Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1993, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1993, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1993 25 Fréttir Islendingar þátttakendur á stærsta markaði heims um áramót: 1,5 milljarða lækkun tolla af sjávaraf urðum 1994 Um áramótin tekur gildi samningur- inn um Evrópska efnaliagssvæöiö, EES. Að flestra mati markar samn- ingurinn tímamót í sögu Evrópu enda gerir hann álfuna að einu mikil- vægasta markaðssvæði heims. Markmið EES-samningsins er að koma á sameiginlegum reglum, jafna samkeppnisskilyrðin og tryggja leið- ir til að framfylgja þeim innan aðild- arríkjanna. Efnahagssvæðið kemur til með að ná til 18 ríkja, sem hafa yfir að ráð um 47 prósent af heims- viðskiptunum, og snerta líf rúmlega 370 milljóna Evrópubúa. Efnahagslega kemur EES-samn- ingurinn til með að breyta miklu fyr- ir íslendinga. Til dæmis er áætlað að um tveggja milljarða króna tollur hafi verið lagður árlega á íslenskar sjávarafurðir í innflutningi til Evr- ópubandalagsins undanfarið. Miðað við sambærilegan útflutning árið 1994 mun þessi tala lækka um 1,5 milljarða króna. Gert er ráð fyrir frekari tollalækkunum á næstu tveimur árum og má reikna með að 1996 samsvari tollalækkunin 2 millj- örðum króna. Sem dæmi um tollalækkanir um áramótin má nefna að tollar falla niður á þorski, ýsu, ufsa, lúðu og grálúðu, hvort sem um er að ræða frysta eða ferska afurð. Jafnframt falla niður tollar af saltfiskflökum og söltuðum, flöttum þorski. Tollar á flestum öðrum sjávarafurðum lækka um 70 prósent fram til ársins 1996, þar af um 28 prósent um áramótin. Samningar íslands og EB Á grundvelh EES-samningsins hef- ur ísland gert tvíhiiðasamning við Evrópubandalagið um landbúnaðar- mál og fiskveiðimál. Samningurinn um landbúnaðarmái tók gildi 15. apríl síðastliðinn og heimilar tolifrjálscm innflutning á nokkrum tegundum landbúnaðarvara, þar á meðal nokkr- ar blóma- og grænmetistegundir. Samkvæmt samningnum um fisk- veiðimál verða skipti á veiðiheimild- um. Skip EB fá úthlutað veiðiheim- ildum í efnahagslögsögu íslands sem nema 3 þúsund tonnum af karfa. Á móti fær ísland 30 þúsund tonn af loðnu. í samningnum er kveðið á um að leyfi loðnustofninn ekki veiðar fá EB-skipin engan karfa. Fjórfrelsið I gildi EES-samningurinn felur í sér fjór- þætt frelsi sem gefur einstaklingum og aðilum í atvinnurekstri aukinn rétt en skerðir að sama skapi svig- rúm stjórnvalda til þess að grípa í taumana, hvort sem það er gert með gjaldtöku, gjaldeyrishöftum, inn- flutningsbanni eða takmörkunum á veitingu atvinnuleyfa. Þetta fjórþætta frelsi nær til vöru- viðskipta, þjónustuviðskipta, fjár- magnsflutninga og atvinnu. Frá og með 1. janúar næstkomandi verður ríkisborgurum EES-ríkja frjálst að flytja á milli landa og leita sér að vinnu hvar sem er á EES- svæðinu en dvalarleyfi fæst aðeins ef viðkomandi fær vinnu. Ekki má mismuna fólki vegna þjóðernis við ráðningu og öllu launafólki verður gert kleift að njóta almenningstrygg- inga á jafnréttisgrundvelli. Einstakl- ingar og fyrirtæki hvaða EES-ríkis sem er mega stofnsetja fyrirtæki, útibú eða starfa sjálfstætt hvar sem er innan EES. Samkvæmt EES-samningnum verður heimilt að bjóða fram þjón- ustu hvar sem er á svæðinu. Grund- vallarreglan fyrir fjármagnsþjón- ustu er sú að eitt starfsleyfi nægi fyrir lánastofnanir á öllu svæðinu og bankaeftirlit heimaríkisins verð- ur ábyrgt fyrir eftirliti. Samningur- inn nær einnig tfl verðbréfaviðskipta og trygginga. í samningnum er gert ráð fyrir fijálsum fjármagnshreyfingum milli landa og einstökum ríkjum verður óheimilt að mismuna fjármagnseig- endum eftir þjóðerni. ísland getur haft eigin löggjöf um fjárfestingar og hefur rétt til að banna íjárfestingar útlendinga í út- gerð og frumvinnslu. Víðtæk samvinna Jafnframt fjórfrelsinu gerir EES- samningurinn ráð fyrir víðtækri samvinnu um félagsmál, neytenda- vernd, umhverfismál, hagtölugerð og fyrirtækjaráðgjöf. Þá kveður samningurinn á um þátttöku EFTA- ríkjanna í áætlanagerð, verkefnum og ýmsum aðgerðum á sviði rann- sókna og tækniþróunar, menntunar og þjálfunar, æskulýðsmála, um- hverfisverndar og félagsmála. Að- gerðir þessar ná einnig til ferða- mannaþjónustu, hljóðvarps, sjón- varps og almannavarna. Stofnanir EES Ýmsar stofnanir munu taka að sér að sinna eftirliti með EES-samningn- um og liöka fyrir samstarfi íbúa og ríkja á svæðinu. Kostnaður íslands af starfsemi þessara stofnana mun á næsta ári verða samtals um 134,2 milljónir króna. í EES-ráðinu sitja ráðherrar EFTA- og EB-ríkja og fulltrúar fram- kvæmdastjórnar EB. Hlutverk ráðs- ins er einkum að vera stjómmálaleg- ---------------!------------------ ur aflvaki við framkvæmd EES- samningsins og setja almennar viömiöunarreglur. Það verður hins vegar hlutverk EES-nefndarinnar að tryggja framkvæmd samningsins og taka ákvarðanir um nauðsynlegar breytingar á honum. Fulltrúi íslands hefur neitunarvald í nefndinni. Þingmannanefnd EES er skipuð þingmönnum frá EFTA-ríkjunum og EB og á að stuðla-að auknum skiln- ingi milli aðila og vera ráðgefandi aðili varðandi efnisatriði samnings- ins. Ráðgjafanefnd EES starfar á svipaðan hátt og er skipuð fulltrúum hagsmunasamtaka úr atvinnulífinu. Eftirlitsstofnun og dómstóll Til að tryggja eftirlit með fram- kvæmd EES-samningsins verður komið á fót Eftirlitsstofnun EFTA og EFTA-dómstól. í Eftirlitsstofnuninni eiga sæti 7 aðilar frá EFTA-ríkjunum. Stofnun- in getur í sérstökum tilvikum sektað fyrirtæki ef þau brjóta samkeppnis- reglur. I dómstólnum eiga einnig sæti 7 aðilar frá EFTA-ríkjunum. Einstakl- ingar og fyrirtæki sem telja sig eiga rétt samkvæmt EES-reglunum geta höfðað mál heima fyrir og viðkom- andi dómstóll getur leitað áhts um túlkun samningsins hjá hjá EFTA- dómstólnum. Dómstóllinn dæmir einnig um réttmæti ákvarðana Eftir- Utsstofnunarinnar. -kaa ^.. *C5 /- vV Veitingastaður . í miðbæ Kópavogs Mikið verslað í búðunum á Selfossi Regína Thorarensen, DV, Selfossi: Ég talaði við nokkra verslunareig- endur og verslunarstjóra á þriðju- dagsmorgun og það var samdóma áUt þeirra að verslun væri mikil á Selfossi fyrir þessi jól. Fólk færi þó betur með peninga sína en oftast áður, ekki eins dýrar gjafir keyptar en hagkvæmari. \ Gunnar Gíslason í Horninu sagði verslun síst minni en í fyrra og Ingi- björg Guðmundsdóttir hjá bókabúð KÁ sagði bóksölu góða. Sigrún Ósk- arsdóttir í versluninni írisi sagði sölu meiri en fyrir jóUn í fyrra og Kristín Hafsteinsdóttir í tískuversluninni Lindinni tók í sama streng. —dSH Krmhomd Danskt jólahlaðborð aðeins kr. 1.390 (feiti danski kokkurinn) Opið annan í jólum. Kópavogsbúar, freistið gœfunnar! Hamraborg 11 -sími 42166eöa 42151. 1 1 Eigum glœsilegt úrval veiðistanga og veiðihjóla jafnt fyrir byrjendur og þá sem lengra eru komnir ásamt öllum þeim fylgihlutum sem veiðimenn dreymir um. Margverölaunaöur vöölujakki sem alla veiöimenn dreymir um verö áður 19.970.- jólatilboösver kr. 16.900 Vandaöir Royal Scott vaxjakkar í miklu úrvali, sérlega hentugir fyrir íslenskt veöurfar röfrákr. 14.900- Fluguhnýtingasett góð gjöf jafnt fyrir unga sem aldna verö frá kr. 3.970 - Mikið úrval af vönduðum veiðipeysum á jólatilboösveröi verö frá kr. 2.900- Veiöivesti fyrir börn og unglinga verö áöur 4.380. jólatilboðsverö kr. 3.200 Mörkinni 6, v/Suðurlandsbraut Neopreme vöðlur, pottþétl gjöf sem yljar veiöimanninum og heldur táslunum þurrum, verðáðurkr. 17.950.- jólatilboðsverð kr. 15.800 l«s'“!ffiSrawmS.®« I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.