að hey
var farið að skorta. Bóndinn, sem
hefur legiö á sjúkrahúsi, hefur gert
ráðstafanir til að bæta úr því sem
tahð var ábótavant. Hann hefur haft
ráðsmenn til að sjá um bú sitt á
meðan hann er fjarverandi.
Að sögn lögreglu var féð vel haldið
og í góðum holdum þegar búið var
skoðaö. Búið að ísólfsskála er það
eina á Suðumesjum þar sem ábúand-
inn hefur einu framfærslu sína af
fjárbúskap. -ÓTT
'
if
/
íj ; iTm
i • t
\
V* JRjfSf 1
Hákarisskuddi
skorinn
Reimar Þorleifsson er kunnur verk-
andi hákarls og á dögunum fékk
hann „hákarlsskudda" sem hann
skar á bryggjunni á Dalvík. Það var
rækjuskipið Náttfari sem kom með
tvo slíka að landi - litlar skepnur.
DV-mynd Heimir Kristinsson, Dalvík
Þdð er meiri spunnið í símann þinn en þú heldur
efhann er tengdur stafrœna símakerfinu
Þriggja manna tal
Þú getur komið á símafundi með þremur þátttakendum. Viðmælendur þínirtveir
geta verið hvar sem er á landinu eða jafnvel í sínu landinu hvor. Þú getur talað við
systur þína sem býr á ísafirði og bróður þinn sem býr í Danmörku í einu.
Svona ferðu að: fyrst hringir þú í númer systur þinnar. Þegar hún hefur svarað ýtir þú
áQ og bíður eftir són og hringir síðan í bróður þinn.
Þá tengirðu ykkur öll saman með því að ýta áQog svo á 3.
Ef bróðir þinn svarar ekki færðu aftur samband við systur þína með því að ýta á Q
Þú getur nýtt þér alla möguleika sérþjónustu stafræna símakerfisins
með því að greiða 790 kr. skráningargjald. Til að fá nánari upplýsingar
um sérþjónustuna getur þú hringt í Grænt/númer 99-6363 á
skrifstofutíma (sama gjald fyrir alla landsmenn), á söludeild Pósts og
síma eða á næstu póst- og símstöð.
SÉRÞJÓNUSTA
SÍMANS