Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1994, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 7. JAN.ÚAR 1994
Viðskipti
Oslægö ýsa á fiskm.
Kr/kg _
iTl I
I I I I
Fi Má Pr Mi Fi
Hlutabréf Esso
Bensín 95 okt.
Markiðekki
lægraíhálftár
Vegna sjómannaverkfallsins
hefur óslægð ýsa úr trillubátun-
um verið seld á háu verði á fisk-
mörkuðunum eftir áramótin. í
gær var meðalverðið 188 krónur
fyrir kílóið.
Eftir áramótin hefur gengi
hlutabréfa í Olíufélaginu hf.,
Esso, verið 5,25 en var í 5,78 á
gamlársdag.
í Rotterdam er 95 oktana bensín
að hækka í verði. Sl. miðvikudag
var tonnið selt að jafnaði á 138
dollara.
Sölugengi þýska marksins fór í
gærmorgun niður fyrir 42 krónur
og hefur það ekki gerst síðan í
júlí á síðasta ári, eða i hálft ár.
Hlutabréfavísitalan í Hong
Kong sló hvert sögulega metið af
öðru þar til á miðvikudag að hún
lækkaði og hrundi svo eftir við-
skiptinígær. -bjb
Horfur á hlutabréfamarkaðnum:
Verðbréfafyrir-
tækin spá deyfð
- og frekari vaxtalækkunum á árinu
Forsvarsmenn verðbréfafyrir-
tækjanna í landinu spá því að deyfð
muni ríkja á íslenska hlutabréfa-
markaðnum á þessu ári, vaxtalækk-
unin verði varanleg og jafnvel sé von
á frekari lækkunum þegar hða taki
á áriö. Þetta kom m.a. fram á morg-
unfundi sem Vísbending, vikurit um
viðskipti og efnahagsmál, stóð fyrir
á Holiday Inn í gær. Verðbréfafyrir-
tækin sem áttu þarna fulltrúa voru
Handsal, Kaupþing, Landsbréf,
Skandia og VÍB.
Fyrirsjáanlega deyfð í hlutabréfa-
viðskiptum skýra verðbréfafyrir-
tækin með þeim samdrætti í efna-
hagslífinu sem spáð er í ár. Sem
dæmi um samdráttinn gerir Þjóð-
hagsstofnun ráð fyrir að landsfram-
leiðsla minnki um 2 prósent á árinu.
Það skapast einkum af 2,5% sam-
drætti í fjárfestingu og 4% minnkun
útflutningstekna. Þá er spáð 2,5%
verðbólgu á árinu, sem er töluvert
minna en á síðasta ári, en að atvinnu-
leysi muni aukast enn meir. AUt
þetta kemur til með að hafa áhrif á
hlutabréfamarkaðinn í gegnum af-
komu fyrirtækjanna. Þannig aö hafi
menn verið að tala um kreppu á síð-
asta ári þá virðist allt stefna í að hún
muni fyrst líta dagsins ljós í ár.
Um erlendar fjárfestingar var það
mál manna á morgunfundi Vísbend-
ingar að Utlar Ukur væru á íjár-
magrisflótta úr landinu þrátt fyrir að
opnað hefði verið fyrir kaup á erlend-
um langtímaverðbréfum um áramót-
in. Líklega yrði eitthvað um slíkar
ijárfestingar en þá einkum í gegnum
íslensku verðbréfafyrirtækin.
Varðandi vaxtamálin telja verð-
bréfafyrirtækin aö lánsfjárþörf opin-
berra aöila gæti breytt myndinni og
ekkert yrði úr frekari vaxtalækkun-
um. Hér er einkum átt við húsnæðis-
bréf Húsnæðisstofnunar ríkisins og
aðra ríkispappíra. Þá er óvíst hvaða
fjárfestingastefnu lífeyrissjóðimir
munu taka á árinu og þeir gætu haft
afdrifarík áhrif á hlutabréfamarkað-
inn.
Fram kom á fundinum að mikil-
vægt væri í umfjöUun íjölmiöla og
annarra að tengja þróun hlutabréfa
einstakra fyrirtækja við afkomu
þeirra.
Verður gengið fellt?
„Verði 4% samdráttur útflutnings-
tekna fara menn að spyrja sig hvort
ekki séu líkur á gengisfeUingu. Það
mun hafa töluverð áhrif á erlendar
fjárfestingar. Verði gengið fellt verð-
ur meiri áhugi á sUkum fjárfesting-
um,“ sagði Sverrir Geirmundsson,
ritstjóri Vísbendingar, við DV.
-bjb
Slökkvlliö Reykjavíkur:
Eldvarna-
fötfrá
Max
Slökkvilið Reykjavíkur hefur tekið
í notkun nýjan íslenskan eldvarna-
fatnað frá Max sem hefur verið við-
urkenndur samkvæmt evrópskum
stöðlum. Fatnaðurinn hefur verið í
þróun hjá Max síðan 1990 í samvinnu
við Slökkviliðið.
Fatnaðurinn er m.a. eldþolinn,
hitaþoUnn og vatnsheldur og fram-
leiddur úr mjög sérhæföum hráefn-
um. Fleiri slökkviUö á landinu hafa
pantað þennan fatnað og íhugar Max
markaðssetningu erlendis.
-bjb
Frá afhendingu eldvarnafatnaðarins frá Max til Slökkviliðs Reykjavíkur.
Þriðji frá vinstri á myndinni í fremstu röð er Höskuldur Einarsson úr
Slökkviliðinu í fatnaðinum. Þá gaf Max 60 bangsa til Slökkviliðsins til að hafa
i sjúkrabílum fyrir börn í slysatilfellum. DV-mynd S
Gengi gjaldmiðla síðan fyrir jól:
Sænska krónan hækkað mest
Eftir áramótin hefur það gerst í
gjaldeyrismálum að gengi flestra al-
gengustu gjaldmiðla gagnvart ís-
lensku krónunni hefur hækkað lítil-
lega. Undanskildir eru þýska markið,
japanska jenið og spánski pesetinn.
Af þeim gjaldmiðlum sem eru á
meðfylgjandi grafi hefur sænska
krónan hækkað hlutfallslega mest
síðan fyrir jól, eða um 4%. Er þá
miðað við skráningu Seðlabankans í
gærmorgun. Á sama tíma hefur sölu-
gengi lírunnar hækkað um 1,4%,
dollarinn um 1,2% og sterlingspund-
ið um 1%.
Frá því fyrir jól hefur pesetinn
lækkað hlutfallslega mest eða um
1,8%. Japanska jenið hefur lækkað
um 1,2% og þýska markið um 0,4%.
-bjb
Gengi gjaldmiðla
74
72 70< 69 68 Kr.
Jr
> N D '
109 108 107 106, 105 104
n
Kr. N D J
12,3
12,1
Kr. 0 N D J
DV
Tíu prósentíleiri
ferðamenn
Á síðasta ári komu 10% fieiri
erlendir ferðamenn til landsins
en árið 1992. Þá komu ríflega 142
þúsund ferðamenn til íslands en
á nýliðnu ári urðu þeir alls rúm-
lega 157 þúsund. Um er að ræða
mesta fjölda erlendra ferða-
manna sem hafa heimsótt ísland
frá upphafi alda.
Þjóðveijar voru flestir ferða-
mannanna, eða 31 þúsund, og
Bandaríkjamenn voru 25 þúsund
talsins. Frá Bretlandi, Sviþjóð og
Danmörku komu rúmlega 15 þús-
und ferðamenn frá hverju landL
Gjaldeyristekjur þjóðarbúsins af
þessum 157 þúsund ferðamönn-
um eru taldar hafa verið um 15
milijarðar, sem er 2,5 milljörðum
meira en árið 1992.
2 milljarða velta
íverðbréfum
sveitarfélaga
í fréttabréfi Landsbréfa hf. er
greint frá því að liklega liafi velta
sveitarfélaganna á veröbréfa-
markaði á árinu 1993 verið í
kringum 2 milljarðar króna. Und-
anfarin misseri hefur þróunin
verið þannig að sveitarfélögin
hafa í auknum mæli sótt íjár-
magn á veröbréfamarkað og
fengið oft á tíðum betri kjör þar
en hjá bönkum og sparisjóðum.
Kjör á skuldabréfum sveitarfé-
laga á síðasta ári voru frékar
hagstæð. Hjá stærri sveitarfélög-
unum var ávöxtunarkrafan
7,5-8,1% fyrir vaxtalækkunina í
nóvember en í kringum 6% eftir
lækkunina.
Framleiðsla
áóáteknum
myndböndum
Helgi Jónsson, DV, Úlafefirði:
Stuðlaprent hf. hóf framleiöslu
á óáteknum myndböndum
skömmu fyrir jólin. Fyrirtækið
keypti íslensku myndbandafram-
leiðsluna hfi, IMF, í Reykjavík.
Um er að ræöa spóluvél sem
þræðir myndþráöinn inn í spólu-
húsið.
Eigendur Stuðlaprents og IMF
eru þeir Þorsteinn Ásgeirsson og
Guðmundur Þór Guðjónsson en
eiginkonur þeirra, Inga Ásgríms-
dóttir og Aðalheiöur Einarsdótt-
ir, starfa við myndbandafram-
leiðsluna.
Fjárfestirársins
hjáVísbendingu
Vísbending,
vikurit um viö-
skipti og efna-
hagsmál, -; til-
kynnti í gær
úrslit i verð-
bréfakeppni
sem ritiö stóð
fyrir á síðasta
ári. Fjórir val-
inkunnir menn úr fjármálaheim-
inum tóku þátt og sá sem náði
bestu ávöxtuninni var Sigurður
Sigurkarlsson, tjármálastjóri hjá
Sjóvá-Almennum. Hlýtur Sigurð-
ur nafnbótina „Fjárfestir ársins
1993“. Þetta er í fyrsta sinn sem
útnefningin fer fram.
Keppnin fólst í því aö ná sem
bestri ávöxtun á ímynduðum 100
milljónum króna sem keppend-
um voru „afhentar". Á átta mán-
uðum náði Sigurður 30% ávöxtun
á ársgrundvelli á þessum 100
milljónum. Aðrir þátttakendur
voru Agnar Kofoed-Hansen, Þor-
steinn Haraldsson hjá Hluta-
bréfasjóðnum hf. og Sigurður Ge-
orgsson, framkvæmdastjóri Lif-
eyrissjóös tæknifræðinga. Fjór-
menningarnir náðu í heild rúm-
lega 12% ávöxtun á ársgrundvelli
á 100 miOjónunum. -bjb