Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1993, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1993, Blaðsíða 28
40 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1993 Sviðsljós Gunnar Gunnarsson að teið- beina einum þátttakendanna á námskeiðinu. DV-mynd Kristján Leyndar- dómar vatnslita- málunar Kriatján Sigurðaöm, DV. Slykkahóimi; Eins og allir vlta hefur framboð af alls konar námskeiöum aukist mjög á síðastliönum árum og eru mörg þeirra mjög áhugaverð og skapaudi Eitt slíkt var haldið í Stykkishólmi þar sem Gunnar ari og myndlistarmaöur fræddi fólk um - ieyndardóma vatnslita* málunar. Aö sögn Gunnars eru vatnslitir mjög heppilegir á allan hátt, bæði eru þeir hreinlegir, ódýrir og meöfa’rilegir, að ekki sé minnst á hve gaman er að vinna raeð þá. Ekki bar á ööru en þáttttakend- umir á námskeiðinu væru sam- mála og þeir rétt gáfu sér tíma til aö líta upp úr vcrkum sínum á meöan DV staldraði við on síðan grúfðu þeir sig aftur yfir litina og mátti sjá hjá þeim hvert lista- verkiö af öðru verða til. Strákámir eru betur þjálfaðir - segir Sveinn Ólafsson, fyrrum varðstjóri í Slökkviliðinu Sveinn, fyrir miðju, ásamt félögum sínum, Sigurgeiri Benediktssyni og Jó- hanni Hannessyni. DV-mynd Sveinn „Það hefur auðvitað orðið mikil breyting á Slökkviliðinu frá því ég varð þar fastráðinn starfsmaður fyr- ir hálfri öld. Háþrýstibílamir, sem við fengum frá hemum, breyttu al- veg gífurlega miklu og strákamir eru miklu betur þjálfaðir núna heldur en við vomm. Eins hefur allur búnaður gjörbreyst og t.d. þætti einhverjum ekki merkilegar grímumar sem við sem r notuðum við reykköfun í gamla daga,“ sagði Sveinn Ólafsson, fyrrum varðstjóri í Reykjavíkurslökkvihð- inu, í stuttu spjalh við DV. Sveinn, sem kominn er vel á níræö- isaldur, hóf störf hjá Slökkviliði Reykjavíkur sem fastráðinn starfs- maður 20. mars 1943. Þá voru 10 menn ráðnir til starfa og af þeim lifa tveir í dag auk Sveins, þeir Sigurgeir Benediktsson og Jóhann Hannesson. Vegna þessara tímamóta var þre- menningunum boðið í samsæti hjá Slökkviliðinu þar sem þeir rifjuðu upp gamla tíma. Sveinn, sem starfaði um tíma með varaliði Slökkvihðsins áður en hann varð fastráðinn, segir að starfið hafi verið skemmtilegt en þó auðvitað erfitt og hann minnist sérstaklega baráttunnar þegar Hótel ísland og Laugamesspítali brunnu. Sveinn, sem hætti störfum fyrir íjórtán árum, segist hafa haft nóg að gera undanfarin ár. Varðstjórinn fyrrver- andi les, gengur mikið og spilar bridge annað slagið og dundar sér í höndunum eins og hann segir sjálfur. STJQRNUBQH BUNAÐARBANKINN Traustur banki Pálmi Pár Másson og Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir. Stjörnubókin er einhver vœnlegasta ávöxtunarleiðin í dag og er því tilvalin bœði sem fermingargjöf og fyrir fermingarpeningana. Verðtrygging og háir raunvextir. 4* Spariáskrift - allar innborganir lausar á sama tíma. 4' Vextir bókfærðir tvisvar á ári. Lausir ‘4 Stjörnubókinni fylgir lántökuréttur til til útborgunar eftir það. húsnæðiskaupa. Lánsupphæðin er að hámarki 2,5 4ti • , , , OA . , milljónir til allt að 10 ára. * Hver ínnborgun bundin í 30 manuði. J Eftir það er hún alltaf laus til útborgunar. **"

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.