Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1994, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 1994
9
Skotið var á
forseta frans,
Akbar Rafsanj-
ani jwgar hann .
hélt ræðu í Te-
heran í síðustu
viku að þvi er ;
íranska út-
varpiö greindi
frá nú nýlega. Einn maður var
handtekinn fyrir verknaðinn og
þar aö auki 20 manns til viðbótar
sem grunuð eru um að hafa átt
aðild að tilræðinu.
Aö því er íranska fréttastofan
IRNA greinir frá eru Bandai-íkin
og ísrael grunuö um að hafa staö-
ið að baki verknaðinum.
Rafsanjani, sem var að halda
ræðu í tilefhi af 15 ára afmæli
írönsku byitingarinnar, lifði
einnig af morðtilræði árið 1979
þegar hann var einn af nánustu
samstarfsmönnum Ayatollah
Khomeini.
utanheimili
stjórnarleiðtoga
Miðaldra Japani kveikti í sjálf-
um sér fýTÍr utan heimiii ieiðtoga
eins af stjómarílokkum Japans á
mánudag.
Maðurínn, sem hellti eldfimum
vökva yfir sig, var fluttur á spít-
ala en ekki var hægt að bjarga
honum.
Ekki hafa verið borin kennsl á
manninn og ekki er vitað hvers
vegna hann framdi verknaðinn.
Stiómarleiðtoginn var hins vegar
ekki heima þegar atburðimmn
átti sér stað.
„eiskanmín“
Nítján ára stúlka, sem kærði
samstarfsmann sinn fyrir kyn-
ferðislega áreitni, tapaði máli
sínu fyrir rétti í Exeter á Eng-
landi fyrir skömmu. Maðurinn,
sem var fimmtugur og frá Norð-
ur-Englandi, hafði þann sið aö
kalla allar konur „ástin mín“ og
„elskan mín“ og klappa þeim
ávallt á axlimar. Þetta fór mikið
i taugarnar á ungu stúlkunni sem
sagöi að lokum upp vinnunni
vegna ástandsins. Hún ákvað því
: næst að kæra manninn.
Rétturhm sýknaði manninn á
þeim forsendum að ákærumar
gegn honum væra smávægilegar
og ekki væri hægt að banna
manninum að tala og nota orð
sem hann hefði alla tíð notað.
Málsérfræðingur, sem var lát-
inn koma fyrir réttinn, sagði aö
orð eins og „elska" og „ástin"
væri almennt notuð á Norður-
Englandi án þess að þau þættu
móðgandi fyrir konur.
efnifyrirkónga-
Maöurinn
sem réðst að
Karli Breta-
prinsimeðúða-
brúsa í heiin-
sókn hans á |
Nýja-Sjálandi á
mánudag situr
núábakviðlás
og slá. Koraið hefur í Jjós að í
brúsanum, sera maðurinn var
meö, var saklaust lyktareyðandi
efni en samkvæmt manninum
vildi hann hreinsa „skítalyktina"
sem væri af kóngafólkinu.
Maðurinn er mikill andstæð-
ingur konungdæma og kastaði
meðal annars hrossaskít að bif-
reiö Elisabetar Englandsdrottn-
ingar þegar hún var i opinberri
heimsókn á Nýja-Sjálandi fyrir
nokkrum áram. Reuter
Dularfullt lát bresks þingmanns:
Fannst nakinn
með sokkabönd
Lögreglan í Bretlandi rannsakar
nú dularfullt lát þingmanns breska
íhaldsflokksins, Stephens Milhgans,
en lík hans fannst bundið og keílað
í íbúð hans í London á mánudag.
Lögreglan hefur ekki viljað gefa
nánari upplýsingar um máhð en hef-
ur lýst því yfir að það sé í alla staði
gransamlegt. Breska pressan greindi
frá því í gær að Milligan hefði fund-
ist nakinn í sokkum og sokkabönd-
um. Þá sagði í breska blaöinu Guar-
dian að Milligan gæti hafa verið
kyrktur.
Það var ung kona sem hringdi í
lögregluna og tilkynnti látið og alls
Uðu átta klukkustundir frá því að
líkið fannst og þar tíl lögreglan
greindi fjölmiðlum frá því hver mað-
urinn væri. Breska pressan tilkynnti
síðar að konan, sem hringdi í lögregl-
una, hefði verið ritari MiUigans.
Lögreglan greindi frá því að lík-
skoðun á MUligan hefði ekki gefið
nægar upplýsingar og að líkið yrði
skoðað nánar á næstu dögum tii að
úrskurða um dánarörsök.
MiUigan, sem var fyrrum blaða-
maður, var kosinn á þingiö í apríl
1992 í Eastleigh í Hampshire en hafði
nýlega verið hækkaður í tign innan
þingflokksins. MiUigan var 45 ára
gamaU og ógiftur.
MáUð hefur valdið mikUU ókyrrð á
breska þinginu og getur varla komið
á verri tíma fyrir stjóm Johns Maj-
ors forsætisráðherra sem sætt hefur
mikiUi andstöðu. Lát MiUigans verð-
ur til þess að efna verður til auka-
kosninga í kjördæminu.
íhaldsflokkurinn hefur aðeins 17
sæta meirihluta sem stendur og er
að missa núkinn stuðning sam-
kvæmt skoðanakönnunum. Líklegt
þykir því að þeir muni missa þing-
sætið.
Reuter
sem fannst látinn i íbúð sinni á mánudag. Málið þykir i alla staði grunsam-
legt og iögreglan hefur lítið viljað láta hafa eftir sér. Simamynd Reuter
Útlönd
iöndunum
Rússneski ut-
anríkisráð-
herrann An-
drei Kozyrev,
sagði í nýlegu
blaöaviðtali í
Newsweek að
Vesturíöndin
yröu að mót-
mæla þjóðar-
hreinsunum þehn sem ættu sér
stað i Eystrasaltslöndunum ella
myndi fasistastjórn spretta upp í
Rússlandi.
: Hann sagði að í Lettlandi væri
nu reynt að flytja þúsundir
manna til Rússlands. „Ég kaita
þetta þjóðarhreinsanh- og ekkert
annað," sagöi Kozyrev.
Hann sakaði einnig vesturveld-
in um að loka augunum fyrir
vanda Rússa sem búa í Eystra-
saltsríkjunum en þau hlutu sjálf-
stæði árið 1991.
Vinnuvikan í
Kínastyttum
Vinnuvika kínverskrar alþýðu
var nýlega stytt úr 48 tímum nið-
ur í 44 tíma eöa um hálfan dag.
Þetta þýðir að nu eru Kínverjar
meö fri eftir hádegi á laugardög-
um en það er í l'yrsta skipti sem
svo er síðan kommúnistar tóku
völd árið 1949.
Breytingin, sem gerð er í fram-
haldi af samningum um lág-
markskaup, tekur gildi þaim 1.
mars næstkomandi. Þrátt fyrir
þessar breytingar eru Kínverjar
erm með lengstu vinnuviku sem
tíðkast þvi aö flest iðnaðarríki
hafa stytt vinnuvikuna niður í 40
stundir eða minna.
Kannanir voru gerðar á vinnu-
viku Kínverja og afköstum þeirra
og þá kom í ljós að framleiðslan
var ekki endiiega meiri þó svo aö
stundirnar væru fleiri.
Einnig þótti sýnt aö löng vinnu-
vika hefði mjög neikvæö áhrif á
fólk og margir Kínverjar höfðu
lengi kvartað undan því að þurfa
að virrna svona mikið.
Reuter
30 ár síðan Bítlarn-
ir komu til Ameríku
Bandaríkjamenn héldu sérstaka
hátíð sl. mánudag en þá vora hðin
30 ár síðan Bítlarnir heimsfrægu
komu fyrst til Bandaríkjanna og
gerðu allt vitlaust.
Yfir tvö þúsund ungar og öskrandi
táningstúlkur tóku á móti Bítlunum
frá Liverpool þegar þeir komu til
Bandaríkjanna árið 1964 og þeir
hlutu strax miklar vinsældir.
Bítlamir komu fram í einum fræg-
asta skemmtiþætti Bandaríkjanna á
þessum tíma, „The Ed Sullivan
Show", sem taíið var að um 73 miilj-
ónir manna um allan heim horfðu
á, og urðu þar með heimsfrægir á
einni nóttu.
Þeir Paul McCartney, George
Harrison og Ringo Starr era sagðir
vera í upptökustúdíói þessa dagana
að hljóðrita sitt fyrsta efni saman
síðan Bítlamir hættu. Margir bíða
eflaust spenntir eftir að sjá útkom-
una.
Þúsundir Bítlaaðdáenda um heim
allan syrgja enn dauða bítilsins
Johns Lennons sem skotinn var fyrir
utan heimih sitt í New Yorkárið 1980
af aðdáanda.
Reuter
Bítlarnir komu fram i bandaríska skemmtiþættinum „The Ed Sullivan Show“
árið 1964 og hlutu heimsf rægð á einni nóttu. Simamynd Reuter
TÆKNI
///////////////////////////////
AUKABLAÐ UM
HLJÓMTÆKI
Miðvikudaginn 23. febrúar mun aukablað um hljómtæki
fylgja DV. Blaðið verður fjölbreytt og efnismikið en í því
verður fjallað um flest það er viðkemur hljómtækjum.
í blaðinu verða upplýsingar um gerð og gæði hljómtækja.
Má nefna greinar um geislaspilara, magnara, sérstaklega
umhverfismagnara, þróun í gerð snældutækja og vasa-
diskóa (DCC og MD), ýmsar gerðir hátalara og minihljóm-
tækjastæður. Einnig verður fjallað um samsetningu hljóm-
tækjasamstæðna, útvarpsmagnara, útvörp og ýmsa fylgi-
hluti í hljómtæki. Loks verður fjallað sérstaklega um hljóm-
tæki í bíla og þróunina í þeim efnum.
Þeim sem vilja koma á framfæri efni í blaðið er bent á að
senda upplýsingar til ritstjórnar DV, Hauks Lárusar Hauks-
sonar, fyrir 14. febrúar.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu
aukablaði um hljómtæki, vinsamlega hafi samband við
Björk Brynjólfsdottur, auglýsingadeild DV,
hið fyrsta í síma 63 27 23.
Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur auglýsinga er
fimmtudagurinn 17. febrúar.
ATH.I Bréfasími okkar er 63 27 27.
Þverholti 11 - 105 Reykjavík
Sími 91 -632700 - Símbréf 91 -632727