Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1993, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1993, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 1993 Fréttir Landbúnaðarmálin valda ósætti í ríkisstjóm Davíðs Oddssonar: Deilt um innf lutning og völd ráðherranna brestir í stj ómarsamstarfinu vegna átaka um grundvallarmál Egill Jónsson hefur leikið stórt hlutverk í þeim darraðardansi sem einkennt hefur umræðu um landbúnaðarmál undanfarna daga. Harkalegar deilur um landbúnað- armál undanfama daga hafa leitt í ljós slíka bresti í ríkisstjóm Davíðs Oddssonar að rætt hefur verið um stjómarslit. Á yflrborðinu er deilt um breytingatillögur landbúnaðar- nefndar Alþingis á stjómarfrum- varpi sem aðlaga á gildandi búvöm- lög að EES-samninginum. Að baki hggur grundvallarágreiningur um stjómarstefnu í landbúnaðarmálum og valdsvið ráðherra. í tengslum við EES hefur ísland skuldbundið sig til að heimila inn- flutning á nokkmm tegundum land- búnaðarvara, svo sem afskornum blómum og unnum mjólkurafurðum. Samkvæmt EES-samkomulaginu er íslenskum stjómvöldum heimilt að leggja jöfnunargjöld á þessar vörur til að vega upp á móti stuðningsað- gerðum erlendis. Innan ríkisstjómarinnar hefur verið samkomulag um þetta mál. Stjómarfrumvarp var því lagt fram á Alþingi til að aðlaga gildandi bú- vörulög breyttum aðstæðum í milli- ríkjaviðskiptum. Vegna EES-samn- ingsins var talið brýnt að hraða málsmeðferðinni en væntanlegt GATT-samkomulag kallar ekki síöur á breytt búvörulög. Stutt kann að vera í að samkomu- lag náist í GATT-viðræðunum og í kjölfarið má reikna með að opnað verði fyrir fijálsan innflutning á bú- vörum. Talsmenn innflutnings- vemdar, þar á meðal Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra, hafa viljað hafa allan vara á í þessu sambandi. Deilur undanfarinna daga hafa ekki síst endurspeglað þennan ágreining. Bakþankar og deilur í meðfórum þingsins lagði land- búnaðamefnd til þá breytingu á stjómarfrumvarpinu að landbúnað- arráðherra fengi vald til að hafna verðjöfnunargjaldi sem íjármálaráð- herra setti á innfluttar búvörur og þannig komið í veg fyrir hugsanlegan innflutning. Ennfremur lagði nefnd- in til að valdsvið landbúnaðarráð- herra yrði víkkað á þann hátt að það næði einnig til svokallaös búvörulík- is, iðnaðarvara sem unnar eru úr landbúnaðarhráefnum. Þegar Egill Jónsson, formaður landbúnaðarnefndar, kynnti þinginu breytingatillögurnar varð uppi fótur og fit innan ríkisstjórnarinnar. Hall- dór Blöndal fagnaöi tillögunum en Friðrik Sophusson, Jón Sigurðsson og Jón Baldvin Hannibalsson and- mæltu þeim. Telja þeir að með breyt- ingunum sé verið að auka valdsvið Halldórs á kostnað annarra. Þá þykir krötum vart hægt að treysta Halldóri til að framfylgja þeirri stefnu stjórn- arinnar að auka frjálsræði í viðskipt- um með búvömr. Egill Jónsson og Halldór Blöndal lögðu á það mikla áherslu að breyt- ingin á búvörulögunum næði fram að ganga áöur en þingi yrði frestað. Sögðust þeir ekki una því að málið yrði svæft í ljósi þess að þingmeiri- hluti væri fyrir því. Jón Baldvin beitti sér hins vegar af fullri hörku í málinu og eftir að orðrómur um stjórnarslit komst á kreik var ljóst að Davíð Oddsson forsætisráðherra varð að skerast í leikinn. Á síðustu stundu sleit hann þingfundi og sendi þingmenn i sumarleyfi. Lagatækniieg snyrti- mennska? Að sögn Jóns Baldvins er engin ástæða til að breyta búvörulögunum í haust vegna EES þótt það sé laga- tæknileg snyrtimennska. í raun sé það þannig að lög á borð við EES, sem studd séu þjóöréttarskuldbinding- um, teljist ríkjandi þegar eldri inn- lend lög stangast á við þau. Á þennan hátt telur Jón Baldvin að komast megi hjá frekari deilum. Fram hefur hins vegar komið aö Fréttaljós Kristján Ari Arason Davíð Oddsson er á öndverðum meiði. Halldór Blöndal tekur dýpra í árinni og fullyrðir að EES geti ekki tekið gildi fyrr en búrvörulögunum hefur verið breytt. Líklegt er því að ríkisstjómin komist ekki hjá því að taka á málinu og freista þess að útkljá það. Takist það ekki mun deil- an blossa upp á ný í haust. í því sam- bandi er rétt að minna á þau orð Halldórs Blöndals að styðji ráðherra ekki stjórnarfmmvarp jafngildi það úrsögn úr rikisstjóm. Sérstaka athygli vekur að í land- búnaðamefnd studdi Össur Skarp- héöinsson, þingflokksformaður Al- þýðuflokks, umræddar breytingatil- lögur. Líkur hafa verið að því leiddar að hann hafi ekki vitað hvað hann var að gera þegar hann samþykkti tillögurnar en til þessa hefur hann verið ófáanlegur til að tjá sig um málið. Egill Jónsson vísar hins vegar öllu slíku á bug. Að sögn Egils ber helst að skilja andstöðu ráðherranna þannig aö í raun hafi þeir ætlað að nýta sér EES til að hefja meiri innflutning á búvör- um heldur en ísland hefur skuld- bundið sig til. Að auki megi skýra andstöðu krata á þann hátt að þeir telji landbúnaðarstefnu sína heppi- lega til að sérkenna sig í stjórnar- samstarfmu. Markmið landbúnaðar- nefndar hafi einungis verið að laga búvörulögin að EES en ekki að breyta sjálfri landbúnaðarstefnunni. Ráðherrar í berjamó eða stjórnarslit Egill Jónsson á ekki von á að deil- urnar um búvörulögin leiöi til stjórn- arslita þótt sorfið hafi til stáls á síð- asta degi þingsins. Hann segist hins vegar staðráðinn í að fara sjálfur fram með máhö á Alþingi í haust. Ljóst sé að ríkisstjórnin ráði ekki við það. „Ráðherramir þrír geta bara verið í berjamó meðan við afgreiðum þetta. Ég á ekki von á að ríkisstjómin fari frá vegna þessa. Pólitísk staða þess- ara þröngsýnu ráðherra er veik. Og hvert ættu kratar að fara ef þeir rjúfa þessa ríkisstjóm? Þeir komast ekki aftur í stjóm fyrr en á næstu öld. Þeir ættu að vera því fegnir að sitja tvö ár til viöbótar," segir Egill. Innan Alþýöuflokks heyrast þær raddir að ekki verði unað við frekari niöurlægingu í stjómarsamstaríinu. Þannig hafi kratar verið barðir niður í hveiju málinu á fætur öðru, ekki síst í sjávarútvegsmálum. Sú skoðun á sér marga fylgjendur innan flokks- ins að ekki sé lengur verjandi að láta almenning standa undir allt að 14 milljarða stuðningi á ári við land- búnaðinn í þeim efnahagslegu þreng- ingum sem þjóðin á nú við aö etja. Innan Sjálfstæðisflokks hefur óánægjan með ríkisstjórnarsam- starfið einnig farið vaxandi. Deilt hefur verið á framgöngu Davíðs í ýmsum málum, einkum á sviði efna- hags- og atvinnumála. Styrt samband Davíðs og Þorsteins Pálssonar, fyrr- verandi formanns, hefur orðið til að auka á óánægjuna. Ýmsir viðmælenda DV telja land- búnaðardeiluna geta orðið stjómar- slitamál. Af hálfu krata er bent á að landbúnaöarmálin séu grundvallar- mál í stjómarsamstarfmu. Meöal sjálfstæðismanna heyrast hins vegar þær raddir að málið sé ákjósanlegt til að breiða yfir enn djúpstæðari ágreining innan Sjálfstæðisflokks sem snúist meðal annars um forystu Davíös Oddssonar. ídagmælirDagfari Egill sterki í Islandssögunni hefur einn Egill verið öðmm frægari. Það er Egill sterki Skallagrímsson sem hefur lifað sem goðsögn fyrir afl sitt og áræði þar sem hann barðist einn gegn öllum og haföi sigur. Egill Skallagrímsson var ódæll og hams- laus ef því var að skipta og öðrum landsmönnum stóð ógn af þessum berserk sem von var. Nú síðustu dagana hefur komið til skjalanna nýr Egill sem er ekki síðri nafna sínum frá landnámsöld. Það er Egill frá Seljavöllum, þing- maður Sjálfstæðisflokksins og formaður landbúnaðarnefndar á Alþingi. Egill á Seljavöllum fór mikinn á þingi síðustu klukku- stundimar svo lá við stjórnarsht- um. Raunar segir Egih að hann hafi lagt ríkisstjómina að velli og Morgunblaöið hefur eftir honum að ríkissijómin sé úr leik eftir aö EgiU hafi haft hana undir. Ríkisstjómin lagði fram í sak- leysi sínu frumvarp th breytinga á búvörulögum sem hafði þann til- gang að laga búvörulögin að ný- gerðum samningum um Evrópska efnahagssvæðið. Landbúnaöar- nefnd Alþingis tók fmmvarpið til meðferðar og EgiU breytti því upp á eigin spýtur og sameinaöi þar með framsóknarmenn allra flokka í þeirri kröfu sinni að landbúnaðar- ráðherra hefði síðasta orðið þegar kemur að framkvæmd á EES- samningnum. Framsóknarmenn allra flokka hafa löngum haft illan bifur á Evrópska efnahagssvæð- inu, vegna þess að Evrópubanda- lagið er á móti landbúnaði. Egih er að vísu í Sjálfstæðis- flokknum en hann er svo heppinn að hann hefur flokksbróður sinn, Halldór Blöndal, í embætti land- búnaðarráðherra sem einnig er góður og gegn framsóknarmaöur, og auk þess eiga þeir félagar marga stuðningsmenn í sínum eigin þing- flokki og segja má að það sé alveg sama hversu marga þingmenn stjómmálaflokkarnir fá kjöma á þing, framsóknarmenn em þar alltaf í meirihluta. Svo er einnig nú og í skjóh þessa meirihluta hefur Egill stungiö þremur ráðhermm í rassvasann og tekið forystuna í þinginu, þegar ríkisstjórnin leyfði sér þá ósvinnu að abbast upp á guös heilagan land- búnaðinn. Það er sosum í lagi að ríkisstjómir séu myndaðar í land- inu og það er í lagi þótt ríkisstjóm- ir geri samninga við önnur ríki og bandalög svo fremi sem þær láta landbúnaðinn í friði. En ef þær ætla að kássast upp á hagsmuni landbúnaðarins er Agh að mæta og þá er eins gott fyrir ráöherrana að vara sig. Enda kom í ljós að þeir höfðu ekkert í Egh að gera. Halldór land- búnaðarráðherra gætti þess að hafa enga aðra skoðun en þá sem Eghl hafði og Davíð forsætisráö- herra hafði auðvitað ekkert í Egh að gera og Friðrik Sophusson, Jón Sigurðsson og Jón Baldvin Hannib- alsson máttu sín einskis gegn Agh sem hafði að baki sér tvíefldan her framsóknarmanna allra flokka. Forsætisráðherra sá sér þann kost vænstan að shta þingi upp úr þurm og forseta Alþingis aö óvörum, th að afstýra frekari vandræðum og stjómarslitum vegna Eghs og land- búnaðarins. Þetta breytir engu, segir Eghl og ætlar að flytja sitt eigið frumvarp á næsta þingi, th að koma vitinu fyrir ríkisstjómina sem hann segir að sé úr leik. Sem þýðir væntanlega að hann sjálfur ætiar aö taka for- ystuna, sem eðlhegt er, miðað við þau völd og það fylgi sem hann hefur á Alþingi íslendinga. Flokk- urinn, ríkisstjómin og sá hluti þjóðarinnar sem ekki hefur skhn- ing á þörfum landbúnaðarins og skoðunum Eghs getur étið það sem úti frýs. Eghl sterki fer með völdin í þessu landi og það er rétt að láta það koma fram í eitt skipti fyrir öh svo þessi uppákoma endurtaki sig ekki, landbúnaðarmönnum th ama og leiðinda. Af þessu sést að Eghl sterki Skal- lagrímsson er endurborinn í nafna sínum frá SeljavöUum. Þaö þýðir ekkert fyrir Jón Baldvin og kratana að æmta eða skræmta. Og það er eins gott fyrir Halldór land- búnaðarráðherra að makka rétt því hann er ekki sjálfs sín herra. Hann er hagsmunagæsluvörður landbúnaöarins í landbúnaðar- ráðuneytinu, sem er vígi framsókn- armanna aUra flokka, sem skhja það að bóndi er bústólpi og framtið þjóðarinnar veltur á því að land- búnaðurinn fái að framleiða sína vöm án þess að neytendum eða öðmm kjósendum komi það við hvað landbúnaðinum er fyrir bestu. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.