Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1993, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1993, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1993 5 Fréttir Loðnuveiðar: Um 245 þúsund tonn á land Fjöldi loönubáta er nú aftur kom- inn á miðin, eftir aö hafa landað góð- um afla eftir hrotu síðustu daga. Skipin halda sig nú norðan við miðl- ínuna, um 230 mílur norður af Langanesi, og skv. upplýsingum í gær var gott veður á miðunum. Um 245 þúsund tonn eru nú komin á land og þar af hefur mestum afla verið landað á Sigluflrði, eða tæpum 55 þúsund tonnum. Akureyri: ÞHr í sjúkrahús Þrír voru fluttir í sjúkrahús á Ak- ureyri í fyrrakvöld. Maður féll úr stiga er hann var að mála glugga og kvartaði yfir eymsl- um í höfði. 17 ára stúlka féll af hest- baki og blæddi úr höfði hennar, auk þess sem hún kenndi verkja í hné og mjöðm. Ungur maður féll af vél- hjóli og meiddist á hnjám. í engu tilvikinu var um mikil meiðslaðræða. -pp Selfoss: Kannað hvað veldurglugga- skemmdum Knstján Einarsson, DV, SeBossú Vegna fréttar í DV 21. ágúst sl. af ónýtum gluggahlerura í stærsta glugga landsins í Fjöl- brautaskóla Suðuriands á Sel- fossi haföi framleiðandi hleranna samband viö fréttamann DV og vildi að eftirfarandi kæmi fram: „Það er rétt að hlerarnir eru bilaðir á llmingum, en það er ekki fullkannað hvort um er að ræða galla í framleiðslunni. Allt efni, þ.e.a.s. tirabur og lim, var valiö í samvinnu við arkitektinn, dr. Magga Jónsson, og er hann nú að kanna hvað olli því að svona fór,“ sagöi framleiðandinn. Þess raá geta að trésmiðir, sem hafa unnið ýmis störf undir gler- veggnum, segja að hiti á sólardegi fari yfir 50 gráður á Celsíus efst uppi. Ljóst er því að um verulegar hitasveiflur er að ræða undir þessum stóra glugga. - segir Þórður Þórðarson, framkvæmdastjori Verktakasambandsins „Á síðasta ári var um 30% sam- dráttur í flestum fyrirtækjum í bygg- ingargeiranum. Á þessu ári stefnir í allt að 20 prósent samdrátt hjá mörg- um þessara fyrirtækja og ég held að það eigi eftir að verða veruleg fækk- un í verktakageiranum, enda hafa verið að sjást tilboð í verk upp á helming kostnaðaráætlunar. Slíkur rekstur gengur ekki til lengdar," seg- ir Þórður Þórðarson, framkvæmda- stjóri Verktakasambandsins. Þórður segir að í fyrra hafi at- vinnuleysi í þessum geira aðallega verið meðal smiða en það eigi senni- lega eftir að breytast. „Á síðasta ári voru um 100 smiðir á atvinnuleysis- skrá en lítið atvinnuleysi var hjá öðrum starfsstéttum í þessum geira. Þórður segir að það blasi við að íbúðir á íslandi séu einfaldlega of dýrar. „Menn hafa verið að byggja of dýrar íbúðir og það er hreinlega orðinn of mikill munur milli þess sem fólk getur borgað fyrir íbúðir og þess verðs sem ríkjandi er á mark- aðnum. Á næstu árum sjáum við fram á að kaupmáttur almennings muni ekki aukast og þess vegna mun þessi staða ekki breytast." Hvemig ætla verktakar að bregð- ast við þessum aðstæðum? ..Það er auðvitað ekki nema eitt sem hægt er að gera og það er að lækka byggingarkostnað," segir Þórður. „Okkur sýnist að það sé hægt að gera verulegt átak í þeim málum og það er jafnvel hægt að lækka byggingarkostnað um 20 til 25 prósent. Þessi lækkun er möguleg með endurskoðun á flestum þáttum í tengslum við byggingar; allt frá fjár- mögnun, byggingarsamþykktum og skipulagi, til lánshlutfalla við ný- byggingar. Þessar hugmyndir ganga í aðalatriðum út á að byggja hag- kvæmar með því aö breyta bygging- arsamþykktum. í þeim eru oftlega gerðar fullstrangar kröfur til bygg- inga, til dæmis hvað varðar einangr- un, bílskýli og fleira. Einnig er verið að tala um að minnka byggingarnar sjálfar. Með því að taka þessa þætti saman er verið að tala um lækkun á kostnaði um allt að fjórðung. Verk- takasambandið tekur þessar hug- myndir alvarlega og í október er fyr- irhuguð ráðstefna, þar sem fjallá á um möguleikana á að lækka bygg- ingarkostnaö," sagði Þórður að lok; um. -bm Þórður Þórðarson, framkvæmda- stjóri Verktakasambandsins. En þegar samdráttur hefur staðið svo lengi sem raun ber vitni þá hlýtur það að leiða til þess að atvinnuleysis fer að gæta hjá þeim stéttum sem hingað til hafa sloppið. í vetur ótt- umst við þess vegna að nokkurs kon- ar keðjuverkun fari af stað, þannig að atvinnuleysi aukist hjá smiðum, rafvirkjum, málurum og múrurum," segir Þórður. „Nú er liðið á árið og menn sjá nokkuð hvemig staðan verður í vetur og það sem styður þetta er sú staðreynd að greiöslumöt- um hjá Húsnæðisstofnun ríkisins hefur fækkað um tæpan þriðjung frá síðasta ári.“ N tiléfni frumsýningar myndarinnar ELDUR A HIMIMI verður haldin athyglisverð ráðstefna laugardaginn 28. ágúst í Háskólabíói á vegum Snæfellsáss hf. um geimverur. stendur frá kl. 10.30 til 16.30. HASKOLABIO ELDUR A HIMNI sýnd á öllum sýningum Slæmar horfur í byggingargeiranum: Sjáum fram á enn meiri samdrátt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.