Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1994, Blaðsíða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1994
Viðskipti
Vinnuhópur á vegum ASI, BSRB, VSI, Islensks landbúnaöar og Samtaka iðnaðarins kynntu í gær niðurstöður
úr skoðanakönnun um áhrif átaksins „íslenskt, já takk“ í fjölmiðlum í nóvember og desember. Fyrirhugað er að
halda átakinu áfram og verður þráðurinn tekinn upp að nýju í lok þessa mánaðar. DV-mynd BG
íslenskt ,já takk:
20-30 prósenta
söluaukning
meiriMuti landsmanna sannfæröur um góðan árangur átaksins
enda, eða um 80 prósent, sagðist telja
„Nú stendur yfir könnun á veltu-
og söluaukningu hjá fyrirtækjum
þar sem þau meta söluaukninguna
hjá sér í framhaldi af átakinu „ís-
lenskt, já takk“ í lok síðasta árs.
Fyrsta niðurstaða liggur fyrir upp
úr næstu mánaðamótum en upplýs-
ingar um veltuaukninguna liggja
ekki fyrir fyrr en í mars. Það hefur
þó heyrst að forráðamenn sumra fyr-
irtækja telja að söluaukningin nemi
allt að 20-30 prósentum," segir Lína
G. Atladóttir, starfsmaður hjá Sam-
tökum iðnaðarins.
Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur
ASI, segir að átakið virðist hafa haft
þau áhrif að ekki hafi komið jafn-
margir inn á atvinnuleysisskrá í lok
ársins og búist var við. Innflutningur
hafi dregist saman um tíu til 12 pró-
sent en neyslusamdráttur hafi aðeins
numið um fjórum prósentum. Fyrir-
tækin trúi þvi ekki að um varanlega
aukningu sé að ræða og því leysi
menn aukninguna frekar með yfir-
vinnu en nýju fólki.
Átakið heldur áfram
Aðstandendur átaksins „íslenskt,
já takk“ kynntu í gær niðurstöður
úr skoðanakönnun ÍM Gallup sem
gerð var fyrir jólin. Samkvæmt nið-
urstöðum könnunarinnar telur mik-
ill meirihluti landsmanna, eða tæp-
lega 89 prósent svarenda, að stuðla
megi að minnkandi atvinnuleysi hér
á landi með kaupum á íslenskum
vörum. Enginn marktækur munur
virtist vera á svörum eftir aldri eða
búsetu en í fyrri skoðanakönnunum
hafa íbúar á landsbyggðinni verið
hlynntari kaupum á íslenskri fram-
leiðslu en íbúar í þéttbýli.
Samkvæmt niðurstöðum skoðana-
könnunarinnar tóku svo til allir
landsmenn eftir auglýsingaátakinu
„íslenskt, já takk“, eða tæplega 99
prósent svarenda. Meirihluti svar-
að átakið skilaði mjög miklum eða
frekar miklum árangri og þrír fjórðu
hlutar töldu að átakið hefði þau áhrif
að þeir veldu frekar íslenskar vörur
nú en áður.
Vinnuhópur á vegum Alþýðusam-
bands íslands, BSRB, íslensks land-
búnaðar, Samtaka iðnaðarins og VSÍ
stóð að átakinu „íslenskt, já takk“
og er fyrirhugað að halda átakinu
áfram með áróðri fyrir kaupum á
innlendri vöru á þessu ári. Þráður-
inn verður tekinn upp á nýjan leik í
lok þessa mánaðar í samræmi við
fjölda áskorana frá forsvarsmönnum
fyrirtækja og úr verkalýðshreyfing-
unni og verður þá meðal annars far-
ið inn í skólana.
Skoðanakönnun ÍM Gallups náði
til 1200 manna. Heildarsvörun var
tæp 73 prósent.
-GHS
Álverð hef ur hækkað
Ýsuverð
lækkar
Verð á ýsu á fiskmörkuöunum
hefur lækkað um tæpar 30 krór-
ur, úr tæpum 173 krónum í tæpar
143 þó að sjómannaverkfallið hafi
staðið yfir undanfama daga og
lítiö veriö að gerast á uppboðs-
mörkuðunum. Bensínverðið
helst nokkuð stöðugt en Lands-
vísitalan hefur lækkað talsvert.
Gengi dollarsins hefur ekki
breyst mikið en skráningin í
Kauphöllinni í New York hefur
hækkað nokkuð. -GHS
Álverð hefur hækkað nokkuð frá
síðustu mælingu í desember og er
nú 1133 dollarar. Verð á brúnmink
hefur haldist óbreytt frá því síðast.
Eitthvað virðist vera aö lifna yfir
fiskverðinu og hefur skipasalan er-
lendis hækkað um nokkrar krónur
frá því síðast var mælt um miðjan
desember. Samkvæmt þeim upplýs-
ingum um þorskverð sem bárust á
ritstjórn DV í gær lækkaði slægöur
þorskur í rúmar 98 krónur, ýsa í
tæpar 143, ufsi í 30 en karfi hækkaði
í rúmlega 63 krónur.
-GHS
Útflutningsafurðir íslendinga
1222122222»
160 140 120 100 80 60 Kr/
A fk
kg S 0 N D
360 340
S 0 N D
330
325 : '
320
315 S
310:::
305«:
300::
295
I 120
| 100
1 80*
60
:: Kr/
:: te s 0 N D
■'lÍWIIIMfa ■i'IM.UUIHM
0 N
iDV
DV
Þorgeirog
Ellertræða
breytingu á
loðnuskipi
Forráðamenn Þorgeirs og Eil-
erts hf. á Akranesi eiga nú í
samningaviðræöum við íslenskt
sjávarútvegsfyrirtæki um breyt-
ingar á loðnuskipi í eigu fyrir-
tækisins. Verkiö var boðið út ekki
alls fyrir löngu og buðu forráða-
menn Þorgeírs og Elierts 50 millj-
ónir í verkið eða aöeins hærra en
pólsk skipasmíðastöð en talið er
að Þorgeir og Ellert eigi góða
möguleika á að fá verkið. Harald-
ur L. Haraldsson, framkvæmda-
stjóri Þorgeirs og Ellertshf., sagði
í gær að samningaviöræðurnar
væru á mjög viðkvæmu stigi og
neitaði að gefa frekari upplýs-
ingar.
BMValláog
Steypustöðin
yfirtaka eignir
Hrauns hf.
Pipugerðin hf. að Sævarhöfða í
Reykjavík hefur keypt röradeild
Rekstrarfélagsins Hrauns hf. í
Garðabæ en Hraun hf., sem er í
eigu Iðnlánasjóðs, tók yfir rekst-
ur þrotabús Óss húseininga hf.
fyrir tæpu ári. Björgun hf„ BM
Vallá hf. og Steypustöðin hf. hafa
keypt Breiðhöfða 10 sem var í
eigu Byggingariðjunnar. Þá hefur
BM Vallá hf. keypt helluverk-
smiðjuna sem var í eigu Óss hús-
eininga hf. Pípugeröin hyggst
reka röraframleiðslu enn um
sinn á sama stað og munu nýju
eigendurnir reyna að bjóöa
starfsmönnum áframhaldandi
störf eftir föngum. -GHS
Skagamarkaðurinn:
Tapaði milljón
Siguxður Sverrisson, DV, Akraneá:
Einnar milljónar króna tap
varð af rekstri Skagamarkaðar-
ins á Akranesi í fyrra. Þetta var
fyrsta heila starfsár markaðarins
sem stofnsettur var semt á árinu
1992. Alls voru seld 2300 tonn af
fiski á markaðnum í fyrra fyrir
um 167 milljónir króna. Taprekst-
urinn liggur einkum í þungum
vaxtagjöldum af skammtímalán-
um, að sögn Einars Jónssonar,
framkvæmdastjóra markaðarins.
Júragarður-
inn
heillar
á Skaga
Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi:
Á annað þúsund manns sáu
kvikmyndina Júragarðinn sem
sýnd var í Bíóhöllinni á Akranesi
í síðustu viku. Svo mikii var að-
sóknin að þeim fimm sýningum
sem skipulagðar voru að efnt var
til aukasýningar á myndinni.
Þetta er langmesta aðsókn að
kvíkmynd á Akranesi í nokkur
ár en aðsókn að þessu eina kvik-
myndahúsi bæjarins hefur hrap-
aö jafnt og þétt frá árinu 1980 er
myndbandavæðingin hóf innreið
sína. Þá tók Bíóhöllin i notkun
nýtt hljóðkerfi á sýningum á
myndinni. Styrkur þess er 40-
faldur á við gamla kerfið sem var
í húsinu.