Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1993, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1993, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1993 Fréttir Halldór Blöndal, samgöngu- og landbúnaðarráðherra: Ekki hægt að spara mikið í vegamálum og þegar náðst mikill spamaður í landbúnaðinum „Menn í mínum ráðuneytum eru stanslaust að velta fyrir sér mögu- leikum til að spara og líka til að eyða peningum og það virðast einhvem veginn vera meiri möguleikar til að eyða en að spara. Það virðist í það minnsta vera miklu auðveldara,“ segir Halldór Blöndal, samgöngu- og landbúnaðarráðherra, í gamansöm- um tón aðspurður um hver niður- skurðurinn verði í hans ráðuneytum í tengslum við fjárlagavinnuna. „Það vantar mikið á aö samgöngur séu orðnar nógu góðar. Við emm ekki einu sinni búnir að ná að leggja slitlag alla leiðina til Akureyrar og vegurinn milli Norður- og Austur- lands er meira og minna eftir. Hið sama er raunar að segja um Vestfirð- ina. Við emm auðvitað búnir að ná áfóngvun en þó ekki þaö góðum aö það réttlæti að dregið sé úr áherslum í samgöngumálum, síður en svo,“ segir Halldór. Hann viðurkennir að mikil áhersla sé lögð á það í tengslum við fjárlagavinnuna að draga vera- lega úr íjárveitingum til samgöngu- mála og spara í þeim málaflokki. „Það er einfaldlega ekki hægt að draga mikið saman í vegamálum. Það er svo einfalt. Það er þegar búið að leggja fram ákveðna áætlun á Alþingi og hún er alls ekki við vöxt. Samdráttur í samgöngumálum mundi auk þess ganga þvert á sam- komulagið sem gert var við aðila vinnumarkaðarins á dögunum." Mikil sparnaður í landbúnað- arráðuneytinu þegar orðinn „Það hefur náðst fram feiknalegur sparnaður í landbúnaðarráðuneyt- inu og hlutfallslega meiri en í öðrum ráðuneytum. Það segir þó auðvitað ekki að maður vilji ekki reyna að ná fram meiri hagræðingu. Það er hins vegar á það að líta að annars vegar sinnir ráðuneytið grundvallarrann- sóknum tál nýsköpunar í framleiðslu og einnig rannsóknum í sambandi við gróðurfar, sem era alveg nauð- synlegar, og hins vegar eram við aö ræða um búvörasamningana sem reyna mjög mikið á bændur og era auðvitað liður í að ná niður kostnaði við búvöruframleiðsluna í heild sinni,“ segir Halldór. Hann sagði þó veriö að skoða ýmsa sparnaðarkosti en vildi ekki tilgreina hverjir þeir væru. Halldór segir að bændur sjálfir séu nú að hefja viðræður við Búnaöarfé- lag íslands, Stofnlánadeild landbún- aðarins og ýmis önnur félög um mögulega sameiningu. Þar geti orðið veruleg hagræðing. -Ari Meirihluti klofnaöi: Bæjarstjórinn í Kópavogi andsnúinn golfvelli í Fossvogsdal -kratistuddi Bæjarstjóm Kópavogs samþykkti í fyrradag tillögu um staðsetningu golfvallar í austurhluta Fossvogs- dals. Meirihluti bæjarstjórnar klofn- aði í afstöðu sinni. Fimm fulltrúar sjálfstæðismanna greiddu atkvæði með tillögunni en bæjarstjórinn greiddi atkvæði gegn henni. Guð- mundur Oddsson, bæjarfulltrúi Al- þýðuflokksins, studdi sjálfstæðis- menn en aðrir fulltrúar minnihlut- ans greiddu atkvæði gegn golfvellin- um. „Þú færð engin svör hjá mér,“ seg- ir Sigurður Geirdal bæjarstjóri að- spurður um það hvort hrikti í meiri- hlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í bæjarstjórn Kópavogs. „Þetta verður einungis bráða- birgðalausn fyrir félagsmenn í Golf- klúbbi Kópavogs því að þama verður aðeins níu holu golfvöllur og engir stækkunarmöguleikar fyrir hendi. Það þarf að tryggja golfáhugamönn- um betra svæði því að þama verða þeir aðþrengdir og afitof nálægt byggð,“ segir Valþór Hlöðversson, fulltrúi Alþýðubandalagsins í bæjar- stjóm Kópavogs. „Auövitað er golfvöllur grænt svæði en þeir einir geta spilað golf sem era félagar í golfklúbbnum. Það er dýrt aö spila golf og ég hef enga trú á að Dagsbrúnarmaðurinn eða Sóknarkonan kaupi sig inn á það svæði. Við börðumst fyrir varðveislu Fossvogsdals á sínum tíma til að all- ir íbúar í dalnum gætu óhindraö notið hans en ekki bara útvalinn hópur,“ segir Valþór. Nýtt skipulag í Fossvogsdal verður auglýst á næstunni og gefst þá bæj- arbúum kostur á að kynna sér upp- drætti að svæðinu hjá bæjarskipu- lagi Kópavogs. Síðari umræða um tillögunaferframíágúst. -GHS Þrír árekstrar Þrír minni háttar árekstrar urðu á Akureyri í gær og urðu enjpn meiðsl á fólki í þeim og eignatjón lítið í óhöppunum. Þá barst lögreglunni tilkynning um eld í bíl í gær en þegar til kom reynd- ust rafmagnsleiðslur hafa sviðnað í bílnum en eldur var enginn. Sjö ökumenn vora kærðir fyrir of hraöan akstrn1 í gær en enginn þeirra varsvipturréttindum. -pp TaliA er að allt að 40 þúsund manns hafi komið á útsölu Miklagarðs í gær. Þrotabú fyrirtækisins auglýsti rýmingar- útsölu á lager verslunarinnar og hagsýnt fólk lét ekki á sér standa. Hátt í tvö þúsund manns biðu fyrir utan þeg- ar verslunin var opnuð kl. tiu i gærmorgun og þegar leið á daginn þurfti að hleypa fólki inn í hollum. . -—-bm/DV-mynd Brynjar Gauti Ráðherra um deilur Landgræðslu og bænda í Mývatnssveit: Beiti mér fyrir samkomulagi „Það geta alltaf komið upp svona erfiðleikar. Ekki síst þegar afkoma manna er eins mikiö í húfi og þama. Við erum að glíma við vandamál sem við fengum í arf og er ekki eingöngu sauðkindinni að kenna. Þetta land er þannig að það er mjög erfitt að sjá hvemig hægt er að koma á það bönd- um. Þetta er verkefni sem verður að vinna í sameiningu; Landgræðslan, bændur í Mývatnssveit og fleiri og auðvitað náum við samkomulagi. Ég er í engum vafa um það. Ég mun beita mér sérstaklega fyrir því að samkomulag náist," segir Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra. Mikl- ar deilur hafa verið milh Land- græðslunnar og bænda í Mývatns- sveit um upprekstur fjár upp á Mý- vatnsöræfi undanfarið. „Þetta land er mjög viðkvæmt því það er á sprangusvæði. Úrkoma er lítil og sums staðar era margir metr- ar niður á vatn. Ég er þeirrar skoð- unar að ef við eigum aö ná árangri í gróðurvemd og landgræðslu þá getum við ekki gert það öðravísi en þannig aö bændur verði framvarðar- sveitin í þeim verkum og það er hægtígóðrisamvinnu.“ -Ari Undirbúningur ganga undir Hvalflörð: Fimmtíu milljónir til rannsókna Fulltrúar ríkisins og Spalar hf. undirrituðu í gær yfirlýsingu ríkis- stjómarinnar um fimmtíu milljóná króna lánveitingu til félagsins. Lánið gerir Spalarmönnum kleift að ljúka jarðlagarannsóknum þar sem göngin undir Hvalfiörð eiga að liggja. Einnig var staðfest breyting á samningi um vegtengingu um utanverðan Hval- fjörð, en krafa um þá staðfestingu var eitt af skilyrðunum fyrir láni rík- isins. Stjómarmenn í Speli era bjart- sýnir á framhald málsins og að sögn Gylfa Þórðarsonar, stjórnarfor- manns má búast við að framkvæmd- ir hefjist innan árs og framkvæmd- um verði lokið eftír fiögur ár. -bm Friðirk Sophusson fjármálaráðherra, Halldór Blöndal samgönguráðherra og fulltrúar Spalar við undirritunina í gær. DV-mynd Brynjar Gauti. Stuttar fréttir Mótmæla úthlutun Átta samtök, sem í eru tugir þúsunda, mótmæla úthlutun Húsnæðisstofnunar á bygginga- lánum. Talsmaður þeirra segja hana hafa látíö tmdan þrýstingi sveitarfélaga árið fyrir kosning- Menntamálaráðherra hefur ákveðið að framlengja um ár setningu skólastjórans í Víði- staðaskóla í stað þess að skipa í stöðuna eins og venja er. Friöbertskipaður Friðbert Pálsson, forstjóri Há- skólabíós, hefur verið tilnefndur fulltrúi íslands i stjóm Norræna kvikmyndasjóösins. Enain loforð Framkvæmdastjóri VSÍ segir að í kjarasamningum hafi engin loforð veriö gefin um að ekki kæmi til skattahækkana. Stöð 2. Áþríðjatugsiasast Á þriðja tug barna hefur slasast alvarlega á síöustu sex áram vegna lausra fótboltamarka sem fallið hafa ofan á þau. Bensinlækkun Oliufélögin þijú era nú að skoða hvort ástæða sé tíl að lækka bensínverö um mánaöa- mótin en heimsmarkaðsverö er lágt um þessar mundir. Kjötumboðið i stað Goða Sláturleyfishafar hafa stofnað fyrirtækiö Kjötumboðiö hf. til að sjá um sölu kjötafurða sem áður var í umsjón Goða. Staða Goða er nú erfið vegna gjaldþrots Miklagarðs. Seitzer bjargar Seltzer ltd. í Bretlandi mun aö líkindum hlaupa undir bagga til bjargar íslensku bergvatni hf. og koma inn með fjármagn meðan langtímalausnai- er leitað. Búnaðarhagnaður 30 milljóna hagnaður var af rekstri Búnaðarbankans eftír Ðmm raánuði og 400 milljónir voru lagðar í afskriftasjóð á tíma- bilinu,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.