Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1993, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1993
13
Neytendur
Stórverslanimar eru með úrval matvara á tilboðsverði og má þar nefna grænmeti, dósamat, kerti og kjöt.
Sértilboð og afsláttur:
Ýmsar matvörur
á tilboöi
Að þessu sinni eru ýmsar vörur á
tilboðsverði hjá stórverslununum.
Kjöt, ávextir, kattasandur og kerti
eru t.d. á meðal þess sem í boði er.
Kjöt og fiskur
Kjöt og fiskur hefur tekið við af
Kaupstað í Mjódd eins og fyrr hefur
verið greint frá. Tilboðin hjá Kjöti
og fiski gilda frá fimmtudegi til
mánudags. Þar má nefna súpukjöt á
395 krónur kílóið og nautagúllas á
890 krónur kílóið. Halco aspas, 450
g, á 94 krónur, Coop tekex á 34 krón-
ur pakkinn, eitt kíló af Jónagold epl-
um á 69 krónur hvert kíló og appels-
ínur á 79 krónur kílóið.
Bónus
Sértilboðin í Bónusi gilda frá
fimmtudegi til laugardags. Á tilboðs-
verði er nautahakk á 575 krónur kíló-
ið, maltasúkkulaðibitar á 133 krónur,
appelsínusafi frá Sól á 79 krónur,
einn lítri, og 11 kíló af kattasandi á
225 krónur. Þá eru 4 stk. af eldhús-
rúllum á 123 krónur, matarolía, l
lítri, á 85 krónur og 15 frosin rún-
stykki á 199 krónur.
Fjarðarkaup
Tilboðin í Fjarðarkaupum gilda á
morgun, fimmtudag. Þar má nefna
banana á 99 krónur hvert kíló og
tómata og agúrkur á 149 krónur kíló-
ið. Þá verður paprika og græn og blá
vínber einnig á 149 krónur kílóið. í
Fjarðarkaupum verða einnig tilboð
sem gilda í þrjár vikur. Á þeim til-
boðum má finna Dole ananas, þrjár
dósir í pakka, á 98 krónur, hrísgijón,
flóra pakka, á 79 krónur og fín og
gróf formbrauð á 96 krónur. Kerti
verða seld með 25% afslætti á meðan
birgðir endast.
Mikligarður
Ekkert sérstakt tilboðsverð er í
gangi í Miklagarði sem stendur.
Minna má á að þar er hins vegar
veittur 3% staðgreiðsluafsláttur.
AF HVERJU AÐ BORGA MEIRA?
Þú sparar um 600 kr. að framkalla
hjá okkur miðað við næstu
framköllun. *
p: Filma fvlair
|rj;l ; [yu C I i □u BB nu □□ hverri framköllun mm
\/ ■
FRAMKÖLLUN - LITLJÓSRITUN
'fl ^Viim m ■ ■ > mlilllt
P
MIÐBÆJARMYNDIR
Lækjargötu 2 - s. 611530
* Sparnaður miðað við framköllun og
kaup á 36 mynda filmu.
Greiðsluáskorun
Sýslumaðurinn á Höfn skorar hér með á gjaldendur
í Austur-Skaftafellssýslu, sem ekki hafa staðið skil á
opinberum gjöldum sem gjaldfallin voru 1. apríl 1993
tii Gjaldheimtu Austurlands og ríkissjóðs og eru til
innheimtu hjá ofangreindum innheimtumanni, að
greiða þau nú þegar og ekki síðar en innan 15 daga
frá birtingu áskorunar þessarar. Gjöld þessi eru:
Tekjuskattur, útsvar, aðstöðugjöld, sérstakur eigna-
skattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa,
vinnueftirlitsgjald, slysatryggingagjald atvinnurek-
enda skv. 36. gr. I. 67/1971, kirkjugarðsgjald, líf-
eyristryggingagjald skv. 20. gr. I. nr. 67/1971, at-
vinnuleysistryggingagjald sérstakur skattur á skrif-
stofu- og verslunarhúsnæði, iðnlánasjóðs- og iðnað-
armálagjald, aðflutningsgjöld, útflutningsgjöld,
skráningargjöld skipshafna, tryggingagjald af skips-
höfnum, skipaskoðunargjald, lestargjald, vitagjald,
bifreiðaskattur, þungaskattur eftir ökumælum og
föstu gjaldi, slysatryggingagjald ökumanna, skipu-
lagsgjald af nýbyggingum, virðisaukaskattur fyrir 8.
tímabil 1993 með eindaga 5. apríl 1993 og stað-
greiðslu með eindaga 15. apríl 1993 ásamt gjaldfölln-
um virðisaukaskatti og staðgreiðslu vegna fyrri tíma-
bila. Greiðsluáskorun þessi tekur einnig til viðbótar-
og aukaálagninga framangreindra gjalda.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir van-
goldnum eftirstöðvum gjaldanna að liðnum 15 dög-
um frá birtingu áskorunar þessarar.
Höfn, 13. apríl 1993
Sýslumaðurinn á Höfn
Neyslustaðall fyrir
íslensk heimili
í bígerð er að koma upp svokölluð-
um neyslustaðli hér á landi en það
eru Neytendasamtökin og Sam-
keppnisráö sem hafa kynnt sér þau
mál erlendis frá.
NeyslustaðaU segir til um hvað það
kostar fyrir fólk að lifa. Hann sýnir
kostnað neyslu fyrir heimili af ólíkri
stærð og með mismunandi aldurs-
og kynsamsetningu. „Það er mikil
þörf á þessu hér á landi,“ sagði Krist-
ín Færseth hjá Samkeppnisráði.
Kristín sagði að notkunarmöguleik-
ar neyslustaðalsins væru miklir en
þeir eru m.a. við fjárhagsráðgjöf fyr-
ir einstaklinga og heimili, við opin-
bera ákvörðunartöku og sem viðmið-
un viö ákvörðun opinberra styrkja
og félagslegrar aðstoðár. Með þeim
má reikna út á auðveldan hátt hvaða-
áhrif breytingar á vöxtum, sköttum
og gengi, svo eitthvað sé nefht, hafi
á heimilin.
Neyslustaðlar hafa verið teknir
upp í Svíþjóð og Noregi og þar hafa
þeir auðveldað fjárhagsráðgjöf fyrir
einstaklinga og heimili til muna.
Við ákvörðun neysluflokkanna
geta íslendingar stuðst að miklu leyti
við neysluflokka frá Noregi, Svíþjóð
og Danmörku en þó er ljóst að þeir
verði að einhveiju leyti frábrugðnir.
Kristín sagði að mjög kostnaðarsamt
yrði að koma upp þessu kerfi hér á
landi og allar áætlanir væru enn á
frumstigi.
Svokallaður neyslustaðall gefur til kynna hvað það kostar að lifa miðað
viö ólfkar fjölskyldugerðir og -stærðir.
KORTHAFAR
fá 15% afslátt eins og þeir sem greiða smáauglýsingar út í hönd
með beinhörðum peningum. Það eina sem þú þarft að gera er
að hringja og smáauglýsingin verður færð á kortið þitt. Það er
gamla sagan: Þú hringir, við birtum og það ber árangur!
Smáauglýsingadeild DV er opin:
Virkadaga kl. 9.00-22.00
Laugardaga kl. 9.00-16.00
Sunnudaga kl. 18.00-22.00
Athugið:
Auglýsing í helgarblaó DV þarf aö berast
fyrir kl. 17.00 á föstudag.
SMÁAUGLÝSINGAR