Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1993, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1993, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR14. APRÍL1993 Fréttir Herra Ólafur Skúlason biskup um útvarpspredikun forstöðumanns Betels: Mjög óhressir með nei- kvætt mat á fermingum - erumlönguhættiraðbannfæraverkeinstaklinga „Ég held að við hljótum að óska eftir að það verði rætt mjög vandlega á þessum fundum hvemig þessu verði háttað í framtíðinni. I þessari predikun kom fram mjög neikvætt mat á fermingum íslensku kirkjunn- ar sem við myndum náttúrlega aldr- ei skrifa undir. Eitt mesta verk sem þjóðkirkjan vinnur er að búa börn undir fermingu og framtíð. Við erum auðvitað mjög óhressir með þessi ummæli," sagði herra Ólafur Skúla- son biskup aðspurður um útvarps- predikun Snorra Óskarssonar, for- stöðumanns Betel-safnaðarins í Vest- mannaeyjum, á skírdag. Eins og fram kom í DV í gær hefur Samútgáf- an ákveðið að stefna Snorra fyrir meiðyrði um útgáfuna og ritin Bleikt og blátt og Hulinn heim. Um ummæh Snorra um að bölvun fylgdi Samútgáfunni sagði biskup: „Mér finnst hann taka mjög djúpt í árinni. Ég verð að viðurkenna að þessi rit þekki ég ekki og get ekki dæmt um. En við erum löngu hættir að bannfæra verk einstaklinga og myndum ekki taka þátt í neinu slíku. Þetta verður örugglega rætt á næsta fundi samstarfsnefndarinnar. Það veröur örugglega lögð áhersla á að við gætum hófs í boðun - þótt hver og einn tali í nafni sinnar kirkjudeildar þá gæti hann hófsemi í umfjöllun um aðrar kirkjudeildir." Biskup segir að þjóðkirkjan leiði raunverulega samstarf sem komið hefur verið á hjá kristnum trúfélög- um hér á landi - framangreind út- varpsmessa var einmitt haldin af öll- um þeim söfnuðum. Formaður sam- starfsnefndarinnar hefur ævinlega verið frá þjóðkirkjunni. „Það hefur verið aðalverkefni þess- arar nefndar að gangast fyrir sér- stakri bænaviku á hveiju ári. Þessar messur, sem hafa verið fluttar á veg- um nefndarinnar, eru algerlega á ábyrgð þeirra sem þar koma fram. Enginn vissi hvað ræðumaðurinn myndi fjalla um í þessari útvarps- messu. Ræöan kom því formanni nefndarinnar, séra Hjalta Guð- mundssyni í Dómkirkjunni, alveg jafnmikiö á óvart eins og öllum öör- um,“ sagði Ólafur. „Ég vona að samstarfið haldi áfram. Ég held aö það sé nauðsynlegt að trúardeildir spjalli saman. Þaö hefur verið of mikið um að „skeyti" hafi verið send á milli sem ætti síður að vera hætta á ef viö sitjum saman við borð og ræðum um það sem sam- einar okkur. Látum það liggja milli hlutasemaðskilur." -ÓTT Tvöfíkniefnamál: Afsöguð haglabyssa og heimatil- búin skot- vopn fundust í bílskúr - níu manns handteknir Stórt vopnabúr, meðal annars af- söguð haglabyssa og heimatilbúin byssa, fannst um páskana í tengslum við rannsókn á fíkniefnamáli. Upphaf málsins var að fíkniefna- lögreglan og sérsveit lögreglunnar réðust til inngöngu í hús í austur- bænum á þriðjudaginn fyrir viku. Lögreglan hafði fengið ábendingar um að í húsinu byggi fertugur maður sem hefði undir höndum bæði fíkni- efni og skotvopn og vegna upplýsinga um vopnin var óskaö eftir aðstoð sérsveitarinnar. Tvítugur karlmaður var handtek- inn þegar hann fór frá húsinu og þrír voru handteknir inni í því, sá fertugi sem býr í húsinu, 32 ára kona og 45 ára karlmaður. Öll eru vel þekkt hjá fíkniefnalögreglunni. Við húsleit í íbúðinni fundust tæp 2 grömm af hassi, tæp 28 af amfetam- íni auk fjölda áhalda til neyslu fíkni- efna. Einnig fannst um hálft gramm af kókaíni við leit á þeim fertuga. Engin vopn fundust í íbúðinni en við frekari rannsókn málsins kom í ]jós að sá fertugi var með bílskúr í Hafnarfirði á leigu. Þegar þar var leitað fannst heilt vopnabúr, meðal annars afsöguð tvíhleypa, loftbyssa, startbyssa auk svokaúaðrar penna- byssu sem er heimatilbúin byssa. Hátt í fjögur hundruð riffilskot fund- ust og tæplega 300 haglaskot, þar af 7 slöggskot sem eru lífshættuleg, stór skot og telur lögregla stærstan hluta þeirra vera heimatilbúinn. Auk þessa fannst smáræði af amfetamíni, hnífar og nokkur útvarpstæki úr bíl- um og er talið að þau séu þýfi. Við yfirheyrslur viðurkenndi mað- urinn að hafa átt vopnin. Hann dvelst nú á geðdeild að eigin ósk. Fíkniefnalögreglan handtók einnig fimm manns, 3 karlmenn og 2 konur á aldrinum 21 til 33 ára, eftir húsleit í miðbænum fyrir helgi. Þegar lög- reglan réöst inn var fíkniefnaneysla í fullum gangi og var lagt hald á um 28 grömm af hassi og 16 af amfetam- íni. 33 ára karlmaður játaði við yfir- heyrslur að eiga fikniefnin og viöur- kenndi hann að hafa fyrir skömmu keypt 50 grömm af hassi og 15 grömm af amfetamíni sem hann sagðist hafa ætlaötileiginnota. -ból Seldar myndir Hrafns Gunnlaugssonar til grunnskólanna: Hafa mjög takmarkað sagnfræðilegt gildi - segirGunnarKarlssonprófessor „Eg get alveg sagt að þessar mynd- ir hafa mjög takmarkað sagnfræði- legt gildi. Mér finnst til dæmis að í myndinni í skugga hrafnsins sé ekki rétt túlkun, sem maður getur ráðið af heimildum, um hugarheim ís- lensks fólks að fomu. Það verður auðvitað að giska á margt í kvik- myndum um ytri umbúnað - það er svo margt sem er ekki vitaö og það er ekki tiltökumál þó menn séu um margt ósammála þar. En mér finnst ekki vera trúverðugur víkingaaldar- hugarheimur 1 þessum víkinga- myndum Hrafns Gunnlaugssonar. Þess vegna finnst mér þetta hafa tak- markað sagnfræðilegt gildi með hhð- sjón af Islendingasögunum og því sem við vitum um hugmyndaheim miöaldamanna,“ sagði Gunnar Karlsson, prófessor í sagnfræði við Háskóla íslands. Gunnar var spurður um álit sitt á sagnfræöilegu gildi þeirra þriggja kvikmynda sem menntamálaráðu- neytið hefur keypt af Hrafni Gunn- laugssyni til sýninga í grunnskólum landsins - í skugga hrafnsins, Lilju og Óðals feðranna. Myndimar voru keyptar á samtals tæplega 8 milljónir króna. Gunnar sagði um kvikmyndina í skugga hrafnsins að hún gæti hugs- anlega kveikt áhuga hjá nemendum - þannig gætu þeir notið góðs af þeim: „Sögulegar kvikmyndir eru mjög góðar," sagði Gunnar. „Þær eru fallnar til þess að kveikja áhuga og segja mjög mikið. En ég vildi fá betri sagnfræðilegri og trúverðugri mynd- ir af þessum foma heimi.“ Gunnar sagðist ekki vilja tjá sig um sagnfræðilegt gildi kvikmyndarinn- ar Óðal feðranna að svo komnu máli. Hann kvað ekki beinlínis hægt að „ætlast til þess“ af kvikmyndinni Lilju aö hún hefði sagnfræöilegt gildi þar sem hún virtist beinlínis vera bókmenntalegt verk. -ÓTT Visindasinnaðir nemar i Menntaskólanum i Reykjavík ætla að iáta áratuga gamlan draum rætast á morgun og ganga yfir Tjörnina i allsérstæðri „framtiðarkúlu". Kúlan er hönnuð og byggð af félögum i kúludeild Visindafélags Framtiðarinnar. Hún er 2,5 metrar í þvermál með uggum sem hindra stefnulaust flakk á yfirborði vatnsins. Inni i kúlunni verður kúlufari sem knýr hana áfram með líkamsorku sinni og þyngd. Kúlan verður sett á flot klukkan 11 í fyrramáliö en óvíst er hvenær hún nær landi að nýju. Stuttar fréttir Fuglartrufiafiug Flugfélag Norðurlands hefur þrísvar á skömmum tíma orðið fyrir miMu fjárhagslegu tjóni vegna fugla við flugvöllinn á Ak- ureyri. RÚV segir gæs nýverið hafa valdið yfir 10 milljóna tjóni. Hafsbotninn kannaður Umfangsmikil alþjóðleg könn- un er fyrirhuguö á hafsbotninum við ísland i sumar og haust. Er- lent borunarskip með 120 manna áhöih verður fengið til að bora í botninn. Samkværat Mbl. verða faraír 8 leiðangrar á næstu árum. ísienskri kvikmyndahátíð lauk íyrir skömmu i New York en þar voru sýndar sex nýlegar myndir. Skv. Morgunblaðinu mættu um 900 manns á hátíöina. Að auki sáu um 600 áhorfendur myndina Inguló sem sýnd var á sama tíma. Jafnréttí hjá Gæsiunni Konur eru nú um borð i öilum skipum Landhelgisgæslunnar. Til þessa hefur ríkt tregða við að ráða konur um borö í skipin. VeðurgjaMáflug Flugvélageigendum verður í ár gert að greiða nýtt þjónustugjald tfi Veðurstofunnar. Samkvæmt íjárlögum á gjaldið aö skila 10 milljónum króna. Stöö tvö segir mikla óánægju vera tneðal flug- rekstraraöila vegna þessa. Skorturávinnuafii Skortur er á vinnuafii á Tálkna- firði en vegna skorts á íbúðarhús- næði gengur illa að bæta úr því. Stöð tvö hefur eftir hreppstjóran- um að hiö góöa atvinnuástand skýrist meöal annars af því að hreppurinn hafi ekki haft afskipti af rekstri fýrirtækja á staðnum. Skóli án nemenda Nær öll starfsemi hefur legiö niðri i Bankamannaskólanum að undanfömu. Ósamkomulag um kostnað veldur því að bankar landsins senda ekki starfsfólk sitt í skólann til þjálfunar. Akraneskyrrsett Flutningaskipiö Akranes hefur veriö kyrrsett í Noregi uns gengið hefur verið frá kjarabót rúss- neskra og pólskra starfsmanna um borö. Morgunblaðiö greinir fráþessu. -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.