Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1993, Blaðsíða 30
42
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1993
AfmæH
Bragi Þórðarson
Bragi Þórðarson bókaútgefandi,
Dalbraut 17, Akranesi, er sextugur
ídag.
Starfsferili
Bragi er fæddur og uppalinn á Akra-
nesi. Hann lauk gagnfræðaprófi
1950 og prófi í prentiðn (setningu)
1954. Starfaði síðan í prentverki
Akraness hf. Bragi var prentsmiðju-
stjóri og einn af eigendum þess fyr-
irtækis á árunum 1964-1982. Hann
starfar nú einvörðungu að bókaút-
gáfu. Hann stofnaði Hörpuútgáfuna
1960 og starfrækir hana ásamt fjöl-
skyldu sinni.
Bragi hefur tekið þátt í starfi skáta
s.l. 50 ár. Hann var meðal annars
félagsforingi skátafélags Akraness
um árabil. Hann hefur tekið virkan
þátt í starfi Oddfellow-reglunnar s.l.
33 ár. Þá hefur hann verið í stjóm
Bæjar- og héraðsbókasafsins á
Akranesi frá 1966 og form. bóka-
safnsstjórnar um tíu ára skeið.
Bragi var um tíma í stjóm Fél. ísl.
prentiðnn. og nokkur undanfarin
ár í stjóm Fél. ísl. bókaútgef. Þá
hefur Bragi tekið þátt í ýmsu
nefnda- og félagsstarfi á Aranesi,
var m.a. fyrsti form. Æskulýðsráðs
Akraness.
Bragi hefur safnað, skráð, gefið
út á bókum og flutt í útvarp þætti
af Borgfirðingum. Hann hefur enn-
fremur ritað greinar í blöð og tíma-
rit.
Fjölskylda
Bragi kvæntist 25.2.1956 Elínu Þor-
valdsdóttur skrifstofustjóra. Hún er
dóttir hjónanna Þorvaldar Ellerts
Ásmundssonar, útgerðarmanns á
Akranesi, og Aðalbjargar Bjama-
dóttur frá Kirkjubóli í Dýrafirði.
Þauerabæðilátin.
Böm Elínar og Braga era tvö. Þau
era: Þorvaldur, f. 2.8.1956, land-
fræðingur, deildarstjóri hjá Land-
mælingum íslands, kvæntur Drop-
laugu Sveinbjömsdóttur tannlækni
og eiga þau eina dóttur; Bryndís, f.
17.5.1960, tónlistarkennari við Tón-
listarskólann á Akranesi, gift Carst-
en Jóni Kristinssyni ljósmyndara
og eiga þau tvær dætur.
Systkin Braga era Kristbjörg
Þórðardóttir, f. 12.8.1927, sjúkraliði;
Skúli, f. 14.9.1930, starfsm. Lífeyris-
sjóðs Vesturlands; Birgir Þórðar-
son, f. 30.9.1939, deildarstjóri.
Foreldrar Braga: Þórður Ás-
mundsson, f. 8.1.1899, d. 21.3.1971,
verkamaður á Akranesi, og kona
hans, Sigríður Hafisdóttir, f. 23.10.
1898, d. 12.12.1982, húsmóðir.
Ætt
Þórður var sonur Ásmundar, b. í
Fellsaxlarkoti í Skilmannahreppi,
Þorlákssonar, b. á Ósi í sömu sveit,
Ásmundssonar, b. Ósi, Þorláksson-
ar. Móðir Ásmundar á Ósi var Ragn-
heiður Beinteinsdóttir, lögréttu-
manns á Breiðabólstað í Ölfusi, Ingi-
mundarsonar, b. í Hólum, Bergsson-
ar, hreppstjóra í Brattholti, Stur-
laugssonar, ættfoður Bergsættar-
innar. Móðir Ásmundar í Fellsaxl-
arkoti var Guðríður Ólafsdóttir, b.
á Hofsstöðum í Hálsasveit, Berg-
þórssonar Ámasonar.
Móðir Þórðar á Akranesi var
Kristbjörg Þórðardóttir, b. á Hegg-
stööum í Andakíl, Magnússonar, b.
þar, Magnússonar. Móðir Krist-
bjargar var Sigm-björg Gísladóttir,
b. á Hóli í Norðurárdal, bróður Guð-
mundar á Sámsstöðum, afa Jóns,
skálds á Háreksstöðum, langafa
Þórarins Tyrfingssonar yfirlæknis
og Pálma Gíslasonar, formanns
Ungmennafélags íslands. Annar
bróðir Gísla var Sigurður, b. á Háa-
felli í Hvítársíðu, afi Jóns Helgason-
ar, skálds og prófessors, og langafi
Guðjóns B. Baldvinssonar, fyrrv.
formanns BSRB. Gísh var sonur
Guðmundar, b. á Háafehi, Hjálm-
arssonar, og konu hans, Helgu Jóns-
dóttur, ættforeldra Háafehsættar-
innar.
Sigríður, móðir Skúla, var dóttir
Hahs, b. á Stóra-Fljóti í Biskups-
Bragi Þórðarson
tungum, Guðmundssonar, b. á
Torfastöðum, Jónssonar, b. á
Tungufelh, Sveinbjömssonar. Móð-
ir Guðmundar var Guðrún Guð-
mundsdóttir, b. í Helhsholtum, Ól-
afssonar. Móðir Hahs var Jóhanna,
systir Jóns, langafa Ólafs Skúlason-
arbiskups.
Móðir Sigríðar var Sigríður, systir
Helgu, ömmu Ólafs Skúlasonar
biskups. Sigríður var einnig systir
Önnu, ömmu Jóns Skúlasonar
pósts- og símamálastjóra. Sigríður
var dóttir Skúla, alþingismanns á
Berghyl, bróður Jósefs, langafa Ól-
afs Isleifssonar hagfræðings.
Bragi verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Guðmundur Friðriksson
Guðmundur Friðriksson rafvirkja-
meistari, Mýrargötu 18, Neskaup-
stað, er áttræður í dag.
Starfsferill
Guðmundur fæddist í Seldal í
Norðfirði og ólst þar upp. Hann fór
að vinna við beitningu fjórtán ára
og stundaði síðan ýmis almenn
störf er tengjast útgerð, var m.a.
landformaöur á vertíðum á Höfn
ogíSandgerði.
Er Guðmundur var um þrítugt
hóf hann nám 1 rafvirkjun og lauk
prófi í þeirri iðngrein. Hann starf-
aði síðan við rafvirkjun, einkum í
skipum og bátum fyrstu árin. Guð-
mundur starfaði sjálfstætt um
skeið en var síðan fastráðinn raf-
virki hjá Síldarvinnslunni hf. í ■
Neskaupstað um árabh. Þá kenndi
hann við Iðnskólann í Neskaupstaö
íþrjávetur.
Guðmundur var sæmdur heið-
ursmerki sjómanna í Neskaupstað
1986 fyrir vel unnin störf sem land-
formaður.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 1935
Oddnýju Siguijónsdóttur, f. 8.7.
1916, d. 12.5.1986. Hún var dóttir
Sigurjóns Guðnasonar og Petrúnar
Gísladóttur. Guðmundur og Oddný
shtusamvistirl974.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Vallarbraut 9, 02.02. Gerðarþoli:
Helga Jónsdóttir, gerðarbeiðendur.
Lífeyrissjóður Vesturlands, Lífeyris-
sjóður sjómanna og íslandsbanki hf.,
29. júní 1993 kl. 11.30.
Einigrund 4,03.01. Gerðarþoli: Áslaug
Anna Einarsdóttir, gerðarbeiðendur
Búnaðarbanki íslands, Húsnæðis-
stofnun ríkisins og Lífeyrissjóður sjó-
manna, 29. júní 1993 kl. 13.30.
Börn Guðmundar og Oddnýjar
era Jóhanna Ríkey, f. 17.3.1937,
húsmóðir í Reykjavík, var gift Guð-
mundi Vestmann en þau shtu sam-
vistir og era böm þeirra Oddný
Ósk, skrifstofumaður á Egilsstöð-
um, Guðmundur Elmar, stýrimað-
ur í Vestmannaeyjum, Svava Pá-
lína, bankastarfsmaður í Reykja-
vík, og Kolbrún Sandra, verslunar-
maður í Reykjavík; Hulda Elma, f.
16.1.1943, ritstjóri í Neskaupstað,
gift Jóni E. Jóhannssyni stýri-
manni og eru böm þeirra Petrún
Björk, íþróttakona í Neskaupstað,
og Jóhanna Freyja nemi; Friðrik,
f. 19.6.1944, rafeindavirki í Kópa- .
vogi, kvæntur Þórheiði Einarsdótt-
ur flugfreyju og eru dætur þeirra
Katrín og Öddný auk þess sem
Friðrik á tvo syni frá fyrra hjóna-
bandi, Guðmund, flugumferðar-
stjóra í Reykjavík, og Jóhann. Þá
misstu Guðmundur og Oddný eina
dóttur, Huldu, sem lést sex mán-
aða.
Systkini Guðmundar: Sigríður, f.
1907, fyrrv. húsfreyja í Grænanesi,
nú látin; Gísh, f. 1909, fyrrv. b. í
Seldal, býr nú í Neskaupstað,
kvæntur Sigrúnu Dagbjartsdóttur;
Jón, f. 1913, fyrrv. b. í Seldal, nú
búsettur í Neskaupstað; Guðlaug-
ur, f. 1917, fyrrv. b. í Seldal.
Foreldrar Guðmundar vora Frið-
Jörundarholt 139. Gerðarþoli: Birgir
Engilbertsson, gerðarbeiðendur:
Akraneskaupstaður og Landsbanki
Islands, 29. júní 1993 kl. 14.00.
Mánabraut 4, Gerðarþoli: Guðmuhd-
ur Amar Elíasson, gerðarbeiðandi:
Húsnæðissto&un ríkisins, 29. júní
1993 kl. 15.00.__________________
SÝSLUMAÐURINN Á AKRANESI
Guðmundur Friðriksson.
rik Jónsson, f. 6.9.1974, d. 17.6.1920,
bóndi í Seldal, og Guöríður Guð:
mundsdóttir, f. 20.3.1879, d. 13.10.
1939, húsfreyja.
Ætt
Friðrik var sonur Jóns, b. í
Hamragerði Guðmundssonar, b. í
Rauðholti ísleifssonar, b. í Rauð-
holti Eghssonar. Móðir Jóns var
Guðrún Eyjólfsdóttir, b. á Bakka
Oddssonar, b. í Höfn á Strönd Ól-
afssonar.
Móðir Friðriks var Sigríður Ei-
ríksdóttir, b. á Ketilsstöðum í
Hjaltastaðaþinghá Jónssonar, frá
Mýrum Torfasonar, Magnússonar.
Móðir Jóns frá Mýrum var Guðríð-
ur Hjörleifsdóttir. Móðir Eiríks á
Ketilsstöðum var Sigríður Jóns-
dóttir. Móðir Sigríðar Eiríksdóttur
var Ingibjörg Sigurðardóttir, b. á
Amaldsstööum í Fljótsdal Einars-
sonar og Gróu Jónsdóttur.
Systir Guðríöar Guðmundsdótt-
ur var Guðfinna, amma Þorsteins,
skálds frá Hamri. Guðríður var
dóttir Guðmundar, b. á Tandra-
stöðum Magnússonar, b. á Tandra-
stöðum Jónssonar. Móðir Guð-
mundar á Tandrastöðum var
Guðný Ólafsdóttir, b. í Hellisfirði
Péturssonar, og Mekkínar, systur
Einars, langafa Eysteins, f>Trv.
ráðherra, og dr. Jakobs sóknar-
prests, fóður rithöfundanna Svövu
og Jökuls, foður rithöfundanna Bl-
ugaogHrafns.
Móðir Guðríðar var Gróa Finns-
dóttir, b. á Seljamýri Eiríkssonar.
Móðir Gróu var Sigurlaug Sigurð-
ardóttir. Móðir Sigurlaugar var
Elín Tómasdóttir frá Stórasteins-
vaði.
90 ára
Knud A. Hansen,
Eiríksgötu 17, Reykjavík.
Aase Sigfúsdóttir,
Snorrabraut 58, Reykjavik.
Anna Jóhannesdóttir,
Karlsrauðatorgi 19, Dalvík.
ara
Elin Bjamadóttir,
Torfnesi, Hlíf 2, ísafirði.
Þórarinn Gunnlaugsson,
Skólavegi 10, Vestmannaeyjum.
ara
ElLsabet Magnúsdóttir,
Ipeppsvegi 24, Reykjavík.
Óli Theódór Hermannsson,
Bergholti 4, Mosfehsbæ.
Óh verður að heiman á afmæhs-
daginn en tekur á móti gestum í
Fólkvangi á Kjalarnesi, laugardag-
inn 26. júní n.k. eftir kl. 20.00.
Þráinn Guðmundsson,
Lambhaga 20, Selfossi.
Ása Jóhannsdóttir,
Sunnuvegi 8, Skagaströnd.
Sigurbjörg Jónsdóttir,
Amórsstöðum neðri,Barðastr.hr.
Jóhannes Óttar Svavarsson,
Sogavegi 105, Reykjavík.
Örn Indriðason,
Búðarflöru 7, AkureyrL
Ragnar Ásmundsson,
Ánahhð 8, Borgamesi.
Guðrún Sigurðardóttir,
Reynimel 92, Reykjavík.
Haligrímur Aðalsteinsson,
Skarðshlíö 23c, Akureyri.
Arnór Karlsson,
Furulundi 15h, Akureyri.
Halldór Sigurðsson,
Þóröargötu 4, Borgarnesi.
JónaGísladóttir,
Hraunbrún 34, Hafnarfirði.
Jóhanna Magnúsdóttir,
Hvanneyrarbraut44, Siglufirði.
60 ára______________________
örlaugur Björnsson,
Vatnsstíg 11, Reykjavík.
Hjörtur Jónsson,
Haftiarstræti 14, Flateyri.
Guðbjartur Kristinsson,
Dalseh 20, Reykjavík.
Baldur Þorsteinn Bjarnason,
Lönguhlíð 25, Reykjavík.
Jenný Magnúsdóttir,
Tryggvagötu 7, SelfossL
40ára
Þorgerður E. Sigurðardóttir,
Furuhjalla 9, Kópavogi.
Magnús Ellert Þorkelsson,
Borgarvlk 22, Borgarnesi.
Guðmundur Vikingsson,
Garðashomi, Þelamörk.
Ari Bergsveinn Guðmundsson,
Sólbakka 1, Breiðdalsvík.
Kristján Sigurjónsson,
Vatnsdalshólum, Sveinsstaðahr.
Hafrún Kristjónsdóttir,
Fannafold 180, Reykjavik.
Kristjana Jónatansdóttir,
Jóruseli 20, Reykjavík. :;
Marta Sigurgeirsdóttir,
Reyðarkvísl 10, Reykjavík.
Þóroddur Gunnarsson,
Raufarseh 13, Reykjavík.
Auður Inga Ingvarsdóttir,
Háaleitisbraut 109, Reykjawík.
Magnús H. Sólmundsson,
Jörundarholti 226, Akranesi.
Jón Viðar Andrésson,
Hrísateigi30, Reykjavík.
Jochum Marth Ulriksson,
Sunnubraut20, Kópavogi.
Þórhildur Lárusdóttir,
Valhúsabraut 1, Seltjarnamesi.
Hafliði Alfreð Karlsson,
Hraunbæ 106, Reykjavík.
VANTAR ÞIG PENING? Auglýstu í smáauglýsingum