Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1993, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1993, Síða 13
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1993 13 Sviðsljós Heimilisiðnaðarsafnið: Kvenfélagasambandið tekur við rekstrinum Magnús Ólafeson, DV, Húnaþingi; Frá upphafi Heimilisiðnaðarsafns- ins á Blönduósi hefur samband aust- ur-húnvetnskra kvenna átt og rekið safnið en sveitarfélög og aðrir opin- berir aðilar styrkt það íjárhagslega. Nú hefur kvenfélagasambandið ásamt átta sveitarfélögum stofnað sjálfseignarstofnun um rekstur safnsins. Kjörin hefur verið fimm manna stjóm og er Elín S. Sigurðardóttir formaður. Elísabet Sigurgeirsdóttir hefur verið ráðin umsjónarmaður safnsins og mun hún hafa það opið fyrir gesti frá kl. 14-17 alla virka daga í sumar. í Heimihsiðnaðarsafninu er varð- veittur hvers kyns heimihsiðnaður að fornu og nýju og þar eru oft sýnd aldargömul vinnubrögð, m.a. við tó- vinnu. Fjölmargir gestir koma og skoða safnið á hveiju ári og það er einnig notað sem kennslu- og fræðslustofnun fyrir nemendur. T.v. Elín S. Sigurðardóttir, formaður stjórnar safnsins, og Elísabet Sigurgeirsdóttir safnvörður. DV-mynd MÓ Bömin fá hjálma Slysavarnadeildin Hafdís á Fáskrúðsfirði afhenti nýlega öllum börnum sem fædd voru á árinu 1986 reiðhjóla- hjálma. Börnin voru 18 talsins. Afhendingin fór fram á sjómannadaginn en félagskonur voru þá með kaffisölu í félagsheimilinu Skrúð, þar sem mikill fjöldi fólks naut girnilegra veitinga slysavarnakvenna. DV-mynd Ægir Kristinsson, Fáskrúðsfirði koma fram tveir en nú hafa þeir bætt tveimur nýjum í hópinn og ætla að fara víða í sumar. DV-myndir HMR Tveirvinir: Þóranna Halldórsdóttir og Gunnar Lárusson kunnu nær alla textana og voru í hópi þeirra sem tóku vel undir. Mannakorn í Reykjavík Hljómsveitin Mannakom kom fram á veitingastaðnum Tveim vin- um laugardagskvöldið 19. júní. Það voru þeir Pálmi Gunnarsson og Magnús Eiríksson ásamt tveimur nýjum hðsmönnum, þeim Sigfúsi Óttarssyni trommuleikara og Karli Olgeirssyni sem sphaði á Hamm- ondorgel. Að sögn Magnúsar munu þeir koma fram víðs vegar um landiö í sumar, svo sem á Vopnafirði og í Vestmannaeyjum, en þetta var eina uppákoman í Reykjavík í bráð. Þeir sem voru staddir á Tveim vinum þetta kvöld voru vel með á nótunum og mikið var um óskalög. -HMR Blönduós: Hestamót Húnvetninga Magnús Ólafsson, DV, Húnaþingi; Tæplega eitt hundrað hestar tóku þátt í hestamóti Húnvetninga sem haldið var á Skeiðvellinum við Blönduós sl. laugardag. Mótið er sameiginlegt hestamannamót félag- anna Neista, Óðins og Snarfara. Helstu úrslit urðu þessi: í A flokki gæðinga sigraði Goði Finns Bjöms- sonar. Knapi var Valur Valsson. í B flokki gæðinga sigraði Þokki Jóns Kristófers Sigmarssonar og var hann knapi. í eldri flokki unghnga varð Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir í fyrsta sæti á Ormari. í yngri flokki unghnga sigr- aði Áslaug Inga Finnsdóttir á Litla- Jarp. í töltkeppni sigraði Ægir Sigur- geirsson á Keðju, rauðstjömóttri hryssu, sem var jafnframt vahn hest- ur mótsins. Þessar ungu stúlkur í barnakór Grunnskóla Eyrarsveitar í Grundarfirði fjármögnuðu ferð sína á Landsmót íslenskra barnakóra 1993 með því að halda vöfflutónleika í skólanum. DV-mynd Ingibjörg Pálsdóttir, Grundar- firði Hestamótið, sem haldið var á Blönduósi, var mjög vel sótt og þar voru um 100 hestar. DV-mynd Magnús

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.