Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1993, Qupperneq 20
32
FIMMTUDAGUR 24. JÚNl 1993
Iþróttir
„Nei þetta var sko alls ekki
óskadrátturiuxi en viö verðum
bara að mæta því og reyna að
koma á óvart en auövitað var
samt gaman að lenda á móti
þessu skemmtilegasta liði lands-
ins,“ sagði Helgi Ragnarsson,
þjálfari 3. deiidar iiðs HK, en það
dróst gegn íslandsmeisturum ÍA.
HK hefur staðið sig vel í Mjólkur-
bikarkeppninni og í síðustu
tveimur umferöum skellti iiðiö
2. deildar liöinum BÍ og Stjöm-
unni og það á útivelli.
„Ef Skagamenn veröa með van-
mat þá verður það okkur tíl góða.
Nú, þetta er ákveðin upphefðfyr-
ir strákana að mæta besta liði
landsins og verður mælikvarði á
þeirra getu líka. Þeir verða að
standa sig í svona raunum og ég
hef trúa á aö þeir geri þaðsagði
Helgi.
-GH
Drátturinn
Víðir-Víkingur
Höttur-Leiftur
FylkJr-FH
ÍBV-KA
HK-ÍA
Valur-UBK
ÍBK-Þór
Fram-KR
• Leikur Frám og KR fer fram
þriöjudaginn 6. júLí. Leikir Víðis
og VSkings og Fylkis og FH fara
fram miövikudaginn 7. júli en allir
aörirflmmtudaginn8.júlí. -GH
. :■ ■ ...: :■ ::: .
Fulltrúi 3. deildar liðs HK tekur þátt í drættinum í gær. HK dróst gegn íslandsmeisturum ÍA og lið HK, sem ekki hefur tapað leik i 3. deildinni á erfiöan leik
fyrir höndum á heimavelli sínum. DV-mynd Brynjar Gauti
Dregiö 116 liða úrslit Mjólkurbikarkeppninnar 1 knattspymu í gær:
Stórleikur Framara og KR-inga
athyglisverðasta viðureignin
Það verða nokkrir athyglisverðir
leikir í 16. Uða úrslitum Mjólkurbik-
arkeppninnar en dregið var í keppn-
inni í gær. Talsverðrar spennu gætti
meðan drátturinn fór fram og verður
að telja leik Fram og KR stórleikinn
en þessi tvö lið komu síðast upp úr
mjólkurbrúsanum góða.
Bikarkeppninni var fyrst hleypt af
stokkunum 1960 og veröur því þetta
í 33. sinn sem keppnin fer fram. Vals-
menn hafa oftast hampað titlinum,
alls átta sinnum, og KR og Fram sjö
sinnum hvort félag.
HK fékk stórleik á heimavelli gegn
Skagamönnum en Kópavogsliðið
hefur aldrei áður leikið í 16 liða úr-
shtum fyrr. Valsmenn, sem unnið
hafa Mjólkurbikarinn síðustu þijú
árin, drógust á mótí Breiðabliki. Svo
skemmtilega vili til að Ingi Bjöm
Albertsson, sem stýrði Val til sigurs
í síöustu þremur keppnum, er nú við
við stjómvölinn hjá Breiðabliki.
Verður fróðlegt að sjá hvemig læri-
sveinum Inga Bjamar reiðir af gegn
hinu sterka liði Vals. Þetta er þriðja
árið í röð sem þessi lið leiða saman
hesta sína í Mjólkurbikarkeppninni.
I fyrra léku liöin saman í 16 liða úr-
slitunum og þá hafði Valur betur,
3-0, og árið 1991 léku liðin í 8 liða
úrslitunum og Valur hafði betur, 5-4,
í vitaspymukeppni.
Hefði frekar kosið
að mæta Val í úrslitum
„Þetta var enginn óskadráttur og ég
hefði frekar kosið að mæta Val í úr-
slitum keppninnar. Ég sé þetta fyrir
mér sem harðan og jafnan leik þar
sem bæði lið eiga jafnan möguleika
á að sigra. Viö gerum okkur auðvitað
grein fyrir því að Valur er annað
besta lið landsins í dag og ef við ætl-
um að ná árangri þurfum við að ná
algjörum toppleik," sagði Ingi Bjöm
Albertsson, þjálfari Breiðabliks.
„Við erum auðvitaö í þessari
keppni til að vinna og erum ekki
þama sem einhver uppfyliing fyrir
1. deildar liðin. Ég ítreka það að Val-
ur er sterkasta bikarhð landsins í dag
og við þurfum vafalaust á heilladís-
unum að halda til að leggja þá að
velli,“ sagði Ingi Bjöm við DV eftir
bikardráttinn.
Skemmtileg tilviljun
aö fá Breiðablik
„Það skiptir í raun engu máli hveijir
andstæðingamir erú í bikarkeppni.
Þetta er sérstök keppni að því leytinu
til að liðin leggja ailt undir, annað-
hvort em þau inni eða úti. Þetta er
nokkuð skemmtileg tilviljun að fá
Breiðablik sem andstæðing þar sem
fyrrverandi þjálfari Vals er Ingi
Björn Albertsson. Ég veit ekki hvort
verið er að storka okkur eitthvað
með þessum drætti, það verður bara
að koma í ljós. Annars leggst þessi
dráttur bara vel í mig. Viö látum
ekkert af hendi baráttulaust og gef-
um okkur alveg á fullu í þennan leik.
Við erum fullir eftirvæntingar og
hlökkum til þessa leiks,“ sagði Krist-
inn Bjömsson, þjálfari Valsmanna, í
samtali við DV skömmu eftir bikar-
dráttinnígær. -GH/JKS
Guöbjörn Árnason, (ulltrúi Mjólkurdagsnefndar, dregur nafn Víkings úr
hattinum i gær. Víkingar leika gegn Víði í Garðinum í 16 liöa úrslitunum.
DV-mynd Brynjar Gauti
KR-ingar erf iðasti andstæð-
ingurinn sem við gátum fengið
„Það verður skemmtilegt fyrir
okkur aö fá KR-inga í heimsókn á
Laugardalsvöliinn. Þetta verður
fyrsti leikurinn í 16 liða úrshtunum
og gefur því fólki tækifæri til að sjá
áhugaverðan leik. Hins vegar er al-
veg ljóst að KR-ingar vom erfiðasti
andstæðingurinn sem við gátum
fengið. Það er kannski spuming
hvort það henti ekki Framliðinu best
að leika gegn sterkustu andstæðing-
unum,“ sagði Halldór B. Jónsson,
formaður knattspymudeildar Fram,
við DV eftir dráttinn.
Ég er nokkuð sáttur
viö niðurstöðuna
„Já, ég get ekki sagt annað en ég sé
nokkuð sáttur við þessa niðurstöðu.
Ég óskaði mér að fá heimaleik gegn
Keflavík eða FH en aðalmálið var þó
að fá heimaleik. Eg tel okkur eiga
ágætismöguleika en viö þurfum engu
að síður að ná toppleik til að slá þá
út úr keppni," sagði Daníel Einars-
son þjálfari og leikmaður 3. deildar
liðs Víðis sem mætir Víkingum á
heimavelii sínum í Garði.
Eigum góða möguleika
„Ég er mjög sáttur við aö fá heima-
leik og við eigum góðan möguleika á
að komast áfram. Ég held að Leiftur
sé ekkert slakara lið en flest 1. deild-
ar hðin og veröi ekkert auðveldara
en við getum unniö hvaða lið sem
er á góðum degi. Auðvitað hefði ver-
ið sterkara að fá þekktara lið upp á
fleiri áhorfendur en ég held samt að
við fáum góða aðsókn á völlinn því
fólkið heima styður okkur vel. Ég
hefði kannski helst viljað fá HK til
aö hefna ófaranna frá því í úrslita-
leik 4. delldar en ég bíö spenntur eft-
ir að mæta Leiftri,“ sagði Hilmar
Gunnlaugsson fyrirhði 4. deildar liðs
Hattar sem er í 16 hða úrslitunum í
fyrsta skipti í sögu félagsins.
Ætlum okkur langt í bikarnum
„Mér líst ágætlega á að fá Fylkis-
menn en þeir verða eflaust erfiðir
hema að sækja. Við lékum fyrir
stuttu við Fylki í deildinni og unnum
þá góðan sigur en þeir verða eflaust
erfiðari fyrir vikið. Ég er ekkert
smeykur, það eru allir bikarleikir jafn
erflðir og þaö skiptir litlu hver mót-
heijinn er. Við ætlum okkur langt í
bikamum og stefhum að því að vinna
alla bikarleikina," sagði Ólafur Kristj-
ánsson, fyrirliöi FH, um leik þeirra
gegnFylki. -JKS/GH/RR