Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1993, Side 2
FÖSTUDAGUR16. APRÍL1993
Fréttir
Stuttarfréttir
Pétur Gíslason, eigandi sölutumsins Stjömunnar í Grindavik:
Mér er kennt um að
hafa kveikt í húsinu
- og dóttir mín er ofsótt í skóla vegna þessarar kjaftasögu
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum;
„Dóttir mín hefur komið grátandi
úr skólanum þar sem krakkarnir
hafa verið að segja að pabbi hennar
hafi kveikt í húsinu. Þau hafa þetta
eftir foreldrum sínum og segja að ég
hafi gert þetta til þess að fá trygging-
arféð. Einn þeirra ætti að vita betur
því skipið hans brann. Ef foreldrar
þurfa að tala um þetta þá eiga þeir
að svæfa börnin fyrst og kynna sér
málið. Ég er ekkert að græða. Ég er
að tapa peningum ef eitthvað er,“
sagði Pétur Gíslason, eigandi sölu-
tumsins Stjömunnar í Grindavík,
sem brann aðfaranótt mánudagsins.
Talið er að kveikt hafi verið í og brot-
ist inn í húsið.
Pétur hefur búið í Grindavík í rúm
10 ár. Hann hafði keypt húsnæðið
fyrir 4 árum og rekið þar sjoppu,
knattborðsstofu og um tíma mynd-
bandaleigu. Hann er og eigandi að
söluturni við Hringbraut í Reykja-
vík.
„Reksturinn er farinn, fiölskyldan
hefur tapað vinnu sinni og ég sit
uppi með illseljanlegt hús. Maöur
borgar ekki af skuldum og öðru með-
an húsið er brunarúst. Ef ég endur-
byggi það gefur það ekkert af sér
meðan það er í byggingu. Ég er orð-
inn langþreyttur á skemmdarverk-
unum hér. Það var búiö aö eyðileggja
fyrir mér billjardborðin, kjuðana og
annað. Ég hef borgað mörg hundruð
þúsund krónur í viðgerðir. Það var
einnig búið að eyðileggja fyrir mér
80 borð og stóla, skera þau í tættlur.
Reynt hefur verið að kveikja í kló-
settunum og þau hafa verið stífluð.
Krakkamir hafa stolið öllu sem hægt
er að stela og ég hef rekið þetta eins
og ég væri að því fyrir bæjarfélagið.
Þarna hafa krakkarnir fengið að
vera. Loksins fékk fólkið svefnfrið á
Víkurbrautinni þegar Stjaman var
opnuð en svo afgreiða þeir staðinn
svona. Þeir eyðilögðu allt sem þeir
gátu eyðilagt hér inni, hrækjandi og
skyrpandi. Ég hef aldrei kynnst öðm
eins. Ég myndi aldrei opna svona
stað héma aftur. Maður hrökk
kannski ekkert við þótt þeir rústuðu
þessu húsnæði alveg. Þarna sátu
krakkarnir alla daga og keyptu
stundum ekkert, fara síðan svona að
og hafa núna engan stað til þess að
vera á. Ég veit ekki hvort ég byggi
húsiö aftur, er alla vega ekki í skapi
til þess í dag. Það sem. myndi bera
sig hér væri bónusbúð og jafnvel fer
ég út í það á ódýrasta mátann.
Ég var ekki með rekstrarstöðvun-
artryggingu. Eftir fyrri brunann var
mér bent á trygginguna en fór ekki
eftir því. Ég sé eftir að hafa ekki
tryggt innbúið miklu meira því tæki
og lager vbru ekki tryggð nema upp
á rúma milljón króna. Innbúið allt á
rúmar 4 milljónir sem er undir lág-
marki. Húsið er tryggt fyrir 22 millj-
ónir og það er 320 m2 aö stærð. Það
er í athugun hjá tryggingarfélaginu
hve mikill hluti af húsinu er ónýtur
og það borga þeir. Húsið er ekki al-
veg ónýtt þegar einn veggur stendur
eftir og grunnurinn er á sínum stað,“
sagði Pétur í samtali við DV.
Hart deilt um grunnskóla 1 Mývatnssveit:
„Krakkarnir
f ara ekki í
skólann í
Reykjahlíð"
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Um þessa flutninga á bömunum
í skólann í Reykjahlíðarhverfi
verður ekki samið,- það er alveg á
hreinu. Það er búið að valta yfir
okkur í öllum málum hér í sveit-
inni og nú er nóg komið,“ segir
Eyþór Pétursson, bóndi í Baldurs-
heimi í Mývatnssveit, én þar í
sveitinni em nú uppi harðar deilur
vegna áforma um að sameina alla
grunnskólakennslu á einum stað, í
nýrri byggingu í Reykjahlíðar-
hverfi.
Það þýðir að leggja eigi af skóla-
starfið á Skútustöðum og flytja
böm sem búa utan þéttbýlisins í
Reykjahlíð með bíl í skólann. Safn-
að hefur veriö um 100 undirskrift-
um óánægðra foreldra vegna
þeirra áforma og er hiti mikill í
fólkinu.
„Við viljum og teljum eölilegast
að skólastarf verði á báðum stöð-
unum, á Skútustöðum og í Reykja-
hlíðarhverfmu. Annað eru hrein
svik við þá skólastefnu sem mörk-
uð var og er í gildi og uppbygging
skólans í Reykjahlíð byggðist á. Svo
tala menn um þróun, en þetta er
engin þróun heldur hrein og bein
valdníðsla.
Við ætlum okkur ekki að taka
henni og krakkamir fara ekki í
skólann í Reykjahlíð. Nú er það
bara harkan sex sem gildir. Eigi
að níðast með þetta í gegn er ekki
um annað að ræða fyrir okkur en
að stofna einkaskóla að Skútustöð-
um þótt það sé hrein og bein neyð-
arlending," segir Eyþór Pétursson.
Sigurður Rúnar Ragnarsson,
sveitarstjóri í Skútustaðahreppi,
vildi lítið láta hafa eftir sér um
málið á þessu stigi. „Þetta er mjög
erfitt leiðindamál og skólamál í
dreifbýli eru ávallt viðkvæm og
ósætti í slíkum málum mjög
slæmt," var það eina sem sveitar-
stjórinn hafði um málið að segja.
Pétur Gíslason við hús sitt.
DV-mynd Ægir
Sýslirniannsbústaðurinn á Akranesi:
Seldur á innan
við hálfvirði
- slæmtásigkomulager
„Húsið var mjög illa farið og í nán-
ast óviðunandi ásigkomulagi. Þakið
míglak og innanhúss var til dæms
parketið ónýtt. Ég skoðaði húsið
sjálfur og held að ríkissjóður hafi
fengið sannvirði fyrir eignina," segir
Björn Hafsteinsson, umsjónarmaður
fasteigna í fiármálaráðuneytinu.
Sýslumannsbústaðurinn á Akra-
nesi var nýverið seldur á 7,5 milljón-
ir. Samkvæmt vátryggingamati er
húseignin talin 17 milljóna króna
virði. Ekki er nema rúmur mánuður
síðan Sigurður Gizurarson sýslu-
maður flutti úr húsinu að Bjarkar-
grund 30 en það er á þriðja hundrað
fermetra einbýlishús. Af fiölskylduá-
stæðum sagði Siguröur upp leigu á
húsnæðinu í sama mund og tilkynna
átti honum uppsögn vegna fyrirhug-
aðrar sölu.
Að sögn Siguröar sáu dómsmála-
ráðuneytið og fiármálaráðuneytið
alfarið um söluna á húsinu - emb-
ætti hans kom þar hvergi nærri.
skýring ráðuneytisins
Hann segir húsið þarfnast umfangs-
mikila viðgerða, einkum á þaki.
Áætla megi kostnaðinn um 3 milljón-
ir. Að teknu tilliti til þessa sé sölu-
verðið ekki óeðlilega lágt miðað við
það sem gengur og gerist á Akra-
nesi. Þar sé verð á íbúðarhúsnæði
hins vegar að öllu jöfnu mjög lágt.
Hjá Innkaupastofnun ríkisins var
mönnum ókunnugt um söluna þegar
DV grennslaðist fyrir um hana í
gær. Að sögn Ásgeirs Jóhannesson-
ar, forstjóra stofnunarinnar, kemur
fyrir að einstök embætti á vegum
ríkisins ásamt viðkomandi ráðu-
neytum sjái sjálf um sölu eigna
sinna. í fiármálaráðuneytinu fengust
hins vegar þau svör að þótt það væri
meginreglan að láta Innkaupastofn-
un ríkisins sjá um kaup og sölu eigna
þá komi fyrir að fasteignasölur taki
slíkt að sér. Sú leið hafi verið valin
við sölu sýslumannshússins á Akra-
nesi.
-kaa
Framkvæmdastjóra Félags-
stofnunar stúdenta var sagt upp
störfum á sfiórnarfundi í gær.
Þrír fulltrúar Röskvu, félags fé-
lagshyggjufólks, samþykktu upp-
sögnina gegn tveimur atkvseðum.
Þorskkvótiminnkar
Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra segir aUt stefna í
að Hafrannsóknastofnun haldi í
tUlögu sína frá í fyrra um aö
veidd veröi 175 þúsund tonn af
þorski á næsta fiskveiðiári.
Nýjaröryggisreglur
ÚtUt er f>Tir að innan fárra ára
gangi í gUdi nýr alþjóðasamning-
ur urn öryggi um borð í fiskiskip-
um sem er taUnn bæta stöðu ís-
lenskra útgerða i samkeppni við
útlendinga.
Magnús atvinnumaður?
Magnúsi Scheving, sem varð
þriðji á heimsmeistaramótinu í
þolfimi í Japan íyrir skemmstu,
hefur verið boðið að gerast at-
vinnumaður í íþróttinni.
Norræna flutningasambandiö
aflétti farbanm af ms. Akranesi í
Noregi í fyrradag með því skil-
yrði að áður en skipið kæmi næst
til hafnar þar í landi hefðu verið
gerðir samningar við áhöfnina
um fullnægjandi kjör.
Davíð Oddsson forsætisráö-
herra sagði á Alþingi í gær að
staðiö yrði við yfirlýsingar um
að skerðing á þorskveiði á þessu
fiskveiðiári yrði jöfnuð.
200 mðljóniriegg
Gera má ráð fyrir að lands-
menn hafi neytt páskaeggja fyrir
hátt í 200 miUjónir króna í ár og
tefia fraraleiðendur söluna jafn-
vel meiri en i fyrra.
Hagræða konum
Á síðustu fimm árum hefur
stöðugUdum í bönkum fækkað
um vel á þriðja hundrað. Endur-
skipulagning og hagræðing virð-
ist bitna mest á konum.
Sjávarútvegsskóli?
Davíð Oddson og Össur Skarp-
héðinsson ræddu um að nauðsyn-
legt væri að kanna möguleika á
stofnun alþjóðfegs sjávarútvegs-
skóla á Islandi á Alþingi í gær.
Halli á Sorpu
Skuldir Sorpu nema rúmum
milljarði króna. 100 milljóna halU
varð á rekstri síðasta árs, aðal-
lega vegna hás fiármagnskostn-
aðar.
Dagsbrúnvann
Félagsdómur varð i gær við
kröfu Ðagsbrúnar um að vísa frá
máli Stálsmiöjunnar gegn félag-
inu. Farið var fram á að vinnu-
stöðvun í slippnum yrði dæmd
ólögmæt og Dagsbrún gert að
greiða skaðabætur og sektir.
Enn frestast EES
EES saraningurinn tekur i
fyrsta lagi gUdi um áramótin
samkvæmt frétt Stöðyar tvö í
gærkvöldi. Þingkosningar á
Spáni koma í veg fyrir aö samn-
ingurinn geti tekið gildi um mitt
Bílakostnaður heimilanna hef-
ur hækkað um rúm 9% á ári ef
skoðuð er ltækkun framfærslu-
vísitölunnar,
200störftapa$t
Bæjarsfiórinn í Bolungarvík
segir að 200 störf tapist verði tog-
arar EG seldír frá staðnum. Þetta
er rúmlega þriðjungur starfa á
staðnum. -Ari