Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1993, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1993, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1993 15 Lvf eyrismál ríkis- starfsmanna Lífeyrismál og lífeyrissjóðir hafa verið í brennideph undanfarið. Bcinkaeftirlitíð sendi nýlega frá sér skýrslu um þá og í viötali var full- yrt um bága stöðu lífeyrissjóða op- inberra starfsmanna. í Vísbend- ingu 28. okt. sl. var sama uppi á teningunum undir fyrirsögninni „Allir vinna að lausn á vanda lif- eyrissjóðanna nema ríkið.“ Nokkr- ir kjaÚarahöfundar DV hafi einnig hnýtt í lífeyrissjóði opinberra starfsmanna. 84 lífeyrissjóðir í landinu starfa um 84 lífeyris- sjóðir. Staða þeirra er afar mis- munandi. Sjö stærstu sjóðirnir eru taldir eiga helming af hreinni eign til lífeyrisgreiðslna eða um 90 millj- arða króna. Þeirra á meðal eru tveir lögbundnir sjóðir, Lífeyris- sjóður starfsmanna ríkisins og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, með um 100 þúsund virka og óvirka sjóðfélaga. Margir almennu sjóð- anna eru hins vegar með fáa sjóðfé- laga og þeim fer auk þess í mörgum tilvikum fækkandi, þannig að starfsgrundvöllur sumra sjóða er í raun að bresta. Ríkisstarfsmenn eru aðallega í Líf- eyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR) og Lífeyrissjóði hjúkrunarkvenna (LH) en flestir sem ekki hafa fastr- áðningu eða skipun, eru í Söfnunar- sjóði lífeyrisréttinda (SL). Réttindi í SL eru mun minni en í LSR enda verða bein iðgjöld og ávöxtun þeirra að standa undir öllum réttinduni. Á Kjallarirm Birgir Björn Sigurjónsson hagfræðingur, framkvæmdastjóri BHMR móti þessum ríkari lífeyrisrétti í LSR hafa ríkisstarfsmenn verið á lægri launum og fengið minni launahækk- anir en ella hefðu talist réttlátar. í þessu ljósi er óskiljanlegt hvemig hægt er að ætla ríkisstarfsmönnum að taka bæði lakari lífeyrisrétt (í SL) og vera á lágum töxtum samkvæmt kjarasamningum opinberra starfs- manna. Full ábyrgð ríkisins En nú er málum stillt upp þannig af slyngum áróðursmeisturum að lífeyrisréttindi ríkisstarfsmanna séu of mikil eða standist ekki vegna þess að LSR og LH eigi ekki fyrir þeim. í nefiidri grein Vísbendingar er því t.d. haldið fram að eignir LSR nemi aðeins 20% af metnum skuld- bindingum LSR. Þetta er auðvitað algjör firra. LSR og LH eiga auðvit- að fyrir öllum skuldbindingum sín- um. Ríkið ber fulla ábyrgð á lífeyr- isréttindum sjóðfélaga LSR og LH, þannig að í hvert sinn sem kemur í ljós að iðgjöld og ávöxtun þeirra duga ekki fyrir réttindum ætti að réttu lagi að bókfæra mismuninn sem nýja inneign sjóðsins hjá rík- inu. Lögin um LSR og LH miða við að (ríkjs) ábyrgð sé á öllum réttind- um sem sjóðir þessir veita enda hafa sjóðfélagar með lágum laun- um þegar greitt fyrir þennan pakka. Kjarni málsins I yfirhti Vísbendingar kemur fram að 56% af eignum ahra lífeyr- issjóðanna eru í ríkistryggðum bréfum. Eflaust telja almennu líf- eyrisjóöimir, Bankaeftirhtið og Vísbending að ríkið muni standa skh á þessum skuldbindingum. Á nákvæmlega sama hátt reikna líf- eyrissjóðir opinberra starfsmanna með því að ríkið standi við skuld- bindingar sínar við þá bæði um endurgreiðslu á ríkistryggðum skuldabréfum og um greiðslu til sjóðanna samkvæmt lögum sem um þá gilda. Þetta er kjarni máls- ins. Það er fráleitt að halda því fram að LSR eða LH eigi við sér- stakan vanda að glíma umfram aðra sjóði. Þvert á móti eru allar skuldbindingar þeirra tryggðar með ríkisábyrgð sem aðeins ghdir um hluta af skuldbindingum ann- arra sjóða. Ljóst er að fáir hafa skipulagt líf- eyrismál af meiri fyrirhyggju en ríkið og starfsmenn þess. Fráleitt er að refsa fyrir þá fyrirhyggju með því aö reyna að skapa óvissu og valda glundroða um hfeyrisspam- að ríkisstarfsmanna og ábyrgðir ríkisins. Birgir Björn Sigurjónsson „ ... reiknalífeyrissjóðiropinberra starfsmanna með því að ríkið standi við skuldbindingar sínar við þá bæði um endurgreiðslu á ríkistryggðum skuldabréfum og um greiðslu til sjóð- anna samkvæmt lögum sem um þá gilda.“ Óskiljanlegt er hvernig hægt er að ætla ríkisstarfsmönnum að taka bæði iakari lífeyrisrétt (i SL) og vera á lágum töxtum, segir m.a. í grein- inni. Frá útifundi opinberra starfsmanna. Farsælt samspil - frekari Mörg misjöfn eru mannanna mein. Á mörgum þeirra tekst mætavel að vinna bug. Önnur eru sem óráðnar gátur þar sem orsakir eru ekki næghega ljósar og erfitt um alla lækningu. Nýtt húsnæði - óskadraumurinn Hinar stórstígu framfarir lækna- vísindanna sem hkastar eru ævin- týri hafa blessunarlega megnað að veita mörg svör, veitt líkn og lækn- ingu. Enn sveipast þó hula yfir or- sökum sumra sjúkdóma þó ýmis- legt sé um eðh og ástæður vitað og fullkomin lækning er fjarri. Þeir sem þar verða fyrir hljóta á einn eða annan veg að lúta í lægra haldi. Fjarri sé mér að fjalla frekar um það en færa í þess stað á blað fáein orð um það mæta fólk sem hefur tek- ið höndum saman gegn MS-sjúk- Kjallariim Helgi Seljan félagsmálafulltrúi ÖBÍ dómnum sem enn er of óljóst um. Ég hefi átt þess kost að fylgjast með MS-félaginu, sem nú er aldar- fjórðungsgamalt, starfi þess og stefnumiðum um nokkurt skeið og hlýt að dást að hversu þar er unn- ið. Dagvistin þeirra að Álandi 13 er vissulega sem mesta myndar- heimiti, hana sækja margir heim og njóta þeirrar endurhæfingar og þess félagsskapar sem þar er boðiö upp á og sem veitir aukna hfsfyh- ingu, kjark og kraft. Baráttumál þeirra MS-félaga hef- ur helst og fremst snúið að því að gera sem mest fyrir þá sem þurfa við sem bestar aðstæður. Nýtt hús- næði með enn fjölbreyttari þjón- ustu hefur verið óskadraumurinn sem nú djarfar fyrir því bygging er hafin og hú fer senn að rísa. Af fyrirhyggju og framsýni í MS-félaginu sameina krafta til sóknar og varnar sjúklingar sjálfir helst og fremst svo og aðstandend- ur og mætir aðhar hehbrigðisstétta einnig. Það er mannbætandi að hta inn hjá MS-félaginu, brosin ævin- lega björt og hlýog innheiki í öhum móttökum þó erfið fötlun aftri allt- of mörgu af því sem ókkur þykja sjálfsagðir hlutir. Heimihsbragur ahur sannar það hversu fólk á auð- velt með að ná saman ef að sam- kenndinni er hlúð. Dagvist MS-félagsins vekur mann einnig til vitundar um árangur hversu ágætt og farsælt samsph er á milh félagasamtaka og opinberra aðha því húsnæðið er í eigu borgar- innar, daggjöldin greidd af ríkinu en ábyrgðin af öllu starfi hjá félag- inu sjálfu. Aha vega eins íjarri einkavæðingarónun og unnt er. Forysta félagsins gerir sér fuha grein fyrir þvi, hve farsælt samsph þetta er og hyggst halda því áfram. Þannig mun hin nýja bygging verða fjármögnuð með framlögum frá hehbrigðisráðuneyti, Reykja- víkurborg og Framkvæmdasjóði fatlaðra en ekki síður af aflafé fé- lagsins sjálfs. Þama er farið fram af fýrirhyggju og framsýni og þörfin er bráðbrýn, svo fleiri fái notið þess að eiga dvöl þar sem aht er gert th að létta róð- urinn í örðugri baráttu við illan vágest sem hefur gert sig heima- kominn um of. Öryrkjafélögin vinna þrotlaust starf svo víöa og MS-félagið er mætur vitnisberi um það. Hafi efa- semdir um sanna félagshyggju og samvinnu hvarflað aö hverfa þær eins og dögg fyrir sólu þegar hvar- vetna er htið th þeirra þrekvirkja sem þar eru unnin. Eiitiægar hehlaóskir fylgja MS- félaginu fram á veginn. Helgi Seljan „Hafi efasemdir um sanna félagshyggju og samvinnu hvarflað að hverfa þær eins og dögg fyrir sólu þegar hvarvetna er htið til þeirra þrekvirkja sem þar eru unnin.“ Lækkun matarskatts Tekjujafnandi „Því hefur verið haldið framaðlækk- un matar- skatts sé ekki besta lciðin th tekjujöfnun- ar.Þaðerrétt, enda heftir ■,,„hmm.nnn ekki verið lagt til að hagfræðmgurASI. tekiújöfhun verði einungis gerð með matar- skatti. Ljóst er þó að aðrar þær leiðir sem bent hefur verið á duga ekki einar sér. Tekjujöfimn með barnabótum og persónuafslætti hefur haldið illa; það eru ekki allir sem eiga börn og margir eru með tekjur fyrir neðan skattleys- ismörk. Aftur á móti kaupa allir matvöru og það er staðreynd að þeir tekjulægstu nota mun stærra hlutfall tekna th kaupa á matvörum en þeir tekjuhærri. Tekjuskattskerfið á íslandi er svo götótt og veikt að það er úti- lokað að hægt sé að framkværoa alla tekjpjöfnun með því einu og sér. Það nær iha til ýmissa hópa, þannig er t.d. erfitt að ná th tekju- lægstu hópanna, barnlausra, elh- og örorkulífeyrisþega í gegnum þettakerfi. Lækkun matarskatts- ins er því ætlað aö koma th við- bótar öörum tekjujöfnunarað- gerðum en ekki í stað þeirra. Lækkun matarskattsins dregur einnig úr verðbólgu sem aftur dregur úr hækkun lánskjaravísi- tölunnar. Lánskjaravísitalan lækkar í janúar vegna lækkunar framfærsluvísitölu og byggingar- vísitölu í desember. Reikna má með því aö hún lækki aftur í fe- brúar. Þetta leiðir til þess að fjár- magnskostnaður fyrir heimili og fyrirtæki lækkar á næstunni til viðbótar lækkun vaxta.“ Rökleysa „í umræð- um um lækk- un matar- skatts hefur ýmsum rök- um, og ekki síöur rök- leysu, verið beitt. Því mið- ur hefur rök- leysan haft betur þrátt fyrir að fjöldi sérfræðinga í efna- hagsmálum hafi látið í þós þá skoðun að með þessari lækkun virðisaukaskatts á matvæh sé veriö að veikja stærsta tekjustofn ríkisins. Að auki er verið að hygla tekjuhærri þegnum þjóðfélags- ins. T-._upmannasamtökin hafa tekiö undir þessi sjónarmið, ekki síst sakir þess hve erfitt og dýrt er aö koma þessu viö. Auk þess hafa kaupmenn bent á aö fýrirvarinn sé of skammur. Þó formlega hafi veriö tekin ákvöröun um tveggja þrepa virðisauka8katt i aprh gátu samtök kaupmanna ekki hafið undirhún- ing því ekki var jjóst hvort af þessu yrði. Kaupmenn gátu ekki förið fram úr löggjafar- og framkvæmda- vaidinu í þessu efiii í umræðunni um skattsvik hafa ýmsir skellt skuldinni á verslun- ina eða kaupmenn. Eftir að virð- isaukaskattskerfið komst á og skatturinn var innheimtur i einu þrepi hafa þessar raddir þagnað. Staðreyndin er að skatturinn hef- ur innheimst vei hjá versluninni og þar með hafa kaupmenn rekiö af sér slyðruoröiö. En hverjum verður svo kennt um þegar í ljós kemur að tveggja þrepa skatt- kerfið gengur ekki og skilar minna en áætiað var’ Skuldinni verður skeht á verslunina í land- inu.“ -kaa Magnus Finnsson, framkvasmdastjóri Kaupmannasam- takanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.