Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1993, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1993, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 1. APRlL 1993 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvaemdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaóaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI 14. 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aörar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð I lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Hrafninn flýgur Ekkert var ofsagt í ummælum Hrafns Gunnlaugssonar um ríkisútvarp aílra landsmanna. Ástand stofnunarinn- ar er lakara en hann lýsti því í þrautleiðinlegum og inn- hverfum sjónvarpsþætti, sem starfsmenn stofnunarinnar töldu eiga erindi við landsmenn á bezta hlustunartíma. Hrafn gat ekki virðingarleysis Ríkisútvarpsins gagn- vart íslenzku talmáh, sem sést af því, að það hefur ein- göngu einn málfarsráðunaut, þótt stóru dagblöðin tvö hafi á sínum snærum tíu manns í fullu starfi og með mikið úrskurðarvald við að vemda íslenzkt ritmál. Hrafn sagði, að Ríkisútvarpið væri stöðnuð stofnun. Það er hverju orði sannara, en segir þó ekki allan sann- leikann. Réttara væri að lýsa stofnuninni sem steinrunn- inni. Hún væri gersamlega bjargarlaus, ef hún væri tek- in úr vemduðu umhverfi þvingaðra afnotagjalda. Hrafn sagði Ríki'sútvarpið þjást af atgervisflótta. Það er fremur vansagt en ofsagt, eins og sést, bezt af, að þar þarf að minnsta kosti tvo menn til að sinna sem svarar hveiju einu starfi á Stöð 2. í mannafla er stofnunin eng- an veginn hæf til samanburðar við umhverfi sitt. Þann fyrirvara má þó hafa á lýsingunni, að hún á misvel við einstakar deildir Ríkisútvarpsins. Fréttastofa Gufunnar er að mörgu leytí. ágæt deild, sem þjónar vel hlutverki sínu, en er reyrð í viðjar úreltra vinnureglna frá tímum stofnanalegri úölmiðlunar en nú tíðkast. Við gagnrýni Hrafns má bæta með því að segja Ríkisút- varpið vera algera tímaskekkju. Það stendur sig ekki frá sjónarhóh markaðshyggju og ekki heldur frá öðrum sjón- arhóh, svo sem varðveizlu íslenzkrar tungu. Það ber flest af kunnum einkennum andvana einokunarstofnunar. Ríkisútvarpið er fyrir löngu hætt að vera eign allra landsmanna, ef það hefur einhvem tíma verið það. Það hefur verið að breytast í eins konar sjálfseignarstofnun starfsmanna, svo sem sést af formi og skipulagi þrautleið- inlegrar og innhverfrar þáttaraðar þess um sjálft sig. Eðlilegt er, að starfsmannafélag slíkrar stofnunar reki upp ramakvein, þegar hluti sannleikans er sagður um stofiiunina og frammistöðu starfsmanna. Einnig er eðh- legt, að það mótmæh sjálfsögðum tihögum Hrafns um, að dagskrárgerð verði boðin út í meira mæh en áður. í heilbrigðum fyrirtækjum er fólk rekið fyrir það, sem það gerir eða gerir ekki. Það er ekki rekið fyrir rangar skoðanir og þaðan af síður fyrir réttar skoðanir. Brott- rekstrarsök Hrafns er táknræn sjálfslýsing afvegaleiddr- ar stofnunar, sem er upptekin af sjálfri sér. Það er dæmigert fyrir Ríkisútvarpið, að sem stofnun þolir það ekki að heyra sannleikann eða hluta sannleik- ans um það sjálft. Það er orðið svo háð hinu vemdaða umhverfi í gróðurhúsi þvingaðra afnotagjalda, að það þolir ahs ekki tjáningarfrelsi innanhússmanns. Hrafn Gunnlaugsson vex af brottrekstrinum, en Ríkis- útvarpið minnkar. Brottreksturinn er þó ekki með öhu ihur, því að hann mun opna augu fleiri manna fyrir því, að stofnunin er tímaskekkja, sem leggur óþarfa byrði á skattgreiðendur á tímum nægs framboðs af fiölmiðlun. Þegar Ríkisútvarpið loksins verður selt, er rétt að gera það í hlutum, svo að eitthvað fáist fýrir þá hluta þess, sem markaðsgildi hafa, svo sem fréttastofur útvarps og sjónvarps. Fæstar aðrar dehdir þess em söluhæfar og verða væntanlega lagðar niður í fýllingu tímans. Vonandi flýtir frumhlaup Ríkisútvarpsins fyrir því, að tímaskekkjan hverfi af vettvangi, skattgreiðendum th hægðarauka og fijálsri notkun fiölmiðla th framdráttar. Jónas Kristjánsson Greinarhöfundur segir Finna leggja áherslu á sérstööu sina viö inngöngu í EB, ekki sist i landbúnaöi og byggðamálum. Af hverju vilja Finnar í EB? Finnar leggja mikla áherslu á aö telja sig Evrópuþjóð með norrænar hefðir í lýðræði, menningu, lögum og rétti. Reynsla þeirra í seinni heimsstyijöldinni og barátta fyrir sjálfri tilveru finnska rikisins hafa sett sitt mark á utanríkisstefnu þeirra. Nú, þegar kalda stríðinu er lokiö, grípa Finnar tækifærið og vilja treysta sjálfstæði sitt með að- ild að Evrópubandalaginu. Finnar horfa til Evrópu framtið- arinnar þar sem lýðræði, mann- réttindi og markaðsskipulag verða í fyrirrúmi. Þeir álíta að Evrópu- bandalagið muni leika lykilhlut- verk í þróun mála. Finnar telja aðild að EB í þágu þjóðarhagsmuna sinna og vilja taka fullan þátt í uppbyggingunni í Evrópu og taka á sig þær skyldur sem þaö hefur í fór með sér. Berjast fyrir hagsmunum sínum Finnar segjast í aðildarviðræðum sínum við EB ætla að halda fram skoðunum sínum og berjast fyrir hagsmunum sínum jafn ákaft og aðrar þjóðir. Þeir stefna aö niður- stöðu sem finnska þjóðin álítur samræmast hagsmunum sínum og getur því samþykkt. Finnar búast ekki við neinum vanda í aöildar- viöræöunum varðandi utanríkis- og vamarmál. Þeir telja heldur ekki aö hinn sameiginlegi markað- ur skapi vanda enda telja þeir sig eiga samleið með EB á flestum sviðum. Finnar sækjast ekki eftir varan- legum undanþágum frá reglum eða skyldum EB en telja sig þurfa að fá kjör við inngönguna sem tryggja KjaUariim Vilhjálmur Egilsson alþm., framkvæmdastjóri Verslunarráós íslands þeim jafnræði og réttláta stöðu sem aðila að bandalaginu. Þeir vilja að við beitingu og þróun reglna Evr- ópubandalagsins sé sérstaöa Finn- lands tekin með í reikninginn. Sér- staklega á þetta við um landbúnaö og byggðamál. Þeir telja sérstakar aðgerðir nauðsynlegar til að vega upp lofts- lag á norðurslóðum og miklar vegalengdir. Því þurfi finnski land- búnaðurinn aðlögunaraðgerðir til þess að geta starfað á sameiginleg- um markaði. Finnar telja sig hafa svipaða stefnu og EB í byggðamál- um og benda á að þeir hafi stór útkjálkahéruð á landamærum sín- um. Þessar aðstæður verði m.a. að hafa í huga þegar réttur til aðstoðar úr sjóðum EB er metinn. Finnar munu að sjálfsögðu sækjast eftir þeim áhrifum sem þeir telja sér bera innan bandalagsins. Þeir leggja áherslu á að bæði finnska og sænska verði meðal opinberra mála EB. Ennfremur verði að taka tillit til sjálfstæðis Álandseyja. Erum við öðruvísi? Við getum velt ýmsu fyrir okkur vegna afstöðu Finna til EB. Af hveiju skyldu Finnar telja aðild að EB styrkja sjálfstæði sitt og af hverju erum við í annarri stöðu? Finnar treysta sér til að sækja um aðild og beijast fyrir hagsmunum sínum innan EB. Hvað um okkur? Vilhjálmur Egilsson „Finnar búast ekki við neinum vanda 1 aðildarviðræðunum varðandi utan- ríkis- og varnarmál. Þeir telja heldur ekki að hinn sameiginlegi markaður skapi vanda.. Skoðanir annarra Aðgerðirnar skiluðu sparnaði „Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra hefur á köflum sætt mikilli gagnrýni fyrir spamaöar- aðgerðir í heilbrigðismálum. Sú gagnrýni hefur kom- ið úr ólíklegustu áttum - meðal annars ítrekað úr röðum samstarfsflokksins í ríkisstjóm. Þessa gagn- rýni hefur ráðherrann staðið af sér... Nú er hins vegar smám saman að koma í ljós, að aðgerðir Sig- hvats Björgvinssonar hafa fyllilega skilað því sem að var stefnt: dijúgum spamaöi og hagræöingu án þess að draga úr þjónustu við sjúklinga." Úr forystugrein Alþbl. 30. mars Ríkissjóðshallinn „Eftir þær skattahækkanir, sem ákveðnar vom í nóvembermánuði sl. er nánast óhugsandi að hækka skatta meira. Þess vegna er ekki önnur leið fær til þess að draga úr ríkissjóðshallanum en að draga úr kostnaöi. Það er augljóst, að lítið vit er í því að leggja aukinn kostnaö á ríkissjóð viö þær aðstæður." Úr forystugrein Mbl. 31. mars Krafa til sjónvarpsstöðva „Hlutur sjónvarps og kvikmynda í því að ala upp ofbeldishneigð í unglingum hefur verið til umræðu. Þaö er að vonum, því Ijóst er að þessir miðlar era mjög áhrifamiklir og höfða til bama og ungl- inga... Gera veröur þá kröfu að dagskrárstjórar og innkaupamenn sjónvarpsstöðvanna hafi ein- hveija siðferðislega viðmiðun um það efni sem sjón- varpið býöur upp á.“ Úr forystugrein Tímans 30. mars

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.