Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1994, Síða 24
32
FÖSTÚbAGUR 7/jÁNÚAK 1994
Smáauglýsingar - Sími 632700 Þver Afmæli
Nýjar, vandaðar og spennandi vörur
v/allra hæfi. Nýr vandaður litmlisti,
kr. 600 + sendk. Ath. nýtt og lækkað
verð. Allt er þegar þrennt er, í verslun
sem segir sex. Sjón er sögu ríkari.
Ath. allar póstkr. duln. Opið 10-18
v.d., 10-14 iau. S. 14448, Grundarstíg 2.
Sendibílar
Suzuki super carry 1991 til sölu, ekinn
23 þús., hvítur, vsk-bíll. Er einstaklega
vel útlítandi og í toppstandi. Sami eig-
andi. Ekki skipti. Uppl. í s. 681816 e.kl
17 föstudag og allan laugardaginn.
LWWWWWWW
SMAAUGLYSINGADEILD
OPIÐ:
Virka daga frá kl. 9-22,
laugardaga frákl. 9-16,
sunnudaga frákl. 18-22.
ATH.! Smáauglýsing
i helgarblað DV verður
að berast okkur fyrir
kl. 17 á föstudag.
Þverholti 11 - 105 Reykjavík
Sími 91-632700
Bréfasími 91 -632727
Græni síminn: 99-6272
Vagnar - kemir
Dráttarbeisli. Gerið verðsamanburð.
Framleiðum ailar gerðir af kerrum og
vögnum. Dráttarbeisli á allar teg. þíla.
Áratuga reynsla. Allir hlutir í kerrur
og vagna. Ódýrar hestakerrur og
sturtuvagnar á lager. Veljum íslenskt.
Verið velkomin í sýningarsal okkar.
Víkurvagnar, s. 684911, Síðumúla 19.
Bílar til sölu
Mercedes Benz 2628, árg. ’85, til sölu,
ekinn 350 þús., festingar fyrir snjótönn
geta fylgt. Upplýsingar í símum
94-7732 og 985-27132.
MMC L-300, árg. '81, ekinn 78 þús. km
frá upphafi. Til sjinis og sölu hjá Bíla-
sölu Heklu- Bílaþing, sími 695660 og
93-11331.
Jeppar
Bronco Ranger XLT, 1981, sjálfskiptur,
samlæsingar, rafm. í rúðum, svartur,
krómf., 35" dekk, no spin, 351 m vél,
jeppask. ’94. Allt uppt., toppb. Ath.
mjög fallegur. Verð 850 þús. og 580
þús. stgr. S. 78585 eða 673801. Sturla.
Uppboð
Að kröfu Jóhannesar A. Sævarssonar hdl., skiptastjóra í þrotabúi Dalhúsa
hf„ verða innréttingar og eldhústæki til veitingahúsareksturs, s.s. Frostwerk
kæliskápur með skurðarbretti, Henkovac 1500 vacuumvél, Broster þrýsti-
pottur, Hobart hrærivél, Eloma grillofn, Oval ruslapressa o.fl. selt á opin-
beru nauðungaruppboði.
Uppboðið verður haldið að Vesturgötu 4, Hafnarfirði, (starfsstöð Jóna hf.),
föstudaginn 14. janúar nk. og hefst kl. 16.30.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Uppboð Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Sunnubraut 6, efri hæð. Gerðarþoh Steinunn Frímannsdóttir, gerðarbeið- endur Blómahehdsalan h£, Húsnæðis- stofnun ríkisins og Vátryggingafélag íslands hf., þriðjudaginn 11. janúar 1994 kl. 13.30.
Skagabraut 38, efri hæð og bílskúr. Gerðarþoli Hjördís Guðnadóttir, gerð- arbeiðendur Bókaútgáfan Þjóðsaga, Húsnæðisstofnun ríkisins, Lífeyris- sjóður Akraneskaupstaðar, Sjóvá- Álmennar hf. og Svanhildur Anna Sveinsdóttir, þriðjudaginn 11. janúar 1994 kl. 11.00. Vallarbraut 3.03.02. Gerðarþoh Sævar Sigurðsson, gerðarbeiðendur Hús- næðisstofnun ríkisins, Nótastöðin hf., Pós1> og símamálastofnun, Rafveita Akraness, sýslumaðurinn á Akranesi og Þorgeir og Ellert hf, þriðjudaginn 11. janúar 1994 kl. 14.00. Ægisbraut 11. Gerðarþoli Björgvin Eyþórsson, gerðarbeiðendur sýslu- maðurinn á Akranesi og fslandsbanki hf., þriðjudaginn 11. janúar 1994 kl. 14.30.
Lerkigrund 3.01.0. Gerðarþoh Vil- hjálmur G. Gunnarsson, gerðarbeið- endur Bifreiðar og landbúnaðarvélar, Húsfélagið Lerkigrund 1-3, Hús- næðisstofnun ríkisins og sýslumaður- inn á Akranesi, þriðjudaginn 11. jan- úar 1994 kl. 11.30.
Æðaroddi 22, hesthús. Gerðarþoh Jakob Benediktsson, gerðarbeiðandi Sigurður Sigfusson, miðvikudaginn 12. janúar 1994 kl. 13.00. Sýslumaðurinn á Akranesi
Suðurgata 107. Gerðarþoh Ámi Salómonsson, gerðarbeiðendur Hús- nseðisstofiiun ríkisins og Lind hf., þriðjudaginn 11. janúar 1994 kl. 13.00.
Jóhann P. Jónsson
Jóhann Pétur Jónsson slökkvi-
liðsmaður, Hraunbæ 162, Reykja-
vík, er fimmtugur í dag.
Fjölskylda
Jóhann er fæddur í Reykjavík og
ólst þar upp á Njálsgötu 4.
Jóhahn kvæntist 13.6.1970 Guð-
rúnu Filippusdóttur, f. 30.10.1948,
starfsmanni við bókhald. Foreldrar
hennar: Filippus Tómasson, látinn,
og Ambjörg Lilja Jónsdóttir, hús-
freyja í Rauðagerði 18 í Reykjavík.
Dætur Jóhanns og Guðrúnar:
Gyða Björg Jóhannsdóttir, f. 11.10.
1978; Linda Dögg Jóhannsdóttir, f.
6.1.1982.
Systkini Jóhanns: Ása Jóna Jóns-
dóttir; Birgir Þór Jónsson.
Foreldrar Jóhanns: Jón Jónsson,
f. 26.2.1909, d. 1.6.1970, skipherra
hjá Landhelgisgæslunni, og Frið-
björg Sigurðardóttir, f. 8.12.1907, d.
2.8.1985, húsmóðir, þau bjuggu á
Njálsgötu 4 í Reykjavík.
Jóhann Pétur Jónsson.
Meiming
Ahrifarík ádeila
Tónleikar vom hjá Sinfóníu-
hljómsveit íslands í Háskólabíói í
gærkvöldi. Stjórnandi var Osmo
Vánská. Einleikari á píanó var Olli
Mustonen. Á efnisskránni vap
Píanókonsert nr. 3 eftir Sergei Rac-
hmaninoíf og Sinfónía nr. 3 eftir
Anton Bruckner.
Það hefur trúlegast ekki farið
fram hjá lesendum þessara pistla
að ýmislegt er unnt að finna tónhst
Rachmaninoffs til foráttu. Síðróm-
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
antísk fagurfræði þessa hæfileika-
ríka Rússa dansar iðulega á mörk-
um hins tilfinningaríka og hins
væmna og fer ósjaldan yfir strikið.
Af ekki óskyldum toga er sú árátta
Rachmaninoffs að endurtaka
steíjaefni óbreytt í gríð og erg svo
að flest stef fá á sig mynd þrástefs.
Það sem hér liggur að baki er ör-
væntingarfull tilraun tónskáldsins
til að kreista síðustu dropana út
úr tónamáli sem var í raun og vem
dautt. Tilraunin er virðingarverð
en útkoman er úrkynjun. Endur-
tekningar og létt væmni gerir tón-
listina að vissu leyti aðgengilega
og getur stuðlað að skjótum vin-
sældum. Endingargildi verka líður
hins vegar fyrir shkt. Píanókonsert
nr. 3 hefur sinn skerf af þessum
ágöllum en hefur samt ýmislegt til
síns ágætis. Má þar nefna glæsi-
leika og býsna sterkt innra sam-
hengi. Fróðir menn segja að Rac-
hmaninoff hafl sjálfur sphað verkið
á látlausan hátt og sóst meira eftir
heildaráhrifum en einstökum æs-
andi augnablikum. Hinn ungi
píanóleikari, Mustonen, fór hins
vegar aðra leið. Hann sýndi frá-
bæra færni og öryggi og virtist
hafa fullkomið vald á öllum hugs-
anlegum blæbrigðum hljóðfæris-
ins. Túlkunin var í róttækum ýkju-
stíl þar sem allt var gert til að draga
fram og undirstrika innbyggða
væmni verksins. Látbragö píanó-
leikarans var og í samræmi við
þetta, skringilegar handasveiflur
og geiflur. Þá hélt hann lengst af
annarri löppinni hálfkrepptri svip-
að og trúðar gera í sirkus. Allt þetta
stuðlaði að þeirri heildarmynd úr-
kynjunar sem geislaði frá flutningi
þessa verks sem fæddist úrelt upp
úr síðustu aldamótum en er enn
flutt vegna þess að fóik treystist
ekki th að horfast í augu við sam-
tima sinn í tónhst. Þess er getið í
efnisskrá að sérstæður túlkunar-
máti Mustonens hafði áunnið hon-
um miklar vinsældir erlendis og
þarf engan að undra það. Hæfileik-
ar hans og færni eru augljósir. Þá
virðist hann hafa dýpri skhning á
félagsfræði hstar sinnar en algengt
er um virtúósa. Sinfóníuhljómsveit
íslands ætti að taka dulbúna
ádrepu Mustonens til sín og reyna
að hrista af sér slyðruorðið um
flutning tónhstar tuttugustu aldar.
Verk óumdeildra snilhnga eins og
Bartoks, Stravinskys, Schönbergs,
Weberns og Bergs eru aht of sjald-
heyrð á tónleikum hljómsveitar-
innar að ekki sé talað um nýrri
tónlist.
Það var svolítið erfitt að einbeita
sér að sinfóníu Bruckners eftir hlé.
Þetta verk er einkar heiðarlegt og
tilgerðarlaust. Það er vandvirknis-
lega unnið og margt hljómar þar
fallega. í kjölfarið á hinum áleitna
píanóleik Mustonens fór ekki hjá
því hins vegar að menn spyrðu sig
að^ því hvaða erindi svona verk
ætti th tónleikagesta við upphaf
tuttugustu og fyrstu aldar. Svo virt-
ist sem hljómsveitarmenn hefðu
svipaðar vangaveltur í kolhnum
því að flutningurinn náði ekki því
flugi sem oft mátti heyra hjá hljóm-
sveitinni í haust. Kannski voru
þetta aðeins eftirstöðvar af jóla-
steikunum.
Þjónusta
Stigar og handríð, úti sem inni.
Stigamaðurinn, Sandgerði,
símar 92-37631 og 92-37779.
Djúpið:
Japönsk söngkona
Japanska söngkonan Akiko Ve-
hida hélt tónleika í Djúpinu í fyrra-
kvöld. Hún er hingaö komin frá
Boston þar sem hún stundar tón-
hstamám við Berklee Cohege of
Music, á þeim stað sem ýmsir af
okkar helstu djasstónlistarmönn-
um hafa verið og þangað streyma
þeir enn. Hljómsveitina skipuðu
þeir Ólafur Jónsson á tenórsaxó-
fón, Hilmar Jensson á gítar, Þórður
Högnason á kontrabassa og Matthí-
as M.D. Hemstock á trommur. Efn-
isskráin samanstóð af verkum
Djass
Arsæll Másson
gamalla meistara og átti Thelonius
Monk þar stóran part. Hljómsveit-
in hitaði upp með einu bíbopplagi
áður en söngkonan steig á svið.
Hún söng lögin flest svo til eins og
þau eru skrifuð og „skattaði” svo \
gjarnan hluta af forminu. Hún hef-
ur ágæta rödd og allt sem hún gerði
var fágað og áheyrhegt. Best fannst
mér henni takast upp í Round
Midnight en þar fór hún frjálsleg-
ast með lagið. Einnig var gaman
að heyra Straight, No Chaser sung-
ið en það er hefðbundinn tólf-
taktablús þar sem svipuð lína end-
urtekur sig en færist th í taktinum.
Ég hefði þegið meiri tilþrif og
snarstefjun í sönginn en öðrum
kann að hafa fundist annað. Ólafur
blés í mjög svipuðum anda, lítið
um glyss, fret og píp á þeim bæn-
um, fátt kom á óvart en allt hreint
og fallega blásið með ágætum tón.
Matthías á heiður skihnn fyrir
hvað hann getur verið fágaður og
nettur við trommusettið. Þess utan
var tronumheikur hans Qölbreytt-
ur og gefandi. Þórður spilaði vel
þetta kvöld sem önnur þó mér
fyndist .tónmnn geta verið ögn
hreinni. En það sem hreif mig mest
á þessum tónleikum og að ég hygg
flesta aðra viðstadda var gítarleik-
ur Hhmars Jenssonar. Hhmar er
að gera hluti í sinni snarstefjun
sem eru verulega forvitnhegir og
spennandi og gefa gamalþekktum
hljómaröðum nýtt líf. Hann notar
mikið fótstig th að stjórna styrkn-
um og mýkja „attackið” og hefur
góðan hreinan tón. Öll handfjötlun
hans á hljóðfærinu virðist einnig
miða að því að gera það eins lifandi
og órafmagnað (acoustic) og hægt
er. Samspil þeirra Matthíasar var
frábært á köflum; iðulega var t.d.
skipt um hraða (halftempo) og
Þórður fylgdi þeim snurðulaust eft-
ir. Hilmar sphar sjaldnar opinber-
lega en aðrir okkar bestu manna
svo þaö er alltaf spennandi að
heyra í honum. Ég er þegar farinn
að hlakka til næsta skiptis.
í hehdina voru þetta mjög góðir
tónleikar og góður andi í salnum.
Að lokum vil ég geta þess að Djúp-
ið var sneisafullt, þótt ekki þurfi
reyndar mikið til.