Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1993, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1993, Qupperneq 2
18 MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1993 Matur og kökur Margreyndar uppskriftir að mat og kökum: Þrjár hressar í félagsstarfi - hafa eldað og bakað í áratugi Engar uppskriftir eru eins áreiöan- legar og þær sem hafa verið eldaö- ar, bakaöar og borðaðar í áratugi. Því þótti tilvalið að leita í sjóð eldri kvenna sem hafa áratugareynslu af því að elda og baka. Þrjár hress- ar konur úr félagsstarfi aldraðra við Hæðargarð fóru í safnið sitt og tíndu til sínar bestu jóla- og hátíð- auppskriftir. Konurnar heita Sig- ríður Ólafsdóttir, Ingibjörg Jóns- dóttir og Elísabet Þórarinsdóttir. Þær eru vanar að spila saman í félagsmiðstöðinni í Hæðargarði og þekkjast þvi nokkuð vel. Svo skemmtilega vildi til að þegar Ingi- björg fór aö gramsa í sínu safni fann hún áratuga gamla uppskrift úr Vikunni þar sem Elísabet var að gefa uppskrift að uppáhaldsrétti eiginmannsins. Sjálf vann Ingi- björg í mörg ár við bakstur í eld- húsi Borgarspítalans. Allar héldu þær stór heimili hér áður og voru sammála um að þær væruað mestu hættar að standa í miklum bakstri og eldamennsku nema þegar eitt- hvað stæði til. Það mátti glögglega sjá á blöðum þeirra að margar uppskriftir höíðu verið margnotaöar því sum héngu varla saman af sliti. Uppskriftirn- ar, sem hér birtast, eru dreifðar en undir hverri eru upphafsstafir eig- andans. Við kunnum þeim svo bestuþakkirfyrir. -jj Gleymda tertan 6 eggjahvítur 1 14 dl sykur 1 tsk. lyftiduft 1 14 tsk. vanilludropar Þeytið eggjahvítur vel og bætið sykrinum smátt og smátt út í. Að lokum er lyftidufti og dropum bætt saman við. Hitið ofninn í 150° og slökkvið á honum um leiö og kakan er sett inn í hann. Látið standa í ofninum yfir nótt eða í lágmark sex tíma. Þess vegna fær hún nafnið. Bakið kökuna í hringlaga formi með gati í miðjunni. Klæðið formið að innan með bökunarpappír til að auðveldara sé að losa hana. Skreytið kökuna með bræddu súkkulaði áður en hún er borin fram. Þeytið % lítra rjóma og blandið með bláberjum og setjið í miðju kökunnar. Hentar líka sem eftirréttur. E.Þ. Norsk rúllupylsa Þessa gerir Sigríður alltaf fyrir hver jól. Uppskriftina tók hún úr norsku blaði fyrir mörgum árum. 1 slag, stórt u.þ.b. 1 magur kjötbiti, brytjaður 2 tsk. salt 1 tsk. pipar 1 tsk. sykur 1 tsk. engifer 1 stk. laukur, saxaður Blandið smátt brytjuðu kjöti, kryddi og lauk saman. Slaginu er rúllað utanum blönduna. Látið í plastpoka í ísskáp yfir nótt. Sjóðið í bómullarstykki, sem vafið er ut- anum, í saltvatni í í'/i klst. við vægan hita. Sett í pressu. Það fer vel um þær Sigríði, Elisabetu og Ingibjörgu í huggulegu umhverfi félagsmiðstoðvarinnar i Hæðargarði. Eplasíld 4 marineruð síldarflök blaðlaukur 2-3 epli 1 msk. rasp 50 g smjör 1 'A dl rjómi Þekið botn á eldföstu móti með blöndu af fínsöxuðum blaðlauk og dilli. Leggið sfidarflökin ofan á. Skerið eplin í þunnar sneiðar og stingið á mfili sildarflakanna. Strá- ið raspi yfir og leggið smjörklípur ofan á. Setjið í 200° heitan ofn og bakið í u.þ.b. 15 mínútur. HeUið rjómanum yfir nokkrum mínútum áður en rétturinn er tekinn úr ofn- inum. Berið fram með soönum kartöflum. -S.Ó. Dröfnóttar smákökur Ingibjörg segir þessar mjög ein- faldar og flótlegar. 3 egg 225 g sykur 100 g suðusúkkulaði 300 g kókósmjöl Þeytið egg og sykur vel saman. Blandið smátt bryfluöu súkkulaði og kókosnflöU saman við. Bakið við 150° hita í nokkrar mínútur. -I.J. Brokkoliréttur 600 g brokkolí (soðið án salts í 5 mínútur) 5 sneiðar skinka 2 dósir CampeUs sveppasúpa 1 saxaður laukur rifinn marabo ostur /t 1 þeyttur ijómi smá pipar 15-20 stk. Ritz kexkökur, muldar Sefiið káUð í eldfast mót og leggið skinkuna ofan á. Raðið afganginum af hráefnum yfir og bakið við 200° í 20 mínútur. Berið fram með rist- uðubrauði. -E.Þ. Inguterta Ingibjörg hefur bakað þessa við öU hátíðleg tækifæri. Hún segir hana ekki eins flókna og sýnist í fyrstu. Hnetubotn: 2 egg 3 dl sykur 100 g smjörUki 1 'A dl mjólk 100 g saxaðar hnetur 2 dl hveiti 1 tsk. lyfddnft Þeytið egg og sykur létt og Ijóst. Bræðið smjörlíki og hrærið saman við ásamt þurrefnunum. Sefiið í vel smurt mót og bakið við vægan hita í 1 klst. Marengsbotn: 3 eggjahvítur 125 g flórsykur Þeytt vel saman og bakað við vægan hita. (Marengsbotninn má líka kaupa tilbúinn). Súkkulaðibotn: Hýði af '/% appelsínu safi úr /i appelsínu 1 tsk. sykur 100 suðusúkkulaöi 50 g kókósfeiti 2 tsk. koniak (má sleppa) Skerið appelsínubörkinn í smátt og sjóðið í appelsínusafa, sykri og koníaki þar til hann er mjúkur. Súkkulaði og kókosfeiti eru brædd yfir vatnsbaði. Sefiið appelsínu- börk saman við. Setjið í jafnstórt mót meö lausum botni og bökunar- pappír. Geymið á köldum stað. Millilag: 3 dl ijómi 1 'A tsk. kaffiduft 3 tsk. flórsykur Þeytið ijóma með kaffi og flór- sykri. Kljúfið hnetubotninn í tvennt og leggið kökuna saman: Hnetubotn, rjómi, marengsbotn, ijómi, hnetubotn, ijómi og súkkul- aðibotn efst. Skreytið með þeyttum ijóma, ávaxtabitum og súkkulaði- bitum. -I.J. Aprikósuterta 4 egg 200 g sykur 1 tsk. lyftiduft 75 g hveiti 75 g kartöflumjöl Þeytið sykur og egg vel saman. Sigtið þurrefnin út í. Skiptið deig- inu í þijú hringlaga mót og bakið í meðalheitum ofni. Apríkósumaukið: 125 g apríkósur, bleyttar og soðnar í vatninu sem þær hafa legið í. Sykrið eftir smekk. Þeytið 3-4 dl af ijóma. Setjiö í helminginn af rjómanum svolítinn sykur og 2 brædd matarlímsblöð. Setjið aprikósumauk á milli neðstu og næstneðstu laganna og rjómann með matarlíminu á milli þeirra næstu. Sprautið afganginum af rjómanum utan um kökuna. -S.Ó. Kjúklingaréttur Einn heill kjúklingir, skinn flar- lægt og hann skorinn í 10 bita. 3 dl tómatsósa (tómatpurré að hluta) 1 tsk. svartur pipar 3 tsk. karrí 1 tsk. salt Veltið kjúklingabitum upp úr blöndunni, sefiið í eldfast mót og hellið afganginum af blöndunni yf- ir. Bakið í 14 klst við 200°. Snúiö þá bitunum og hellið 3 dl af ijóma yfir. Bakið áfram í 14 klukkustund. Berið fram með hrísgijónum, snittubrauði og fersku salati. -E.Þ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.