Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1994, Blaðsíða 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1994
Menriing
Framlag ríkissjóös til starfsemi Kvikmyndasjóðs lækkað um 19 milljónir:
Meiri niðurskurður en aðrar
listgreinar hafa mátt þola
- verður starfsemi Kvikmyndasafns stöðvuð?
Á lokaspretti fjárlagagerðar fyrir
árið 1994 var lögbundið framlag til
Kvikmyndasjóðs íslands skert um 10
milljónir króna úr 111 milljónum
króna í 101 milljón. En þar með er
ekki sagan öll sögð. Kvikmyndasjóði
íslands er einnig gert að standa und-
ir rekstri Kvikmyndsafns sem hing-
að til hefur fengið sérstakt framlag
til starfsemi sinnar. Og þegar rekstur
Kvikmyndasafnsins er tekinn með
er skerðingin upp á nítján milljónir
króna sem er mun meiri niðurskurð-
ur en aðrar listgreinar hafa mátt
þola. Þessi niðurskurður hlýtur að
langmestu leyti að bitna á öllum
þeim fjölda sem sækir um styrki í
Kvikmyndasjóð íslands en fyrir
liggja 132 umsóknir og eru það fleiri
umsóknir en nokkru sinni áður.
Áætlað var að úthlutunarnefnd lyki
störfum í þessari viku og um helgina
yrði greint frá niðurstöðum, en
sennilega frestast það, meðal annars
vegna þess að ekki er enn búið að
skipa nýja stjórn Kvikmyndsjóðs ís-
lands en fráfarandi formaður er
Ragnar Arnalds.
í greinargerð ,um niöurskurðinn,
sem Samband íslenskra kvikmynda-
framleiðanda hefur sent frá sér, segir
meðal annars aö niðurskurður þessi
sé slys. Þar segir einnig að á síðustu
árum hafa íslenskar kvikmyndir
verið fjármagnaðar að stórum hluta
með erlendu íjármagni. Þannig hefur
komið fram síaukin viðurkenning á
íslenskri kvikmyndagerð, auk þess
sem erlent fjármagn hefur streymt
inn í landið. Kvikmynd sem styrkt
hefur verið af Kvikmyndasjóði ís-
lands upp á 20 milljónir hafl skapað
gjaldeyristekjur upp á 60-80 milljónir
króna sem hafa runnið að stærstum
hluta beint inn íslenskt efnahagslíf
til greiðslu launa, þjónustu og að-
fanga.
í ályktun stjórnar Kvikmyndasjóðs
er tekið í sama streng og bent á að
kvikmyndalistin er mikilvægur
vaxtarbroddur íslensks menningar-
lífs og almenningur hafi með þátt-
töku sinni, áhuga og aðsókn að ís-
lenskum kvikmyndum hvatt menn
til dáða og er bent á að ekki megi
glutra niður þeim árangri sem þegar
hefur náðst en þótt listgreinin sé ung
hér á landi hafa íslenskar kvikmynd-
ir vakið heimsathygli.
Vitað er að með þessum niður-
skurði verða eínhverjir kvikmynda-
gerðarmenn, sem lifað hafa í voninni
um styrk úr Kvikmyndasjóði, af pen-
ingum og öll áform eru þá sett í bið-
stöðu en víst er að sumir sem nú
sækja um styrk hafa sótt um styrk í
nokkur ár án þess að fá nokkuð. Ein
hugmynd, sem komið hefur upp á
yfirborðið til úrbóta fyrir úthlutun-
arsjóðinn, er að féð, sem þarf að nota
til reksturs Kvikmyndasafnsins,
verði notað til úthlutunar enda er
það skoðun einstakra manna að AI-
þingi hafi með þessari breytingu í
raun lagt Kvikmyndasafnið niður.
-HK
Þjóðleikhúsið frumsýnir Seið skugganna:
Nöturlegar aðstæður O’Neills á efri árum
Fyrsta leikritið sem Þjóðleikhúsið
frumsýnir á nýju ári ári er nýtt leik-
rit, Seiður skugganna, eftir eitt eftir-
tektarverðasta samtímaleikskáld í
Evrópu, Lars Norén. Leikritið lýsir
nöturlegum aðstæðum bandaríska
leikskáldsins Eugene O’Neill á efri
árum. Helgi Skúlason fer með hlut-
verk O’Neills og Helga Bachmann
með hiutverk þriðju eiginkonu hans,
Karlottu. Synir hans tveir, sem koma
mikið við sögu, leika Pálmi Gestsson
og Hilmar Jónsson.
Atburðarásin fer fram á einni dag-
stund árið 1949 á sextíu og eins árs
afmæh O’Neills. Hann haföi þá dreg-
ið sig í hlé frá skarkala heimsins og
sest að ásamt Karlottu í afskekktu
húsi við strönd Atlantshafsins. Einu
afmæhsgestimir eru tveir synir
O’Neills af fyrri hjónaböndum og
hefur hvor um sig lifað í skugga föð-
ur síns, í skugga frægðar hans og
skugganum af þeirri áfengis- og lyfja-
. fíkn sem fylgt hefur fjölskyldunni.
Lars Norén lætur O’Neih í svipaða
aðstöðu og faöir O’Nehls mátti um-
bera í Dagleiðinni löngu inn í nótt
og verður Seiður skugganna að telj-
ast ahsérstæð spegilmynd af því
fræga leikriti. Auk þess sem leikritið
fjallar um þann veruleika sem
O’Neill hvorki þorði né viidi skrifa
um, það er samband hans við Karl-
ottu og synina. Þá fjallar það einnig
um skáldið sjálft sem barðist hetju-
legri baráttu til að losna úr viðjum
auðkeyptra vinsælda og eigin áfeng-
issýki, rithöfundinn sem varð að
hætta ritstörfum vegna Parkinsons-
veiki. Helga Bachmann i hlutverki Karlottu, þriðju eiginkonu Eugene O’Neill og Pálmi Gestsson sem leikur son O’Neills
-HK frá fyrra hjónabandi.
Gunnar B. Dungal ásamt styrkþegunum, Guðrúnu Einarsdóttur og Halldóri
Ásgeirssyni. f DV-mynd BG
Listasjóður Pennans:
Halldór og Guðrún
hlutu styrk
Hahdór Ásgeirsson myndlistar-
maður og Guðrún Einarsdóttir
myndlistarmaður fengu í síðustu
viku styrk úr Listasjóði Pennans en
afhent var úr sjóðnum í annað sinn.
Sjóðurinn var stofnaður í tilefni 60
ára starfsafmæhs Pennans 1992 til
minningar um hjónin Baldvin Páls-
son Dungal og Margréti Dungal.
Halldór Ásgeirsson, sem fékk 300
þúsund króna styrk, stundaði mynd-
listarnám í París árin 1977-1980 og
1983-1986. Hann hefur haldið á annan
tug einkasýninga hér á landi og er-
lendis og tekið þátt í fjölda samsýn-
inga. Verk hans eru einkum skúlpt-
úr.
Guðrún Einarsdóttir, sem fékk 200
þúsund króna styrk, er hstmálari.
Hún stundaði nám við Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1984-1989. Guð-
rún hefur haldið átta einkasýningar
hér á landi og tekið þátt í jafnmörg-
um samsýningum.
Stjórn Listasjóðs Pennans skipa
þrír menn. Þeir eru nú Gunnar B.
Dungal, Hringur Jóhannesson list-
málari, fulltrúi SÍM, og Bjarni Daní-
elsson, skólastjóri Myndlista- og
handiðaskólaíslands. -HK
OlafsAmaí
Ólafur Árni Bjarnason óperu-
söngvari tók þátt i söngkeppni í
New York dagana 4.-5. janúar og
stóð sig mjög vel. Hann var einn
af þrjátíu og tveimur söngvurum
sem komust í úrsht og í úrshta-
keppninni lenti hann í 3. sæti og
vann sér inn 5000 dollara. Þetta
er mikill sigur fyrir Ólaf Árna en
meðal þátttakenda voru söngvar-
ar sem hafa sungið við Metro-
poiitanóperuna. í dómnefndinni
voru meðal annarra óperusöng-
konurnar Renata Scotto og Mari-
lyn Horne og hijómsveitarstjór-
inn Henry Lewis. Það er annars
af Ólafi að frétta aö hann hefur
nýlega gert samning við þekkta
umboðsskrifstoíú, Columbia Art-
ist Management, sem hefur á sín-
um snærum marga af þekktustu
óperasöngvumm nútímans.
Fyrsta verkefnið í þessari sam-
vinnu verður hlutverk Alfredos í
La Traviata í óperunni í Palma í
mars og apríl.
VerkStanleys
BrouwnáAnn-
arrihæð
I sýningarsalnum Önnur liæð
hefur verið opnuð sýning á verk-
um Stanleys Brouwn. Verk hans
hafa verið sýnd um alla Evrópu
og er hann nú prófessor við Lista-
akademiu Hamborgar. Verk
Brouwns fjalla um göngur, vega-
lengdir og mælieiningar. Hefur
hann unnið samfellt, afar kerfis-
bundið og á vísindalegan hátt að
verkum sínum frá því um 1960,
mörgum árum áður en byrjað var
að tala um hugmyndalist. Hann
er nú talinn brautryðjandi þeirr-
ar tegundar hstar. Á yfirborðinu
virðast verkin afar einföld og rök-
rétt en að baki liggur óvenjulegt
vinnuferh og þegar grannt er
skoðað eru niðurstöður oft
óvenjulegar. Sýningin er opin á
miðvikudögum frá kl. 2-6.
íslensk Ijóð
áensku
Á tveimur nýafstöðnum lista-
hátíðum, sem haldnar voru i Lon-
don og Essex, voru íslensk Ijóð-
skáld áberandi. Matthías Jo-
hannessen las úr bók sinni, The
Naked Machine, sem mniheldur
ljóð sem Marshah Brement þýddi
yfir á ensku og gefin var út í
Englandi. Fór lesturinn fram í
salarkynnum hins virta Ijóðafé-
lags,.Poetry Society. Á norrænu
hátíðinni í Essex voru Sjón og
Linda Vhhjálmsdóttir gestaskáld
og hafa nú verið gefnar út
ljóðabækur í Englandi með ljóð-
um þeirra sem eru bæði á ís-
lensku og ensku. Nefnist bók
Sjóns Night of the Iæmon og bók
Lindu Mona Lisa. Önnur íslensk
ijóðskáld, sem komu fram, voru
Sigfús Bjartmarsson, Bragi Ólafs-
son, Einar Már Guðmundsson og
Elísabet Jökulsdóttir.
Elsti blandaði
kórinnsextugur
Sgurjón ]. Siguxðsson, DV, ísafiröi:
Sunnukórinn á ísafiröi verður
sextugur 25. janúar næstkomandi
en kórinn er elsti starfandi bland-
aöi kórinn á landinu. Margt mun
vera í deiglunni th að minnast
þessara merku tímamóta í starf-
semi kórsins. Hápunkturinn
verður þegar kórinn syngur með
Sinfóníuhljómsveit íslands i júní
næstkomandi. Það er ósk kórsins
að allir þeir er hafa sungið með
honum í gegnum tíðina og treysta
sér til láti sjá sig í röðum kórfé-
laga þannig að hægt verði aö
mynda einn stærsta kór sem sést
hefur á ísafirði.