Alþýðublaðið - 02.04.1967, Qupperneq 9
Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐIÐ • 2. apríl 1967
$
loka, og ég hélt, að hjónaband
okkar myndi vara til dauöadags.
í seinna skiptið giftist ég af góð-
semi, af smekkvísi ef svo mætti
segja, og af ábyrgðartilfirmingu
gagnvart syni mínum. Ég átti þá
von á barni.
Sp. Hvers vegna eiga sumar
konur bæði elskhuga og eigin-
menn?
Sv. Það er of mikið að vera mcð
tveimur mönnum samtímis -- kon
an verður að velja á miili. Annað
hvort tekur hún eiginmann sinn
fram yfir elskhugann eða hún fer
frá honum til elskhuga síns. Bezt
er auðvitað að búa með manni
sem konan vill helzt vera með
alla daga og allar nætur.. En hún
má ekki slaka á og segja við sjálfa
sig: ,,Vitanlega fer ég heim með
honum.“ Heldur á hún að segja:
„í kvöld kýs ég hann.“
Sp. Þér hafið skrifað fimm
skáldsögur og átt þó nokkur ást-
arævintýri — hver er yðar kari-
mannshugsjón?
Sv. Ég véit ekki um hugsjónina,
aðeins karlmenn yfirleitt. Þetta
skiptist í nokkur tímabil. Ungar
stúikur eru hræddar við karlmenn.
Svo fer það af, og þær skemmta
sér heilmikið með þeim Loks
verða þær fyrir alvöru ástfangn-
ar. Þá mótast afstaða þeirra til
karlkynsins og fer eftir því hve
beisk reynslan hefur verið.
Sp. Á hvaða stigi eruð þér nú?
Sv. Ja, ég á auðvitað ekki við,
að mér þyki vænt um hvern ein-
asta karlmann, heldur karlkynið í
heild. Ég finn ekki til ótta, reiði
eða óbeitar í garð manna sem ég
kynnist. Ég hef enga löngun til að
sigra þá. Þetta er einskonar biíðu-
kennd.
Sp. Hvað um ástríðu?
Sv. Ég hef átt allmörg ástar-
ævintýri, en fæst hafa verið ástr-
íðufull. Tvö eða þrjú — ekki
fleiri. n
Sp. Álítið þér að enginn upplifi
sanna ástriðu nema einu sinni?
Sv. Það er almenn trú, en ekki
byggð á staðreyndum.
Sp. Hvers konar karimönnum eru
konur hrifnastar af?
Sv. Mönnum, sem eru ungir,
glæsilegir og glaðlyndir, góðvilj-
aðir, greindir, skemmtilegir og
hugrakkir. En aðalatriðið er, að
þeim þyki vænt um kónurnar.
Konan þarfnast karlmanns sem
þykir vænt um liana.
Sp. En margar konur eru ást-
fangnar af mönnum sem sýna
þeim ekki mikla blíðu.
Sv. Ég á ekki við kynferðis-
lega blíðu. Ég er að tala um menn
sem kunna að meta félagsskap
kvenna. Þeir eru ekki margir.
Sumir menn vilja aðeins umgang-
ast kunningja sína, aðrir 'hafa ekki
tíma til annars en sinna störfum
sínum eða sjálfum sér. En það
eru til menn sem njóta þess að
vera í návist kvenna. Og þáð er
þess - 'háttar maður sem könan
þarfnast.
INN OG HUNGRIÐ
............ M ri.ni ■■■■■■ i i ■ ■ i
Skóli ísaks Jónssonar
(sjá Ifseig na rstof n u n)
ORÐSENDING til foreldra
Þeir foreldrar, sem áður hafa átt börn í skólan
um, og eiga börn fædd 1961, verða að láta inn
rita þau fyrir apríllok, eigi þau að sækja skól
ann á vetri komanda.
SKÓLASTJÓRI.
NY S E N D I N G
enskar fermingarkápur
, í glæsilegu úrv'ali.
Kápu og dömubúðin
Laugavegi 46.
BÍLAKLÆÐNING
Klæðum allar tegundir bíla, gömul sæti gerð
sem ný. Komið með bílinn að morgni, þér fáið
hann nýklæddan að kveldi. Láið fagmenn
vinna verkið.
S Þetta er ósköp einfaldur
- sannleikur, þykir kannski hvers
i dagsleg og útþvæld orð. En þau
i eru það aðeins af því hve marg
. ir hafa tekið sér þau í munn
i án þess að meina þau. Þannig'
l glata orð meiningu sinni.
* Þetta er sönn jafnaðarstefna,
í færð út af hinu þrönga sviði
i eihstakra þjóða yfir á hiun
i
r
i
í
S
r
S
1
5
breiða vettvang mannkynsins i
S heild.
1 Orðin tóm duga ekki. Páfinn
r hlýtur að ætla að gera eitt-
í hvað. Á því leikur enginn vafi.
i En af hverju gerum við ekk-
i ert? Hér hafa að vísu farið
r fram einstakar safnanir, „Her-
i ferð gegn hungri“ og fleiri og
i gefizt vel. En það er önnur að-
r ferð miklu einfaldari. Safnanir
5 í guðsþakkar skyni eru alltaf
hálfieiðinlegar, með allri
þessari auglýsingastarfsemi og
blaðri, bumbuslætti, þakklæti
og stórum, fögrum orðum. Það
á ekki að þurfa að þakka fyrir
sjálfsagðan hlut. Á að þakka
einhverjum fyrir að menn fá
að draga andann?
Því ekki að koma því á í eitt
skipti fyrir öll að allir sem
tekjur hafa greiði hið minnsta
25 krónur á mánuði þetta ár og
næstu meðan þörf gerist, stein-
þegjandi og eins og þeir væru
bara að kaupa sér sígarettu-
pakka. Það mætti meira að
seg.ja bæta þessu ofan á skatt-
ana, þannig að ríkið sæi um
frainkvæmdina og ekki þyrfti
ncltt sérstakt apparat tii að
koma þessu í kring.
Þetta er ágætis mál til að
fjalla um á alþingi. Hvers
vegna setur ekki einhver stjórn
málaflokkurinn þetta í kosn-
ingastefnuskrá sína í vor? Eða
er þetta kannski ekki nógu gott
áróðursmál, betra að finna upp
eitthvað sem vekur öfund og
herðir slagsmálin um bitana í
þessu landi?
Ef slíkri „herferð gegn
hungri“ jTði hrint af stað
mundu íslendingar einir ieggja
fram nokkra tugi milljóna á
ári hverju í þvi skyni að afmá
svartasta blettinn á tilveru
mannkynsins í dag, því að
hungrið er svívirða — ekki fyr-
ir þá sem eru hungraðir, held-
ur fyrir þig og mig sem éta
fullmikið og erum hræddir við
að deyja úr ofáti.
Sá sem einu sinni hefur séð
eymd gleymir henni ekki
nokkra stund.
Ég hef séð eymd. Ég hef séð
hungraða og lielsjúka menn
veltast á götunni fyrir hunda
og manna fótum. Og vandamál-
ið þar í landi er svo óskaplegt
að í rauninni veit enginn hvar
á að byrja.
Sá sem gleymir slíkri sjón —
vitandi að meirihluti mann-
kynsins hefur ekki nóg — er
eitthvað andlega vanskapaður,
og bið ég engrar afsökunar á
að taka svo til orða.
»
Sigvaldi Hjálmarsson:
VANGAVELTUR
RAGNAR BJÖRNSSON hf.
húsgagnabólstrun.
Dalshraun 6, Hafnarfirði, sími 50397.
Höfum flutt varahlutaverzlun okkar af Lauga
veg 176 að Suðurlandsbraut 10.
Símanúmer 81350 þrjár Iínur.
BLOSSI s/f