Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1993, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1993, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1993 Spumingin Hvað þolirðu verst í fari karia? Brynhildur Barðadóttir: Undirferli og óheiðarleika. Sigrún Ásgeirsdóttir: Óheiðarleika. Sigurlaug Guðmundsdóttir: Afbrýði- semi. Elín Davíðsdóttir: Það er svo margt, daður og mont til dæmis. Anna Guðbjörg Guðjónsdóttir: Smjaður. Þorgerður Jóhannsdóttir: Óstund- vísi, maður er alltaf að bíða eftir þeim. Lesendur Hvemig á að baka Sacher-tertu: Ekki rétt uppskrift Meinatæknar á Landspítalanum skrifa: Við tókiun okkur saman, 40 konur á Landspítalanum, og keyptum Sac- her-tertu hjá Bakarameistaranum, Suðurveri. Hún kostaði 8 þúsund krónur og smakkaðist ágætlega, en við sáum fljótlega aö uppskriftin passaði engan veginn við Sacher- tertu. Við hringdum í bakarann vegna þess. Við sögðum honum frá því að tertan hefði smakkast ágæt- lega en því miöur væri þetta bara alls ekki uppskriftin að Sacher-tertu. Bakarinn sem varð fyrir svörum fyrtist mjög við og sagðist ekki hlusta á neitt slíkt djö. . . kjaftæöi. Þetta þykir okkur dónaleg framkoma. Við teljum okkur það fróðar um bakstur að við vitum að við fórum með rétt mál. Til marks um það viljum við geta þess aö nokkrar okkar hafa get- ið út bók um uppskriftir að kökum. Svarfrkvstj. Bakarameistar- ans, Sigurbjargar Sigþórs- dóttur: Sacher-tertan hefur verið köliuð frægasta terta í heimi. Ástæðan er sú að fyrsta kakan var bökuö 1879 í Austurríki. Æ síðan þá hafa þær verið bakaðar um allan heim og margar uppskriftir notaðar. Við í Bakarameistaranum höfum orðið okkur úti um uppskrift frá elsta og virtasta Konditori Danmerkur, upp- skrift sem er 80 ára gömul og við telj- um þá bestu. Við höfum ferðast út um allan heim á fagsýningar til aö verða okkur úti um nýjungar í faginu og teljum okk- ur vita betur. Símhringingin kom okkur því verulega á óvart, þar sem fólk hefur síðastliðin 4 ár verið ánægt með Sacher-tertuna okkar og hún selst mjög vel. Hafi bakarinn sýnt dónaskap biðst ég velvirðingar á því sem fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins. Hvað varðar þessa tertu, sjáum við enga ástæðu til að hætta að baka eftir þessari uppskrift því samkvæmt okkar mati sem fagmanna er hún best. „. . .fólk hefur siðastliðin 4 ár verið ánægt með Sacher-tertuna okkar og hún selst mjög vel,“ segir í svari fram- kvæmdastjóra Bakarameistarans. Ónaf ngreindir ofdrykkjumenn Lúðvíg Eggertsson skrifar: Sú var tíðin að þeir sem ekki kunnu með áfengan drykk að fara voru forsmáðir og kallaðir nöfnum (rútar eða rónar). Þetta breyttist með til- komu AA-samtakanna sem telja fyr- irbærið sjúklegt. Skilgreiningin í rit- um þeirra er þannig ef ég man rétt: „Alkóhólismi er líkamlegur, sálrænn og andlegur sjúkdómur, sem er ólæknanlegur, en stöðvanlegur," þ.e. með þvi að hætta að drekka. Enginn þarf í rauninni að blygðast sín fyrir það að vera sjúkhngur. AA-samtökin bæði hér og annars staðar hafa hjálpað mörgum. Gallinn við þá sem hjálp þiggja er hins vegar sá að þeir virðast ekki geta látið aðra í friði. Þeir þvaðra sífellt um áfengi, predika bindindi eri veita það öðrum í samkvæmum sínum, til dæmis í afmælisveislum. Þannig setja þeir saklausa í slysahættu svo elcki sé meira sagt — allt til þess gert aö komma skömminni af sér yfir á hina. Sannleikurinn er sá að AA-menn eru ekki að fullu læknaðir fyrr en þeir hætta að nefna áfengi og ota því að öðnun. Þetta ætti Vogur og aðrar slíkar stofnanir aö athuga vel. Ljósanotkun 1 dagsbirtu: Eykur bensíneyðslu Erla T. skrifar: Merkilegum fréttum var slegið upp í fjölmiðlum fyrir stuttu. í fréttinni var talað um að bensínkaup lands- manna héldu áfram að aukast þrátt fyrir að bílaeign landsmanna aukist ekki að sama skapi. Ýmsar getgátur voru á lofti um ástæður þessa. Talað var um að ökumenn keyrðu almennt meira nú en áður og nýttu jafnvel hvert einstakt farartæki verr en áður var gert. Þetta eru allt saman ágætis tillögur en ég held aö þær höggvi ekki nærri sannleikanum. Engum virðist hafa dottið það í hug að ástæðan felist í þvi að ljósanotkun í dagsbirtu er skylda. Hér á Norðurlöndunum og einhveijum öörum löndum hefur þessi ósiður verið tekinn upp, að neyða menn til þess að láta aðalljósin loga í dagsbirtu. Ég hef aldrei skilið þessa reglu. Hún eykur mjög bensíneyðslu bif- reiðarinnar, hátt í 10% af heildar- eyðslunni. Talað var um að bensín- eyðslan í Svíþjóð hefði aukist um 8% þegar þessi ljósaregla var tekin upp í landinu. Áf einhveijum orsökum virðist svo sem ráðandi aðilar í þes- um málum telji það vera betra aö nota ljósin í dagsbirtu. Ég er sannfærð um það aö þau gera ekkert nema ógagn. Þegar maður horfir til bíls í dagsbirtu með aðal- ljósin á, hættir manni til að mis- reikna flarlægðina til hans. Það er hins vegar mun minni hætta á því þegar engin ljós eru notuð. Því held ég að áhrifin af þessu séu eingöngu neikvæð. Ég skora á Umferðarráð og sam- gönguráðherra að endurskoða lögin um ljósanotkun bifreiða. Kemur til dæmis ekki til greina að láta það duga að hafa aðeins stöðuljós logandi að deginum? Ekki veitir af orku- sparnaðinum í kreppunni. Hringiðí síma 63 27 00 millikl. I4ogl6-eðaskrifið Ndfn os símaiir. verður ad fyliifa bréfum „Þegar maður horfir til bíls í dagsbirtu með aðalljósin á, hættir manni til að misreikna fjarlægðina til hans,“ segir meðal annars í bréfi ritara. Torfærupeyjar fáhrðs Ragnar og Oddný skrifá: Við viljum endilega koma á framfæri þakklæti til torfæru- kappanna sem aðstoðuðu okkur er bíllinn okkar stoppaði aðfara- nótt síðastliöins þriðjudags. Við vorum á leið til Reykjavíkur og bíllinn okkar hafði stoppað efst í Borgarfirðinum rétt í þann mund er við skriðum niöur af Holta- vörðuheiðinni. Allt rafmagn var af bílnum og allt stopp. Þar sem við vorum að reyna að ýta bílnum út fyrir veg koma þá ekki torfærukappar meö stóra jeppagrind á kerru. Þeir félagam- ir í bflnum settu spotta á milli, kipptu í gang og komu bílnum til að hlaða. Ekki leið á löngu áður en þaö tókst hjá þeim og töldu þeir ekki eftir sér að veita þessa aðstoð. Enn og afhtr viljum við koma á framfæri þökkum til þeirra peyja fyrir aðstoðina. Nýflokkun nautakjöts Steindór skrifar: Það stendur til í haust hjá Kjöt- mati ríkisins að taka upp nýja flokkun nautakjöts eftir fitu- magni og færa flokkunina nær því sem gerist í nágrannalöndum okkar. Það var löngu kominn tími til og ég vona aö nýja flokkunin sé eitthvað skynsamlegri, íslenskir neytendur hafa Iiing- að til verið í vandræðum með að fá gott nautakjöt með réttu fitu- magni því bændum hefur hingað til verið refsað fyrir að rækta gott fituríkt nautakjöt. Þetta stendur vonandi til bóta með nýj- um og betri reglum. eggíbuðir Daníel hringdi: Hænuegg eru ágætis matur, hvort sem þau eru soðin, steikt eða notuð í eggjaköku. En þau standast engan vegin samanburð við bragömikil bjargfuglsegg. Nú er eínmitt tíminn fyrir bjarg- fuglsegg, en þvi miöur eru mjög fáar verslanir á höfuðborgar- svæðinu sem bjóða þau til sölu. Þaö þykir mér miður og vonast til þess að verslunareigendur veröi sér úti um egg því ég veit aö það er mikil eftirspum eftir þeim. Gistingiflug- stöðinni Guðmundur hringdi: Það er hneyksli aö útlendingum skuli vera leyft að gista í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þessi bakpoka- lýður, sem engu eyðir hérlendis, á ekki að fá aö komast upp meö þess konar hegðun. í Keflavik er nóg af hótelum og ef þessir feröalangar eiga lítiö af peningum, geta þeri* fengið gist- ingu á tjaldstaiðum. Það er ekki hægt aö bjóða öðrum ferðalöng- um.semleiö eiga um flugstöðina, upp á að koma að bekkjum sem eru uppfullir af sofandi bakpoka- ferðalöngum. Gætifariðilla Einar hringdi: ■ Ég las um það í fréttum aö Al- bert Guðmundsson hygði á heim- ferð frá Frakklandi og gæti vel hugsað sér að fara aftur aö taka þátt i stjórnmálum. Hann útilok- aði ekki þann möguleika að hami færi í framboð í borgarstjórnar- kosningum eða jafnvel til Alþing- is. Ég á bágt meö að trúa þvi að hann geti náð nokkru fylgi hér heiraa. Það myndi aðeins vera niðurlæging íýrir hann að reyna að komast til áhrifa hér á ný og þurfa síöan að fá það i andlitið að hann hafi ekki lengur neitt persónulegt fylgi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.