Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1993, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1993, Blaðsíða 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augiýsingar - Askrift - Dreifing: Sími 632700 Lélegur þorsk- árgangur átt- undaáriðíröð Bráðabirgðaniöurstöður hins ár- •lega þorskralls Hafró sýna að þorsk- árgangurinn frá í fyrra er mjög léleg- ur áttunda árið í röð. Leigðir voru 5 togarar til verkefnisins og togaö á tæplega 600 stöðum allt umhverfis landið. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra telur að niðurstööur bendi til að minnka verði aflann enn á næsta fiskveiðiári. -Ari Árekstur í Haf n- arfjarðarhöfn Dýpkunarskipið Sandey bakkaði á <bát í Hafnarfjarðarhöfn snemma í morgun. Sandeyin kom á síðu Apríl HF sem er 60 tonna eikarbátur. Ekki varð tjón á dýpkunarskipinu en Apríl skemmdist mikið. Stórt gat kom á síðu bátsins og um tíma var taliö að hann sykki í höfninni. Dælur voru fengnar til að dæla sjó upp úr bátnum og hann þéttur svo hægt væri að komahonumíslipp. -ból >> Sandgerði: Bát bjargað til hafnar Björgunarbáturinn Sæbjörg í Sandgerði fór í gær tii aðstoðar við 5 tonna Sómabát um 30 mílur suð- vestur af Grindavík. Báturinn hafði fengið trollstykki í skrúfuna og hafði skrúfan og drifið brotnað af. Hann var dreginn til hafnar í Grindavík. Björgunarbátur Sandgerðinga hef- ur haft mikið að gera að undanfomu, en nýr bátur, sem mun leysa Sæ- björgina af hólmi, kemur til landsins á laugardaginn. Nýi báturinn er yfir ' 100 tonn, keyptur frá Þýskalandi. -ból Sjálfstæðismenn: Ráðherra dragi frumvarptilbaka Aðalfundur Kjördæmaráðs Sjálf- stæðisflokksins á Reykjanesi sam- þykkti í gærkvöldi áskorun á fjár- málaráðherra um að draga til baka frumvarp um skráningu og mat fast- eigna. Ennfremur beindi fundurinn þeim tilmælum til ráðiierrans að endurskoða lög um fasteignamat rík- isins með það í huga að einungis verði eitt mat á húseignum í landinu. -kaa - — LOKI Verður Hrafn þá útvarps- stjóri? Skuldir sjávarútvegsins eru 105 milljarðar en tekjumar 70 milljarðar: ÁUhiéaaI ^IE Mn onumst ao 35-40 milljarðar tapist „Ef ekkert verður að gert varð- andi vanda sjávarútvegsins er al- veg ljóst að ekki þarf um að binda. Það er mat þeirra stofnana, sem mest hafá skoðað rekstrarafkomu sjávarútvegsins, aö hann fari í gjaldþrot veröi ekki gripið í taum- ana. Við óttumst aö þá tapist 35 til 40 milljarðar króna. Það er alveg ljóst að efnahagslífþessa lands þol- ir alls ekki það áfall, Ég vil taka það skýrt fram að ég er hér ekki með neina grýlu vegna kjarasamn- inga og þetta er heldur ekki aprílgabb. Þetta er einfaldlega stað- reynd sem viö stöndum frammi fyrir," sagði Einar Oddur Kristj- ánsson, formaður Sarotaka at- vinnurekenda í sjávarútvegi, í samtali við DV. Einar Oddur og nokkrir aðrir frammámenn í sjávarútvegi gengu á fund forsætis- og utanrikisráð- herra í vikunni og gerðu þeim grein fyrir þessu. Þeir gerðu engar kröf- ur, lýstu aðeins staöreyndum, eins og Einar Oddur orðaöi það. Hann sagöi að það gætu allir séð hvemig komið væri ef menn litu til þeirrar staðreyndar að um miðj- an síðasta áratug voru útflutnings- tekjur sjávarútvegsins um 85 millj- arðar króna og skuldir hans lika 85 milljarðar króna. Hlutfallið var eixm á móti einum. Nú eru útflutn- ingstekjurnar 70 miUjarðar en skuldímar 105 milljarðar, eöa hlut- fallið einn á móti einum og hálfum. „Menn standa því einfaldlega frammi fyrir þvi í dag að sjávarút- vegurinn ræður alls ekki við að greiða skuldir sinar. Þetta er stein- barn i efnahagskerfinu, sem ég giska á að sé ekki undir 40 milljörð- um króna, sem hann ræður ekki við að greiða. Þá kemur þessi ein- falda spuming, hver ætlar að tapa? Hverjir eru lánardrottnamir? Ég fullyröi að 40 milljaröar tapaðra skulda í sjávarútvegi muni riða ís- lenska hagkerfinu að fullu á örfá- um vikum. Hagkerfið íslenska er einn vefur en ekki margir. Það er alveg sama hvaö menn segja, þetta sem ég hef verið að nefna hér er staöreynd. Það þýöir ekki að stinga hausnum i sandinn og þykjast ekki sjá vandamálið. Það blasir við öll- um sem vilja sjá það. Það hefur orðið hrikalegt veröhrun á þeim útflutningsafurðum sem þjóðin Iif- ir á, svo einfalt er það,“ sagöiEinar OddurKrisljánsson. -S.dór t í í f f f f f f f Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra: f Rætt um einkavæðingu og ■ úttekt á Ríkisútvarpinu „Einkavæðing Ríkisútvarpsins er ein af þeim spumingum sem út- varpslaganefndin á að svara. Á að vera hér áfram ríkisrekstur á svona fjölmiðli og ef svo er á hann þá að vera í óbreyttu formi? Starf nefndar- innar er í góðum gangi þessa dagana en væntanlega munu líða einhveijar vikur eöa mánuðir áöur en hún lýk- ur störfum," segir Ólafur G. Einars- son menntamálaráðherra. Nefnd á vegum menntamálaráð- herra hefur unnið að endurskoðun útvarpslaga síðan i haust. Hún hefur þegar skilað af sér áfangaskýrslu varðandi nauðsynlegar lagabreyt- ingar vegna gildistöku EES. Stíf fundahöld hafa verið hjá nefndinni að undaníomu og hefur hún meðal annars aflað sér gagna um skipan útvarps- og sjánvarpsmála í ná- grannalöndunum. Að sögn Ólafs hefur hann rætt þann möguleika við Tómas Inga Olrich, formann útvarpslaganefnd- ar, að láta framkvæma sérstaka at- hugun á skipulagi og starfsemi Ríkis- útvarpsins. Aðspurður segir hann þá umræðu ekki á neinn hátt tengjast borttrekstri Hrafns Gunnlaugssonar frá Sjónvarpinu. „Á undanförnum vikum höfum við rætt um úttekt á Ríkisútvarpinu en því hefur ekki verið hrint í fram- kvæmd. Þetta tengist á engan hátt þessarinýjuuppákomu.“ -kaa f f f f f f Þeir mega (ara að passa sig, mótorhjólaglannarnir, þvi meö tilkomu lög- regluþyrlunnar hefur eftirlit með brotlegum mótorhjólaökumönnum batnað að miklum mun. Áður gátu mótorhjólin stungið lögreglubilana af með því að keyra þröng sund eða hverfa á milli husa. Nú fylgir þyrlan þeim hins vegar grannt eftir og getur leiðbeint lögreglumönnum á jörðu niðri um hvert ökuþórinn fer. í gær náði lögreglan einum brotlegum mótorhjóla- manni heima í bakgarði eftir að hafa elt hann uppi með aðstoð þyrlunnar. DV-mynd Sveinn ASI-forseti ekki bjartsýnn A „Ég get alveg játað það að ég er Samkvæmt heimildum DV er ekki I . ekki bjartsýnn á niðurstöður úr þrí- hliða viðræðunum. Ég hef óskað eftir ákveðnum svörum frá ríkisstjóm- inni og vil fá þau. Síðan kemur í ljós hvert framhaldið verður," sagði Benedikt Daviðsson, forseti ASÍ. búist við að ríkisstjómin telji sig geta orðið við kröfum aðila vinnumarkað- arins. Þeirri skoðun vex fylgi innan ríkisstjómarinnar aö láta ÁSI og VSÍ um það að ná kjarasamningum sín í milliáninngripsstjómarinnar. -S.dór Veðriðámorgun: Hiti 2-7 stig A morgun verður austlæg átt, stinningskaldi eða allhvasst og jafnvel hvasst á stöku stað. Súld eða rigning verður við suður- og austurströndina en skýjað með köflum annars staðar. Hiti verð- ur á bilinu 2-7 stig. Veðrið í dag er á bls. 44 ÖRYGGI - FAGMENNSKA LANDSSAMBAND ÍSL. RAFVERKTAKA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.