Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1994, Side 27
FÖSTUDAGtTR 7. JANÚAR 1994
i>v Fjölimðlar
Stutt hlé á
tónlistinni
Með örfáum undantekningum
er ástandið á útvarpsrásunum
orðið þannig að 'par heyrist varla
talað orð nema rétt kynning á
næsta lagi og hinar hefðbundnu
upplýsingar um klukkuna og
veðrið. Ef tveir menn taka tal
saman á þessum rásum er yflr-
leitt verið að tala um einhverjar
plötur eða auglýsa (ókeypis að
sjálfsögðu) dansleiki fyrir hljóm-
sveitir. Sennilega er þessu þó
öðruvísi farið á Rás 1.
Undantekningarnar frá þessu
er því þættir sem eru vel þegnir
af mörgum hlustendum. Má
neöia Dagskrá á Rás 2 og morg-
unþátt Eíríks og Þorgeirs á Bylgj-
unni í því sambandi. Þættirnir á
Rás 2 eru fjölbreyttari enda fleiri
sem starfa að þeim en þeir fóst-
bræður Eiríkur og Þorgeir eiga
marga góða spretti í morgunsárið
þegar menn eru að ná áttum.
Það var t.d. ekki hægt annað
en að glotta út í annað í morgun
þegar þeir voru að segja frá nýj-
ustu afrekum Zhírínovskís hins
rússneska. Clinton Bandaríkja-
forseti var nefnilega að lýsa því
yfir að hann ætlaði ekki að hitta
Zhírínovskí í Rússlandsför sinni
innan skamms. Viðbrögð Zhír-
ínovskís voru að lýsa því yfir aö
Ciinton væri heigull og hugleys-
ingi og hann hefði ekkert til Rúss-
lands að gera. Honum væri nær
að vera heima og æfa sig á saxó-
fóninn. Maður getur ekki annað
en vaknað \úð svona gullkorn á
morgnana. Gylfi Kristjánsson
Andlát
Sigríður Jóna Halldórsdóttir frá
Saurhóh lést á Elliheimilinu Grund
miðvikudaginn 5. janúar.
Signý Óiadóttir, dvalarheimilinu
Höfða, Akranesi, lést í Landspítalan-
um 5. janúar sl.
Soffia Kjartansdóttir, Laugavegi 98,
lést á hjartadeild Landspítalans 6.
janúar.
Soffia Kristjánsson, (Margot Sofie
Olsen), dvalarheimilinu Garðvangi,
Garði, áður Hólagötu 5, Njarðvík,
lést í Sjúkrahúsi Keflavíkur 6. jan-
úar.
Friðjón Jónsson frá Hofsósi, Heiðar-
vegi 20, Keflavík, lést í sjúkrahúsi
Keflavíkur 3. janúar.
Jarðarfarir
Jóna Erlendsdóttir, Öldugötu 55,
Reykjavík, sem lést aðfaranótt gaml-
ársdags, verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni þriðjudaginn 11. janúar kl.
15.
Ólafía Friðriksdóttir, Klapparstíg 1,
Reýkjavík, sem andaðist 22. desemb-
er, hefur verið jarðsett í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Gústav Sigurgeirsson múrari, Norð-
urbrún 1, Reykjavík, andaðist í
Landspítalanum 25. desember sl. Út-
fórin hefur farið fram í kyrrþey sam-
kvæmt ósk hins látna.
Gunnar Sigfús Jónsson andaðist í
yífilsstaðaspítala 24. desember 1993.
Útfórin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Alfreð Washington Þórðarson, áður
Vesturhúsum, Vestmannaeyjum,
sem lést 2. janúar á Elli- og hjúkrun-
arheimilinu Grund, verður jarð-
sunginn frá Hveragerðiskirkju laug-
ardaginn 8. janúar kl. 14.
Trausti Jónsson, Hásteinsvegi 9,
Vestmannaeyjum, sem lést sunnu-
daginn 2. janúar st, verður jarðsung-
inn frá Landakirkju laugardaginn 8.
janúar kl. 11.
Þórður Valdimar Þorvaldsson frá
Skerðingsstöðum, Eyrarsveit, verð-
ur jarðsunginn frá Grundarfjarðar-
kirkju 8. janúar kl. 14. Rútuferð verð-
ur frá Umferðarmiðstöðinni kl. 8.30.
Þórdís Þorleifsdóttir, sem lést á
hjúkrunarheimilinu Ljósheimum 2.
janúar, verður jarösungin frá Sel-
fosskirkju laugardaginn 8. janúar kl.
13.
Það eina sem er harðara en þetta kjöt var gamli
liðsforinginn minn.
Lalli og Lína
Seltjarnarnes: Heilsugæslustöðin er opin virka daga kl. 8-17 og 20-21, laugar- daga kl. 10-11. Sími 612070. Hafnarfiörður, Garðabær, Álftanes: Neyðarvakt lækna frá kl. 17-8 næsta morgun og um helgar, sími 51100. Keflavík: Neyðarvakt lækna frá kl. 17-8 næsta morgun og um helgar. Vakthaf- andi læknir er í síma 20500 (sími Heilsu- gæslustöðvarinnar). Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna í síma 11966. Akureyri: Dagvakt frá kl. 8-17 á Heilsu- gæslustöðinni í síma 22311. Nætur- og helgidagavarsla frá kl. 17-8, sími (far- sími) vakthafandi læknis er 985-23221. Uppíýsingar hjá lögreglunni í síma 23222, slökkviliðmu í síma 22222 og Akureyrarapóteki í síma 22445.
Slökkvilið-lögregla Reykjavík: Lögreglan sími 11166 og 0112, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Seltjarnarnes: Lögreglan s. 611166, slökkvilið og sjúkrabifreið s.11100. Kópavogur: Lögreglan sími 41200, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Hafnarfjörður: Lögreglan sími 51166, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 51100. Keflavík: Lögreglan s. 15500, slökkvilið s. 12222 og sjúkrabifreið s. 12221. Vestmannaeyjar: Lögreglan s. 11666, slökkvilið 12222, sjúkrahúsið 11955. Akureyri: Lögreglan s. 23222, 23223 og 23224, slökkvilið og sjúkrabifreið s. 22222. fsaijörður: Slökkvilið s. 3300, brunas. og sjúkrabifreið 3333, lögreglan 4222.
Heimsóknartími Landakotsspítali: Alla daga frá kl. 15-16 og 18.30-19. Barnadeild kl. 14-18, aðrir en foreldar kl. 16-17 daglega. Gjör- gæsludéild eftir samkomulagi. Borgarspítalinn: Mánud.-föstud. kl. 18.30-19.30. Laugard.-simnud. kl. 15-18. Heilsuverndarstöðin: Kl. 15-16 og 18.30-19.30. Fæðingardeild Landspítalans: Kl. 15-16 og 19.30-20.00. Sængurkvennadeild: Heimsóknartími frá kl. 15-16, feður kl. 19.30-20.30. Fæðingarheimili Reykjavíkur: kl. 15-16.30 Kleppsspítalinn: Kl. 15-16 og 18.30- 19.30. Flókadeild: Kl. 15.30-16.30. Grensásdeild: Kl. 16-19.30 virka daga og kl. 14-19.30 laugard. og sunnud. Hvítabandið: Frjáls heimsóknartími. Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15-17 á helgum dögum. Sólvangur, Hafnarfirði: Mánud.-laug- ard. kl. 15-16 og 19.30-20. Sunnudaga og aðra helgidaga kl. 15-16.30. Landspítalinn: Alla virka daga kl. 15-16 og 19-19.30. Barnaspítali Hringsins: Kl. 15-16. Sjúkrahúsið Akureyri: Kl. 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkrahúsið Vestmannaeyjum: Kl. 15-16 og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness: Kl. 15.30-16 og 19-19.30. Hafnarbúðir: Kl. 14-17 og 19-20. Vífilsstaðaspítali: Kl. 15-16 og 19.30-20. Geðdeild Landspítalans Vífilsstaða- deild: Sunnudaga kl. 15.30-17.
Apótek
Nætur- og helgidagaþjónusta apótekanna 1 Reykjavík 7. jan. til 13. jan. 1994, að báöum dögum meðtöldum, verður í Borgarapóteki, Álftamýri 1-5, sími 681251. Auk þess verður varsla í Reykja- vikurapóteki, Austurstræti 16, sími 11760, kl. 18 til 22 virka daga. Upplýsingar um læknaþjónustu eru gefnar í síma 18888. Mosfellsapótek: Opið virka daga frá kl. 9-18.30, laugardaga kl. 9-12. Apótek Garðabæjar: Opið mánudaga- fóstudaga kl. 9-18.30 og laugardaga kl. 11-14. Sími 651321. Apótek Kópavogs: Opið virka daga frá kl. 9-19, laugardaga kl. 9-12. Hafnarfjörður: Norðurbæjarapótek opið mánud. til fimmtud. kl. 9-18.30, Hafnarfjarðarapótek kl. 9-19. Bæði hafa opið fóstud. kl. 9-19 og laugard. kl. 10-14 og til skiptis helgidaga kl. 10-14. Upplýs- ingar í símsvara 51600 og 53966. Apótek Keflavíkur: Opið frá kl. 9-19 virka daga, aðra daga frá kl. 10-12 f.h. Nesapótek, Seltjarnarnesi: Opið virka daga íd. 9-19 nema laugardaga kl. 10-12. Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga kl. 9-12.30 og 14-18. Lokað laugar- daga og sunnudaga. Akureyrarapótek og Stjörnuapótek, Akureyri: Á kvöldin er opið í þvl apó- teki sem sér um vörslun til kl. 19. Á helgidögum er opið kl. 11-12 og 20-21. Á öðrum tímum er Iyfjafræðingur á bak- vakt. Upplýsingar í síma 22445.
Heilsugæsla Söfnin
Ásmundarsafn við Sigtún. Opið dag- lega kl. 13-16. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74: Op- ið daglega nema mánudaga kl. 13.30-16. Árbæjarsafn: Opið í júní, júlí og ágúst. Upplýsingar í síma 84412. Borgarbókasafn Reykjavíkur Aðalsafn, Þingholtsstræti 29a, s. 27155. Borgarbókasafniö í Gerðubergi 3-5, s. ,79122. Bústaðasafn, Bústaðakirkju, s. 36270. Sólheimasafn, Sólheimum 27, s. 36814. Ofangreind söfn eru opin sem hér segir: mánud.-fimmtud. kl. 9-21, fóstud. kl. 9- 19, laugard. kl. 13-16. Aðalsafn, lestrarsalur, s. 27029. Opið mánud.-laugard. kl. 13-19. Grandasafn, Grandavegi 47-, s.27640. Opið mánud. kl. 11-19, þriðjud.-fóstud. kl. 15-19. Seljasafn, Hólmaseli 4-6, s. 683320. Bókabílar, s. 36270. Viðkomustaðir víðs vegar um borgina. Sögustxmdir fyrir börn: Aðalsafn, þriðjud. kl. 14-15. Borgar- bókasafnið í Gerðubergi, fimmtud. kl. 14-15. Bústaðasafn, miðvikud. kl. 10- 11. Sólheimar, miðvikud. kl. 11-12. Lokað á laugard. frá 1.5.-31.8.
Slysavarðstofan: Sími 696600. Sjúkrabifreið: Reykjavík, Kópavogur og Seltjarnames, sími 11100, Hafnarfiörður, sími 51328, Keflavík, sími 20500, Vestmannaeyjar, sími 11955, Akureyri, sími 22222. Krabbamein - Upplýsingar fást hjá fé- lagsmálafulltrúa á miðvikudögum og fimmtudögum kl. 11-12 í síma-621414
Læknar
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn- arnes og Kópavog er í Heilsuvemdar- stöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgidögum allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir, símaráðleggingar og tímapantanir í sími 21230. Upplýsingar um lækna og lyfiaþjónustu í símsvara 18888. Borgarspítalinn: Vakt frá kl. 8-17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (s. 696600) en slysa- og sjúkravakt (slysa- deild) sinnir slösuðum og skyndiveik- um allan sólarhringinn (s. 696600).
Vísir fyrir 50 árum
Föstudaginn 7. janúar: Rússar hefja sókn í Dnjepr-bugðunni
Rússar vilja ekki samvinnu við
stjórn Pólverja í London
35
___________Spakmæli______________
Þegar maður er ungur er hann fullur af
útþrá. Þegar maður er gamall, þráir
hann heim.
C. Sandel.
Kjarvalsstaðir: opið daglega kl. 11-18.
Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi 7:
er opið daglega nema mánud. kl. 12-18.
Listasafn Einars Jónssonar. Lokað í
desember og janúar. Höggmyndagarð-
urinn er opinn alla daga kl. 11-16.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar ó
Laugarnesi er opið mánud.-fimmtud.
kl. 20-22 og um helgar kl. 14-18. Kaffi-
stofan opin á sama tíma.
Náttúrugripasafnið við Hlemmtorg:
Opið sunnud., þriðjud., fimmtud. og
laugard. kl. 13.30-16.
Norræna húsið við Hringbraut: Sýn-
ingarsalir í kjallara: alla daga kl. 14-19.
Bókasafn Norræna hússins: mánud. -
laugardagakl. 13—19. Sunnud. kl. 14-17.
Sjóminjasafn fslands er opið daglega
kl. 13-17 júní-sept. •
J. Hinriksson, Maritime Museum, Sjó-
bg vélsmiðjuminjasafn, Súðarvogi 4, S.
814677. Opiðkl. 13-17 þriðjud.-laugard.
Þjóðminjasafn fslands. Opið daglega
15. maí - 14. sept. kl. 11-17. Lokað á
mánudögum.
Stofnun Árna Magnússonar: Hand-
ritasýning í Ámagarði við Suðurgötu
opin virka daga kl. 14-16.
Lækningaminjasafnið í Nesstofu á Sel-
tjamamesi: Opið kl. 12-16 þriðjud.,
fimmtud., laugard. og sunnudaga.
Bilaiúr
Rafmagn: Reykjavík, Kópavogur og
Seltjamames, sími 686230.
Akureyri, sími 11390.
Keflavík, sími 15200.
Hafnarfjörður, sími 652936.
Vestmannaeyjar, simi 11321.
Hitaveitubilanir:
Reykjavlk og Kópavogur, sími 27311,
Seltjamarnes, sími 615766.
Vatnsveitubilanir:
Reykjavík sími 621180.
Seltjamarnes, sími 27311.
Kópavogur, sínii 985 - 28078
Akureyri, sími 23206.
Keflavík, sími 11552, eftir lokun 11555.
Vestmannaeyjar, símar 11322.
Hafnarfjörður, sími 53445.
Símabilanir: í Reykjavik, Kópavogi,
Seltjamarnesi, Akureyri, Keflavík og
Vestmannaeyjum tilkynnist í 05.
Bilanavakt borgarstofnana, sími
27311: Svarar alla virka daga frá kl. 17
síðdegis til 8 árdegis og á helgidögum
er svarað allan sólarhringinn.
Tekið er við tilkynningum um bilanir á
veitukerfum borgarinnar og 1 öðrum
tilfellum, sem borgarbúar telja sig þurfa
aö fá aðstoð borgarstofnana.
Ti3kyimingar
AA-samtökin. Eigir þú við áfengis-
vandamál að stríða, þá er sími samtak-
anna 16373, kl. 17-20 daglega.
Leigjendasamtökin Hverfisgötu 8-10,
Rvík., sími 23266.
Líflínan, Kristileg símaþjónusta. Sími
91-683131.
Sljömuspá
Spáin gildir fyrir laugardaginn 8. janúar
Vatnsberinn (20. jan.-18. febr.):
Leggðu áherslu á heimilismálin. Anaðu ekki að neinu áður en
lausn hefur fundist á vafasömu máli. Þú ert dálítið niðurdreginn
en hressist þegar á daginn líður.
Fiskarnir (19. febr.-20. mars.):
Það eru gerðar miklar kröfur til þín sem taka á þig tilfmninga-
lega. Hlutimir verða afslappaðri þegar líður á vikuna. Til að þú
njótir þín skaltu vera í fámennum hópi.
Hrúturinn (21. mars-19. april):
Hlutimir ganga að þínum óskum þótt það verði ekki alveg í byrj-
un dagsins. Nú er góður tími til að leggja línurnar í heimilismálun-
um.
Nautið (20. apríl-20. mai):
Þú ert undir mikilh pressu og fellur í sjálfsvorkunn sem þú átt
erfitt með að ná þér upp úr því fólk í kringum þig nennir ekki
að hressa þig við. Slakaðu á í einrúmi.
Tviburarnir (21. mai-21. júní);
Notfærðu þér sambönd með skemmtun og viðskiptum. Stígðu því
út af breiðgötunni til að hitta hjálpsamt og hresst fólk. Verkefnin
verða kreíjandi síðdegis.
Krabbinn (22. júní-22. júlí):
Peningar geta verið yfirþyrmandi í persónulegu sambandi og
ekki endilega til góðs. Þú gætir glaðst yfir unhverfisbreytingu í
kvöld. Happatölur em 11,14 og 28.
Ljónið (23. júlí-22. ágúst):
Það gæti komið upp vandamál í persónulegu sambandi sem kem-
ur þér verulega á óvart og róti á tilfmningarnar. Ljón eiga það
til að vera mjög viðkvæm svo þú verður að vera á varðbergi.
Meyjan (23. ágúst-22. sept.):
Það gæti verið hagur fyrir þig í breytingum á hefðbundnum verk-
um. Gættu þess að vera stundvís og nákvæmur í því sem þú tek-
ur þér fyrir hendur.
Vogin (23. sept.-23. okt.):
Þú færð ekki tækifæri til þess að liggja í leti þótt þig langi til
þess. Þú tapar gullnu tækifæri ef þú tekur þig ekki á.
Sporðdrekinn (24. okt.-21. nóv.):
Þú verður að treysta algerlega á sjálfan þig. Aðrir fást alls ekki
í þau verkefni sem í raun þarfnast samvinnu.
Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.):
Vertu á varðbergi gagnvart misskilningi. Bæði einstaklingar og
hópar ættu að ná árangri. Happatölur em 7,18 og 31.
Steingeitin (22. des.-19. jan.):
Ekki gengur allt eins vel á heimavígstöðvum og þú vonaðist eft-
ir. Vertu þolinmóður. Láttu aðra stíga fyrsta skrefið.
Viltu kynnast nýju fólki?
r •
Hringdu í SIMAstefnumótið
99 1895
Verð 39,90 mínútan