Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1994, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1994
25
Sviðsljós
Leikarar úr Þjóðleikhúsinu aðstoöa Magnús Pálsson
viö listsýningu hans sem opnuð var í Nýlistasafninu
á laugardag. Efniviður sýningarinnar eru raddskúlp-
túrar og hlutir unnir úr sápu. Á myndinni eru frá
Vinstri: Arnar Jónsson, Edda Jónsdóttir, Eyjólfur Hall-
dórsson, Eyvindur Erlendsson, lístamaðurinn Magnús
Pálsson og Kristbjörg Kjeld.
baráttu sina með því að halda fjáröflunarsamkomur.
Eftir því sem heimildír herma var fyrsti fláröflunar-
kvöldverðurinn að þessari fyrirmynd haldinn hér á
landi á fóstudagskvöld. Það voru stuðningsmemi
Gunnars Jóhanns Birgissonar sem stóðu fyrir þessu
en sá sem hafði yfirumsjón með matseldinni var mat-
reiðslumeistarinn Sigurður L. Hall.
Fjölmenni var við opnun mynd-
listarsýninga á Kjarvalsstöðum á
laugardag, enda ólikar og fjöl-
breyttar sýningar á ferð. Þar voru
m.a. þau Finnbogi Pétursson,
Róska og Kokkur kyrjan kvasir.
María Reyndal Og Ketill Larsen
voru á sýningu Magnúsar Pálsson-
ar sem nefnist Varla... og var opn-
uö á laugardag. Þar var m.a. lifandi
flutningur á „raddskúlptúrum“ í
umsjá leikara úr Þjóðleikhúsinu.
Þolfimi er eitt af vinsælustu áhugamálum Islendinga og þúsundir þeirra
æfa hana á hverjum degi. Þessi áhugi endurspeglaöíst í aösókninni á ís-
landsmeistarakeppnina í þolfimi, sem haldin var á Hótel íslandi á laugar-
dagskvöld, þar sem fullt var út úr dyrum. DV-mynd HMR
w1 : j ' *■. jBBSaB ; r ■ p; . . vaJ
X ,. * J V ; ' ]
Fréttir
Sj ómannaverkfallið:
Farvegurgegn
kvótabraskinu
„Þessi nefnd er eins konar far-
vegur til að taka á kvótabraskinu.
Náist einhver útfærsla má kannski
eygja einhverja lausn seinna meir
í þessu deilumáli," segir Guðjón
A. Kristjánsson, formaöur Far-
manna- og fiskimannasambands
íslands.
Fulltrúar sjómanna svöruðu í
nótt tilboði útgerðarmanna um að
komið verði á fót nefnd sem taki á
kvótabraski. Tillaga útgerðar-
manna gengur út á að nefndin verði
skipuð fulltrúum beggja aðila og
að sjómenn geti leitað til hennar
undir nafnleynd telji þeir sig þving-
aða til þátttöku í kvótakaupum.
Sjómenn telja slíka nefnd koma til
álita en vilja tryggja aö ákvarðana-
ferlið innan hennar leiði til hald-
bærra úrskurða.
Lítt þokaðist í samkomulagsátt
um gerð sérkjarasamninga hjá
deiluaðilum í gær. Fundir hófust
að nýju hjá Ríkissáttasemjara í
morgun og er tahð að það skýrist
í dag hvort grundvöllur sé fyrir
lausn sjómannaverkfallsins. Verk-
fallið hefur nú staðið í 10 daga.
-kaa
Reykjavíkurborg keypti
hitaréttindi í Hvammsvík
í gær var gengið endanlega frá
því að Reykjavíkurborg kaupir
borholu og heitavatnsréttindi í
Hvammsvík í Kjós. Það er Lög-
reglufélag Reykjavíkur sem á jörð-
ina.
Jón Pétursson, formaður félags-
ins, sagöi að borgin hefði keypt
heitavatnsréttindin fyrir 25 millj-
ónir króna. Skuldir Lögreglufé-
lagsins vegna borana á jöröinni og
kaupanna á Hvammsvík voru
orðnar 75 mUljónir króna.
„Salan á heitavatnsréttíndunum
bjargar okkur fyrir horn,“ sagði
JónPétursson. -S.dór
Tilkyimingar
Félag eldri borgara
í Reykjavík og nágr.
Leikritið Margt býr i þokunni verður
sýnt miðvikudag og laugardag kl. 16 og
sunnudag kl. 20.30. Miðapantanir á skrif-
stofu félagsins s. 28812, á kvöldin í s. 12203
Brynhildur og 10730 Sigrún.
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Spilaður verður tvimenningur aö Fann-
borg 8 (Gjábakka) kl. 19 í kvöld.
Junior Chamber
félagar
ársreikningar hreyfingarinnar fyrir
tímabiiið 01.06.92-31.12.93 liggja frammi
til skoðunar miðvikudaginn 12. janúar
kl. 10-14 að Hellusundi 3.
Gæludýraverslun
í Faxafeni
Opnuð hefúr verið gæludýraverslunin
Gæludýrahúsið hf. smásala/heildsala að
Fákafeni 9, 2. hæö, Reykjavík. Eigendur
eru Henry Berg Guðmundsson og Guð-
mundur Sævar Jónsson. Á boðstólum er
mikið úrval gæludýra ög gæludýrafóð-
urs.
ÞJÓÐIEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Smíðaverkstæðið kl. 20.30.
BLÓÐBRULLAUP
eftir Federico Garcia Lorca
Þýðing: Hannes Sigfússon.
Tónlist: Hilmar örn Hllmarsson.
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson.
Leikmynd og buningar: Elin Edda Árna-
dóttir.
Leikstjórn: Þórunn Siguröardóttir.
Leikendur: Briet Héðinsdóttir, Baltasar
Kormákur, Ingvar E. Sigurðsson, Stein-
unn Ólina Þorsteinsdóttir, Guörún Þ.
Stephensen, Edda Arnljótsdóttir, Hjalti
Rögnvaldsson, Guðrún S. Gisladóttir,
Rúrik Haraldsson, Ragnheiður Steins-
dóttir, Bryndís Pétursdóttir, Vigdis Gunn-
arsdóttlr.
Frumsýning fös. 21. jan., mið. 26. jan.,
fim. 27. jan.
Sýning er ekki vlð hæli barna. Ekki er
unnt að hleypa gestum i salinn eftir að
sýning er hafin.
Litla sviðið kl. 20.
SEIÐUR SKUGGANNA
eftir Lars Norén
Frumsýning laud. 15. jan., uppselt, sud.
16.jan.,föd. 21. jan.
Ath. Ekki er unnt að hleypa gestum í
salinn eftir aö sýning er hafin.
Stóra sviðið kl. 20.00
MÁVURINN
eftir Anton Tsjékhof
7. sýn. lau. 15. jan., nokkur sæti laus, 8.
sýn. sun. 23jan.
ALLIR SYNIR MÍNIR
eftir Arthur Miller
Fös. 14. jan. nokkur sæti laus., fim. 20.
jan.,fös. 21.jan.
KJAFTAGANGUR
eftir Neil Simon
Fim. 13. jan., lau. 22. jan., fös. 28. jan.
Ath. fáar sýningar eftir.
SKILABOÐASKJÓÐAN
eftir Þorvald Þorsteinsson
Ævintýri með söngvum
Lau. 15. jan. kl. 14.00, nokkur sætl laus,
sun. 16. jan. kl. 14.00, nokkur sæti laus,
sud. 23. jan.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudaga frá 13.00-18.00
og fram að sýningu sýningardaga. Tekið
á móti simapöntunum virka daga
frákl.10.
Græna linan 9961 60.
LEIKFÉLAO
MOSFELLSSVEITAR
„ÞEJTA
REDDAST.
í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ
Kjötfarsi meðeinum sálmi
effir Jón St. Kristjánsson.
3. sýn. fðs. 14. jan., uppselL, 4. sýn.
sunnud. 16. jan.kl.20.30.
Miðapantanir i sima 667786
allansólarhringlnn.
ÍSLENSKA ÓPERAN
__iim
É VGENÍ ÖNEGÍN
eftir Pjotr I. Tsjajkovski
Texti eftir Púshkín í þýðingu
Þorsteins Gylfasonar.
Sýning laugardaglnn 15. janúar kl. 20.
Laugardaginn 22. janúar kl. 20.
Miðasalan er opin frá kl.
15.00-19.00 daglega.
Sýningardaga til kl. 20.
SÍM111475-
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA.
Munið gjafakortin okkar
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Stóra sviðið
EVA LUNA
Eva Luna eftir Kjartan Ragnarsson og
Óskar Jónasson
3. sýn. mið. 12. jan., rauð kort gilda, upp-
selt.
4. sýn. fimd. 13. jan., blá kort gilda, uppselt.
5. sýn. sund. 16. jan., uppselt, gul kort gilda
örfá sæti laus.
6. sýn. flmd. 20. jan., græn kort gilda, fáein
sæti laus.
7. sýn. föd. 21. Jan., hvít kort gilda, uppselt.
8. sýn. sund. 23. jan., brún kort gilda, upp-
selt.
Fim. 27. jan., fös. 28. jan., sun. 30. jan.
Stóra svið kl. 20.00.
SPANSKFLUGAN
eftir Arnold og Bach
35. sýn. föstud. 14. jan. 15. jan. Fáar sýn-
Ingar eftir.
Stóra sviðiðkl. 14.00
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Sunnud. 16. jan. sunnud. 23. jan., næstsið-
asta sýnlng. 60. sýn. sunnud. 30. jan. sið-
asta sýning.
Litla sviðið kl. 20.00.
ELÍN HELENA
eftir Árna Ibsen
40. sýn. fimmtud. 13. jan., föstud. 14. jan.,
laugard. 15. jan.
Ath.i Ekki er hægt að hleypa gestum inn í
salinn eftlr að sýning er hafln.
Miðasala er opin kl. 13.00-20.00 alla
daga nema mánudaga. Tekið á móti
miðapöntunum i sima 680680 kl.
10-12 alla virka daga.
Bréfasími 680383.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavikur -
Borgarleikhús.
Leikfélag Akureyrar
\\mm/
UlU/
.M aKasaga....
Höfundur lelkrita, laga og söngtexta:
Ármann Guðmundsson, Sævar Sigur-
geirsson og Þorgeir T ryggvason
Leikstjórn: Hlín Agnarsdóttir
Leikmynd og búningar: Stígur Stelnþórs-
son
Lýsing: Ingvar Björnsson
Leikendur: Saga Jónsdóttir, Aðalsteinn
Bergdal, Rósa Guðný Þórsdóttir, Sigur-
þór Albert Heimisson, Ingibjörg Gréta
Gisladóttir, Skúli Gautason, Sigurveig
Jónsdóttir, Sigurður Hallmarsson, Dofri
Hermannsson og Oddur Bjarni Þorkels-
son.
Undirleikari: Reynir Schlöth
Föstud. 14. jan.kl. 20.30.
Laugard. 15. jan. kl. 20.30.
Miðasalan er opin alla virka kl. 14-18
og fram að sýn. sýningardaga.
Sunnud. kl. 13-15.
Símsvari tekur vlð pöntunum utan af-
greiðslutima. Sími 24073.
Greiðslukortaþjónusta.