Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1993, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1993
5
dv Fréttir
Hótun bændanna byggist á
öf und og peningagræðgi
- segir forstjóri KísilLðjmmar um hugsanleg málaferli bænda og hótun þeirra um lögbann
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það er ekki spurning um náttúru-
vernd heldur trúarbrögð, þessi af-
staða bændanna til þess að Kísiliðjan
fái að starfa í Syðriflóa. Þeirra trúar-
brögð eru að suður fyrir Teigasund
förum við ekki, sama hvað niður-
stöður allra rannsókna segja,“ segir
Friðrik Sigurðsson, forstjóri Kísiliðj-
unnar í Mývatnssveit, um þá hótun
bænda í Mývatnssveit að krefjast
lögbanns og hárra skaðabóta fái Kís-
iliðjan námasvæði í Syðriflóa.
„Það er ótvíræð niðurstaða allra
rannsókna að Kísibðjan valdi ekki
lífríkisbreytingum sem átt hafa sér
stað í Mývatni á undanfornum árum
heldur er um að ræða veðurfarslegar
breytingar, hlut sem við ráðum ekki
við. Niðurstaðan með tilliti til þess
er að mínu mati sú að fari ráðherra
ÞóráEskifirði:
Öllum sagt upp
Öllum starfsmönnum Útgeröarfé-
lagsins Þórs hf. á Eskifirði var sagt
upp störfum síðastliðinn fostudag en
fyrirtækið hefur átt í umtalsverðum
erfiðleikum. 12 hafa starfað hjá félag-
inu undanfarið.
Ingvar Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri og aðaleigandi fyrirtækisins,
sagði í samtali við DV að fyrirtækið
væri ekki gjaldþrota heldur hefði
verið gripið til uppsagna vegna hrá-
efnisskorts. Hann sagði verið að
breyta rekstrinum. Fara ætti út í
fullvinnslu á fiski og vinna í neyt-
endapakkningar. Búið væri að gera
samninga við spænskt fyrirtæki sem
heitir Pesca Nova og vörunni yrði
dreift undir merkjum þess.
Ingvar sagði að allir fengju vinn-
una aftur. Reyndar væri hann að
vona að þegar fullvinnslan hæfist
mynduðust 28 störf. Ingvar rekur
einnig fyrirtækið Skerseyri í Hafnar-
firði. -Ari
Eyjafiörður:
Þjófuráfullriferð
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Rúmlega fertugur Sunnlendingur,
sem kom til Akureyrar á sunnudag
og var handtekinn af lögreglu í fyrra-
dag, hafði svo sannarlega látið hend-
ur standa fram úr ermum.
Hann stal kirkjumunum úr kirkj-
unni á Dalvík, tösku af færibandi á
flugvellinum á Akureyri, ávísana-
hefti á vinnustað í bænum og falsaði
úr því ávísanir fyrir um 160 þúsund
og notaði peningana í ýmsan „lúx-
us“ eins og leigubOa, áfengi og hótel.
Þá er hann grunaður um neyslu
fíkniefna og hefur gæsluvarðhalds
verið krafist yfir manninum sem er
„góðkunningi“ lögreglunnar víða um
land.
Krossanes:
Tapið50milljónir
Gylfi Kristjánsscm, DV, Akureyri:
Krossanesverksmiðjan á Akureyri
sldlaði 18 mOljóna króna rekstrar-
hagnaði á síðasta ári en fjármagns-
kostnaður nam um 70 núlljónum og
heOdartap varð því á síðasta ári rúm-
lega 50 mOljónir.
Akureyrarbær, sem á nær öll
hlutabréf í verksmiðjunni, hefur yf-
irtekið 91 mOljón króna og leggur
fyrirtækinu að auki til 100 núlljónir.
að tOlögu nefndarinnar tel ég grund-
völl fyrir því að veita Kisiliðjunni
námaleyfi tO langs tíma.
Hvað varðar leyfi sunnan Teiga-
sunds þá er ekki fullkannað hvort
haga megi vinnslutækni með ein-
hverjum þeim hætti að breytingar,
sem gætu orðið á straumum í Syðri-
flóa, yrðu í lágmarki. Það er líka
spuming hvort hugsanlegar breyt-
ingar gætu orðið tíl góðs eða Ols fyr-
ir lífríkið. Því vOdu sérfræðingamir
ekki svara. Ég vO hins vegar benda
á að breytingar hafa ekki orðið til
Ols í Ytriflóa á þeim 25 árum sem
kísilgúrtaka hefur farið þar fram.
Þvert á móti hefur veiði aukist þar
og vatnið aOt lifnað við.
Bændur segjast ekki sjá neina aðra
orsök fyrir hnignun lífríkis í Mý-
vatni en Kísiliðjuna en það hefur nú
verið afsannað. Hótun þeirra um lög-
bann og skaðabætur á engar rætur
aðrar en öfund og peningagræðgi.
Þessir menn em að leita sér að pen-
ingum en mál þeirra snýst ekki um
vemdun Mývatns og Laxár. Komi
fram lögbannsbeiðni mun KísOiðjan
fara fram á ævintýralega háa upp-
hæð sem tryggingar enda árlegar
rekstrartekjur fyrirtækisins rúm-
lega hálfur milljarður," segir Friðrik.
GOTT KORT ER BETRA
Hver er munurinn á FARKORTI VISA og öðrum sambærilegum kortum?
VISA Önnur
Hvaða korthafar njóta vildarkjara hjá bílaleigunni BUDGET í Luxemburg, Amsterdam og Kaupmannahöfn? X □
Hvaða korthafar eiga kost á þjónustubæklingi með ferðaleiðsögn um Mið-Evrópu og afslætti hjá sérvöldum gisti- og veitingahúsum? X
Hvaða korthafar fá margháttuð afsláttarkjör á sólarströndum Portúgals, Spánar og Florida? X □
Hvaða korthafar fá „bestu kjör” á gistingu hjá hótelum innan SVG (Sambands veitinga- og gistihúsa)? X
Hvaða korthafar fá Iitmynd af sér í kortið, óski þeir þess? X L
Hvaða korthafar njóta ferðatafa- og farangurstafatryggingar? X L
Hvaða korthöfum er gert að greiða 175 kr. gjald, sé kortið notað erlendis? □
Hvaða korthöfum er gert að greiða dráttarvexti hálfan mánuð aftur fyrir eindaga ef greitt er of seint? □
Hvaða korthöfum er ekki skylt að greiða forfallagjald ferðaskrifstofa, nema þeir sjálfir kjósi? □
Hvaða korthafar fá 50% afslátt af forfallagjaldi, sem ekki er skylt að greiða? □
FARKORT VISA
Frelsi til að ferbast - ódýrt og öruggt
VISA
VISA ÍSLAND
Höfðabakka 9,112 Reykjavík, sími 671700