Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1994, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994
3
Fréttir
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra:
Meira en þriðjungur at-
vinnulausra ófaglært fólk
- langstærsti aldurshópur atvinnulausra er 20-29 ára
Jóhanna Sigurðardóttir kom með
ýmsar fróðlegar tölulegar upplýs-
ingar varðandi atvinnuleysið í ræðu
sem hún flutti á Alþingi í utandag-
skrárumræðunni í gær. Þar kom
meðal annars fram að meira en þriðj-
ungur atvinnulausra í nóvember síð-
astliönum væri ófaglært fólk. Hún
sagði nauðsynlegt að stjórnvöld
hygðu sérstaklega að því hvemig við
þessari staðreynd yrði brugðist, ekki
síst í ljósi þess hve hátt hlutfall þetta
væri þegar til þess væri litið að 17
prósent vinnandi fólks í landinu
væri ófaglært.
Næst á eftir ófaglærðu fólki kemur
verslunarfólk en það var 12 prósent
atvinnulausra í nóvember.
Jóhanna sagði að þegar Utið væri
til aldursskiptingar atvinnulausra
væri stærsti hópurinn á bilinu 20 til
29 ára eða um 2.100 manns. Því næst
kæmi aldurshópurinn 30 til 39 ára
eða 1.500 manns.
Þá sagði félagsmálaráðherra að
aukning hefði orðið á langtimaat-
vinnuleysi. Þeim sem hefðu verið án
atvinnu í 52 vikur eða lengur hefði
fjölgað úr 318 í nóvember 1992 í 479
í nóvember 1993. Flestir atvinnu-
lausra, eða 2.500 manns í nóvember
síðasthðnum, hefðu verið atvinnu-
lausir í 4 til 12 vikur og tæplega 1.300
manns í 13 til 25 vikur.
3000
2000
1000
-1000
-2000
-3000
-4000
-5000
M.S
c 2
vO
mm
Einar fellur frá kæru á Guðjón:
Bit þjálfarans metin
á 100 til 200 þús-
und krónur
Máli Guðjóns Þórðarsonar,
knattspymuþjálfara hjá KR, sem
beit Einar Kárason rithöfund, er
lokið. Málinu lauk með sátt utan
réttar og féllst Guðjón á að greiða
Einari bætur fyrir athæfi sitt.
Forsaga málsins er sú að Einar
var fenginn til að vera ræðumað-
ur á lokahófi knattspyrnumanna
í september síðastliðnum. Kom
tU átaka á miUi þeirra sem end-
uðu með því að Guðjón beit í hönd
Einars og andUt. Einar kærði
málið til RLR en það var síðan
sent til rannsóknar tU lögregl-
unnar á Akranesi.
Rannsókn leiddi í ljós að lík-
amsárásin þótti ekki það alvarleg
að fallist var á sátt utan réttar.
Ekki fengust nákvæmar upplýs-
ingar um hve háa fjárhæð Guðjón
féUst á aö greiða Einari en sam-
kvæmt heimildum DV mun það
vera á annað hundrað þúsund
krónur. -pp
Þjóf ur gripinn á þingi
„Við urðum fyrir því á þriðjudag-
inn hér í Austurstræti 14, þar sem
við erum með skrifstofur, að pen-
ingaveski var stolið og í fyrradag var
einn gripinn hér inni,“ segir Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, alþingis-
maður KvennaUstans.
í ræðu á Alþingi í gær fjallaði Ingi-
björg um slæmt atvinnuástand um
þessar mundir og það sem því fylgir.
„Þeir sem eru kannski aðþrengdastir
í samfélaginu, sem er ekki síst úti-
gangsfólk, verða enn verr settir í
samfélaginu en áður og grípa tU þess-
ara ráða,“ segir Ingibjörg.
Hún segist ekki vita tU þess að fleiri
dæmi séu um það að stolið hafi verið
veskjum frá þingmönnum en starfs-
fólk í Austurstræti 14 hafi einnig
orðiðvartviðþetta. -pp
Þá sagði Jóhanna að Húsnæðis-
stofnun hefðu borist 280 umsóknir
um aðstoð vegna greiðsluerfiðleika.
Af þeim yæru 32 prósent vegna at-
vinnuleysis og 35 prósent vegna
verulega minnkandi tekna.
Það kom fram í máh Jóhönnu að
atvinnulausum hefði fjölgað aö með-
altah um 33 prósent frá nóvember til
desember sl. en hefði fjölgað um 32
prósent frá því í nóvember 1992. Und-
anfarin 10 ár hefði atvinnuleysi auk-
ist um 45 prósent að meðaltah frá
nóvember til desember.
Ráðherra nefndi sem dæmi um
þann mikla samdrátt sem orðið hefur
í atvinnulífinu að ársverkum hjá fyr-
irtækjum í landinu hefði fækkað um
6.800 síðan 1988. Mest hefði þeim
fækkað í iðnaði eða um 4.200 árs-
verk. Fækkað hefði um 1.400 ársverk
í verslun, veitinga- og hótelrekstri. í
landbúnaði væri fækkunin 570 árs-
verk, um 450 í peningastofnunum,
315 í samgöngum og fjarskiptastarf-
semi. Aðeins hefði orðiö aukning í
ýmissi þjónustustarfsemi, eða um
200 ársverk, og fiskveiðum um 90
ársverk.
Aftur á móti hefði orðið aukning í
starfsemi hins opinbera um 2.100
ársverk á þessum tíma og 650 í ann-
ari starfsemi sem þýddi að þegar á
heildina væri litið hefði ársverkum
fækkað um 4.000 á árunum 1988 til
1993. -S.dór
16500
frumsýna spennutryllinn
AÐALHLUTVERK: BRUCE WILLIS, SARAH JESSICA PARKER,
TOM SIZEMORE OG DENNIS FARINA (ANOTHER STAKEOUT).
FRAMLEIÐANDI: ARNON MILCHAN (FALLING DOWN OG UNDER SIEGE)
LEIKSTJÓRI: ROWDY HERRINGTON (ROAD HOUSE).
Bruce Willis og Sarah
Jessica Parker eiga í höggi
við útsmoginn og stórhættu-
legan fjöldamorðingja sem
leikur sér að lögreglunni
eins og köttur að mús.
/