Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1993, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1993, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1993 Néytendur_______________________________________________________________dv DV kannar verð á páskaeggjum: Páskaeggin ódýr- ust í Bónusi Samkvæmt verökönnun DV sem gerð var í gær er hagkvæmast að kaupa páskaeggin í Bónusi af þeim fimm verslunum sem teknar voru í könnunina. Egg nr. 5 frá Nóa kostar í Bónusi 1125 krónur en 1309 krónur í Kaupstað þar sem það er dýrast. Egg nr. 8 frá Mónu kostar 899 krónur í Bónusi en 1079 krónur í Kaupstað þar sem það er dýrast. Athygli vekur að Fjarðarkaup og Hagkaup eru með sama verð í öllum tilfellum frá Nóa og Mónu en eggin frá íslenskri dreif- ingu eru aðeins ódýrari í Hagkaupi. Búist er við verðstríði á markaðn- um þegar nær dregur páskum og geta eggin því lækkað í verði frá því sem nú er. Farið var í Kaupstað við Miðvang, Miklagarð við Sund, Hagkaup í Kringlu, Fjarðarkaup og Bónus í Hafnarfirði. Ef athugaður er verð- munur á einstökum eggjum kemur í Ijós að á eggi nr. 3 frá Nóa munar 18% á hæsta og lægsta verði. Á eggi nr. 6 frá Nóa munar 10% á hæsta og lægsta verði. A eggi nr. 4 frá Mónu munar 20% á hæsta og lægsta verði og einnig á eggi nr. 8. Á eggi nr. 10 frá Mónu munar 15% á hæsta og lægsta verði. Útlend egg .. Aðeins tvær verslanir, Hagkaup og Fjarðarkaup, bjóða upp á Prinsessu- egg frá íslenskri dreifingu. Þau egg Páskaegg Miklig. Fjarðark. Kaupst. Bónus Hagkaup Nói Nr.2 283 292 292 292 Nr.3 560 578 489 549 Nr.4 869 849 896 769 849 Nr.5 1270 1245 1309 1125 1245 Nr.6 1938 1998 1998 1812 1998 Móna Nr.2 314 299 324 299 Nr.4 630 616 649 539 616 Nr.6 814 797 839 699 797 Nr.8 1047 1025 1079 899 1025 Nr. 10 1735 1689 1789 1549 1689 íslensk dreifing Nr.7 660 646 Nr.9 923 899 Nr. 11 1279 1269 Nr. 13 1699 MD 301 Midi samstæöa Magnari - 120W Tónjafnari - 2x5 banda Geislaspilari - 32 laga minni Útvarp - AM/FM Víöóma 20 stööva minni Tvöfalt segulband - Síspilun Plötuspilari - Hálfsjálfvirkur Hátalarar - 2x70W - 3 þrep Fjarstýring - 25 aögeröa MD 301 DAC samstæða Sama og MD 301 Midi meö 5 diska geislaspilara' Skápur meö glerhurð kr. 5.900,- Jí RÖNNING SUNDABORG 15 SÍMI 68 58 68 Páskaeggin biða í hillum verslana eftir kaupendum. Hvert kíló kostar um og yfir þrjú þúsund krónur. DV-mynd ÞÖK eru innflutt og hafa verið hér á mark- aði undanfarin ár. Miðaö við kíló- verð eru útlendu eggin aðeins ódýr- ari. Sem dæmi má nefna aö kílóið af stærð 11 frá íslenskri dreifmgu kostar 2.721 en lægsta kílóverð hjá Mónu er 2.990 (stærð 2) og lægsta kílóverð hjá Nóa er 3.144 (stærð 4). Strumpa- og prakkaraegg dýrari Nói framleiðir svokaUað strumpa- egg í stærð 4. Við skoðun er ekki að sjá að eggið sé neitt frábrugðið hefð- bundnu páskaeggi að öðru leyti en því að á því trónir strumpur í stað venjulegs unga. Strumpaeggið er yf- irleitt hundrað krónum dýrara en ungaeggið. Prakkaraegg frá Mónu í stærð 6 er 50 krónum dýrara en venjulegt egg í sömu stærð. Þaö þarf sem sagt að greiða aukalega fyrir nýjungina. í Hagkaupi er til konfektegg frá Nóa í stærð 6. Það er 500 krónum dýrara en hefðbundið egg í sömu stærð. Mismunurinn liggur í því að það egg er fyllt með konfekti eins og nafnið gefur til kynna. Nói framleiðir páskaegg úr dökku súkkulaði í stærð 4 en það kostar það sama og eggið úr Ijósa súkkulaðinu. Egg fyrir sykursjúka og með mjólkurofnæmi Móna framleiðir egg fyrir sykur- sjúka og fékkst það alls staðar nema í Bónusi. Það kostar 1199 krónur og er í stærð 8. Móna framleiðir líka egg án ipjólkur fyrir þá sem eru með mjólkuróþol en þaö egg fékkst í Hag- kaupi og Miklagarði. Það kostar 1139 krónur í Hagkaupi en 1033 krónur í Miklagarði. Dýrt hvert kíló Hvert kíló af páskaeggi kostar um 3.000 krónur sem þykir allnokkuð. Til samanburðar má nefna aö kíló af súkkulaði í 100 g pakkningum kostar innan viö 1000 krónur að með- altali en sú tala fer eftir því við hvaða tegund er miðað. -JJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.