Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1994, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1994, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 1994 3 Fréttir Kem ekki sem jólasveinn - sagöi Sighvatur Björgvinsson iðnaðarráöherra á fundi með starfsmönnum Shppstöðvarinnar Odda á Akureyri Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri; Sighvatur Björgvinsson iðnaðar- ráðherra gerði starfsmönnum Shpp- stöðvarinnar Odda það ljóst í upp- hafi fundar þeirra í gærmorgun að hann kæmi ekki til þeirra með nein- ar töfralausnir á vanda fyrirtækis- ins. „Ég kem ekki hér sem neinn jóla- sveinn nema e.t.v. í neikvæðri merk- ingu þess orðs,“ sagði ráðherrann. Sighvatur ræddi vítt og breitt um vanda skipasmiðaiönaðarins hér á landi, sem hann sagði vera vel sam- keppnisfæran við erlendan iðnað ef horft væri framhjá ríkisstyrkjum s.s. í Póllandi, enda hefðu menn náð ár- angri í hagræðingu og framleiðslu- aukningu. Þá gerði Sighvatur grein fyrir SEunþykkt ríkisstjórnarinnar vegna vanda íslensks skipasmíðaiðn- aðar og erfiðrar samkeppnisstöðu gagnvart ríkisstyrktum skipasmíð- um erlendis. Sighvatur sagðist geta staðfest að helstu kröfuhafar í eignir Slippstöðv- arinnar Odda, Landsbanki íslands, Iðnlánasjóður og Iðnþróunarsjóður, ætluðu ekki að láta koma til rekstr- arstöðvunar slippstöðvarinnar á meðan verið væri að leita aö nýjum aöilum til að taka við rekstrinum. Það hefði óhjákvæmilega gerst þegar stöðin hefði verið sett í gjaldþrot en nú væri tryggt að reksturinn stöðv- aðist ekki heldur yröi unnið sam- kvæmt þeirri verkefnastöðu sem fyr- ir hendi væri. „Við getum ekki búið til nein verk- efni heldur verðum við að laga okkur að því sem við fáum og höfum. Eg vona að okkur takist á þeim grund- velh að byggja okkur aftur upp og komast á það skrið að hér verði skipaiðnaður eitthvaö til móts við það sem við höfðum fyrir 15 árum,“ sagði Guðmundur Tulinius, fram- kvæmdastjóri Shppstöðvarinnar Odda, eftir fundinn. Hákon Hákonarson, formaður Fé- lags málmiðnaðarmanna á Akureyri, var á fundinum og sagði í lok hans; „Ég hefði viljað sjá á þessum fundi að ráðherrann tæki meira af skarið varðandi þetta fyrirtæki en ég hef hins vegar skilning á því að hann er í vanda með að gera það. Ég vona að þessi koma hans og fulgdarmanna hans hingað brýni hann til frekari aðgerða enda er nauðsyn á skjótum aðgerðum," sagði Hákon. Sighvatur Björgvinsson iðnaðarráðherra á fundi með starfsmönnum Slipp- stöðvarinnar Odda á Akureyri í gær. DV-mynd gk. Sighvatur Björgvmsson iönaöarráðherra: —- EIMSKIP------------------ AÐALFUNDUR HF. EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS verður haldinn í Súlnasal Hótels Sögu fimmtudaginn 10. mars 1994 og hefst kl. 14:00. ---------- DAGSKRÁ---------- 1. Aðalfundarstörf samkvæmt 14. grein samþykkta félagsins. 2. Tillaga félagsstjórnar um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Utgerðarmenn telja sig eiga Fiskveiðasjóð - ráðherrar geta ekki breytt stefiiu sjóðsins í lánamálum til skipasmíðaverkefiia erlendis Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík frá 7. mars til hádegis 10. mars. Reykjavík, 8. febrúar 1994. STJÓRN HF. EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri: „Útgerðarmenn telja sig eiga Fisk- veiðasjóð og þótt hér sé um opinber- an sjóð að ræða eru lög hans þannig að ríkisvalcöð hefur minnihluta full- trúa í stjóm hans en útgerðarmenn meirihluta og ráða því miklu,“ sagði Sighvatiu- Björgvinsson iðnaðarráð- herra á fundi með starfsmönnum Slippstöðvarinnar Odda hf. á Akur- eyri í gær. Sem aðgerð til hjálpar skipasmíðaiðnaðinum hefur verið rætt um að beita Fiskveiðasjóði þannig að sjóðurinn lánaði ekki til verkefna í skipasmíðaiðnaöi erlendis í einhvern tíma. Fyrirspurnir starfs- manna Slippstöðvarinnar Odda til iðnaðarráðherra endurspegluðu líka það áht þeirra að sjóðurinn standi í veginum þegar verið er að ræða um aðstoð til skipasmíðaiðnaðarins. Sighvatur sagði að sjóðurinn hefði lánað jafnt til innlendra sem er- lendra verkefna í skipasmíðaiðnaði til ársins 1991 eða 65% af kostnaði. Þá hefði hlutfalhð gagnvart verkefn- um erlendis hins vegar verið lækkað í 46%. „Síðan gerist það á sama tíma og við erum að reyna að bjarga því sem bjargað verðm- af þessum iðnaði að Fiskveiðasjóður, án þess að gera um það viðvart til stjómvalda, breyt- ir þessu aftur og hækkar lánin til verkefna sem eru unnin erlendis upp í 60%,“ sagði Sighvatur á fundinum. Hann sagði að þótt hann, fjármála- ráðherra og sjávarútvegsráðherra næðu um það samkomulagi að Fisk- veiðasjóður lánaði ekki fé til verk- efna erlendis, t.d..í tvö ár, heföu þeir ekki vald til að koma þeirri breytingu í gegn. Sjóðurinn væri sjálfstæður með sjálfstæða stjórn og lagabreyt- ing yrði að koma til. í lokin bætti Sighvatur því svo við að erfitt yrði á Alþingi því útgerðarmenn myndu aö koma þeirri lagabreytingu í gegn beijast gegn því af alefli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.