Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1993, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1993, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1993 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVHINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELiAS SNÆLAND JÚNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SÍMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Styrkir til kvikmynda Eftir alla þá umræðu, sem sprottið hefur út af styrkjum til einstakra manna vegna kvikmyndagerðar, vaknar óneitanlega sú spuming hvaða forsendur séu til þess að almenningur leggi fram stórfé til kvikmyndagerðar yfir- leitt. Ber skattborgurunum einhver skylda til að taka þátt í kostnaði af þessari atvinnustarfsemi? Hefur þessi listgrein eitthvað það fram yfir aðrar listgreinar að hún verðskuldi margfalt íjármagn af almannafé? Samkvæmt fjárlögum fær Kvikmyndasjóður eitt hundrað og ellefu milljónir í beinu framlagi úr ríkis- sjóði. Það er nokkum veginn helmingur á móti öllum þeim ijárveitingum á fárlögum sem renna til annarrar hststarfsemi. Þar til viðbótar virðist menntamálaráðuneytið hafa peninga til umráða sem ráðstafað er til kaupa á kvik- myndum. Þar að auki ráðstafar Námsgagnastofnun fé til kaupa á kvikmyndum. Þar að auki hefur Ríkissjónvarp- ið fé aflögu til að festa kaup á innlendum kvikmyndum. Og það jafnvel kvikmyndum sem eru ófrágengnar! Hér er ekki um að ræða neina smápeninga. Hér er verið að úthluta milljónum á milljónir ofan og þess má geta að sá umsvifamesti í bransanum, Hrafn Gunnlaugsson, hef- ur einn og sér fengið yfir hundrað milljónir króna frá opinberum stofnunum á undanfömum árum. íslensk kvikmyndagerð á allt gott skihð. íslendingar em áhugasamir um kvikmyndir og hafa framleitt marg- ar góðar myndir. Sumar em sóttar, aðrar ekki. Kvik- myndagerðarmenn hafa löngum kvartað undan því að þeir geti ekki haslað sér völl vegna þess að kvikmynda- framleiðsla er dýr og myndir em misjafnlega sóttar. Sannleikurinn er samt sá að styrkir til kvikmyndafram- leiðslu, jafnvel þótt í milljónum króna sé tahð, standa engan veginn undir framleiðslunni. í mörgum tilvikum hafa þeir aðeins orðið til að hrinda framleiðendunum fram af brúninni og stuðlað að kvikmyndagerð sem hef- ur hvorki hstrænt gildi né aðdráttarafl. Á síðasthðnum vetri vom að minnsta kosti tvær ís- lenskar kvikmyndir frumsýndar hér á landi sem báðar hlutu góðar viðtökur og stóðu undir sér. Hvomg þeirra fékk styrk ffá ríkinu. Hvaða sögu segir þetta okkur? Jú, það segir okkur þá sögu og færir okkur þá reynslu að kvikmyndir em í eðh sínu söluvara, atvinnustarfsemi, áhætta, sem framleið- endur eiga sjálfir að bera ábyrgð á. Ríkisskipaðar stjóm- ir eða stofnanir em þar í engu dómarasæti. Góð hst er líka söluvara. Fólk vih sjá og heyra það sem fram úr skarar, það sem vel er gert, hvort heldur það telst til hst- ar eða afþreyingar. Afþreyingarhugverk og tjáning hafa hstrænt gildi sem markaðurinn, almenningur, áhuga- menn um kvikmyndir eða önnur hstform eiga að dæma um. Úthlutun á styrkjum af almannafé eða ákvarðanir ráðherra um kaup á einstökum kvikmyndum verður ávaht háð geðþótta, klíku eða í besta falh einstaklings- bundnu mati sem ahtaf mun orka tvímæhs. Þegar kvikmyndaframleiðandinn fær hugdettu að gerð myndar er það hans mál. Það er hans að ákveða hvort hann hafi efni á gerð myndarinnar en ekki hitt hvort hann hafi aðgang að ráðherrum, sjóðum eða stofnunum á vegum ríkisins til að láta almenning borga. Það er eðlilegt og sjálfsagt að ríkið og skattborgaram- ir láti fé af hendi rakna til menningar og hstastarfsemi. En þær fjárveitingar þurfa að fá skynsamlegan og réttlát- an farveg í stað þess að þær ráðist af vinfengi eða valda- stöðum. , Ehert B. Schram VtRDBRÉ(/VvV\KKAÐUR RIKISVfRflBRFFA L e III l! II Sjjg i 11 jj SOSU H » { ff||f|||j 1 i „... liftryggingafélög, viðskiptabankar og verðbréfasjóðir og verðbréfafyrirtæki geta tekið að sér starfrækslu slíkra sjóða.“ Eigin eftirlauna- sjóðir launaf ólks Tilgangur þess frumvarps, sem þingmenn Framsóknarflokksins hafa lagt fram á Alþingi um eftir- launaréttindi launafólks, er sá að breyta því fyrirkomulagi sem nú ríkir í skipan lífeyristrygginga landsmanna, með því að færa það í nútímalegra horf með lagasetn- ingu um starfrækslu eftirlauna- sjóöa, þar sem lífeyrissjóðir, líf- tryggingafélög, viðskiptabankar, veröbréfasjóðir og verðbréfafyrir- tæki geta tekið að sér starfrækslu slíkra sjóða. Með frumvarpinu er launamanni gert skylt að greiða í eftirlaunasjóði eins og verið hefur en afnumin er sú kvöð að launa- maður sé þvingaður til að greiða í lífeyrissjóð sem jafnvel er vitað að ekki muni geta staðið við skuld- bindingar sínar. Þvi er launamanni heimilt að velja sér sjóðinn sjálfur og jafnframt þarf vátrygginga- vemd sem honum hentar að til- teknu lágmarki slepptu. Grundvallarbreyting í þessu felst grundvallarbreyting þar sem launamaður ræður engu í núgildandi lífeyrissjóðakerfi um það hvar eftirlaun hans era ávöxt- uð og hvernig. Með þessum hætti myndast samkeppni um eí drlauna- framlög launamanna. Með vali launamanns á eftirlaunasjóði fara saman hagsmunir um bestu ávöxt- un eftirlaunaframlagsins og heim- ild til ráðstöfunar þess. Ekki er gert ráð fyrir breytingu á starfsemi núverandi lífeyrissjóöa. Vilji sljóm lífeyrissjóðs hins vegar breyta starfsemi sjóðsins er ekkert því til fyrirstöðu að því tilskildu að þeir uppfylh skilyrði laganna um að þeir reki starfsemi sína sem eftirla- unasjóð. Einnig getur lífeyrissjóður stofnað eftirlaunasjóð sem rekstra- raðili og rekið starfsemi lífeyrissjóðs- ins áfram. Eins getiu* eftirlaunasjóð- ur yfirtekið rekstur lífeyrissjóðsins. Þátttaka í atvinnulífinu Eförlaunasjóðum er ætlað mikil- KjaUarinn Finnur Ingólfsson alþingismaður Framsóknar- flokksins í Reykjavík frítíma, og lífeyristryggingu sem greiðir launamanni eftirlaun frá 67 ára aldri eöa síðar svo lengi sem hann lifir en fellur niður að honum látnum. Tvísköttunin afnumin Eftirlaunaframlagið samkvæmt frumvarpinu er hækkað úr 10% í 13%. Þaö er hins vegar gert ráö fyrir aö skipting þess verði háð kjarasamningum. í dag er þetta hlutfall þannig að launamaður greiðir 4% en atvinnurekandi 6%. Tvísköttun eftirlaunanna er af- numin. Eftirlaunaframlagið við inngreiðslu er undanþegiö tekju- skatti allt að 7% af launum. Við þessa breytingu munu ráð- stöfunartekjur launamanns aukast um 3% en verði um það samið að launamaðurinn greiði alla hækk- „Með vali launamanns á eftirlauna- sjóði fara saman hagsmunir um bestu ávöxtun eftirlaunaframlagsins og heimild til ráðstöfunar þess.“ vægara hlutverk í uppbyggingu atvinnulífsins en lifeyrissjóöunum hefur verið ætlaö hingað til. Eftir- launasjóðum er gert það skylt að fjárfesta að lágmarki 5% af eigum sínum í hlutafélögum eða sam- bærilegu félagsformi, enda séu engar hömlur á viöskiptum með eignarhlut í félaginu. Eftirlauna- sjóðirnir geta hins vegar ekki eign- ast meira en 10% eignarhlut í ein- stöku félagi með eða án atkvæðis- réttar. Tryggingavernd Eftirlaunasjóðunum er skylt aö hafa lágmarkstryggingavernd fyrir félaga sína, örorkutryggingu sem tryggir viðkomandi gegn slysum eða sjúkdómum, bæði í vinnu og unina, þ.e. úr 10% í 13%, þá stend- ur launamaðurinn eftir með óbreyttar ráðstöfunartekjur. Staða Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins batnar verulega þegar til lengri tíma er litið þar sem eftirlauna- framlagið er hækkað. Aukinn styrkur lífeyrissjóðanna og eftirlaunasjóðanna til að standa viö skuldbindingar sínar mun leiða til þess að framfærslubyröi ríkisins mun minnka þar sem útgjöld al- mannatrygginga munu dragast saman. Þar að auki mun aukinn langtímasparnaður, sem af þessu hlýst, leiða til minni neyslu og draga úr viðskiptahalla. Finnur Ingólfsson Skodanir annarra Háskólinn sýnir virðingarleysi „Háskóli íslands gerir kröfur til annarra stiga menntakerfisins á forsendum eigin hagsmuna og þröngrar skilgreiningar á þekkingu, án tillits til þeirra hlutverka sem þessum skólastigum hafa verið falin og án tillits til mjög margvíslegra þarfa samfé- lagsins fyrir menntun og kunnáttu. Hann sýnir þannig fuilkomiö virðingarleysi viö ijölmargar þekk- ingargreinar og er því ekki frjór vettvangur til stefnumótunar í íslenskum menntamálum." Bjami Danielsson, skólastj. Myndlista- og handíðaskólans í Mbl. 8. apríl Vilja þingmenn ritskoðun? „Ekkert er eðlilegra en einhverjum standi ógn af því að fleiri málefni komist í opinbera umræðu en áður og að um þau mál sé fjallað á ítarlegri hátt... En ef þingmenn óttast afleiðingar slíkrar umræðu ættu þeir að koma þeim sjónarmiðum sín- um á framfæri með því að taka þátt í henni í stað þess að gæla við þá hugmynd að geta bannað hana með lögum eða reglugerðum." Úr forystugrein Pressunnar 7. apríl. Skattleysi umfram hagnað? „Ég tel aö svarið geti verið tengt mótþróa íslend- inga gegn því að greiöa skatta og sá mótþrói leiði þá út á þá braut að reyna ávallt að reka fyrirtæki sín með sem minnstum hagnaði. Þjóðin flutti frá Noregi upphaflega til að flýja skattheimtu Noregs- konungs og ef til vill er sú tilhneiging að forðast skattgreiðslu enn svona sterk meðal þjóðarinnar að skattleysiö verður markmið, en ekki hagnaður." Ásgeir Valdimarsson hjá Hagfræðistofnun Hóskólans i 13. tbl. Vísbendingar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.