Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1993, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1993, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR14. APRÍL1993 Utiönd Fimmtán millj« ónir í bætur fyrir ástleysi „Ég hef aldrei elskað þig,“ sagöí hún Donna við mann sinn, Rog- er, þegar þau voru að ganga frá skilnaðarpappírunum eftir 30 ára sambúð. Þessi orö haía reynst Donnu dýr. Roger kærði hana þegar í stað fyrir svik því hún hefði heit- iö honum og ást og umhyggju viö giftinguna. Dómstóll í Bandaríkj- unum hefúr dæmt Roger um 15 milljónir króna 1 bætur fyrir ást- laust hjónaband. Jarðneskar leifar Gretu Garbo: Askan í krukku útfararstjóra Jarðneskum leifum leikkonunnar Gretu Garbo, sem lést fyrir þremur árum, hefur ekki enn veriö fundinn Ntfi Ó'it' uCik’S''0 \l «k* ODYR TAUSETT NÝKOMIN EINNIG GLESUEGIR «F©RT 1EÐURS0FAR 0G , HORNSÓFAR I MIKLll ÚRVALI 3ja ára ábyrgö! Veriö velkomin! HUSGOGN FAXAFENI 5 SÍMI 674080 / 686675 Jarðneskum leifum Gretu Garbo hefur ekki en verið fundinn staður. hvíldarstaður. Ábyrgðin hvílir á frænku kvikmyndastjömunnar og erfmgja, Gray Reisfield, en hún getur ekki ákveðið sig. Fjölmargir aðilar hafa komið fram á sjónarsviðið og boðist til að geyma ösku leikkonunnar og frænkan á nú úr vöndu að ráða. Til greina hefur komiö að leifar Garbo verði fluttar í kirkjugarðinn í Stokkhólmi en þar hvíla foreldrar og yngri systir leik- konunnar. Reisfield er þó ekki alls kostar sátt við þann kost og segist óttast að öskunni verði stoliö þaðan. Erfinginn hefur ekki viljað upplýsa hvar krukkan með leifum Garbo er geymd og segir að það sé fyrir bestu að dvalarstaðnum verði haldið leyndum. Flestir telja að krukkan sé enn í fórum útfararstjóra í New York en nokkrir hallast þó að því að askan sé þegar komin til Svíþjóðar. Á meðal þeirra sem taka undir það sjónarmið að halda öllu leyndu er besti vinur Garbo, Mimmi Pollak, en hún bendir á að eins geti farið fyrir jarðneskum leifum hennar og Charlie Chaplin. Aðdáendur hans gerðu sér lítið fyrir og grófu upp lík- kistu hans og höfðu á brott með sér. Garbo, sem lést 15. apríl 1990, þá 84 ára að aldri, var alla tíð illa við margmenni og hún forðaðist blaða- menn eins og heitan eldinn. Hún yf- irgaf Hollywood á hátindi ferils síns og fór nánast huldu höfði í hálfa öld. Líf hennar var mörgum ráðgáta og sama má segja um dánarorsökina sem aldrei hefur verið gerð opinber. Reuter Eftirlitsþotur koma frá flugstöðinni í Avíano á Ítalíu. Meðal þeirra eru 12 F-15 orrustuþotur. Ungverjaland N Rúmenía Flugbanns- svæðið nær yfir alla Bosníu • Belgrade • Srebrenica Serbía 0 50 km Montenegró Þotur frá flugmóðurskipunum Roosevelt (Bandar.), Ark Royal (Bretl.) og Clemenceau (Frakkl.) við strönd Króatíu framfylgja flugbanninu. ZI v Makedónía Albanía - g| Grikkl. Serbar halda áfram sókn í Bosníu: Ref singum frestað að beiðni Jeltsíns Ekkert verður úr að refsiaögerðir Sameinuðu þjóðanna gegn Serbum veröi hertar fyrr en eftir aö búiö er kjósa í Rússlandi um skiptingu valda milli þings og forseta þann 25. apríl. Borís Jeltsín Rússlandsforseti hef- ur lagt á það þunga áherslu að beðið verði með allar ákvarðanir þar til búið er að kjósa enda gæti það komið honum í koll ef Serbar verða beittir meiri þrýstingi en nú er.' Andstæöingar forsetans eru marg- ir hhðhollir Serbum og saka Jeltsín á sama tíma um að vera um of hallur undir Vesturlönd. í morgun varð þaö að samkomulagi á fundi utanríkisráðherra sjö helstu iönríkja heims að fresta atkvæöa- greiðslu um refsiaðgerðir í Öryggis- ráðinu þar til búið er að kjósa í Rúss- landi. Því er líklegt að ástandiö í Bosníu veðri óbreytt næstu vikur þrátt fyrir að herþotur.NATO hindri að flugher Serba komist á loft. Áfram er barist á landi og í morgun gerðu Serbar enn árás á bæinn Sre- brenica. Þar hefur orðið mikið mannfall síðustu tvo daga. Reuter Danskir sjómenn enn ósáttir Danskir sjómenn eru ósáttir við samkomulag forystumanna þeirra við stjómvöld um úrbætur í málum þeirra. Ráðherra hefur boðið útgerð- armönnum aðstoð við aö hætta og endurbætur á kvótakerfinu. ' Sjómenn hafa frá því fyrir páska lokaö höfnuð og hóta áframhaldandi aðgerðum ef ekki verður farið aö kröfum þeirra. Enn er mikil óánægja í þeirra rööum þrátt fyrir samkomu- lag. Ritzau Viljaskjóta Gennadíj Janaiev á yfir | höfði sér dauðadóm fyr- ir þátt sinn í valdaráninu í Moskvu haust- iö 1991. Þá varð hann forseti skamma hríð og vissi aö sögn fátt af sér sökum ofdrykkju. í dag hefst réttarhald í máli Janajevs og annaixa samsærismanna. Saksóknari krefst duaðadóms en 15 ára fangavistar til vara. Janajev var skjólstæöingur Gorbatsjovs. Hann leiddi ung- liðahreyfingu komúnistafloksins og síðar verkalýðshreyfinguna á velmektardögum sínum en þótti hðleskja til aUra verka. Kynlffiðhafnaði í14.sætinu Breskir karlar á fertugsaldri telja ánægju í starfi meira virði en aht annað. Næst þar á eftir vilja þeir eiga sómasamlega konu sem þó er ekki hugsuð th bólfara því kynlífiö er í 14. sæti á listan- um yfir helstu lífsgæðin. Þessi niöurstaöa kemur á óvart því margir halda að karlar á þess- um aldri séu með kynlíf á heilan- um. Könnunin leiddi einnig í Ijós að breskir karlar á fertugsaldri eru ílesti of feitir. Bushíhættu þegar þotu- vængurtrosnaði George Bush, fyrrum Banda- ríkjaforseti, var í hættu ásamt sam- ferðamönnum sínum þegar vængur á Bo- eing 747 þotu tók að molna í sundur og trosna eftir ílugtak í Texas á mánudag- inn. Betur fór þó en á horfðist og tókst að lenda þotunni í Houston. Bush var á leið til Kúveits á fund emírsins vinar síns. Billog Hillary Bandarísku forsotahjómn, Bhl og Hillary eða bara Bill- ary, voru vel samtaka þegar þau boðuðu til eggjahlaupsins mikla á flötinni við Hvíta húsið í thefni af pásk- unum. Bill ræsti hlauparana meö flautu en Hillary hvatti liöin af lifs og sálar kröftum. Hlaup þetta á sér langa sögu og var fyrst haldið J á páskum árið 1809 og vekur jafnan inikla athygh. Kúbskirverka- menn lútaígras eftirfjörefnum Hehbrigðisyfirvöld á Kúbu ráð- leggja verkalýö landsins aö eta lauf blóm og fræ káljurta til að bæta sér upp skort á vítamínum í dagiegri fæðu. í Bandaríkjunum er þessi boð- skapur lagður út á þann veg að lumgur sverfi nú að á Kúbu með minnkandi framleiðslu og skorti á innfluttum nauðsynjum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.