Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1993, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1993, Síða 29
MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 1993 41 DV Sigrún Huld Hrafnsdóttir Sigrún Huld Hrafnsdóttir sund- kona, til heimilis að Hálsaseli 12, Reykjavík, var útnefnd íþróttamað- ur Reykjavíkur 1992 í hófi sem hald- ið var í Höfða á mánudaginn var. Starfsferill Sigrún fæddist í Reykjavík 12.1. 1970 en ólst upp á Bifröst í Borgar- firði til þriggja ára aldurs. Þá flutti hún með foreldrum sínum til Reykjavíkur þar sem hún hefur búið síðan. Sigrún Huld er þroskaheft með sterk einhverf einkenni. Eftir að hún kom til Reykjavíkur var hún um skeið á barnageðdeildinni á Dal- braut. Hún fór sex ára í Öskjuhlíð- arskóla og stundaði þar nám til nítj- án ára aldurs. Undanfarin ár hefur hún svo starfað hjá sælgætisgerð- inniNóa/Síríusi. Sigrún hóf að æfa sund og fijálsar íþróttir hjá íþróttafélagi þrQska- heftra, Ösp, 1982 en fyrir tveimur og hálfu ári sneri hún sér alfariö að sundinu. Sigrún hefur tekið þátt í nokkrum Norðurlandamótum fatlaðra og ætíð unnið þar gullverðlaun í sundi. Hún tók þátt í heimsleikum fatlaðra í Hömesand 1989 og vann þar til fimm gullverðlauna. Á ólympíuleik- uni fatlaðra á síðasta ári vann hún til níu gullverðlauna, fimm í ein- staklingsgreinum og fjögurra í boð- sundi, ogtveggja silfurværðlauna. Alls hefur hún unnið til hátt á þriðja hundrað verðlauna. Sigrún var útnefnd íþróttamaöur fatlaðra 1989 og 1992 og var kjörin íþróttamaður ársins meðal þroska- heftra yfir allan heiminn 1991, var kjörinn maður ársins hjá Stöð 2 og Bylgjunni 1992 og hefur nú verið útnefnd íþróttamaður Reykjavíkur. Fjölskylda Systkini Sigrúnar eru Magnús Freyr Hrafnsson, f. 17.6.1968, nemi í viðskiptafræði við HI; Tinna Hrafnsdóttir, f. 21.9.1973, sem nú er að ljúka stúdentsprófum en unnusti hennar er Úlfar Þór Daníelsson nemi og eiga þau einn son, Hrafn Úlfar. Foreldrar Sigrúnar Huldar eru Hrafn Magnússon, f. 14.8.1943, framkvæmdastjóri Sambands al- mennra lífeyrissjóða, og kona hans, Kristín Erlingsdóttir, f. 19.5.1942, þjónustustjóri hjá Landsbanka ís- lands á Suðurlandsbraut. Ætt Hrafn er sonur Magnúsar, kirkju- smiðs í Reykjavík, Brynjólfssonar, b. á Bár í Flóa, Magnússonar. Móöir Magnúsar var Margrét Þorvarðar- dóttir. Móðir Hrafns er Guðný, systir Stefaniu, ljósmóður á Geithóli, móð- ur Erlends Jónssonar bókmennta- fræðings. Guðný er dóttir Guð- mundar, b. í Brandagili, Stefánsson- ar, b. í Brandagili, Guðmundssonar. Móðir Guðmundar var Katrín Magnúsdóttir. Móðir Guðnýjar var Ingibjörg Þorsteinsdóttir, b. í Foss- seli, Arnasonar. Móðir Ingibjargar var Lilja, systir Jóhönnu, langömmu Óttars Yngvasonar for- stjóra. Lilja var dóttir Jóns Guð- mundssonar, b. á Sveðjustöðum, og Ingibjargar Halldórsdóttur, systur Helgu, langömmu Björgvins Schram, fyrrv. fonnanns KSÍ, föður Ellerts.forsetaíSÍ. Kristín er dóttir Erhngs, oddvita í Ásbyrgi, Jóhannssonar, b. í Áma- nesi, Jóhannssonar, b. á Hofi í Flat- eyjardal, Bjarnasonar. Móðir Jó- hanns í Ámanesi var Kristín Jóns- dóttir, b. í Amarstapa, Vigfússonar. Móðir Erlings var Sigurveig Áma- dóttir, b. í Ámanesi, Björnssonar, b. í Dal, Guðmundssonar. Móðir Áma var Arnþrúður Sigurðardótt- ir. Móðir Sigurveigar var Rannveig Gunnarsdóttir, b. í Skógum í Öxar- Fólk í fréttum Sigrún Huid Hrafnsdóttir. firði, Sigurðssonar. Móðir Kristínar er Sigrún Bald- vinsdóttir, b. á Ófeigsstöðum, Bald- vinssonar, b. í Naustavík, Sigurðs- sonar, bróður Kristjönu, móður Benedikts Sveinssonar alþingisfor- seta, föður Bjarna forsætisráðherra og Sveins forstjóra, og afa Bjöms alþingismanns, Ingimundar arki- tekts og Einars, forstjóra Sjóvá. Móðir Sigrúnar var Kristín Jónas- dóttir, b. á Sílalæk, Guömundsson- ar, bróður Sigurbjargar, móður Guðmundar Friðjónssonar, skálds á Sandi. Afmæli Sigurdur Hjaltason Sigurður Hjaltason, Svalbarði 5, Höfn í Hornafirði, er sjötugur í dag. Starfsferill Sigurður er fæddur í Hoffelli í Nesjahreppi, Austur-Skaftafells- sýslu, en flutti ársgamall með for- eldmm sínum að Hólum í sömu sveit. Þar ólst Sigurður upp við öll al- menn sveitastörf og ýmsa vinnu utan heimilis. Hann varð búfræð- ingur frá Hvanneyri árið 1944 og byggði síðar nýbýlið Ártún í landi Hóla þar sem hann stundaði búskap áárunum 1952-60. Sigurður hætti búskap vegna af- leiðinga slyss sem haim varð fyrir árið 1957. Á árunum 1959-64 var Sigurður skrifstofumaður hjá Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga á Höfn. Hann gegndi stöðu sveitarstjóra Hafnar- hrepps 1964-82, var framkvæmda- stjóri Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi 1982-91 en lét þá af störfum að eigin ósk. í dag situr Sigurður í stjórn Spari- sjóðs Hornafjarðar og er formaður Félags aldraðra á Höfn. Fjölskylda Sigurður kvæntist 8.6.1950 Aðal- heiði Geirsdóttur, f. 11.3.1923. Hún er dóttir Geirs Sigurðssonar, f. 21.7. 1898, d. 10.2.1974, b. á Reyöará í Lóni, og k.h., Margrétar Þorsteins- dóttur, f. 18.9.1896, d. 13.4.1987, húsmóöurþar. Börn Sigurðar og Aðalheiöar eru: Margrét, f. 18.8.1951, iðjuþjálfi á Reykjalundi, gift Siguijóni Arasyni, f. 2.5.1950, efnaverkfræöingi, að- stoðarforstjóra hjá R.F. og lektor í matvælaverkfræði við HI, og eiga þau börnin Aðalheiði Unu, f. 2.8. 1970, og Sigurð Ara, f. 13.4.1981; Anna, f. 30.8.1961, stjórnsýslufræð- ingur og sparisjóösstjóri á Höfn; Halldóra Sigríður, f. 11.8.1963, ís- lenskufræðingur, í sambúð með Jó- hannesi Kristjánssyni skemmti- krafti og eiga þau bömin ívar Húna, f. 14.10.1989, og Vöku, f. 20.9.1992; Sigurborg, f. 22.11.1964 d. 6.5.1965; og Þómý, f. 26.10.1968 d. 6.10.1969. Systkini Sigurðar em: Jón, hæsta- réttarlögmaður í Vestmannaeyjum; Sigurborg, bankamaður í Reykja- vík; Halldóra, húsmóðir á Seljavöll- um; og Þorleifur, b. í Hólum. Fóstur- bróðir Sigurðar er Hjálmar Krist- insson, vélvirki í Reykjavík. Foreldrar Sigurðar voru Hjalti Jónsson, f. 6.8.1884, d. 21.7.1971, b. og hreppstjóri í Hólum í Homafirði, og Anna Þorleifsdóttir, f. 13.11.1893, d. 7.6.1971, húsmóðir. Ætt Hjalti var sonur Jóns Guðmunds- sonar, b. í Hoffelli, og Halldóru Sigurður Hjaltason. Björnsdóttur frá Flugustöðum í Álftafirði. Anna var dóttir Þorleifs Jónsson- ar, b. og alþm. í Hólum, og Sigur- borgar Sigurðardóttur frá Árnanesi í Nesjum. Sigurður tekur á móti gestum í Sjálfstæðishúsinu á Höfn í Horna- firði kl. 17 á afmæhsdaginn. Svavar Marel Marteinsson Svavar Marel Marteinsson vömbif- reiðastjóri, Breiðumörk 15, Hvera- gerði, er sjötugur í dag. Starfsferill Svavar fæddist að Þurá í Ölfusi og ólst þar upp við almenn sveita- störf. Rúmlega tvítugur fluttist Svavar til Hveragerðis, árið 1945, þar sem hann gerðist skömmu síðar vömbif- reiðastjóri. Við það starfaði hann lengstaf. Fjölskylda Svavar kvæntist 28.11.1953 Krist- jönu Sigríði Ámadóttur, f. 14.4.1937 í Innri-Fagradal í Dalasýslu, hús- móður. Hún er dóttir Árna Jónsson- ar og Ragnheiðar Ágústínu Sigurð- ardóttur sem bjuggu í Bjarneyjum á Breiðafirði en síðar í Reykjavík. Þauerubæðilátin. Böm Svavars og Kristjönu eru: Aðalheiður Ingibjörg, f. 9.5.1953, búsett í Þorlákshöfn, gift Einari Sig- urðssyni og eiga þau dæturnar Kristjönu Svövu, f. 8.6.1978, og Önnu Sigríöi, f. 5.11.1980; Anna María, f. 20.2.1955, búsett í Hvera- geröi, gift Wolfgang Karli Roling. Fyrir átti Anna María dótturina Lindu, f. 12.4.1973, frá fyrra hjóna- bandi með Óla Jóni Hermannssyni; Hannes Amar, f. 15.8.1957, búsettur í Þorlákshöfn, kvæntur Guðbjörgu Þóm Davíðsdóttur og eiga þau dæt- umar Daðeyju Ingibjörgu, f. 7.11. 1975, og Ragnheiði Maríu, f. 30.6. 1979; Ámi, f. 4.11.1961, búsettur í Hveragerði, kvæntur Svandísi Birk- isdóttur og eiga þau bömin Krist- jönu Sigríði, f. 5.9.1983, Margréti Svanborgu, f. 12.12.1986, ogBirki Svavar, f. 12.1.1989; Guðrún Hrönn, Svavar Marel Marteinsson. f. 21.7.1964, býr í foreldrahúsum; og Svava Sigríöur, f. 30.5.1981, býr í foreldrahúsum. Systkini Svavars eru: Siguijóna, f. 21.5.1915; Guðmundur, f. 22.4. 1917, dó í frumbernsku; Helga, f. 11.9.1918, nú látin; Gunnlaugur Eyj- ólfur, f. 6.6.1920, nú látinn; Ásta, f. 16.2.1925, nú látin; Skúh, f. 15.9.1926; og Valgerður, f. 14.2.1929. Foreldrar Svavars vom Marteinn Eyjólfsson, f. 16.4.1889'að Bakka í Ölfusi, d. 30.1.1969, bóndi og Svan- borg Anna Jónsdóttir, f. 1.4.1889 að Grímslæk í Ölfusi, d. 19.7.1981, hús- móðir. Þau bjuggu að Þurá til ársins 1945 en fluttust þá í Hveragerði. Ætt Marteinn var sonur Eyjólfs Gísla- sonar sem fæddur var aö Læk í Ölf- usi og k.h., Guðlaugar Hannesdótt- ur sem fædd var að Bakka í Ölfusi. Svanborg var dóttir Jóns Símon- arsonar.sem fæddur var í Hrauns- hjáleigu í Ölfusi og k.h., Sigríðar Guðmundsdóttur sem fædd var að Ytri-Grímslæk í Ölfusi. 75 ára Jón Guðmundur Ólafsson, Dunkárbakka, Suöurdalahreppi. Jón Guðfinnsson, Smáratúni 2, Selfossi. Kristjana Samúelsdóttir, Torfúnesi, Hlif 2, ísafirði. Guðbjörg Gísladóttir, Laugavegi 71, Reykjavík. Rannveig Þórðardóttir, Seljalandsvegi 36, ísafirðL Þórhalla Þórhallsdóttir, Þinghólsbraut 1, Kópavogi. Sigríður Steinsdóttir, Gunnólfsgötu 16, Ólafsfirði. Rósa Jónsdóttir, Grenivöhum 30, Akureyri. 50ára Ingibjörg Jónsdóttir, Hagaseh 32, Reykjavík. Margrét Ásólfsdóttir, Nökkvavogi 22, Reykjavík. Sigurður EUi Guðnason, Víghólastíg22, Kópavogi. 11. maí. Eiginmaður hennar er Hjörtur Ágúst Magnússon trésmið- ur. 40 ára Ingólfur Jó- hannsson, starfsm. Ölgerð- arinnar Egils Skalla- grímssonar, Grensásvegi58, Reykjavík. Eiginkonalng- ólfserÁlfheiður Unnarsdóttir. Þau taka á móti gest- um í Vflánni, sal Knattspymufél. Víkings, Traðalandi 1, Reykjavík, á milh kl. 16 og 19 laugardaginn 15. maí. Davíð Eyrbekk, starísm. flug- þjónustudeildar slökkvihðsKefla- ■ '--iyf 'r'% víkurfiugv., v Fagragarði 10, t ^ m Keflavík. Davíðverður fimmtugurá Lovisa Óskarsdóttir, Goðatúni 10, Garðabæ. Jón Kristmannsson, dag. Eiginkona hans er Sigurlaug Gunnarsdóttir bankastarfsmaöur. Þau taka á móti gestum á heimib sínu eftir kL 18 á afmæhsdaginn. Sigurlín Jóna MargrétSigurð- ardóttir, fyrrv. umsjónar- maðurFiskifé- lags íslands. Rjúpufehi 14, Reykjavík. Sigurlinvarð fimmtugígær, ; Málfriður Skjaidberg, Hávahagötu 22, Reykjavík. Bjami Jónsson, Lyngholti 12, Akureyri. Ágúst Pétursson, Óðinsgötu 8b, Reykjavík. Ingibjörg Hallgrímsdóttir, Firði 7, Seyöisfiröi. PáU Ágúst EUertsson, KeUusíðu 8f, AkureyrL Eggert Sveinn Jónsson, Safamýri 38, Reykjavík. Bjárni Guðberg- urSigurðsson verktaki, Grundarhúsum 10, Reykjavik. Sambýliskona BjamaerHulda Jensdóttirliús- móðir. Aðalsteinn G.Þ. Gíslason, Bölum 19, Patreksfirði. Hólm&íður H. Valgarðsdóttir, Aðalgötu3a, Blönduósi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.