Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1993, Page 8
8
MIÐVIKUDAGUR14. APRIL1993
Utiönd
skautviðhald
kærustunnar
Nítján ára gamall danskur friö-
argæsluliði skaut elskhuga kær-
ustu sinnar til bana þegar hann
kom heim um páskana eftir störf
i Króatíu. Fólkiö bjó allt á Hels-
ingjaeyri.
Gæsluliöinn vissi aö kærastan
haíði verið honum ótrú. Hann fór
á heimili hennar meö það í huga
aö losna viö eljara sinn í eitt
skipti fyrir öll. Lögreglan hand-
tók morðingjann en hann hefur
enn ekki verið yíirheyrður vegna
truflunar á geði.
þreytuogsvima
Raisa Gorh-
atsjova varö aö
leggjast inn á
sjúkrahús í
Richmond í
Virginíu nú í
byijun vikunn-
ar vegna
þreytu og
svima. Hún og Mikhaíl maður
hennar eru á ferð um Bandaríkin
og varð að breyta dagskránni
vegna lasleíka frúarinnar.
Raisa hefur veriö fremur
heilsutæp allt frá því á tímum
valdaránsins í Moskvu haustið
1991. Þá var hún undir rniklu
álagi meðan framtíö marms
hennar var í óvissu.
Dauðasveitir
berjahundainni
á heimilunum
Kínverskur dýravinur og fyrr-
um hundeigandi hefúr kært yfir-
völd í heimborg sinni, Shenyang,
fyrir að drepa hundinn hans að
tilefnislausu.
Víða í Kína er mikU áhersla
lögð á að fækka hundum og eru
gerðar út dauöasveitir til aö berja
þá til bana. Þannig fór fyrir hundi
kærandans. Menn úr dauðasveit
borgarinnar sóttu seppa inn á
heimilið og drápu fyrir augum
eigandans.
Greiddi niður
brauðogmjólk
fyrir kjósendur
„Ég er _ekki
sósíalistí. Ég er
ekki kommún-
isti. Ég er eklci
lýðræðissinni.
Eg er kapítal-
isti," sagði
Kirsan Hyu-
manhinov,
fyrrum kommúnisti og sigurveg-
ari í forsetakosningum í sjálf-
stjómarhéi’aöinu Kalmykiu við
Kaspíahaf.
Ræðumennska tryggöi honum
þó ekki 65% atkvæða heldur nið-
urgreiddi hairn brauö og mjólk
fyrir kjósendur úr eigin vasa.
Kirsan er miUjaröamæringur í
rúblum talið og lofar stuðnings-
mönnum sinum „alræði seöl-
anna“.
Gamlafólkið
Skoðanakönnun í Ástraliu sýn-
ir aö gamla íólkiö er enn á bandi
Elísabetar drottningar og vill
ekki sambandsslit við Breta.
Þeir sem enn eru innan viö
ftmmtugt vflja fremur stofna lýð-
veldi. Lýöveldissinnar eru fjórö-
ungi fleiri en konungssinnar og
fer flölgandi. Núverandi sfjómar-
flokkur vill lýöveldi. Reuter
Risaútgerðarfyrirtæki stofnað í Færeyjum gegn vilja heimamanna:
Fara með Færeyínga
eins og nýlenduþjóð
- segir Óli Brekkmann, þingmaður Fólkaflokks, um aðgerðir Dana í eyjunum
Jems Dalsgaard, DV, Færeyum;
„Danir ætla sér greinilega að fara
með Færeyinga eins og nýlenduþjóð.
Þetta er ekkert annaö en nýlendu-
stefna,“ sagði Óli Brekkmann, þing-
maður færeyska Fólkaflokksins, í
danska útvarpinu í gær eftir að frétt-
ist að dönsk fj ármögnunarfyrirtæki
og bankarnir í Færeyjum heföu kom-
ið sér saman um stofnun fyrirtækis
sem yrði einrátt í sjávarútvegi.
Orð þingmannsins voru borin und-
ir Poul Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Dana, en hann sagðist ekki
taka þau alvarlega. Ráöherrann
sagði að Óli væri vanur að taka
Oli Brekkmann þingmaður ber ný-
lendustefnu á Dani.
stærra upp í sig en gerðist með þing-
menn í Danmörku og því yrðu menn
að skoða ummæli hans í því ljósi.
Enn hefur ekki verið staðfest að
nýja fyrirtækið sé tilbúið til að hefja
rekstur. í gær voru fulltrúar stóru
bankanna tveggja í Færeyjum á
fundi í Danmörku og þá kvisaðist út
að niðurstaða væri fengin eftir nokk-
urra vikna þref. Bankarnir lúta báð-
ir stjóm Dana.
Nýja fyrirtækið verður hlutafélag
og stefnan er að selja sem mest af
eigum þess ef kaupendur finnast.
Stjórnendur dönsku verslunarkeðj-
unnar, sem áður lýstu áhuga á fjár-
festingum, eru hættir við.
Landstjórnarmenn hér í Færeyjum
hafa ekki getað fylgst með framvindu
málsins. Þeir ráöa og litlu um hvað
gerist héðan af því skuldir bæði út-
gerðar og fiskvinnslu í Færeyjum
eru gífurlegar og framtíð allra fyrir-
tækja í sjávarútvegi á valdi danskra
fjárfesta.
Fyrir páska leituðu landstjórnar-
menn ásjár hjá dönsku stjóminni en
höfðu ekki erindi sem erfiði. Fyrir
Danmerkurfórina hafi John Peter-
sen sjárvarútvegsráðherra uppi stór
orð um ráðslag Dana. Nú heyrist
ekkert til hans og leiða menn að því
getum að danskir ráðherrar hafi sett
honum afarkosti.
Heimsmet í skeggvexti
Elahi Bakhash Balasnch í Islamabad I Pakistan er sannkallaður heimsmeistari i skeggvexti. Hann vinnur nú við
það eitt að sýna stolt sitt i sirkusum. Meðal sýningaratriða er að lyfta tveimur 40 kílóa þungum börnum upp á
yfirvararskegginu. Klæðskeri var í gær fenginn til að úrskurða um skeggvöxtinn. Hann mældi 73 sentímetra end-
anna á milli á mottunni. Símamynd Reuter
Barnsmóðir mín er innblásin af djöflinum
- segir Eamonn Casey, fyirum biskup af Galway, öskureiður í felum í Mexíkó
Sjödauðirí
fangauppreisn
Sjö fangar hafa nú fallið í upp-
reisninni í öryggisfangelsinu í
Oliio sem braust út um páskana.
Tugthúslimirnir börðu sex félaga
sínatil dauöa en ekki er enn vitað
um dánarorsök þess sjöunda en
lík hans fannst í gær. Nokkrum
fangavörðum er ennþá haldið i
gíslingu en samningaviðræður
standa yfir með hléum.
Fangarnir krefjast betri aðbún-
aöar í steininum og að fá að koma
kvörtunum sinum á framfæri viö
fjölmiöla. Þeir eru nú án vatns
og rafmagns og hafa verið matar-
lausir frá því á páskadag.
Útiklósetti
NewYork
Borgaryfirvöld í New York hafa
ákveðið að setja upp útiklósett
víös vegar um borgina. Mario
Cuomo borgarstjóri skrifaði und-
ir pappíra þar að lútandi i gær
en 1 New York, ólíkt flestum öðr-
um stórborgum, er afekaplega lít-
iö ura almenningssalemi.
Ákvörðunin nú kemur í kjölfar
tilraunar sem gerð var á síðasta
ári en þá voru þijár mismunandi
gerðir salerna settar upp. Aö-
sóknin var svo góð að ekki þóttí
stætt á öðru en koma upp fleiri
klósettum. Með þessu eru borgar-
yfirvöld að slá tvær flugur í einu
höggi, koma til móts viö borgar-
ana og skapa sér auknar tekjur
en það mun kosta nokkrar krón-
ur að kasta af sér vatni í salern-
um borgarinnar. Klósettunum,
sem verða búin sjálfvirkum
hreinsibúnaði, verður komið upp
á næstu tólf mánuðum, Reut«r
Annie Murphy og sonurinn Pétur.
„Barnsmóðir mín er innblásin af
djöflinum,“ segir Eamonn Casay,
fyrrum biskup af Galway á írlandi,
um bólfarasögumar sem Annie
Murphy hefur sagt af honum. Cacey
boðar nú trú á afskekktum stað í
Mexíkó og lætur lítið fyrir sér fara.
Hann hrökklaðist úr embætti eftir
að Murphy kenndi honum son sem
nú er 19 ára gamall. Áður var hann
í röð virtustu klerka á írlandi. Murp-
hy segir að biskup hafi bamað sig í
aftursæti á sportbifreið sinni og síð-
an neitað að viðurkenna faðemi
bamsins. Hún segir aö biskup hafi
áður eignast bam í lausaleik.
Murphy segist hafa ákveðið að bíða
öll þessi ár með að segja söguna opin-
berlega vegna þess að það hafi verið
undir syninum Pétri komið hvort
opinbera ætti faðemi hans.
Bók um ástarlíf biskups hefur vak-
ið mikla athygli á Bretlandseyjum.
Lengi vel var ekkert vitað um dvalar-
stað hans. Nú um páskana fannst
hann þó í Mexíkó og var ómyrkur í
máli þegar írskur blaöamaður ræddi
við hann. Biskup sagði að efni bókar-
innar væri uppspuni en hann hefur
þó ekki neitað að vera faðir Péturs.
Casey sagði augljóst að Murphy
vildi hefna sín á honum. Henni væri
ekki sjálfrátt lengur enda greinilegt
að djöfullinn væri kominn í spilið.
Illskan réði peima konunnar.
Biskupinn í skrúða sínum.