Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1993, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1993, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1993 Spumingin Hvað er skemmtilegast við að búa í Bolungarvík? Ingibjörg Jónsdóttir: Hér er rólegt og gott og mildir vetur. Valdís Hrólfsdóttir: Allt þetta skemmtOega fólk, sérlega gott. Pétur Bjarnason: Þaö er allt skemmtilegt en helst veðráttan. Einar Þorsteinsson: Það er gott mannlíf og skemmtilegt. Dorotha Ruthowska: Mér finnst nú ekki allt skemmtilegt hér, heldur af- skekktur staður. Baldur Smári Einarsson: Flestallt, skemmtilegt fólk. Lesendur Lýðskrum stjórn- arandstöðunnar K.T. skrifar: Lýðskrumi stjómarandstöðunnar virðast engin takmörk sett. Nýjasta dæmið er fjaðrafok leiðtoga hennar í tengslum við opinbera heimsókn utanríkisráðherra ísraels til Norður- landa. Leiðtogar íslensku stjórnar- andstöðunnar létu bera gestinum þau skilaboð að þeir hefðu ekki lyst á að setjast til borös með ótíndum morðingja og glæpamanni! Nú er það svo, að Simon Peres er almennt tahnn sá maður sem hefur flestum meira lagt til þess að friður megi komast á í Austurlöndum nær. Þeir menn er afþökkuðu boð um að hitta Peres hér hafa hins vegar ekki •ávallt vandað valið í heimsóknum :sínum erlendis. Þannig gerði Steingrímur Her- mannsson sér t.a.m. sérstaka ferð fyrir nokkrum árum til að hitta Yass- er Arafat. Arafat var þó ekki ráða- maður í viðurkenndu ríki er ísland á stjórnmálasamband við heldur landlaus hryðjuverkamaður. Stein- grímur brá sér einnig til Kína á fund Li Peng, forsætisráðherra þar. Li þessi mun bera mesta ábyrgð á fjöldamorðunum á Torgi hins himn- eska friðar fyrir nokkrum árum. - Áður hafði Steingrímur kynnt nýút- komna bók Míkhaíls Gorbatsjovs á sérstökum blaðamannafundi. Þeir sem saka ísraela um mann- réttindabrot í Austurlöndum nær ættu e.t.v. eitthvað að hafa haft að athuga við sfjórnarfar í Sovétríkjun- um en Steingrímur settist sposkur til borðs með Gorbatsjovs. Annar heiðursmaður, er ekki sá sér fært að „Simon Peres er almennt talinn sá maður sem hefur flestum meira lagt til þess að friður megi komast á í Austurlöndum nær...“ segir m.a. í bréfinu. - Simon Peres hittir Davíð Oddsson forsætisráðaherra. hitta Peres að máh, var dr. Ólafur Ragnar Grímsson. Ólafur taldi þó ekki eftir sér að eyða dagstund með Níkolaj Ceausescu, hinum rúm- enska, fyrir nokkrum árum. - Ekki sá Ólafur neina ástæðu tíl að hafa orð á því eftir Rúmeníuferð sína að eitthvað kynni að vera athugavert við stjórnarhætti þar. Varla hafði þó önnur eins kúgun og einangrun ríkt í nokkru öðru Evrópuríki og í Rúm- eníu. - En hræsnin ætlar að verða eilíf í huga sumra hérlendra stjóm- málamanna. Athugasemd: Frásögn af manndrápi Haukur Hólm, vaktstjóri á Bylgj- unni, skrifar: Ég vil gera athugasemd viö fjöl- miðlagagnrýni DV þriðjud. 24. ágúst sl. Þar er fréttastofa Bylgjunnar að ósekju sökuð um fréttastuld í frásögn sinni af manndrápi sem varð í íbúð við Snorrabraut um sl. helgi. Þar segir að frétt DV um máhð hafi nán- ast verið lesin orðrétt í fréttatíma Bylgjunnar án þess að geta heimilda. En fréttin snerist um frásögn vitnis af atburðinum. - Þessari grófu ásök- un um fréttastuld er hér með vísað á bug. Fréttastofan hafði sínar eigin heimildir fyrir þessari frétt og er hér stutt lýsing á þróunarferli fréttarinn- ar. - Á sunnudag var sagt frá verkn- aðinum í fréttum Bylgjunnar og að einn maður væri í haldi. Síödegis á sunnudag hafði maður samband við mig og sagðist hafa verið á staðnum er verknaöurinn var framinn. Síðar á sunnudag hafði vitnið samband við þann fréttamann sem var með máhð á Bylgjunni og ítrekaði frásögn sína. Samkvæmt vinnureglu á fréttastof- unni var ákveðið að nota ekki þessar upplýsingar nema einhver staðfest- ing væri fyrir hendi um að þær væru réttar og sannar. Staðfesting lá því ekki fyrir - og þar með var ekki far- ið út með þessa frétt á sunnudag. Fyrir hádegi á mánudag fékkst þessi staðfesting og var því fréttin sögð í hádeginu. Skömmu áður hafði DV komið út með svipaða frásögn af máhnu. Þær ásakanir DV, um að umræddri frétt hafi verið „stolið" frá blaðinu, eru því með öhu ósannar. - Telji menn orðalag fréttar Bylgjunn- ar og DV svipað má sennilega skýra það með því að sama heimild var notuð, auk þess sem orðalag af at- burðum sem þessum er nokkuð staðlað. Matvæli til útflutnings: Stóru draumarnir rætast illa Gunnar Gunnarsson skrifar: Það hefur verið óvenju mikið um fréttir og yfirlýsingar ahs konar aðila um væntanlega framleiðslu hér á landi á matvælum til útflutnings. Flest það sem reynt hefur verið í þessu sambandi hefur fallið um sjálft sig stuttu eftir stóru fréttimar og áformin um átakiö. - Og er þá undan- skihð fiskeldi, loðdýrarækt og ylrækt sem þó hefði getað átt framtíð hér hefði rétt verið að málum staðið. Og nú eru í brennidepli ekki færri en þrjú átökin sem stefnt er að á sviði matvælaframleiðslu eða sölu á hráefni til matargerðar. - Fyrst skal Hringiðísíma 63 27 00 milli kl. 14 og 16-eðaskrifið Nafn og M'manr. vcröur aö fylgla tirýfum Fyrst til Bretlands í fiskborgara á islandi. nefna stórfréttina í sl. viku um franskt fyrirtæki, Vie de France, sem sagt er hafa áhuga á matvælafram- leiðslu á fríiðnaðarsvæði við Kefla- vík. Annað er bandaríska stórfyrir- tækið R.L. Schreiber sem vih í sam- vinnu við íslenska fyrirtækið Euro- mat efna til framleiðslu á tilbúnum svo í réttum úr sjávarafurðum en að fram- leiðslan fari fram í fiskvinnslufyrir- tækjum ásamt mjólkursamlögum. Og í þriðja lagi er hér bandarískur fjárbóndi sem vih spreyta sig á inn- flutningi kinda- og nautakjöts héðan í þeirri trú að hann sé að bjóða lönd- um sínum „vistvænt" hráefni. Allt er þetta gott og blessað nema að því leytinu að fæst af þessu trúi ég að verði að veruleika og vísa ég þá th ahra fyrri kannana, útreikn- inga og viöræðna um svipað framtak sem ávallt hefur brugðist. En hvem- ig ættu líka svona draumar að ræt- ast þegar við getum ekki einu sinni útbúið eigin fisk þannig að hann sé nothæfur í fiskborgara fyrir McDon- ald’s en munum flytja hann frá Bret- landi thbúinn í borgarana. Meira að segja hamborgarabrauðið er ekki hægt framleiða hér, það verður einn- ig að koma frá Bretlandi. - Hvað verður eftir af stóru draumunum? Síðbúinyfir- lýsing úr landbúiiaðar- ráðuneyti Friðrik hringdi: Mér þykir yflrlýsing embættis- mannanna í landbúnaðarráðu- neytinu helst th síðbúin. Þeir mótmæla fréttum útvarps hinn 29. júh sl. og síðar í Mbl. um frum- kvæði þeirra að umfjöhun ijöl- miöla vegna meints kjötsmygls á Kefiavíkurflugvehi. Nú er bráö- um kominn september og heföi þessi yfirlýsing veriö timabær nokkru fyrr. Ekki er þó víst aö þessir níu undirritaðir „stjórar" hafi verið samankomnir á land- inu fýrr. Það er mikið um ferða- lög í ráöuneytunum og sá stjór- inn, sem sagður var hafa skrifaö hjá sér minnisatriðin, var vfst einmitt að taka á móti eiginkonu sinni í Leifsstöð á sama tíma og hiirn margfrægi svínabógur var á leið gegnum tohhhðið. Bestu bflakaupin Einar Óiafsson skrifar: Margir eru að tjá sig þessa dag- ana um bílakaup og hver séu bestu kjörin. Mitt mat er að bestu bílakaupin í dag geri maður á notuðum bhum þar sem hægt er að gera kaupin með staögreiðslu. Vextirnir eru orðnir það háir aö það er áhtamál að nokkuö sé unnið við að fá lánað svo og svo mikiö þótt það standi th boöa. Nýlega hafa vextir veriö að hækka og dráttarvextír t.d. úr 17 í 21% í byrjun næsta mánaðar. Margir hafa orðið hla úti vegna þessara lánaviðskipta og því tel ég bíiamarkaðinn með notuðu bhana vænsta kostinn. Vindlaúrvalið Sigurjón hringdi: Eg reyki talsvert vindla og kaupi þá venjulega hér og þar um borgina eför hentugleikum. Oft kemur fyrir að ekki er th þessi eða hin tegundin sem þó hefur verið seld um árabh, t.d. Flora Danica, Churchíll (stórir) og Roy- al Award. Á einum stað var mér tiáð að þessar tegundir væru ekki th nú í ríkinu. Ég hringdi í ÁTVR og kannaði málið. Birgðavörður þar sagði að þessar tegundir væru þeir aldrei uppiskroppa meö, og trúi ég því. Eg skora á tóbakssala og betri veitingahús að hafa ávaht a.m.k. eina tegund af stórum vindlum á boöstólum. Frábærmorgun- þátturáRás2 Halldóra skrifar: Mig langar aö þakka Sigurði Ragnarssyni og Klemens Arnar- syni fyrir frábæran morgunþátt á Rás 2 í sumar. Þeir eru víst fhrn- ir af landi brott, en ég vona að þeir taki upp þráðinn siðar. Lang- flestir sem ég þekki sthltu ahtaf á Sigga og Klemma, „umtöiuð- ustu útvarpsmenn landsins”. - Og það er einmitt máhð, Þeir þorðu að fara ótroönar slóðir. múslíniarbiða? Kolbrún skrifar: Yfirlýsingar manna í heh- brigöiskerfinu hér eru nokkuð misvísandi, að ekki sé meira sagt, varðandi hugsanlega aðstoð okk- ar íslendinga við þjáða íbúa Bos- níu. Ekkert bendir enn th að við ætlum að gera eitt né neitt þrátt íyrir vhjayfirlýsingarnar. Mér sýnist á öhu að bæði þeir sem hér á landi hafa tjáö sig um máhö jafnt og þeir sem daglega funda i Evrópulöndunum um stríðiö telji að Bosníumúslímarnir megi bara biða dauða síns. Kannski er það hið eina sem menn koma sér sam- an um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.