Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1993, Page 16
32
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1993
Maturogkökur
Móeiður Júníusdóttir og Eyþór Amalds:
Móavið
vinnuna
„Ég er meira fyrir aö baka en elda
en ég þarf aö vera í góöu stuöi," sagði
Móeiður Júníusdóttir söngkona þeg-
ar DV falaðist eftir uppskrift.
Móeiöur og sambýlismaður henn-
4 ar, Eyþór Amalds, hafa nýveriö sent
frá sér sína plötuna hvort, hann með
Todmobile og hún sína eigin sóló-
plötu; „Móa syngur lögin viö vinn-
una“. Fyrir viku var Móeiður með
útgáfutónleika sem gengu vel. „Þetta
er plata sem maöur setur á þegar
maður er að baka eða taka til,“ segir
Móeiður um plötuna.
En þá að uppskriftinni.
„Þessa tertu byrjaði ég fyrst að
baka eftir að ég flutti að heiman fyr-
ir rúmu ári. Hún er algjör spariterta
og tilheyrir jólum og öðrum tyllidög-
um. Eyþór er mjög hrifmn af henni
og við erum sammála um ágæti
hennar."
Súkkulaðiterta Móu
200 g smjör
2 Zi dl sykur
4 egg, aðskilin
200 g suðusúkkulaði
1 'A dl hveiti
1 msk. kaffiduft
Ofan á kökuna:
200 g suðusúkkulaði
oha
Bræðið smjörið og þeytið vel sam-
an við sykurinn þar ffi það er létt og
ljóst. Bætið nú eggjarauðum í, einni
í einu, síðan sigtuðu hveiti og kaffi-
duffi. Stífþeytið eggjahviturnar og
bætið þeim varlega í hræruna. Bakið
í neðstu rim við 200° í ca. hálftíma.
Súkkulaðibráð:
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði
og bætið olíu saman við. Smyrjið
kökuna með kreminu og kælið.
Móeiður segir að kakan fái enn
meiri lúxussvip ef borinn er fram
með henni þeyttur rjómi.
-JJ
Móeiður og Eyþór í eldhúsinu heima með ofninn tilbúinn.
DV-mynd ÞÖK
'íslensk náttúra
býr yfir sjaldgæfum
ferskleika sem kemur
fram í afurðum hennar.
íslensk ber eru ljúffeng
og rík af vítamínum
sem við ættum
að neyta meira af.
Einn möguleikinn er:
BLÁBERJABAKA
Fylling:
1 lítri bláber
1 l/2dl sykur
Bökudeig:
150g FLÓRU smjörlíki
41/2 - 5dl hveiti
2 msk sykur
6 möndlur m/hýði
2 msk rjómi
Myljið FLÓRU smjörlíki,
hveiti og sykur saman.
Bætið rjómanum í
og hnoðið hratt í mjúkt
deig. Kælið. Þrýstið
2/3 af deiginu út í smurt
bökuform og vel upp með
hliðunum. Hálfbakið
botninn við 200°.
Takið hann þá úr ofninum
og bætið bláberjunum í,
stráið sykri yfir og leggið
renninga úr afganginum
af deiginu ofan á. Bakið áfram
þar til bakan er fallega gulbrún.
Gott með rjóma.
I3BB
SMJÖRLÍKISGERÐ