Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1993, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1993, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1993 Menning Djasshátíðin á Egilstöðum: Umfang hátíðarinnar hefur vaxið með aukinni aðsókn - segir Ami ísleifsson, upphafsmaður og aðldrifflöður í djassi á Austurlandi Þaö er sannur heimsklassi á Djass- hátíöinni á Austurlandi aö þessu sinni en hún hefst í kvöld. Aldrei hefur verið boöiö upp á jafn glæsilega dagskrá og nú. Hátíöin, sem nú er haldin í sjötta sinn, hefur frá upp- hafi verið í umsjón Áma íslefssonar og hefur hann heldur betur kynt undir djassáhuganum á Austfjörðum með þessu framtaki sínu. Ámi sagði aðspurður aö aðsókn hefði farið vax- andi með hverju árinu og um leið hefði umfang hátíðarinnar aukist. Auk þekktra innlendra djassleik- ara verða þekktir erlendir djassleik- arar á Egilsstöðum og þar fremstur í flokki fer saxófónleikarinn Peter Gullin sem kemur með tríó sitt og fékk Djasshátíðin á Egilsstöðum styrk úr norræna menningarsjóðn- um svo fært væri að fá hann til lands- ins. Peter Gullin er meðal bestu djassleikara á Norðurlöndum í dag og í fyrra var plata hans Tendemess kosin besta djassplatan í Svíþjóð. Með honum koma Danimir Morten Kargárd gítarleikari og Ole Ras- mussen bassaleikari. Ole hefur áður leikið á djasshátíö á Egilsstööum, kom með Contempo tríóinu í fyrra. Einn þeirra djassleikara sem leikið hafa mikið með Peter Gullin er Pétur Östlund og þeir félagar munu hittast á Egilsstöðum, því Pétur verður á staðnum með Sigurði Flosasyni og Norræna djasskvintettinum. Þetta er sami kvintettinn og lék á Listahátíð í Hafnarfirði og vakti mikla hrifn- ingu. Auk Sigurðar og Péturs em í Ámi ísleifssson er hér við píanóið. Með honum á myndinni er djasskórinn Arnís ásamt undirleikurum. Lengst til hægri er Friðrik Theodórsson sem er kynnir á Djasshátið Austurlands. DV-mynd: ÞÖK. kvintettinum Eyþór Gunnarsson, píanó, Lennard Ginnman, bassi og Ulf Adaker, trompet. Aðrir sem koma til meö að troða upp á Egilsstöðum næstu daga eru Septett Tómasar R. Einarssonar ásamt söngkonunni Móeiði Júníus- dóttur, Vinir Dóra, Sextett Áma Scheving ásamt söngkonunni Lindu Walker, Blúsbandið Rætur, Homa- fjarðargengið ásamt sex söngvurum, Ramon og tónskrattamir og Amís- djasskórinn sem er sfjómað af Áma íslefssyni. í kómum er austfirskt söngfólk sem Ámi hefur verið með í þjálfun og kom Amís-kórixm fram á Rúrek djasshátíðinni sem lauk ný- lega. Kynnir á hátíðinni verður hinn kunni djassmaður Friðrik Theodórs- son. -HK Bach-sveitin í Skálholti kemur sem fyrr mikið við sögu á sumartónleikunum. Skálholt: Tónleikaröð í sögulegu umhverf i - frumflutnlngur á nýju verki eftir Jón Nordal á fyrstu tónleikunum íslenski dansflokkurinn: Fjórir ballett- arognýís- lensk tónlist - áListahátíðíHafnarfiröi íslenski dansflokkurinn verður með sýningar á fjómm ballettum í kvöld í Kaplakrika og er um frumsýningu á tveimur að ræða. Annar nýju ballettanna er Minotaums eftir Ingibjörgu Bjömsdótt- ur, sem er við fmmsamda tónhst Tryggva Baldvinssonar, en hann samdi þessa tón- Ust sérstaklega fyrir Listahátíð í Hafnar- firði. Dansarar em nokkrir af elstu nem- endum Listdansskóla íslands. Aðrir baUettar sem verða á dagskrá em Evridís eftir Nönnu Ólafsdóttur við tónUst Þorkels Sigurbjömssonar. Evridís var frumsýnd á sýningu íslenska dansflokks- ins í ráðhúsinu í febrúar og hlaut einróma lof gagnrýnenda. Annar ballett, sem einn- ig var frumsýndur í ráðhúsinu í vetur og fluttur verður í Kaplakrika, er Bach svítur við tónUst J. S. Bach og fjórði ballettinn er nýtt verk, Stravinsky skissur eftir WUl- iam Soleau við tónUst eftir Stravinski. Búningar við þennan baUett era eftir El- ínu Eddu Árnadóttur. -HK íþróttahúsinu I Kaplakrika hefur verið breytt I samræmi við sýningar íslenska dansflokksíns og er myndin af tveimur dönsurum á æfingu i Kaplakrika. DV-mynd GVA A fyrri öldum var Skálholt nán- ast höfuðstaður íslands. Þar var búið af meiri höfðingsskap og menningu en á öðmm stöðum á landinu. Einn lífvænlegasti sprot- inn sem þar hefur skotið rótum er tónUstin. TónUstin skipar enn í dag stóran sess í Skálholtskirkju og í sumar verður hleypt af stokkunum í nítjánda sinn Sumartónleikum í Skálholtskirkju. Þessi tónleikaröð hefur verið ákaflega vel heppnuð og oft verið troðfuU kirkjan á með- an flutningur fór fram, enda er gott að hlusta á góða tónUst í Skál- holti þar sem útsýni er til allra átta, auk þess að hafa í vitundinni sögu staðarins. Á þessum nítján ámm hafa fastar hefðir myndast um tónleika þessa. Þar hefur orðið til eins konar mið- stöð barokktónUstar, þeirrar tón- Ustar sem hefði getað hljómað þar í tíð Brynjólfs biskups og Jóns Víd- aUns. Tveir útlendir meistarar í flutn- ingi barokktónUstar leika og stjórna í Skálholti í sumar. Annar þeirra er hollenski fiðluleikarinn Jaap Schröder sem leikur í tón- smíðum eftir CorelU og Vivaldi. Hinn er gamalkunnur í Skálholti, fræðimaðurinn og gömbuleikarinn Laurence Dreyfus sem leiðir flutn- ing á kantötum eftir Bach og Buxte- hude og fúguUstinni eftir Bach. Auk barrokktónUstar hefur ný íslensk tónUst skipað háan sess á þessum tónleikum og oft er um framflutning að ræða. Svo verður á fyrstu tónieikunum 10. og 11. júU, þar sem flutt verður nýtt og viða- mikið verk eftir Jón Nordal, samið fyrir einsöngvara, kór, strengja- sveit og orgel. Sömuleiðis á þriðju tónleikunum um mánaðamótin júU og ágúst þegar HafUði HaUgríms- son kemur frá heimkynnum sínum í Edinborg með nýjar tónsmíðar í handraðanum. Manuela Wiesler hefur verið fastagestur á sumartónleikum í Skálholti og verður engin breyting þar á. Hún mun heimsækja ísland í sumar og leikur á flautu sína verk eftir Carl PhiUp Emanuel Bach og nútímaskáld á tónleikum 17. og 18. júU. Á þeim tónleikum mun Mar- grét Bóasdóttir syngja trúarleg lög eftir íslensk tónskáld þessarar ald- ar. Aðgangur að sumartónleikunum hefur ávaUt verið ókeypis. Frá upp- hafi hefur það verið hugsjón að kirkjan standi opin gestum og gangandi, einnig þegar tónleikar em haldnir. Þannig hafa tónleika- gestir oft og tíðum veriö ferðamenn sem ekki hafa lagt það í vana sinn að hlusta á tónUst, hvað þá að sækja tónleika. -HK Inglmundur Sigurpálsson bæjar- stjóri afhendlr Sigríól Sigurjóns- dóttur starfsstyrkinn. starfsstyrk úr menningarsjóði Sigríður Siguijónsdóttir list- hönnuður hefur fengið starfs- styrk frá menningarmálanefnd Garðabæjar. Er hún þriðji Usta- maðurinn sem híýtur slikan styrk. í fyrra fengu Bryndís HaUa Gylfadóttir seUóleikari og Pétur Bjarnason myndhöggvari starfs- styrki. 1 ár bámst umsóknir og ábendingar um starfsveitingu til ellefu Ustamanna og var Sigríður vaUn úr þessum hópi. Að loknu stúdenLsprófi stundaöi Sigríður nám í Englandi og lauk BA-prófi frá West Surrey CoUege of Art and Design. Þrátt fy rir ungan ald- ur hefur Sigríður vakiö eftirtekt fyrir störf sín en hún hefur tekið þátt í þremur samsýningum á erlendri grand. Meðal starfa hér heima má nefna að hún hannaði og sá um leíkmynd fyrir kvik- myndina Veggfóður. manns hafaþegar sótt Listahátið- i ina í Hafnarfirði og hefur aðsókn farið fram úr öllum vonum að- standenda hátiðarinnar. Þessi tala á örugglega eftir að hækka en hátiðinni lýkur 30. júní með tónleikum hins umdeilda fiðlu- snillings Nigel Kennedy í Kapla- krika. Margir aðrir eiga eim eftir að koma við sögu Listahátíðar- innar. Má þar nefna tónleika New Czech trio 27. júní, tónleika Musica Antidogma 29. júní og þrenna tónleika Tregasveitarinn- ar en þeir fyrstu em í kvöld. Þá halda leiksýningar Ara-leikhúss- ins og Pé-leikhópsins áfram. Ytri höfnin heitir ný Ijóðabók eftir Braga Ólafsson. Er þetta þriðja ljóðabók hans. í bókinni em 28 Ijóð og er henxú fylgt úr hlaði með Ijóðasýningu á verkum Braga á Kjarvalsstöðum. Bragi er þegar orðinn eitt af þekktari Ijóðskáldum yngri kynslóðarinn- ar. Fytri ljóðábækur Braga em Dragsúgur sem kom út 1986 og Ansjósur sem kom út 1991. Sinfóníaná Austfjörðum Reglulegu starfsári Sínfóníu- hljómsveitar íslands er lokið. Hljómsveitin er samt ekki hætt að leika heldur hefur lagt land undir fót og er komin tíl Aust- fjarða þar sem fimm tónleikar verða haldnir og em þeir fyrstu i kvöld á Höfix í Hornafirði. Hljómsveitai'stjóri i þessarí ferð er Gunnsteinn Ólafsson, ungur og efrúlegur híjómsveitarstjóri sem víöa hefur stundað nám, nú síðast á Ítalíu. Einleikarar með hljómsveitinni eru meðal annars klarinettuleikaramir Siguröur I. Snorrason og Kjartan Óskarsson. Þess má geta að á Egilsstöðum er 4jasshátíðin á fuliu þegar Sin- fónían kemur í heimsókn og þá verður letkið Rhapsody in Blue eftir Gerswin. Einleikari í verk- inu cr Kristinn Örn Kristinsson píanóleikari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.