Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1993, Síða 29
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1993
41
Veiðivon
Veiöin er byrjuð í Veiðivötnum og eru komnir á milli 200 og 300 fiskar
á land. Á myndinni er Ingólfur Kolbeinsson með fallega urriða úr vötnun-
um. DV-mynd Jón
Laxveiðin er mjög róleg:
Silungsveiðin er
feiknalega góð
Laxveiðin er ekki góð þessa dag-
ana en Jónsmessustaumurinn er
stærstur þessa dagana og laxveiði-
menn vona aö laxinn láti sjá sig í
ríkari mæli er verið hefur í veiðián-
um.
En staöan á veiðitoppnum var
þessi í gærkvöldi, Norðurá í Borg-
arfirði er í efsta sæti með rétt 200
laxa, síðan kemur Þverá í Borgar-
firði með kringum 150 laxa og svo
Laxá í Aðaldal með 110 laxa.
Stærsti laxinn hefur veiðst í Laxá
í Aðaldal, 19,5 punda.
Silungsveiðin hefur gengið vel
eftir þeim fréttum sem við höfðum
í gærkvöldi, við skulum kikja að-
eins á máhð.
Átta og hálfs punds
urriði í Hraunsvötnum
„Þetta hefur verið aht í lagi síðan
Veiðivötn voru opnuð 20. júní, það
eru á milli 200 og 300 silungar
komnir á þurrt,“ sagði heimhdar-
maður okkar á hökkum Veiöivatna
á Landmannafrétti í gærkvöldi.
„Stærstu fiskamir eru úr
Hraunsvötnum, 8,5 og 7,5 punda
urriðar. En þeir geta verið stærri
í Hraunsvötnunum og eiga örugg-
lega eftir að veiðast stærri í sumar.
Þetta hefur verið jöfn og góð veiði
en ekkert skot ennþá,“ sagði okkar
maður með maðkinn.
Góð veiði í
Oddastaðavatni
Veiðin hefur verið góð í Odda-
staðavatni í Hnappadal og veiði-
menn, sem voru þar fyrir fáum
dögum, veiddu á milh 30 og 40 fiska.
Það var ntaðkurinn sem gaf best.
Hjón, sem voru við veiðar í Heiðar-
vatni í Mýrdal fyrir skömmu,
veiddu 30 fiska, þetta voru fiskar
frá einu upp í fjögur pund.
„Við vorum á vötnum á Fjaha-
baksleið og veiddum í gengum ís
og við fengum 30 fiska, frá eins til
tveggja punda," sagöi veiðimaður
sem var á þessum slóöum og þá var
heldur vetrarlegt þar.
6 punda urriði
í Meðalfellsvatni
„Veiðin hefur verið jöfn og góð
hjá okkur, um helgina veiddist vel
Grenlækurinn hefur verið góður
og veiðimenn, sem voru þar fyrir
skömmu, veiddu 90 fiska. Þessir
veiðimenn veiddu vel í Grenlækn-
um. DV-mynd Þórarinn
fiski, þeir stærstu voru 4 pund,“
sagði Gísh Ehertsson á Meðalfelli
í gærkvöldi er viö spurðum um
Meðalfehsvatnið.
„Stærsti fiskurinn, sem hefur
veiðst ennþá, er 6 punda urriði. Það
hefur enginn lax veiöst ennþá, við
þurfum að losna við snjóskahinn í
Esjunni. Þá kemur laxinn," sagði
Gísh í lokin.
7 punda sjóbirtingur
Veiðin er að byija í Þórisvatni og
veiðimenn, sem fóru þangað fyrir
skömmu, fengu 15 fiska og sá
stærsti var 3 pund. Fyrir fáum dög-
um veiddist 7 punda sjóbirtingur í
Hrauni í Ölfusi á tobý.
„Veiðin hefur veriö jöfn og góð í
Elliðavatni, veiðimaður veiddi 5
punda bleikju fyrir skömmu á
flugu í Hólmsá. Það var veiðimað-
urinn Daníel Daníelsson sem
veiddi bleikjuna," sagði veiðimað-
ur, sem mikið veiðir í Elhðavatni,
í gærkvöldi.
í Eyrarvatni, Þórisstaðavatni og
Geitabergsvatni í Svínadal hefur
verið ágætisveiði og einn og einn
stór urriði hefur verið að veiðast.
í Rangánum hefur verið góð sh-
ungsveiöi og stærsti fiskurinn er
13 pund, ennþá.
Amarvatnsheiðin hefur verið
opnuð og veiðimenn eru byrjaðir
að renna þar fyrir fisk.
-G.Bender
Tilkyimingar
Kvenfélagið Freyja
Félagsvist að Digranesvegi 12 í kvöld kl.
20.30. Spilaverðlaun og molakafli.
Kynning á lokaverkefnum
Föstudaginn 25. júní munu kandídatar í
hjúkrunarfræði við Háskóla íslands
kynna lokaverkefni sín til BS-prófs í
hjúkrunarfræði í Eirbergi, Eiriksgötu 34.
Verkefnin, sem kynnt verða, fjalla um
ótal máleöú. Kynningin hefst kl. 14 og
er öllum opin.
Háskólahátíð
Háskólahátíð verður haldin í Háskólabíói
laugardaginn 26. júní kl. 14. Athöfnin
hefst með því að Strauss kvartettinn flyt-
ur Vínarvalsa eftir Jóhann Strauss. Þá
verður kjöri tveggja heiðursdoktora lýst,
en þeir Armann Snævarr, fv. hæstarétt-
ardómari og háskólarektor, og Hans G.
Andersen, fv. sendiherra, verða sæmdir
heiðursdoktorsnafhbótum frá lagadeild.
Háskólarektor, Sveinbjöm Bjömsson,
ávarpar kandídata og að ávarpi hans
loknu afhenda deildarforsetai' prófskír-
teini. Að þessu sinni verða brautskráðir
rúmlega 450 kandidatar frá átta af niu
deildum Háskóla íslands. Að lokum syng-
ur Háskólakórinn nokkur lög undir
stjóm Hákons Tuma Leifssonar. Athöfn-
in fer fram i aðalsal Háskólabíós.
Vinafélagið
Bókavinir hittast í kvöld, fimmtudags-
kvöld, kl. 20 í TemplarahöUinni.
Púslgátan-ný
verðlaunagetraun
Landslagsmyndir em ungt fyrirtæki sem
sérhæfir sig í framleiðslu púsluspila eitt
íslenskra iðnfyrirtækja. Nýverið hefur
fyrirtækið hleypt af stokkunum svokall-
aðri Púslgátu sem talið er að eigi engan
sinn líka í heiminum. Samstarfsaöili
Landslagsmynda um framleiðslu púsl-
gátunnar er prentsmiðjan Oddi. Púslgát-
an er púsluspil þar sem myndefnið er
krossgáta. í krossgátuna vantar nokkra
stafi og er gátan fólgin í þvi að finna
hvaða stafir það em, raða þeim saman
og finna þannig lausnarorð Púslgátunn-
ar. Lausnarorðið er sent inn ásamt nafni
þátttakandans og er dregið um vinninga
úr réttum lausnum. Vinningar em alls
15 en aðalvinningur er bíll frá Toyota.
Félag eldri borgara
í Reykjavík
Bridgekeppni, tvímenningur kl. 13. Opið
hús kl. 13-17 í Risinu.
Jónsmessuvarðeldur skáta
Skátafélögin í Reykjavík standa fyrir
varðeldi vestan megin Öskjuhlíðar í
kvöld, 24. júní. Varðeldurinn mun hefjast
kl. 20. Sungin verða vinsæl skátalög,
skemmtiatriði sýnd og spilað á gitar. A
eftir varðeldinum mun hvert félag bjóða
sínu fólki kakó. Varðeldurinn er liður í
undirbúningi Reykjavíkurskáta fyrir
landsmót sem haldið verður 25. júli til
1. ágúst. Öllum er velkomiö að koma við
og taka þátt í varðeldinum.
Sílstarveiðikeppni
Fyrsta Sílstarveiðikeppni Vinamóta við
Seltjöm verður haldin föstudaginn 25.
júní. Keppnin hefst að kvöldi kl. 20 og
lýkur um kl. 23 með verðlaunaafhend-
ingu og grillveislu. Keppt verður í tveim-
ur flokkum einstaklinga og fyrirtækja.
Veitt verður með flugustöng og kast-
stöng. Skráning og upplýsingar í símum
985-39096, 92-68795 og 92-12996.
FR-Félagar
Sunnudaginn 27. júní nk. er fyrirhugað
að fara í dagsferð til Þingvalla. Almanna-
gjá skoðuð, farið í leiki og grillað. Fólk
mæti með mat á grillið. Ef timi vinnst til
verður ekið um Gullfoss og Geysi. Þátt-
taka tilkynnist fyrir 24. júní nk. Reynt
verður að sjá þeim fyrir fari sem ekki
hafa bifreið til afnota til fararinnar.
Mæting í Dugguvogi 2 kl. 11.30 stundvis-
lega. Allar upplýsingar gefa FR-57 Þórður
Ingi, s. 653585, FR-50 Guðmundur, s.
813284, FR-7989 Sigþór, s. 641204 og á
FR-Radíó 5000, s. 36888.
Sumarblót á Þingvöllum
Hið árlega sumarblót ásatrúarmanna
verður haldið á Þingvöllum fimmtudag-
inn 24. júní. Alþing hið foma var sett ár
hvert á fimmtudegi í tíundu viku sumars
þá sól er hæst á lofti. Að þessu sinni ber
það upp á Jónsmessu. Auk heföbundinna
blótsathafna verða bronsaldarlúðrar
þeyttir, bumbur barðar, leikinn grá-
skinnsleikur og fleira gert sér til skemmt-
unar. Á blótinu verður kynnt nýtt mál-
gagn heiðingja á íslandi. Safiiast verður
saman í Hótel Valhöll kl. 20 og em allir
velkomnir.
Nýjar bækur
HISTORY
OFICELÁND
From tlw Scltkmwnt
to the Present Dny
Saga íslands á ensku
Iceland Review hefur gefið út bókina
History of Iceland eftir Jón R. Hjálmars-
son. í bókinni er sögð saga íslands, allt
fi-á þvi að land byggðist þar til íslending-
ar hófu samningaviðræður um inngöngu
í Evrópska efnahagssvasðið. Bók þessi er
að grunni til byggð á frumgerð sem gefm
var út í takmörkuðu upplagi fyrir fimm
árum með heitinu A Short History of Ice-
land. Hún er uppseld. Þessi nýja útgáfa
er aukin og endurbætt og mun viða-
meiri, ekki síst sá hlutinn sem fjallar um
síðustu hálfú öldina. Bókin er 206 bls.
með hátt á annað hundrað mynda og ein-
taksverð er kr. 1992. Útgáfa bókarinnar
er tileinkuð 50 ára afmæli stofnunar lýð-
veldis á íslandi 1994.
Leikhús
ÞJOÐLEEKHUSIÐ
Sími 11200
RÍTA GENGUR MENNTA-
VEGINN
eftir Willy Russel.
Flm. 24/6 kl. 20.30 - Húsavlk.
Fös. 25/6 kl. 20.30 - Esklflrðl.
Lau. 26/6 kl. 20.30 -Fáskrúðsfirðl.
Sun. 27/6 kl. 20.30 - Höfn I Homaflrði.
HAFIÐ
eftir Ólaf Hauk Símonarson.
Flm. 24/6 kl. 20.30- Varmahlíö.
Lau. 26/6 kl. 20.30 - Bolungarvik.
Sun. 27/6 kl. 20.30 - Hnifsdal.
Mán. 28/6 kl. 20.30 - Patreksfirðl.
Þri. 29/6 kl. 20.30 - Ólafsvík.
KÆRA JELENA
eftir Ljudmilu Razumovskaju.
Fim. 24/6 kl. 21.00 - Þingborg.
Fös. 25/6 kl. 21.00 - Búðardal.
Lau. 26/6 kl. 21.00 - Stykklshólmi.
Sun. 27/6 kl. 21.00 - Borgarnesi.
Mán. 28/6 kl. 21.00 - Akranesl.
Mlðasala ferfram samdægurs á sýning-
arstöðum. Einnig er tekiö á móti sima-
pöntunum i miðasölu Þjóðleikhússins frá
ki. 10-17 virka daga i sima 11200.
ARALEKHÚSIÐ
sýnir
STREYMI ’93
Leikstjóri: Rúnar Guöbrandsson.
Spunaverk unnið af Leiksmiðju
L.A.B.
SÝNTISTRAUMI.
ikvöldkl. 20.30.
Þri. 29. júnikl. 20.30.
Örfá sætl laus.
LISTAHÁTÉÐ
HAFNARFJARÐAR.
Tónleikar
Tónleikar í Hjallakirkju
í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.30 munu
um 40 ungmenni úr Skólakór Kársness
og blokkflautusextett úr Tónlistarskóla
Kópavogs halda tónleika fyrir vini og
velunnara í Hjallakirkju í Kópavogi. A
efnisskrá eru fyrst og fremst íslensk þjóð-
lög og lög eftir íslensk tónskáld og eru
tónleikamir eins konar lokaæfing fyrir
tónleikaferð til Álandseyja og Finnlands.
Aðgangur er ókeypis.
Safnaðarstarf
Áskirkja: Opið hús fyrir alla aldurshópa
í dag kl. 10-12 og 13-16.
Grensáskirkja: Ný dögun, samtök um
sorg og sorgarviðbrögð. Opið hús í Grens-
áskirkju kl. 20.30.
Langholtskirkja: Aftansöngur alla virka
daga kl. 18.00.
Laugarneskirkja: Kyrrðarstund kl.
12.00. Orgelleikur, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnaðar-
heimilinu að stundinni lokinni.
Matreiðslumaður óskast
á veitingastað á Akureyri. nánari upplýsingar í sima
96-12690, Páll eða Hlynur.
Þarf að geta byijað strax.
______________________LEtKHÓPQRtNW»__________________
FISKAR Á ÞURRU LANDI
Nýr íslenskur ólíkindagamanleikur eftir Árna Ibsen.
Leikstjóri: Andrés Sigurvínsson. Lcikendur: Guðrún Ásmundsd.,
^ Ólafur Guðmundss., Ari Matthíass. og Aldís Baldvinsd.
Sýningar eru í Bæjarbíói, Hafnarfirði.
25/6,26/6 og 28/6 ld. 20:30. Aðeins þessar sýningar!
Mlðasala: Myndllstarskóllnn í Hafnarf., Hafnarborg og verslanlr
Eymundsson í Borgarkringlunni og Austurstræti.
Miðasala og pantanir í símum 654986 og 650190.