Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1993, Page 6
22
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLl 1993
Ferðir
Helgi Bjömsson söngvari í viðtali við Ferðablað DV um útihátíðir:
Betra að vita afbörnunum
„Þaö er númer eitt á útihátíöum
að vera við aðra eins og þú vilt að
aörir séu við þig. Þetta er það sama
og á sér staö í sambýli við annað fólk.
Á útihátíðum er fólk nær hvað öðru
en venjulega. Það er ekki steinsteypa
á milli. Þama reynir meira á þolgæði
og félagslega þroskann," segir Helgi
Bjömsson, söngvari í SSSól, í sam-
tali við DV um útihátíðir. Helgi segir
að mjög sérstök stemning skapist á
útihátíðum - nokkuð sem gerist í
raun ekki við nein önnur tækifæri:
„Aðalatriðið er að hafa góða skapiö
með sér á útihátíð,“ segir Helgi. „Fyr-
ir okkur tónlistarmennina er þetta
bara mjög gaman. Ég upplifi það
mjög sterkt þegar fólk er búið aö
vera saman í 2-3 daga. Þaö er mjög
skemmtileg stemning sem þú nærð
ekki þegar þú spilar á einum tónleik-
um eða einu balh. Þetta verður eins
og skólabekkur í útilegu.
Maður er farinn að þekkja andlitin
og hópurinn farinn að hristast sam-
an, allir eru búnir að upplifa eitthvað
sameiginlegt þannig að það verður
mjög sérstakt samband - nokkuð
sem maöur upplifir ekki annars stað-
ar en á útihátíðum," segir Helgi.
Hrottarnir eru
mjög lítið hlutfall
„Mér finnast útihátíðir ekkert hafa
breyst frá þeim tíma sem ég man
fyrst eftir þeim. Það er alltaf vesen
með klósett, það er rusl, sumir eru
ölvaöir og aðrir ekki og svo eru svart-
ir sauðir sem setja blett á hópinn -
kannski einhverjir vandræðageml-
ingar sem eyöileggja fyrir hinum.
Þetta er alltaf sama mynstrið.
Þetta sama tuð um umgengnina og
annað hefur allaf farið óskaplega í
taugarnar á mér. Fólk gerir sér ekki
grein fyrir þvi að 4-5 þúsund manns
skilja auðvitað eftir sig eitthvert rusl.
ara erlendis að stórir hópar séu að
skemmta sér saman úti undir berum
himni í náttúrunni. Ég held að þetta
sé einhver risaupplifun," segir Helgi.
Betra að fara á skipulagða
hátíð
„Mér finnst skilningur á ungu fólki
og því sem er að gerast í kringum
það ekki vera allt of mikill. Þaö er
ekki eins og hlutir, sem hafa verið
að gerast á Islandi í tugi ára, séu eitt-
hvert nýtt fyrirbæri. Foreldrar, sem
eru að bölsótast yfir umgengni og
öðru, hafa upplifað þetta kannski á
misjafnan hátt sjálfir.
Auðvitað koma ýmsir heim með
slæma upplifun frá útihátíðum. Ég
er ekkert að fara framhjá því. En
þegar fjöldinn skiptir þúsundum
hlýtur náttúrlega einn og einn að
upplifa eitthvað misjafnt." Helgi seg-
ir að þeir sem ráði illa við sig og
verði útúrdrukknir fái aðhlynningu
á útihátíðum.
„Það er hugsað mjög vel um þá
hhð mála í dag. Það eru sjúkratjöld
og læknar og það er gæslufólk sem
passar að enginn fari sér að voða.
Ef einhver drekkur sig útúr er hon-
um komið í hvild og hann látinn sofa
úr sér undir eftirhti, gefið heitt kakó
og konúð í gang aftur.
En ég held að það breytist ekkert
að krakkar fari út og tjaldi í hópum
hvort sem það er skipulagt eða ekki.
Þess vegna finnst mér sem foreldri
að ef um er að ræða skipulagða hátíð
einhvers staðar er miklu sniöugra
að vita af krökkunum þar sem ein-
hver hugsar um þá í stað þess að
hafa þá bara einhvers staðar úti á
víðavangi," sagði Helgi Björnsson.
Helgi Björnsson verður með SSSól
á þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum
um verslunarmannahelgina.
Helgi Björnsson segir að sem foreldri sé betra að vita af börnum sínum á skipulagðri útihátíð, þar sem um sé
að ræða eftirlit og aðhlynningu, en einhvers staðar úti á víðavangi. DV-mynd JAK
Mér finnst oft að á svona stórum
mótum sé þetta aht eins og stór fjöl-
skylda. Eftir 1 eða 2 daga er búið að
hrista fólkið saman - meirihlutann
af fólkinu. En það eru auðvitað oft
bölvaðir hrottar innanum sem koma
einungis í þeim tilgangi að vera með
leiöindi, töffaraskap og stæla sem
eiga hvorki heima þama né annars
staðar.
Ég held að það sé engum til góðs
að sturta í sig áfengi, verða minnis-
laus og meðvitundarlaus. Hins vegar
hafa ekki allir stjóm á drykkjunni
en ég held að það ætli sér enginn að
verða útúrdrukkinn. Stór partur af
þessu er kannski þessi feluleikur. Ég
held að íslendingar hafi aldrei kunn-
að að umgangast áfengi á eðhlegan
hátt, hvorki á útihátíðum né annars
staðar. En það er hægt að njóta víns
á annan hátt en að drekka bara
brennivín og kók,“ segir Helgi.
Um það hvaða upplifun íslendingar
fái út úr því að fara á útihátíðir, eins
og reyndar flestir fuhorðnir hafa
gert, segir Helgi:
„Það er þetta frelsi sem við íslend-
ingar getum svo sjaldan notiö út af
veöri - að vera einhvers staðar úti
einu sinni til tvisvar á ári. Veturinn
heldur okkur inni í 8-10 mánuði á
ári. Það er hins vegar miklu algeng-
þar sem er gæsla, læknar og aðhlynning ef eitthvað gerist
sínum á skipulagðri hátíð
Ódýri
tjaldvagninn
Verð aðeins
kr. 269.800 stgr.
Frumsýnum ódýran og vandaðan 4ra manna fjöl-
skylduvagn með fortjaldi sem kemur mjög á óvart,
takmarkað magn. Verið velkomin í sýningarsal okkar.
Sumartilboð
Fólksbílakerra galf-
húðuð. Burðargeta
2 50 kg. Verð aðeins
kr. 39.900,- meðan
birgðirendast.
íslensk dráttarbeisli á flestargerðirbíla, verð frá kr. 11.800.
Asetning á staðnum. Allar gerðir af kermrn og vögnum.
Allir hlutir í kerrur.
VIKURVAGNAR
Síðumúla 19 - s. 684911
Göngustígar lagðir í Grá-
brók og að Ófaerufossi
Ferðamálaráð íslands stóð fyrir
sjálfboðavinnuferð að Grábrók í
Noröurárdal dagana 10.-13. júní.
Unnið var í samvinnu við Náttúru-
vemdarráð, Sjálfboðaliðasamtök um
náttúruvemd, landeigendur og
Norðurárdalshrepp.
Lagðir vora göngustígar og smíö-
aður tréstigi tíl að gera greiðfærara
upp á Grábrók og gerö var tilraun
tíl að raka yfir net ógreiðfærra slóða
sem hafa myndast á hönum áram.
í júlíbyijun var efnt til annarrar
vinnuferðar og nú að Ófærufossi í
Eldgjá í samvinnu við sjálfboðahða- Ferðamálaráð hefur staðið fyrir
lagningu göngustíganna við Grá-
brók og Ófærufoss.
samtökin og Skaftárhrepp. Enn má
búast við nokkurri umferö ferða-
manna inn í Eldgjá þó að steinboginn
sé falhnn. Því var gönguleiðin inn
gjána lagfærð og lokið við stíg upp
með fossinum.
Víða er þörf á slíkum framkvæmd-
um, bæði th að greiða fór ferða-
manna og koma í veg fyrir skemmd-
ir á svæðunum.
Auk þessara verkefna styrkir
Ferðamálaráð nokkra aðha th fram-
kvæmda á ferðamannastöðum, eink-
um th að reisa salemishús og th
göngustígagerðar.