Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1993, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1993, Page 4
4 FÖSTUDAGUR16. APRÍL1993 Fréttir Ekki viss um að Heimir sé sá sami og ég réð - segir Ólafur G. Einarsson menntamálaráöherra Ég lit á það sem mistök útvarpsstjóra að víkja Hrafni úr starfi. DV-mynd ÞÖK - Þú segist ekki hafa fengið beiðni frá Hrafni Gunnlaugssyni um að- stoð við að fá styrk frá Norræna kvikmyndasjóðnum. Engu að síður stílaði Hrafn bréf til þín, „háttvirts menntamálaráðherra“ þann 16. september þar sem hann óskaði „eftir því við þig“ að fulltrúi íslands í sjóðnum gerði þá kröfu innan stjórnar hans að veita sér 2,1 millj- ón sænskra króna í styrk. Getur þú heimfært þetta persónulega bréf eingöngu upp á þáverandi ráðu- neytisstjóra? „Ég stend viö að ég þekkti ekki bréfið. Ég á erfitt með að sanna það. En ég hef þó eitt til sönnunar, ef menn vilja trúa mér. Sú vinnu- regla er í ráðuneytinu að ég fæ öll bréf sem til þess koma og ég árita og dreifi þeim sjálfur til afgreiðslu. Að ég þekkti ekki tréfið er í þessu tilfelli til sönnunar áritun á það frá ráðuneytisstjóra til starfsmanns. Framhaldið var svo aö ráðuneytis- stjórinn sendir margnefnt bréf til sjóðsins. Það gerir hann líka án vitundar minnar. Hvort þetta er einsdæmi þori ég ekki að segja um.“ Hefði ekki gert þetta - IDV í gær segir þú bréf ráðuneyt- isins til kvikmyndasjóðsins ekki hafa verið borið undir þig en kveðst ekki víkja þér undan ábyrgð. Hyggst þú aðhafast í ljósi þess að ráðuneytið sendi sjóðnum bréf - sjóðnum sem þú segist sjálfur telja að eigi að vera óháður afskiptum ráðherra og þá væntanlega ráðu- neytis þíns? „Ég aðhefst ekki neitt. Ráðuneyt- isstjórinn þáverandi er hættur störfum. Ég skýt mér ekki undan ábyrgð en get aðeins sagt að ef þetta hefði verið borið undir mig hefði ég ekki gert þetta. Ábyrgðin.er hjá mér en ráöuneytisstjórinn fyrrver- andi skrifaði undir bréfið fyrir hönd ráðherra. Þetta tíðkast ekki í stærri eða viðkvæmum málum en hann afgreiddi málið einfaldlega sjálfur." - Þú baðst útvarpsstjóra að flýta sér hægt í að reka Hrafn Gunn- laugsson. Heimir Steinsson virðist hins vegar ekki hafa hlustað á þig og sagði Hrafni að taka pokann sinn. Síðan setur þú Hrafn í enn æðri stöðu innan Sjónvarpsins sem rökrétt er í andstöðu við vilja út- varpsstjóra. Voru ekki mistök hjá þér að ráða Heimi Steinsson sem útvarpsstjóra i ljósi þess að hann fer ekki að óskum þínum og síðan „rúllar“ þú yfir hann með því að gera Hrafn enn æðri í stofnuninni? Mistök útvarpsstjóra „Ég er ekkert viss um að sá Heim- ir sem starfar í dag sé sá sami og ég réð sem útvarpsstjóra. En nú fylgdu ráðningunni engin skilyrði og ég lít ekki á þetta sem mín mis- tök. Ég lít á það sem mistök út- varpsstjóra að víkja Hrafni úr starfi - sérstaklega vegna vitneskju minnar um að Hrafni var fagnað á útvarpsráðsfundi 19. mars, rúmri viku eftir að hann kom til starfa að nýju. Ég skil ekki hvemig hann er svo oröinn óhæfur vegna þessa sjónvarpsþáttar. Þó Hrafn meiði kannski einhveija af sínum sam- starfsmönnum hjá Sjónvarpinu með almennum orðum finnst mér það ekki tilefni til brottvísunar úr opinberu starfi. Mér finnst alvar- legur hlutur og langt gengið að víkja manni úr opinberri starfi fyr- ir það að láta nokkur gagnrýnisorð faÚa um stofnunina sem hann vinnur hjá. En Heimir fór að lögum og því var ekki ástæða fyrir mig til að áminna hann. Ég setti Hrafn síð- an í starf sem útvarpsstjóri getur ekki vikið honum úr.“ - Vegna ráðningar Hrafns í stöðu framkvæmdastjóra fullyrtir þú að um pólitíska ráðningu hefði verið að ræða - þína ákvörðun. En varla verður fram hjá því horft að forsæt- isráðherra og flokksbróðir þinn er góður vinur Hrafns og kom að málinu þegar Heimir sagði Hrafni upp. í ljósi þessa og þess að ráðu- neytisstjóri þinn skrifar að þér for- spurðum pólitiskt bréf til Norræna kvikmyndasjóðsins virkar þú þá ekki eins og strengjabrúða í ráðu- neyti þínu? Davíö bað mig einskis „Það er rangt að ég hafi tekið þessa ákvörðun að beiðni forsætis- ráöherra. Þetta var mín ákvörðun Yfirheyrsla Óttar Sveinsson og ég var ekki 1 vafa um að ég skip- aði hæfan mann til starfans. Mér mislíkaði mjög að Heimir skyldi ekki verða við beiðni minni um frestun. Ég gerði mér grein fyrir að þessi ráðning mín myndi valda ólgu og af þeirri ástæðu að honum hafði verið vikið úr starfi taldi ég rétt að ræða málið sérstaklega við forsætisráðherra. Þegar það var hafði ég í raun tekið ákvörðunina. Þegar ég ræddi síðar við Þorstein Pálsson var ég hins vegar búinn að ákveða mig.“ - Heimir Steinsson hefur nú sagt sig úr Sjálfstæðisflokknum. Sérðu eftir honum úr flokknum? „Ég sé eftir öllum sem fara úr Sjálfstæðisflokknum. Heimir hafði þama frekar stuttan stans því hann gekk í flokkinn nokkru eftir að hann var skipaður útvarpsstjóri. Ég sé sérstaklega eftir mönnum sem hætta að kjósa flokkinn en ég veit ekki hvort um slíkt var að ræða í þessu tilfelli.“ - Kaup ráðuneytisins á þremur kvikmynda Hrafns Gunnlaugsson- ar voru að sögn Knúts Hallssonar þín ákvörðun. Það hefur verið sagt að a.m.k. ein kvikmyndanna sé ýmist bönnuð börnum eða hafi tak- markað sagnfræðigildi. Myndimar vom allar keyptar án samráðs við Námsgagnastofnun og ekki í tengslum við kennslubækureins og tíðkast. Vom kaupin ekki vinar- greiði? Ekki alvarlegt að myndirnar erubannaðar „Þau voru eins og kaup á mörg- um öðrum kvikmyndum. Ég lit ekki síður á þau sem styrk við ís- lenska kvikmyndagerð. Ég held að ráðherrar síðustu ára hafi gert þetta til að styrkja og auðvitað til að koma þessum kvikmyndum í skólana. Ég lít ekki á það sem al- varlegt mál að sumar þessara kvik- mynda séu bannaðar yngri en 12 ára. Þetta var ekki gert í samráði við Námsgagnastofnun og mér er alveg ókunnugt um hvort aðrar myndir hafa verið keyptar í sam- ráði við stofnunina. En ég tek fram að ráðuneytið hefur til ráðstöfunar fiármuni til að styrkja ýmsa menn- ingarstarfsemi. Af þeim liðum er þetta fé tekið en ekki af öðnun framlögum." - Fólk í kvikmyndalieiminum hef- ur fullyrt að ekki sé hægt að snúa sér við án þess að hitta Hrafn Gunn- laugsson i nefnd eða sjóði. Hann er líka framkvæmdastjóri Sjónvarps. Skarast ekki hagsmunir þarna? „Mér skilst að Hrafn hafi þegar sagt af sér í einni stjóm og það ligg- ur fyrir að hann víkur úr Menning- arsjóði útvarpsstöðva. Ég á bara eftir að velja mann í hans stað. Um þetta er samkomulag á milli mín og Hrafns. Varðandi Kvikmynda- sjóð íslands var Hrafn tilnefndur af Sambandi íslenskra kvikmynda- framleiðenda. Mér finnst það vera mál milli hans og þeirra sem til- nefna hann.“ - Ýmsar embættisveitingar þinar hafa verið ákaflega umdeildar - setning Guðmundar Magnússonar í starf þjóðminjavarðar, skipun Heimis í stöðu útvarpsstjóra og ráðning Gísla Alfreðssonar sem skólastjóra Leiklistarskóla íslands. Var fyllsta hlutleysis gætt við þess- ar ráðningar? Utanhússmaður æskilegur „Gísli hafði langvíðtækustu reynsluna sem leikari, leikstjóri, kennari við Leiklistarskólann og þjóðleikhússtjóri. Þetta var reynsla sem enginn annar umsækjandi hafði. Varðandi Heimi vom nokkr- ir ágætir vinir mínir sem mæltu með Ingu Jónu Þórðardóttur og aðrir vinir minir mæltu með öðr- um umsækjendum. En ég taldi heppilegt fyrir útvarpið að fá mann sem kæmi alveg utan stofnunar- innar. Ég tel að það eigi að gera meira af því. Ég taldi æskilegt fyrir Þjóðminjasafnið að þar kæmi utan- aðkomandi maður, ekki innan- hússmaður. Það var líka mín ákvörðun sem ég er sannfærður um að var rétt.“ - Nú var Hrafn Gunnlaugsson ekki beinlínis utanaðkomandi í Sjón- varpinu? „Nei, en hann átti starf þar sem honum var vikið úr með ósann- gjömum hætti.“ - Framlag menntamálaráðuneyt- isins til kvikmynda er 111 milljónir króna í ár - mun hærra en til ann- arra menningargreina. Er kvik- myndagerðarmönnum gert hærra undir höfði en öðrum listamönn- um? „Við afgreiðslu fiárlaga í ár var framlag Kvikmyndasjóös ekki skert í fyrsta skipti. Með því vorum við náttúrlega að sýna hug okkar til íslenskrar kvikmyndagerðar. En við fólum sjóðnum viðfangsefni eins og Norræna verkefnið þannig að hluti framlaganna er bundinn. En nei, þetta er viðurkenning til kvikmyndagerðarmanna. Þeir hafa sýnt að þeir em hæfir til að takast á við nfiögmetnaðarfiúl verkefni."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.