Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1994, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1994, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 1994 Fréttir Utandagskrárumræður á Alþingi í gær um málefni ríkisútvarpsins: Davíð sendi Heimi bréf eftir uppsögn Hraf ns - Ólafur Ragnar krafðist birtingar á bréfinu, ella segi Davíð af sér Snörp orðaskipti urðu i utandagskrárumræðu á Alþingi í gær í framhaldi af brottvikningu aðstoðarmanns útvarpsstjóra. Hér hlustar Davíð Oddsson forsætisráðherra á umræðuna með aðstoðarmanni sfnum Eyjólfi Sveins- syni. DV-mynd GVA Selfoss: 16 frambjóðendur í próf kjöri Sjálf- stæðisflokksins PrófRjör Sjálfstæðisflokksins á Selfossi fer fram laugardaginn 19. febrúar. Þrír af fjórum bæjarfuU- trúum flokksins gefa kost á sér til endurkjörs en Bryndís Brynjólfs- dóttir, oddviti listans í síðustu kosningum, gefur ekki kost á sér aftur. Sjálfstæðisflokkurinn hefur flóra af níu bæjarfulltrúum. 16 frambjóðendur eru í kjöri: Auðunn Hermannsson mjólkur- verkfræðingur, Björgvin Helgason stýrimaður, Bjöm Ingi Gíslason bæjarfuRtrúi, Einar Gunnar Sig- urðsson trésmiður, Guðmundur Steindórsson aöstoðarvarðstjóri, HaUdór PáU HaUdórsson fram- haldsskólakennari, Ingunn Guð- mundsdóttir bæjarfuUtrúi, Jón Öm Amarson tæknifræðingur, Kristín Pétursdóttir þjónustufuU- trúi, Magnús Hlynur Hreiðarsson blaðamaður, Pálmi EgUsson vél- stjóri, Ragnlúldur Jónsdóttir með- ferðarfuUtrúi, Sigurður Jónsson bæjarfuUtrúi, Steinar Árnason framkvæmdastjóri, Sæunn Lúö- víksdóttir húsmóðir og Þórarinn Jóhann Kristjánsson kennari. Prófkjörið er opið öUum sjálf- stæðismönnum og þeim sem undir- rita stuðningsyflrlýsingu við flokk- inn. -GHS „Ég vU spyrja hæstvirtan forsætis- ráðherra út í það bréf sem Davíð Oddsson forsætisráðherra skrifaði Heimi Steinssyni þegar Hrafn Gunn- laugsson var rekinn úr embætti dag- skrárstjóra. Það er nefnUega komið í ljós að forsætisráðherra, Davíð Oddsson, sem hefur lýst því hvað eftir annað á opinberum vettvangi að hann hafi engin afskipti haft af brottkvaðningu Hrafns Gimnlaugs- sonar, né heldur endurráðningu hans til Sjónvarpsins, skrifaði út- varpsstjóra, Heimi Steinssyni, bréf þegar hann rak Hrafn Gunnlaugsson frá störfum dagskrárstjóra. Það hef- ur verið staðfest aö þrír embættis- menn útvarpsins hafa séð þetta bréf og nú í dag staðfesti Heimir Steinsson útvarpsstjóri í viðtali viö mig að hann hefði fengið þetta bréf,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson í utandag- skrárumræðu á Alþingi í dag þegar afskipti forsætisráðherra af málefn- um ríkisútvarpsins voru rædd. Ólafur Ragnar skoraði á Davíð að birta framangreint bréf eUa ætti hann að segja af sér. Forsætisráð- herra svaraði því m.a. tíl að Ólafur Ragnar hefði fengið vitneskju um einkabréfið með lævísum hætti. Ól- afúr Ragnar viðurkenndi í raun að hann hefði fengiö staðfestingu á tíl- vist bréfsins með því að leggja gUdru fyrir útvarpsstjóra þegar hann spurði þann síðamefnda út í það. „Ég hef heyrt að í bréfmu séu setn- ingar á þá leið hvers vegna sé verið að ráðast á minn æskuvin og það af manni sem hafi fengið þetta embætti frá okkur í Sjálfstæðisflokknum. Ég ætla ekki að fuUyrða hér hvort það eru rétt orð en það knýr auðvitað á um það að hæstvirtur forsætisráð- herra birti það bréf,“ sagði Ólafur Ragnar einnig í ræðu sinni. Forsætisráðherra kvaðst ekki taka Ólaf Ragnar alvarlega, sérstaklega hvað varðaði áskorun hans um að Davíð segði af sér, og hann myndi aldrei vUja sitja sem forsætisráö- herra í skjóU Ólafs Ragnars. Forsætisráðherra kvað ekki minnsta tUefni til að sökkva sér með eins ósmekklegum hætti í umræöur rnn afskipti hans, sem starfandi menntamálaráðherra, og fund hans og tveggja embættismanna og Heimis Deilur framsóknarmanna á Eskifirði: Uppstillingarnefnd haf naði prófkjöri DeUur hafa staðið miUi framsókn- armanna á Eskifirði um uppstillingu á Usta fyrir sveitarstjómarkosning- amar í vor. UppstiUingamefnd hafn- aði beiðni nokkurra framsóknar- manna um að halda prófkjör og neit- aði EmU Thorarensen, útgerðar- stjóra og fyrrverandi formanni Framsóknarfélagsins á staðnum, um sæti ofarlega á Ustanum af ótta við að efla stöðu Hraðfrystihúss Eski- fjaröar enn frekar. EmU er starfs- maöur Hraðfrystihússins. TUlaga uppstillingamefndar var samþykkt á félagsfundi á sunnudags- kvöld. Samkvæmt henni em fjórir efstu menn á Ustanum þessir: Sigurð- ur Hólm Freysson, Unnar Björgúlfs- son, Friðgerður Maríasdóttir og Al- rún Kristmannsdóttir. Uppstillingin hefúr verið nokkuð umdeUd vegna þess að þrír frambjóðendanna tengj- ast mönnum í uppstillingamefnd- inni. Þannig er Friðgerður eiginkona Jóns Baldurssonar í uppstilUngar- nefndinni og Sigurður tengist þeim fjölskylduböndum. Þá er Alrún Kristmannsdóttir dóttir Kristmanns Jónssonar, formanns nefndarinnar. „EmU vUdi komast ofarlega á Ust- ann en hér er um svo margt ágætt fólk að velja. UppstilUngamefnd var kosin tíl aö stUla upp lista á aðal- fundi framsóknarfélagsins og þess vegna héldum við því verki áfram. í svona bæ er erfitt að komast hjá því að einhveijir séu eitthvað svoUtið tengdir. Sigurður Freysson er ekkert tengdur mér og það er ekki mitt verk að dóttir mín fór í fjórða sætið. Það er ekkert athugavert við það, hún stendur alveg fyrir sínu,“ segir Krist- mann Jónsson. -GHS Mm y ■ A ■ ) w j fkf i h i|| m 1 M \Lt- íi 111 i : ffit , 'i ifi Gospelsöngkonan Etta Cameron söng f Bústaðakirkju um helgina, og f gærkvöldi, ásamt kór og barnakór kirkjunnar við mikinn fögnuö kirkju- gesta. Etta Cameron er fædd á Bahamaeyjum en býr í Danmörku og það- an fer hún i tónleikaferðir vfða um Evrópu. DV-mynd ÞÖK Steinssonar varðandi uppsögn Art- húrs Björgvins BoUasonar, aðstoðar- manns útvarpsstjóra. „Ég spuröi ein- göngu um að hvort þetta bréf væri skrifað með vitneskju útvarpsstjóra. Hann svaraði því til að svo væri ekki,“ sagði Davíð. Forsætisráðherra upplýsti jafn- framt að útvarpsstjóri hefði verið spurður um það á fundinum hvort einhver ummæli, sem Hrafn Gunn- laugsson viðhafði og var síðan rek- inn út af á síðasta ári, hefðu nálgast þau ummæh sem Arthúr Björgvin skrifaði í nafni ríkisútvarpsins. „Útvarpsstjóri svaraöi því tU að það hefðu engin slík ummæU verið höfð í frammi þegar honum þótti til- efni tU að reka fastráðinn starfsmann eins og var í bréfi frá þessum starfs- manni útvarpsins sem reyndar var lausráðinn í starf sem ekki er sett upp í reglum eða lögum ríkisútvarps- ins,“ sagði Davíð. „Því fer fjarri að ég hafi beðið um að þessi tUtekni starsmaður yrði rekinn," sagði Dav- íö. -Ótt Stuttar fréttir Vinnslustöðinselur Vinnslustöðin í Vestmannaeyj- um hefur selt frystitogarann Guðmundu Torfadóttur tU út- landa til að grynnka á skuldum fyrirtækisins. Morgunblaöið greindi frá þessu. tyonisiimaoir aoroior^u Þrjár eyðnismitaðar . mæður hafa fætt börn hér á landi á und- anfórnum þremur árum. Tvö barnanna eru ekki smituð en óvist er um hið þriðja sem einnig á eyönismitaöan föður. greindi frá þessu. Bylgjan Þrir íslenskir hjartasjúklingar hafa fengið tölvustýrðan hjarta- gangráð. Samkvæmt frétt Bylgj- unnar hefur gangráðurinn ger- breytt lffi sjúklinganna. Vill auka þorskkvótann Sighvatur Björgvinsson iðnaö- arráðherra vill að þorskkvófinn verði aukinn úr 165 þúsund tonn- um í 200 til 220 þúsund tonn. Bylgjan skýrði frá þessu. Veðurstofustjóri gerir ráö fyrir að þjónusta Veðurstofunnar við almenning taki mikilum breyt- ingum á næstunni. Sítmkvæmt RUV verður þjónustunni skipt upp miöaö við þarfir og hún jafnvel seld. notendanna Bakarí og verslanir Sveins bak- hafa verið seid ráðgjöfum fAlrlr em Sveinn fékk íðastliöið haust tU liðs tii að við sig endur* kipuleggja fyrirtækið. Stöð tvö kýröi frá þessu. Miklar annir hafa verið á siysa- deUd Borgarspítalans að undan- fómu vegna vegfarenda sem hafa dottið og beinbrotnaö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.