Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1993, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1993, Qupperneq 26
34 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1993 Afmæli Ólafur ísleifsson Ólafur ísleifsson bílamálarameist- ari, Þverholti 9, Mosfellsbæ, er fer- tugurámorgun. Starfsferill Ólafur ólst upp í Keflavík og Þing- holtunum. Hann gekk í Miðbæjar- skólann, Langholtsskólann og Iðn- skólann þaðan sem hann útskrifað- ist árið 1983. Hann útskrifaðist sem meistari í bílamálun árið 1984. Ólaf- ur hefur starfað mikið í verktaka- vinnu, lengst af hjá Véltækni hf. Ólafur keypti bílamálunarverk- stæðið Geisla árið 1983 og hefur stimdað þar viðskipti síðan. Fjölskylda Kona Ólafs er Sigríður Finnboga- dóttir, f. 2.1.1954, húsmóðir. For- eldrar hennar eru Hulda Bjama- dóttir, f. 5.10.1918, húsmóðir, og Finnbogi Ólafsson, f. 31.3.1920, bif- reiðastjóri, d. 23.11.1969. Börn þeirra Ólafs og Sigríðar eru: Fóstursonur, Sigvaldi Búi, f. 2.8. 1971, nemi. Böm þeirra: Finnbogi Már Ólafsson, f. 19.12.1974, verslun- armaður; Olly Björk, f. 25.2.1978; Eydís Björk, f. 18.4.1989. Systkini Ólafs eru Steinar Berg ísleifsson, f. 21.7.1952, fram- kvæmdastjóri, kona hans Ingibjörg Pálsdóttir, f. 1.2.1952; Alma ísleifs- dóttir, f. 21.11.1954, skrifstofumað- ur, gift Þór Hreiðarssyni bílamál- arameistara; Guðbergur ísleifsson, f. 11.11.1960, kona hans Halla Hauksdóttir. Foreldrar Ólafs em ísleifur Run- ólfsson, f. 24.4.1927, fyrrum fram- kvæmdastjóri í Reykjavík, og Ólafía Sigríður Guðbergsdóttir, f. 4.12.1931 íReykjavík. Ætt og frændgarður ísleifur er sonur Runólfs, b. að Kornsá í Vatnsdal í A-Hún., Bjöms- sonar, þingmanns og b. að Komsá í Vatnsdal, Sigfússonar prests Jóns- sonar. Móðir Runólfs var Ingunn Jónsdóttir, rithöfundur frá Melum í Hrútafirði. Móðir Bjöms var Sig- ríður Oddný Björnsdóttir Blöndal frá Hvammi í Húnavatssýslu, Bjöms Blöndals, sýslumanns í Húnavatnssýslu. Móðir ísleifs var Alma Alvilda Anna Möller, Jóhanns Georgs Möll- er, kaupmanns á Blönduósi, Christ- ians Ludvig Möller, kaupmanns í Reykjavík. Móðir Ölmu var K. Al- vilda Maria Thomsen, Williams Thomsen, kaupmanns á Vatneyri, og Anne Margrethe Knudsen. Ólafía er dóttir Guðbergs, sjó- manns í Reykjavík, Kristinssonar, steinsmiðs í Reykjavík, Ásgríms- sonar, b. og lausamanns, Guð- mundssonar, b. og smiðs á Reykjum í Ölfusi, Jakobssonar, b. og smiðs á Húsafelli, Snorrasonar, prests og skálds á Húsafelli, Björnssonar, ætt- foður Húsafellsættarinnar. Móðir Kristins var Þórunn Guðmunds- dóttir frá Þórisstöðum í Grímsnesi. Móðir Guðbergs var Ólafía Sigríður, systir Tómasar sem fyrstur útskrif- aðist frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík, langafa Amars Hauks- sonar læknis. ðlafía var dóttir Jóns Oddssonar, b. á Bala í Grímsnesi, og Guðbjargar Halldórsdóttur frá Galtalæk í Biskupstungum. Steinunn Kristmundsdóttir, móð- ir Ólafíu Guðbergsdóttur, var systir Steins Steinarr skálds. Annar bróðir Steinunnar var Hjörtur, skólastjóri Laugarnesskóla. Systir Steinunnar er Valborg, húsmóðir á Akranesi, sem fyrst kvenna las Passíusálmana í útvarp. Steinunn var dóttir Krist- mundar, b. á Laugalandi við Djúp, Guðmundssonar, b. í Bessatungu í Saurbæ í Dölum, Guðmundssonar, b. í Hvítadal, Jónssonar, b. í Fagra- dalstungu, Bjarnasonar. Móðir Guðmundar í Bessatungu var Þór- unn Ormsdóttir, b. í Fremri-Langey, Sigurðssonar, ættfoður Ormsættar- innar. Móðir Kristmundar var Kristín Eggertsdóttir, b. í Sauðhús- um í Laxárdal, Jónssonar. Móðir Eggerts var Margrét Magnúsdóttir, prests á Kvennabrekku, Einarsson- ar. Móðir Steinunnar var Etelríður Pálsdóttir, formanns við Djúp, Andréssonar, járnsmiðs á ísafirði, Magnússonar, b. í Hvitadal, bróður Sólveigar, móður Páls Jónssonar, skálds og prests í Viðvík, afa Matthí- Ólafur ísleifsson. asar yfirlæknis, foður Louisu Ust- málara. Páll í Viðvík var einnig afi Páls í Kaupangi, afa Páls, auglýs- ingastjóra DV, og afi Sólveigar, móður Einars Olgeirssonar. Þá var Páll í Viðvík afi Páls Einarssonar, fyrsta borgarstjóra Reykjavíkur. Sviðsljós Orri með gitarinn. DV-mynd Sigurður Brýtur blað í poppsögunni Sigurður Sveinssan, DV, Akranesú Orri Harðarson, liðlega tvítugur tónlistarmaður af Akranesi, verður í haust sá yngsti í íslenskri poppsögu til að gefa út geisladisk í fullri lengd með eigin lögum og textum. Samstarfssamningur hefur tekist á milli Orra og Japis um útgáfu á disk- inum en Skífan sýndi um tíma áhuga. Upptökur fóru fram fyrr í sumar en efnið hefur Orri samið á síðustu misserum. Helga Bæringsdóttir, Bergstaðastræti 25b, Reykjavík. Kristinn G uðj ónsson, Tjarnarbraut 17, Hafnarfirði. Halldóra Jónsdóttir, Hafnartúni2, Siglufirði. Guðlaug Guðmundsdóttir, Tindum, Reykhólahreppi. Guðmundur Alfonsson, Sandholti 40, Ólafsvík, ívar Örn Ingólfsson, Miklubraut 66, Reykjavík. Siguroddur Magnússon, Brekkugerði 10, Reykjavík. Jón Egill Sveinsson, Egilsstöðum 3, Egilsstöðum. Hilmir Högnason, Túngötu 22, Vestmannaeyjum. Þorgrímur Eyjólfsson, Hásteinsvegi 29, Stokkseyri. Maria Jóhanna Jónsdóttir, Böggvisbraut 10, Dalvík. Sigrún Albertsdóttir, Brekkustíg2,3, Njarðvík. Þórhallur Sæmundsson, Mánabraut 6, Vík í Mýrdal. Kristinn Ágúst Friðfinnsson, Bankavegi 8, Selfossi. Jóhanna Gunnarsdóttir, Brunnum2, Patreksfirði. Árm'na L. Sigtryggsdóttir, Vesturbergi 50, Reykjavík. Sigurjón A. Einarsson, Hraunbæ70, Reykjavík. Einar Indriðason, Lækjartúni 12, Hólmavík. Stefán Stefánsson, Starrahólum 9, Reykjavík. Hrafnhildur Árnadóttir, Seiðakvísl 4, Reykjavík. Stefán Örn Jónsson, Túngötu 1, Vestmannaeyjum. Ásta Guðnadóttir, Aðallandi 14, Reykjavík. Elizabeth A.B. Aikins, Skipasundi 20, Reykjavík. Davið Davíðsson, Fjarðarseh 18, Reykjavík. Irena Ijegieta, Nesvegi 6, Eyrarsveit. Ulf H. Bergmann, Hvammabraut 8, Hafnarfirði. Bjami Einar Kristjánsson, Grundarhóli 2, Bolungarvík. Kristinn Ágúst Friðfinnsson Kristinn Ágúst Friðfinnsson sókn- arprestur, Bankavegi 8, Selfossi, er fertugurídag. Starfsferill Kristinn útskrifaðist stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1975. Hann útskrifaðist frá Há- skóla íslands árið 1981 sem cand. theol. Kristinn stundaði nám við einsöngvaradeild Tónlistarskólans í Reykjavik 1975-78. Hann var við stundakennslu í siðfræði við Þroskaþjálfaskóla íslands 1979-81 og 1985-87. Kristinn var sóknarprestur í Stað- arprestakalli í Súgandafirði 1981-84. Settur um skeið dómkirkjuprestur í veikindaforfóllum sr. Þóris Steph- ensen og settur sóknarprestur við Seljakirkju í forfóllum sr. Valgeirs Ástráðssonar. Kristinn haföi með höndum út- gáfustarf fyrir Þjóðkirkjuna á veg- um Skálholtsútgáfunnar 1984-85. Hann var ráðinn aðstoðarprestur dómprófastsins í Reykjavík frá 1989 og skipaður sóknarprestur í Hraun- gerðisprestakah í Ámesprófasts- dæmi 1991. Er einnig skipaður trún- aðarmaður fatlaðra á Suðurlandi. Kristinn hefur síðan 1979 annast dagskrárgerð fyrir Ríkisútvarpið og um langt skeið stundað ritstörf og greinaskrif fyrir blöð og tímarit. Hann var ritstjóri Orðsins, tímarits guðfræðinema, og ritstýrði og ann- aðist útgáfu Fréttabréfs Húseig- endafélagsins. Kristinn var forseti Nemendafé- lags Menntaskólans við Hamrahlíð 1974-75, átti sæti í stjórn Stúdenta- ráðs Háskóla íslands á námsáram sínum, var fulltrúi stúdenta í há- skólaráði, sat í kennslu- og rann- sóknamefnd háskólaráðs 1977-78 og átti sæti í nefnd 1978-81, sem und- irbjó nýbyggingarframkvæmdir á háskólalóð og byggingu Odda, hug- vísindahúss háskólans. Kristinn á sæti í stjórn Prestafé- lags fslands, varaformaður félags- ins 1992-93 og nú kjaramálafulltrúi presta. Kristinn var varaformaður Æsku- lýðsráðs Reykjavíkur 1978-81, átti sæti í stjóm Æskulýðssambands ís- lands 1978-81, fulltrúi í æskulýðs- nefnd Þjóðkirkjunnar 1981-84 og í undirbúningsnefnd vegna alþjóða- árs æskunnar 1984. Hann sat alls- herjarþing Evrópuráðs æskunnar í Hollandi 1979 og höfuðborgarráð- stefnu Norðurlanda um æskulýðs- málíOsló 1980. Fjölskylda Kona Kristins er Anna Margrét Guðmundsdóttir, f. 15.9.55, hjúkr- unarfræðingur. Foreldrar hennar Kristinn Ágúst Friðfinnsson. eru Guömundur Gunnarsson, verk- fræðingur í Reykjavík, f. 25.6.1928 á Akureyri, og Anna Júlíusdóttir húsfrú, f. 12.12.1923 á Atlastöðum í Sléttuhreppi, N.-fsaíjarðarsýslu. Böm Kristins og Önnu: Friðfinnur Freyr, f. 18.7.1980; Melkorka Mjöh, f. 22.7.1981; Magnús Már, f. 29.7. 1986; Kolbeinn Karl, f. 27.6.1987. Foreldrar Kristins eru Friðfinnur Kristinsson, f. 27.10.1926, d. 26.4. 1982, skrifstofumaður og Ósk Soph- usdóttir, f. 20.1.1930 á Drangsnesi í Kaldrananeshreppi, Strandasýslu. Sr. Kristinn verður erlendis á af- mælisdaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.