Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1993, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 8.MARS 1993
17
Fréttir
Átta ára byggingarsögu Listasafns Kópavogs að ljúka:
Stef nt að opnun
saf nsins vorið 1994
Spindilkúlur
og stýrisendar
QSvarahlutir
HAMARSHÖFBA1 - 67 67 44
Elíasbet og Sverrir þegar þau af-
hentu Blönduósbæ gjöfina - 100
húnvetnska steina.
DV-mynd Magnús
Blönduós:
Bænum gefið
steinasafn
Magnús Ólafsson, DV, Blönduósi:
Þegar bæjarstjórn Blönduóss hélt
sinn 100. fund nýlega var Blöndu-
ósbæ afhent steinasafn að gjöf með
100 steinum víða úr Húnaþingi. Það
voru hjónin Elísabet Sigurgeirsdóttir
og Sverrir Kristófersson sem gáfu
þetta góða safn. Elísabet hefur verið
að safna steinum aUt frá 1956.
„Það hefur lengi veriö draumur
minn að hér á Blönduósi kæmi vísir
að náttúrugripasafni sem nota mætti
við kennslu og til fróðleiks fyrir hér-
aðsbúa," sagði Elísabet þegar hún
aíhenti safnið.
Hún sagðist vonast til að þetta safn
yrði öðrum hvati til þess að gefa nátt-
úrunni meiri gaum.
Safninu hefur verið komið fyrir í
héraðsbókasafninu og er þar til sýn-
is. Gjöfinni fylgdi náttúrufræöiritið
Týli innbundið. Það rit kom út í 15
ár og var gefið út á Akureyri. Meðal
efnis í því er grein um fuglalíf við
Blönduós eftir Kristin Pálsson.
BIFREIÐAEIGENDUR!
\
Við höfum farið að óskum vandlátra bifreiðaeigenda og tekið í notkun
ÖRUGGT BURSTA- OG KÚSTALAUST BÍLAÞVOTTAKERFI
fyrir minni og stærri bíla.
Þjónustan, sem fer öll fram innanhúss og byggist að hluta til á handavinnu, inniheldur meðal annars:
SÁPUHÁÞRÝSTIÞVOTT
NAUÐSYNLEGAN HANDÞVOTT
2JA ÞÁTTA SONAX-GÆÐABÓN
ÞURRKUN MEÐ HEITUM BLÆSTRI OG SNYRTINGU
Bílinn þarf að þvo og bóna reglulega, það eykur endingu hans og ánægju eigandans.
Þjónustan tekur 12-15 mínútur. Afkastageta stöðvarinnar er 40—50 bílar á klst. Tíma þarf ekki að panta.
Verð kr. 950,— 1.050,- fyrir fólksbifreiðar
1.100,- - 1.400,- fyrir jeppa og stærri bíia.
í vetur er opið alla daga nema sunnudaga.
B«.\- OG H OITAST(tHI\
Sigtúni 3, sími 14820
ÖÐRUVÍSI BÍLAÞVOTTASTÖÐ
- fjárskortur tafið framkvæmdir, segir formaður byggmgamefndar
„Það er stefnt að því að taka húsið
í notkun vorið 1994, mögulega á af-
mæhsdegi Gerðar Helgadóttur sem
er 11. apríl. Seint í haust verður þó
kannski hægt að opna húsið almenn-
ingi til sýnis,“ sagði Jón Guðlaugur
Magnússon, formaður byggingar-
nefndar Listasafns Kópavogs. Safnið
mun einnig hýsa sérstakt Listasafn
Gerðar Helgadóttur listakonu.
Listasafn Kópavogs rís í nágrenni
Kópavogskirkju. Safnið á sér afar
langa og hæga byggingarsögu.
Steyptir útveggir voru lengi það eina
sem Kópavogsbúar sáu, fram-
kvæmdir voru litlar sem engar. Það\
er fyrst nú sem einhver skriður er
kominn á framkvæmdimar og mynd
að komast á húsið. Verið er að ljúka
frágangi að utan, klæðingu veggja
með graníti og uppsetningu glerþaks.
í síðasta áfanga framkvæmdanna
verður gengið frá innréttingum.
Á fjárhagsáætlun í fyrra voru 40
milljónir settar í framkvæmdir við
húsið og gert ráð fyrir sömu upphæð
í ár.
Byggingarnefnd hússins var sett á
laggirnar fyrir 16 árum en fyrsta
skóflustungan að safninu tekin 1985.
Jón Guðlaugur hefur átt sæti í bygg-
ingamefndinni frá upphafi, lengst af
sem formaður.
- Af hveiju hefur byggingin tekið
svo langan tíma?
„Þar er einfaldlega peningaleysi
um að kenna. Það eru önnur verk-
efni sem hafa haft forgang enda
margt að framkvæma í Kópavogi."
-hlh
Byggingu Listasafns Kópavogs fer brátt að Ijúka. Standa vonir til að safnið verði opnað vorið 1994. Glerálman
tengir tvö hús. Þar eru stigar upp á loft og gert ráð fyrir kaffiteríu sem onast út í lítinn garð fyrir höggmyndir og
fleiri verk. DV-mynd Brynjar Gauti
SKEIFUNN111 • SIMI 67 97 97